Morgunblaðið - 06.03.1981, Page 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. MARZ 1981
Stelpur á upptökuheimili
Aristóíanes, leiklistarklúbbur
Fjðlbrautaskóians
í Breiðholti:
SJÖ STELPUR
Eftir Erik Torstensson.
býðing: SÍRmundur Örn
Arngrimsson.
Leikstjóri: Jón Júliusson.
SýninKarstaður: Breiðholts-
skóli.
Það eru níu ár síðan Þjóðleik-
húsið sýndi Sjö stelpur undir
leikstjórn Bríetar Héðinsdóttur.
Leikritið fékk góðan hljóm-
grunn, enda vandamálaleikrit af
þessu tagi að ryðja sér til rúms
og hafa verið fyrirferðarmikil
síðan.
En Sjö stelpur er á engan hátt
úrelt verk. Það á jafn brýnt
erindi nú og þegar Erik Thor-
stensson sauð það upp úr dagbók
sinni, en hann hafði kynnst af
eigin raun stúlkum á upptöku-
heimili. Stelpurnar sjö eru mis-
jafnlega illa farnar eftir þær
kröfur sem þjóðfélagið og for-
eldrarnir hafa gert til þeirra.
Lelklist
eftir JÓHANN
HJÁLMARSSON
Sumar eru bara dálítið ruglaðar,
ráðþrota, aðrar eru á hættulegu
stigi, ofnota áfengi og eiturlyf.
Eins og gefur að skilja hefur
Jóni Júlíussyni ekki tekist að
sneiða hjá ýmsum vanköntum
skólasýninga. Viðvaningsbragur
er augljós. En stúlkurnar léku af
lífi og sál. Með átakanlegum
hætti voru örlög þeirrar stúlku
sem verst er farin leidd í ljós.
Ingveldur Ólafsdóttir náði að
vísu ekki æskilegum tökum á
hlutverkinu, en vann á þegar leið
á sýninguna og var túlkun henn-
ar sannfærandi í lokin. Margrét
Magnúsdóttir komst nokkuð vel
frá hlutverki Maju. Hlutverk
hinna stúlknanna voru í höndum
Elsu S. Þorvaldsdóttur, Elísa-
betar Ólafsdóttur, Kolbrúnar
Ingibergsdóttur, Elínar Símon-
ardóttur og Elsu Maríu Ólafs-
dóttur.
Gísli Reynir Erlingsson lék
yfireftirlitsmanninn og gerði
það á óþvingaðan hátt. Anna
Hansdóttir var Nilla gæslukona.
Egill Ólafsson dró upp skoplega
mynd vandræðalegs gæslu-
manns sem stelpurnar sjá auð-
veldlega við. Gæslumanninn
Svein lék Sigurgeir Kristjánsson
og var leikur hans hinn geðfelld-
asti.
Ekki veit ég hvort annað
skólaleikfélag hefur glímt við
Sjö stelpur. En um árangur
leiklistarklúbbs Fjölbrauta-
skólans í Breiðholti má segja að
hann hafi verið mjög viðunandi
eftir aðstæðum. Stytting og
breytingar verksins eru að mínu
mati til bóta og eðlilegar.
Sjö stelpur eiga að vekja til
umhugsunar og benda á vanda
sem verður enn almennari og
geigvænlegri. Auk þess sem
verkið er laglega samið er það
þörf áminning fyrir alla, ekki
síst foreldra.
Mikið eiturhneyksli í
uppsiglingu á Skáni
Stokkhólmi. 4. marz. fri GuAflnnu Rannarsdóttur fréttaritara Mbl.
MIKIÐ mengunarmál og eiturhneyksli virðist nú vera i uppsiglingu á
Skáni i Suður-Sviþjóð. Komið hefur i Ijós að fyrirtæki, eða lítil
verksiniðja, sem sér um að króma biiavarahluti og annað. hefur hellt
niður krómmenguðu vatni og krómsýru, trúlega i mörg ár. Óttast er
að krómið, sem er mjög hættulegt efni, hafi komist út i grunnvatnið á
nærliggjandi svæði.
Verksmiðjan, sem er til húsa í
gamalli stórri sykurverksmiðju,
hefur dælt krómvatninu niður í
undirgöng í kjallara og önnur
neðanjarðarútskot, og fer nú fram
allsherjarrannsókn á verksmiðju-
svæðinu. Lögreglan lokaði verk-
smiðjunni í síðustu viku, og í gær
fundust svo 125 kíló af hinu
banvæna eitri cýaníði, falin í
gömlum skúr, en það er nóg til að
drepa 40—50.000 manns. Verk-
smiðjan hafði ekki leyfi til að hafa
slíkt eitur undir höndum.
Það eru aðeins nokkur ár síðan
upp komst um mesta eitur-
hneyksli Svíþjóðar til þessa, en
þar átti efnaverksmiðjan BT
Kemi, sem í mörg ár eitraði
grunnvatnið og jörðina á stóru
svæði. Mengunin var gífurleg og
hafði alvarlegar afleiðingar í för
með sér. Margar konur misstu
fóstur, og ofnæmi og alls kyns
útbrot lögðust á fólk í nágrenni
við verksmiðjuna. Gróður og
grænmeti eyðilagðist einnig í stór-
um stíl.
Það var ung sænsk húsmóðir
sem á eigin spýtur kom upp um
eiturhneykslið við BT Kemi.
Henni fór ekki að standa á sama
um öll fósturlát og veikindi þorps-
búa, og hóf markvissar athuganir
og njósnir á verksmiðjusvæðinu.
Þar með komst skriður á málið
og BT Kemi var lokað fyrir fullt
og allt, og verksmiðjan að lokum
sprengd í loft upp eftir að tugir
eiturtunna höfðu verið grafnar úr
jðrðu í nágrenni við verksmiðjuna.
1891-1981
Málefni aldraðra
Verzlunarmannafélag Reykjavíkur heldur borgarafund
um málefni aldraðra að Hótel Sögu, Átthagasal,
laugardaginn 7. marz klukkan 14.00.
Fundurinn er öllum opinn.
Þeirra hlutskipti í dag, verður okkar á morgun.
Hvernig búum við að þeim sem arfleiddu okkur að velferðarþjóðfélaginu?
Eru kjör þeirra í samræmi við hugmyndir æskunnar um eigið ævikvöld?
Frummælendur verða:
Skúli Johnsen
borgarlæknir.
Adda Bára Sigfúsdóttir,
formaður heilbrigðisráðs
Reykjavíkurborgar.
Albert Guðmundsson
aiþingismaður.
Ásthildur Pétursdóttir
húsmóðir.
Pétur Sigurðsson
alþingismaður.
Enn hefur Svíum ekki tekist að
losna við eiturtunnurnar, en
kostnaðurinn við rannsókn og
hreinsun BT Kemi-svæðisins, varð
um 40 milljónir sænskra króna.
Enn er ekki vitað hversu víðtæk
mengunin er hjá krómfyrirtæk-
inu, sem heitir Plateline, og er
fyrir sunnan Málmey. En eitur-
fundirnir vaxa með degi hverjum,
og komið hefur í ljós, að flestir,
sem unnið hafa þar, hafa fengið
slæm sár, sem gróið hafa bæði
seint og illa.
Mikill óróleiki hefur gripið um
sig í nærliggjandi héraði, og flest
bendir til þess að margt eigi enn
eftir að koma í ljós á verksmiðju-
svæðinu þegar lögreglan í næsta
áfanga brýtur upp verksmiðju-
gólfið og grefur upp lóðina.
Meðferð eiturs í verksmiðjum
hefur verið gagnrýnd mjög, en
hingað til hefur það borgað sig að
brjóta gegn þeim fyrirmælum sem
fyrir hendi eru, og einungis hefur
verið um að ræða eins árs fangelsi
fyrir slík brot. Og brot sem varða
mengun fyrnast samkvæmt nú-
gildandi reglum eftir tvö ár.
Nú liggja fyrir sænska þinginu
tillögur sem að segja að fyrning
slíkra mála eigi aö koma til greina
fyrst eftir fimm ár, og að tveggja
ára fangelsi liggi við slíkum brot-
um.
Tveir íslending-
ar í hópi frumntæl-
enda á norræna
lögfræðiþinginu
XXIX. norræna lögfræðingaþing-
ið verður haldið i Stokkhólmi
19.—21. ágúst nk. Á þinginu
verða til umræðu mörg veigamik-
ii lögfræðileg viðfangsefni. Má.
m.a. nefna þessi efni:
Tjáningarfrelsi og þagnar-
skylda opinberra starfsmanna,
fjármál hjóna og fólks í óvígðri
sambúð, réttindi sjúklinga, lög-
fræðileg vandamál er varða
vinnustaði, almannaréttindi,
vernd þeirra og takmarkanir, rétt-
arvitund og refsiverðleiki, réttar-
staða útlendinga, ágreiningsefni,
sem eigi varða mikilvæga hags-
muni og hvernig þau verði leyst
með sem skilvirkustu móti, laga-
ábyrgð stjórnarmeðlima í félög-
um, andmæli almennings og lög-
fræðileg vandamál, er þeim tengj-
ast, og svo efnið frelsi, réttarör-
yggi og virk stjórnun þjóðfélags
og lögfræðileg vandamál er af því
spretta.
Meðal frummælenda eru tveir
íslenzkir lögfræðingar, Guðrún
Erlendsdóttir dósent og Hallgrím-
ur Dalberg, ráðuneytisstjóri.
Tilkynningar skulu hafa borist
fyrir 31. mars til Björns Helgason-
ar hæstaréttarritara, sem veitir
nánari upplýsingar, og skulu
þátttökutilkynningar ritaðar á
sérstök eyðublöð, sem fást hjá
honum.
Formaður stjórnar íslands-
deildar norrænu lögfræðinga-
þinganna er dr. Ármann Snævarr
hæstaréttardómari.
(Fréttatilkynning.)
MYNDAMÓT HF.
PRENTMYNDAGERÐ
AÐALSTRJCTI • - SÍMAR: 17152- 17355