Morgunblaðið - 06.03.1981, Síða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. MARZ 1981
Valsmenn vel að sigri komnir
— sigruöu UMFN í stórkostlegum úrslitaleik
Valsmenn urðu bikarmeistarar í körfuknattleik fyrir keppnistímahil-
ið 1980—1981 í Kærkvöldi, er liðið sigraði íslandsmeistara Njarðvíkur
90 — 84 í æsispennandi úrslitaleik í LauKardalshöllinni í gærkvöldi. í
hálfleik var staðan 41—33 fyrir Valsmenn, sem höfðu forystu allan
leikinn. Þetta var bikarleikur eins og þeir gerast bestir, hraði, harka
og síðast en ekki síst, stórgóður körfuknattleikur hjá háðum liðum,
sérstaklega þó hjá Valsmönnum. sem áttu sigurinn meira en skilið.
Lið UMFN stóðst Val ekki snúning að þessu sinni, en liðið á hrós skilið
fyrir gífurlega baráttu allt til leiksloka. Tvivegis vann liðið upp
10—12 stiga forystu Vals og slikur var hamagangurinn síðustu
mínúturnar, að segja má að sigurinn hafi ekki verið öruggur fyrr en
flautað var til leiksloka.
I fyrri hálfleik virtist allt benda
til þess að Valsmenn myndu vinna
nokkuð öruggan sigur. Liðið náði
strax forystu og smájók hana þar
til að munaði 12 stigum nokkrum
sinnum síðari hluta hálfleiksins.
Tölur eins og 33—21, 35—23 og
39—27 mátti sjá á töflunni.
Þokkalegur endasprettur hjá
UMFN í fyrri hálfleik, minnkaði
muninn í 8 stig.
Njarðvíkingar breyttu vörn
sinni í síðari hálfleik, komu langt
út á gólf til að trufla sóknarleik
Vals og bar það árangur í fyrstu.
Valsmenn gerðu þá nokkrar skyss-
ur og voru óheppnir í bland og
Suðurnesjamennirnir beittu
skyndisóknum vægðarlaust. Á
þennan hátt skoraði lið UMFN 8
af tíu fyrstu stigum síðari hálf-
leiks og var staðan allt í einu orðin
43—51. Smám saman tóku Vals-
menn sig saman í andlitinu á
nýjan leik, en fyrst um sinn gerðu
þeir ekki betur en að halda 2—5
stiga mun, sem er eins naumt og
hugsast getur í körfuknattleik.
Auk þessa, voru Valsmenn komnir
í alvarleg villuvandræði, þannig
voru bæði Torfi og Kristján komn-
ir með 4 villur um miðjan siðari
hálfleik og aðrir voru með 2—3
stykki. Var bagalegt fyrir Vals-
menn að geta ekki beitt þessum
sterku leikmönnum sem skyldi. Á
7. mínútu síðari hálfleiks var
forysta Vals aftur komin niður í
næstum ekki neitt, 55—54, en þá
fór liðið að síga smám saman
fram úr á nýjan leik, þannig
munaði 11 stigum þegar rúmar 6
mínútur voru til leiksloka, 71—60.
9 stiga munur var þegar 3 mínútur
voru eftir, 79—70, en á skömmum
tíma minnkaði bilið niður í 6 stig.
Og síðan fjögur stig á síðustu
tveimur mínútunum. Danny
Shouse var sérstaklega atkvæða-
mikill í liði UMFN þennan loka-
kafla, en Valsmenn voru menn til
að svara hverri körfu og því var
sigrinum fleytt í höfn þrátt fyrir
hetjulega baráttu liðs UMFN til
þess að tryggja sér bikarinn.
Hefði ekki verið amalegt aö stilla
honum upp við hlið íslandsbikars-
ins sem liðið tryggði sér fyrir
skömmu. En það gekk ekki upp að
þessu sinni, Valsmenn reyndust
ofjarlar íslandsmeistaranna og
höfðu bikarinn með sér að Hlíðar-
enda.
Lið Vals lék á köflum frábær-
lega vel í gærkvöldi, bæði í sókn og
vörn. í vörninni áttu leikmenn
Njarðvíkur enga möguleika ef skot
þeirra geiguðu. Þeir Pétur Guð-
mundsson og Brad Miley gnæfðu
hátt yfir þá og hirtu næstum öll
fráköstin. Auk þess léku aðrir
Valsmenn vörnina af mikilli
grimmd, kannski einum of mikilli
grimmd, því villupúkinn herjaði á
marga leikmenn liðsins í síðari
hálfleik. Pétur og Brad léku báðir
mjög vel í sókn, einkum Pétur,
sem átti oft hreint ótrúlegar
sendingar á samherja sína, auk
þess sem hann skoraði flest stig
Valsmanna, eða 20 talsins. Annars
var það jafnræði leikmanna sem
var helsti styrkleiki Valsmanna að
þessu sinni, eigi færri en fimm
leikmenn skoruðu yfir einn tug
stiga. Torfi og Kristján voru mjög
drjúgir og Ríkharður var hrein-
lega óstöðvandi síðari hluta leiks-
ins, átti nokkur mislukkuð skot
snemma í leiknum, en þegar hann
hitti loks, fór allt ofan í sem á
eftir fylgdi. Þá má til að geta Jóns
Steingrímssonar, en mikið mæddi
á honum í villuvandræðum þeirra
Torfa og Kristjáns. Var Jón því í
eidlinunni næstum allan leikinn
og var mjög traustur þó ekki
skoraði hann mikið.
Danny Shouse bar höfuð og
herðar yfir aðra leikmenn í liði
UMFN og sá eini sem eitthvað
kvað að í raun og veru í sóknar-
leiknum. Danny er svo atkvæða-
mikill, að við liggur að það eina
sem aðrir leikmenn UMFN geri í
sókn sé að senda á Danny. Oft í
vetur hefur hann yljað
áhorfendum og félögum sínum
með frábærum sendingum milli
þess sem hann skoraði 8—10 stig í
röð. Nú sást ekkert slíkt og liggur
við að hann verði sakaður um
eigingirni. En góður var hann,
meira að segja stórkostlega góður.
Varnarleikurinn var vel útfærður
hjá UMFN, pressuvörn liðsins í
síðari hálfleik sló Val nokkuð út af
laginu á köflum og barátta leik-
manna var mikil. Gengu þar
fremstir fram Guðsteinn Ingi-
marsson, Jónas og Gunnar. Gunn-
ar, ásamt Árna Lárussyni voru
þeir einu sem eitthvað sýndu í
sókn að auki, ef Danny er undan-
skilinn. Segja má, að Árni hafi
leikið mjög vel. En það segir meira
en mörg orð um lið UMFN, að
renna augunum yfir stigaskor
einstakra leikmanna.
Stig Vals: Pétur Guðmundsson 20,
Torfi Magnússon 19, Ríkharður
Hrafnkelsson 18, Kristján Ág-
ústsson 14, Brad Miley 13, Jón
Steingrímsson 4 og Jóhannes
Magnússon 2 stig.
Stig UMFN: Danny Shouse 43,
Árni Lárusson 12, Gunnar Þor-
varðarson 11, Þorsteinn Bjarna-
son 7, Jónas Jóhannesson 5, Guð-
steinn Ingimarsson 4 og Jón Viðar
Matthíasson 2 stig.
Jón Otti og Siggi Valur sáu um
dómgæsluna og var hún í heild í
lagi. Helst ber að kýta í vott af
ónákvæmni og er þá átt við, að
dæma villu á varnarmann þegar
virtist vera um borðliggjandi
ruðning að ræða, dæma síðan ekki
neitt á svipað nokkru síðar og
dæma loks ruðning enn síðar í
leiknum þegar svipað atvik var á
ferðinni. —gg.
„Var mjög spenntur“
— sagði Torfi Magnússon fyrirliði
„Þetta var geysilega skemmti-
legur og spennandi leikur, að
minnsta kosti var ég mjög
spenntur. En þetta fór nokkurn
veginn eins og við reiknuðum
með og vonuðumst til, en ég var
búinn að spá okkur fjögurra
stiga sigri,“ sagði Torfi Magn-
ússon fyrirliði Vals i spjalli við
Mbl. eftir leikinn. Blm. hafði
eitthvað á orði að sigurinn hafi
verið öruggur, en Torfi sagði:
„öruggur? Fannst þér það? Það
fannst mér ekki, þetta var
hörkuspennandi allt til leiks-
loka, enda almennilegir mót-
herjar.“
„Pressuvörn þeirra kom okkur
dálítið í opna skjöldu um tíma,
en við lékum með nýju kerfi í
sóknarleiknum og hann var allur
hreyfanlegri og hraðari en áður.
Nýja kerfið gekk mjög vel upp,“
sagði Torfi fyrirliði að lokum.
„Stórgóður leikur beggja liða“
„Þegar upp var staðið, var það
sterkari liðsheild sem færði
okkur sigur. Það var ekki hægt
að ganga að einum leikmanni og
segja honum að sigur hafi ekki
unnist vegna þess að hann skor-
aði ekki sinn skammt af stigum."
sagði Pétur Guðmundsson, sem
var að öðrum ólöstuðum besti
maðurinn á vellinum.
Pétur hélt áfram: „En þetta var
stórgóður leikur af beggja hálfu
og æsispennandi. Við náðum
okkur vel á strik og lið Njarðvíkur
var aldrei skilið eftir, þeir voru
alltaf aftan í okkur og gáfu okkur
engan frið. Sigurinn var því ekki
öruggur fyrr en að flautan gall.
Það hefði átt að koma okkur í
opna skjöldu þegar þeir breyttu
varnarleik sínum og það gerði það
um tíma, en við vorum fljótir að
laga okkur að hinum breyttu
aðstæðum og náðum auk þess upp
mjög góðum varnarleik. Brad átti
góðan leik gegn Danny, en þó var
ég hissa hve vel Danny hitti yfir
Brad og sýnir það hversu erfitt er
að stöðva Danny. Jú, jú, Danny
skaut mikið, en ég myndi ekki
álasa honum fyrir það ef ég væri
þjálfari hans, hann bar af í liði
þeirra eins og gull af eiri,“ sagði
Pétur að lokum.