Morgunblaðið - 22.03.1981, Side 16

Morgunblaðið - 22.03.1981, Side 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. MARZ 1981 Erfið leikmynd í Snorra Þeir Gunnlaugur og Snorri Sveinn voru á einu nrtáli, um að leikmyndin í þessari kvikmynd hefði verið óvenju erfið viðfangs. Kæmi það einkum til af því að nær ekkert væri til hérlendis af munum frá söguöld, og því hefði ekki verið unnt að gera muni og áhöld eftir beinum fyrirmyndum nema að óverulegu leyti. Það sem til er í Þjóðminjasafn- inu af vopnum og öðrum áhöldum frá þessum tíma var þó að sjálf- sögðu skoðað vandlega og notað eftir föngum, og ýmsir munir voru fengnir að láni frá Noregi. Þar eru bæði til fleiri fyrirmyndir, og eins voru gerðir búningar og smíðuð vopn vegna myndarinnar um Sverri konung, sem meðal annars hefur verið sýnd hér í sjónvarpi. Þeir Gunnlaugur og Snorri voru þó sammála um að gerð leikmynd- ar, búninga og muna í myndina hefði verið skemmtileg vinna, og um margt óvenjuleg. Smíduöu 30 axir og 30 spjót Fyrir myndina voru smíðuð hér 30 axir, og 30 spjót, sem notuð eru við hin ýmsu tækifæri í myndinni. Einnig voru gerð sverð, en þau voru þó til frá því kvikmyndin um Lénharð fógeta var gerð, og eins komu vopn frá Noregi. Vopnin eru í flestum tilvikum gerð þannig, að mót eru gerð eftir fyrirmyndum á Þjóðminjasafni, en síðan steypti Málmsteypan Hella vopnin eftir mótunum. I flestum tilvikum var notað ál, sem er mun léttari málmur en járnið sem sögualdarvopnin hafa verið gerð úr. — Ein öxi var þó höfð þyngri, úr venjulegu járni, en hún var notuð við fótarhögg í Stakk- garðsbardaga. Mikið af vopnunum skemmdist í bardagasenunum í myndinni, enda var þar oft hart barist, og vopnin ekki sterk. Þar er raunar sömu sögu að segja og um vopn forn- manna, sem oft voru gerð úr deigu og lélegu járni. Snorri Sveinn sagði það reyndar útbreidda skoð- un, að skortur á járni og stopular siglingar til landsins hafi átt mjög ríkan þátt i því að þjóðin glataði frelsi sínu til Noregskonunga á sínum tíma, þó fleira hafi að sjálfsögðu komið til. Skildir eru ekki til hér á landi frá fornri tíð, og þurfti því að leita annað að fyrirmyndum. Eru þær bæði fengnar frá Noregi, og svo úr gömlum heimildum, sem stundum segja nokkuð nákvæmlega frá gerð ýmissa vopna og verkfæra. I sambandi við bardaga og vopnaviðskipti hér á landi á öldum áður en hins vegar rétt að hafa í huga, að grjót gegndi þar ákaflega miklu hlutverki. Orrustur töpuð- ust eða unnust á því, hvor aðilinn hafði meira grjót handbært til að kasta að andstæðingunum, eins og berlega kom í Ijós hjá Þórði kakala í Flóabardaga. Útbjuggu handrit og vaxtöflur En fleira þarf að koma til í mynd um Snorra Sturluson, en vopn og vígaferli. Hans er fyrst og fremst minnst fyrir verk þau er hann skrifaði eða lét skrifa, og hafa flutt síðari kynslóðum ómet- anlega vitneskju um fyrri tíð og forna hætti á Norðurlöndum. Upphaflega hafði sjónvarps- mönnum verið sagt, að þeir gætu fengið öll þau handrit er þeir þurftu, að láni hjá Árnastofnun. Þegar til kom reyndist það þó ekki unnt, því handrit þau er um ræddi voru þýsk að uppruna, og allt annars eðlis en þau er Snorri vann að á sinni tíð. Því varð að fara þá leið að búa til ný handrit í líkingu við þau er Snorri lét skrifa. Voru þau útbúin með tréspjöldum, Vopn og vígaferli á hvíta tjaldinu Vopn þau, er Sturla Sighvatsson er látinn bera í myndinni, sverð og spjót, og til hlífðar hjálmur og skreyttur skjöldur. Spjót Sturlu er til vinstri, en frá þvi segir i Sturlungu, að það hafi verið deigt orðið i örlygsstaðabar- daga, og hafi Sturla stigið á það og rétt er það svignaði. — Sagan segir jafnframt, að þetta hafi verið spjótið Járnsiða, hið sama og Gísli Súrsson hafði átt þremur oldum fyrr. — Hitt spjótið á hins vegar að vera spjót Sighvats á Grund, er honum var gefið, silf- urslegið og mjög skrautlegt. síðar, líklega ekki fyrr en um 1600. Lopapeysur og prjónaðir vettl- ingar fundust því ekki í klæða- skápum Islendinga á þjóðveldis- öld. Munirnir fari á Þjóðminjasafnið Með greininni eru nokkrar myndir af munum þeim er notaðir voru við kvikmyndun Snorra Sturlusonar. En hvað verður nú um þessa muni, nú er kvikmyndun er lokið, og myndin brátt komin á sjónvarpsskjáinn? Því er til að svara, að þeir verða að öllum líkindum geymdir í geymslu Sjón- varpsins, sumir verða ef til vill notaðir síðar, en aðrir munu trulega þegar hafa gegnt hlutverki sínu til fullnustu. Hluti munanna hefur svo þegar verið endursendur til Noregs, eins og fyrr er að vikið. Á Þjóðminjasafninu er margt fornra muna, frá ýmsum tímum í sögu íslensku þjóðarinnar, þó fornminjar séu færri og verr farnar hér á landi en hjá flestum öðrum Evrópuþjóðum. Munirnir eru flestir í brotum, hlutar úr áhöldum og vopnum og klæðisbút- ar. Fátt er þar af heillegum munum. Æskilegt gæti því verið að fá til safnsins eftirlíkingar af fornum minjum, gerðar af mikilli vandvirkni og eftir því sem best er vitað um vopn, verjur og klæðnað fornmanna. Þjóðminjasafnið yrði tilkomumeira heim að sækja ef þar stæðu í fullum herklæðum styttur (gínur) af þeim Snorra Sturlusyni og Sturlu Sighvatssyni, sen nú ætti að vera auðvelt að koma í kring með samkomulagi Sjónvarps og Þjóðminjasafns. Hugmyndinni er hér með komið á framfæri. - AH Grein: Anders Hansen Myndir: Ragnar Axelsson Litast um í vopnasafni Sturlunga UM ÞESSAR mundir er unnið að gerð tveggja kvikmynda hér á landi, sem báðar eiga sitt sögusvið á þjóðveldisöld. Annars vegar er þar um að ræða kvikmyndina Útlajíann, sem gerð er eftir Gísla sögu Súrssonar, en Gísli var uppi á 10. öld. Hins vegar er það svo kvikmyndin um Snorra Sturluson, en veldi hans og ættingja hans, Sturiunga, reis hæst á 13. öld. Margt hefur hreyst frá þeim tíma er myndirnar eiga að gerast á, þó ekki væri í öðru en daglegum klæðnaði fólks, og svo í því að íslendingar bera nú ekki lengur vopn til að vega hverjir af öðrum. Morgunblaðsmönnum lék forvitni á að sjá vopn þau og klæði er gerð voru fyrir kvikmyndun Snorra, og var vel tekið er erindið var kynnt í Sjónvarpinu. Að áhendingu leikstjórans, Þráins Bertelssonar, hittum við að máli þau Gunnlaug Jónasson leikmunavörð, Árnýju Guðmundsdóttur saumakonu og búningavörð og Snorra Svein Friðriksson leikmyndateiknara. En Snorri teikn- aði leikmyndina í kvikmyndinni um nafna sinn, og auk þess búningana í samvinnu við Baldvin Björnsson. pergamenti og öllu tiiheyrandi, þannig að allt liti sem raunveru- legast út. Einnig voru útbúin sérstök spjöld, þar sem bræddu vaxi var hellt á. Á vaxið var skrifað, stundum uppkast að því er seinna fór á bókfell, og stund- um voru skrifuð skilaboð milli manna á þesskonar vaxspjöldum. Röggvarfeldir og hreindýraskikkjur Klæðnaður sá er menn bera í myndinn er ekki síður merkilegur. Til dæmis var gerð skikkja á Sighvat Sturluson á Grund í Eyjafirði, úr hreindýraskinni. Eft- irlíking af röggvarfeldi var gerð, og einnig margvíslegur annar búnaður, belti, vettlingar, fóta- búnaður og kyrtlar. Árný Guðmundsdóttir sagði þetta hafa verið vandasamt verk, en þó væri það svo að kunnátta í gerð þessara klæða hefði geymst með þjóðinni í gegnum tíðina. Þar sem það skorti, hefðu síðan fund- ist hlutar af klæðum fornmanna, svo sem bútur af röggvarfeldi, sem raunar var um aldir ein helsta útflutningsvara íslendinga. Hann er þannig gerður að ullartog er þrætt eða hnýtt í vaðmálsyfirhöfn eða skikkju, og er þannig komin hlý yfirhöfn, sem vegna eiginleika togsins hrindir frá sér vatni, eins konar regnkápa þeirra tíma. Prjónakunnátta barst hins veg- ar ekki hingað til lands fyrr en Tréspjöld með vaxi á. Talið er, að á slikar vaxplötur hafi menn gert uppkast að handritunum, og stundum var spjöldunum lokað saman eins og bók, og skiiaboð þannig send milli manna. Gunnlaugur leikmunavörður með alvæpni; sverð og steindan (málað- an) skjöld.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.