Morgunblaðið - 22.03.1981, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. MARZ 1981
37
studdi hann gegn gömlu stalínist-
unum.
Það mál, sem þá Krúsjeff
greindi mest á um, var Júgóslavía.
Suslov var sá, sem hafði veg og
vanda af því að halda uppi aga
meðal kommúnistaflokka um all-
an heim, einkum þó í Evrópu, og
hafi þess vegna átt mikinn þátt í
þeirri ákvörðun Stalíns að reka
Tito og júgóslavneska kommún-
istaflokkinn úr heimshreyfing-
unni. Þegar svo Krúsjeff ákvað að
endurvekja samskiptin við
„endurskoðunarsinnana" í Júgó-
slavíu, var það meira en Suslov
gat kyngt, og hann dró engan dul á
þá skoðun sína. í hans augum var
Tito svikari við málstað kommún-
ista og einskis góðs að vænta af
samskiptum við hann.
Suslov var heldur ekki með
neina uppgerðarkurteisi við sendi-
herra Júgóslava, Veljko Micuno-
vic, þegar sá síðarnefndi heimsótti
hann í Moskvu. „Ég kom að Suslov
á skrifstofu hans, þar sem hann
var hálfhulinn bak við pappírs-
hrúgur og bókahlaða á borðinu, og
við höfðum varla heilsast þegar
hann tók að hækka róminn og
gagnrýna stefnu júgóslavneska
kommúnistaflokksins á ósvífinn
hátt. Lengi vel gat ég engu orðið
að komið fyrir hávaðanum í Sus-
lov og hann virtist engan hemil
geta haft á sér fyrir reiði og ofsa.“
Það, sem gefur kannski hvað
bestan vitnisburð um skoðanir
Suslovs á heimsmálunum, var sú
umkvörtun hans, að Júgóslavar
hefðu gleymt að geta Bandaríkja-
manna í stefnuskrá sinni sem
„höfuðandstæðinga sósíalismans".
„Þið gerið ykkur dælt við Banda-
ríkjamenn“, sagði hann við Mic-
unovic. Verra gat það ekki verið í
munni Suslovs.
Þegar Rússar stóðu frammi
fyrir uppreisninni í Ungverjalandi
1956 sendi Krúsjeff Suslov til
Budapest til að fást við vandann.
Það voru mikil mistök. Af öllum
mönnum var Suslov hvað ólíkleg-
um og hann átti ekki um annað að
velja en að reyna samningaleiðina.
Kínverjar reyndust hins vegar
engir eftirbátar Rússa í kommún-
ískum rökræðum og bilið milli
Moskvu og Peking breikkaði enn.
Suslov haggaðist þó hvergi og fall
Krúsjeffs breytti engu þar um.
Suslov missti þolinmæðina með
Krúsjeff þegar hann gerði áætlan-
ir um að endurskipuleggja allt
flokkskerfið enda sá Suslov í
hendi sér, að þar gat honum verið
hætta búin. Hann venti því sínu
kvæði í kross og tók þátt í
hallarbyltingunni sem ýtti Krúsj-
eff til hliðar og setti Brezhnev á
tróninn í hans stað.
Yfirmaður
hins rússneska
rannsóknarréttar
í endurminningum sínum fjall-
ar Micunovic, sendiherra Júgó-
slava, um hlutverk Suslovs sem
yfirmanns hins rússneska rann-
sóknarréttar í Moskvu: „Þó að
ástæðurnar fyrir brottrekstri
háttsettra manna á valdatíma
Krúsjeffs, og seinna fyrir brott-
rekstri hans sjálfs, væru jafn
sundurleitar og mennirnir voru
margir, Þá er það eftirtektarvert,
að sá, sem mælti fyrir munn
ákæruvaldsins, var alltaf sá sami
— Mikhail Suslov. Það var hann,
sem las yfir hausamótunum á
Molotov, það var hann, sem rakti
ávirðingar Zhukovs marskálks, og
það var hann, Mikhail Suslov, sem
skrýddist skikkju ákærandans
þegar Krúsjeff var rekinn."
Suslov hefur líkað lífið vel við
hliðina á Brezhnev, sem er honum
sammála um kreddufestu og
strangan aga jafnt í innanrikis-
eða utanríkismálum. Á síðasta
áratug hefur hann farið að njóta
virðingar þess, sem gamall er
orðinn í hettunni, og hefur sívak-
andi auga með hverju „fráviki" frá
réttri stefnu, hvort sem þar eiga í
hlut Evrópukommúnistar, Kín-
verjar, Júgóslavar, Tékkar eða
Pólverjar.
Suslov studdi Brezhnev í því að
beita Rauða hernum til að binda
enda á „Vorið í Prag“ 1968 og
trúlega væri honum kært að sjá
Pólverja fá sömu meðferðina.
Hann er einnig talinn hafa staðið
að baki tilraunum til að „endur-
reisa“ Stalín.
„Málstaðnum"
vegnar vel
í augum Suslovs vegnar „mál-
staðnum" mjög vel. „Heimsbylt-
ingin heldur áfram og hún lætur
æ víðar til sín taka,“ sagði hann
fyrir nokkrum árum. Og þó að
„málstaðurinn" verði fyrir áfalli
endrum og-eins, t.d. í Afganistan
eða Póllandi, þá hefur Suslov af
því engar áhyggjur: “Sagan er á
okkar bandi, á bandi byltingarinn-
ar.“ Þótt grípa verði til harkalegra
aðgerða gegn andófsmönnum
heimafyrir og uppreisnarmönnum
erlendis og þó að Vesturlandabúar
mótmæli hástöfum, þá heldur það
ekki vöku fyrir Suslov. Við hverju
er líka svo sem að búast af hinum
spilltu Vesturlöndum?
Suslov er nú sjúkur maður og
sagður þjást bæði af berklum og
nýrnaveiki. Læknarnir í Kreml
virðast þó vera vanda sínum
vaxnir og trúlega mun Suslov enn
um ókomin ár sjá sovésku út-
þenslustefnunni fyrir hugmynda-
fræðilegu yfirvarpi.
Suslov hefur ekki gert víðreist
um dagana, nokkrum sinnum sótt
flokksþing erlendra kommúnista-
flokka og einu sinni raunar verið í
sovéskri þingmannanefnd í Bret-
landi. Hann hefur engan áhuga á
því að skyggnast um gættir í hinni
voluðu veröld vestursins. Þegar
hann var einu sinni spurður hvers
astur til að geta samið við ung-
versku þjóðina, sem langþreytt
var orðin á kúgun og grimmd síns
eigin Stalíns, Matyas Rakosi. Sus-
lov datt heldur ekkert betra í hug
en að beita valdi til að knésetja
Ungverja, ráðlagði því Krúsjeff að
styðja Rakosi áfram og uppreisnin
var kæfð í blóði.
Hvað um það, Suslov var enn
ofan á, og Krúsjeff fól honum á
hendur annað og jafnvel enn
erfiðara verkefni — vinslitin við
Kínverja, sem farnir voru að
langa til að losna úr faðmlögunum
við rússneska björninn. Kína var
þó stærra en svo að Suslov gæti
beitt við sínum venjulegu aðferð-
1964 Krúsjefí leggur
land undir fót og hér kveðja
þeir hann á brautarstöðinni,
Suslov, Brezhnev, Mikoyan,
Polanski og Kosygin. Þegar
hér var komið höfðu verið
lögð á ráðin um hallarbylt-
inguna í Kreml og Krúsjeff
átti ekki afturkvæmt til
valda. Myndina tók Semyon
Raskin, hirðljósmyndari
Kremlar. sem seinna flýði til
Vesturlanda.
vegna sovéskir borgarar fengju
ekki að fara frjálsir ferða sinna til
Vesturlanda, svaraði hann: „Dótt-
ur minni hefur aldrei langað til að
fara til Vestur-Evrópu eða Banda-
ríkjanna."
Robert Ford, sem var sendi-
herra Kanadamanna í Moskvu um
16 ára skeið, segir á einum stað
um Suslov: „Áhrif hans hafa verið
gífurleg, hann er stórfenglegur
rnaður." Stórfenglegur, en einnig
stórhættulegur. Þegar andlegir
eintrjáningar og ofstækismenn á
borð við Suslov ráða jafn miklu
um stefnu annars risaveldisins þá
er heimurinn hættulegur staður
að búa í.
hliómburóur aó eiain vali
TÓNJAFNARI
Graphic Equalizer
tvöfaldur með Ijósadíóóumælum
a Ú: §: /i: Ö n ÖÓb f
NEC „_________
SJÚNVARPSBðDM
BORGARTÚNM8
REYKJAVfK StM 27099
H
H
H
H
H
H
H
H
H
H
H
H
H
IhUlHj
CATERPILLAR
SALA S. LUQNUSTA
Caterpillar, Cat ogCBeru skrásett vörumerki
Tveggja og hálfs
TONNARI
Til afgreiöslu STRAX
HEKLAHF
Laugavegi 170-172 Sími 21240
[h][h][h][h][h][h][h]
H
H
H
H
H
H
H
H
H
H
H
H
H
Lóðaúthlutun
— Reykjavík
Reykjavíkurborg auglýsir eftir umsóknum um bygg-
ingarrétt á eftirgreindum stööum:
A. Við Eyrarland og Fossvogsveg:
Einbýlishúsalóöir, parhúsalóöir, raöhúsalóöir og
fjölbýlishúsalóöir.
B. Viö Öskjuhlíðarskóla:
Einbýlishúsalóðir, parhúsalóöir og raöhúsalóöir.
C. Á Eíðsgranda, 2. áfanga:
Einbýlishúsalóöir og raöhúsalóöir.
D. Á Eíösgranda, 3. áfanga:
Einbýlishúsalóöir.
E. Seljahverfi:
Tvær einbýlishúsalóðir meö hesthúsaöstööu.
F. í Nýjum Miöbæ, 2. áfanga:
Raöhúsalóöir og fjölbýlishúsalóöir.
Athygli er vakin á því, aö áætlaö gatnagerðargjald
ber aö greiða aö fullu í þrennu lagi á þessu ári. Á
sama tíma skal greiða 75% af áætluðum tengdum
gjöldum.
Umsóknareyöublöö og allar uþþlýsingar um lóöir til
ráöstöfunar, svo og skipulags- og úthlutunarskilmála
veröa veittar á skrifstofu borgarverkfræöings, Skúla-
túni 2, 3. hæö, alla virka daga kl. 8.20—16.15.
Umsóknarfrestur er til og meö 6. apríl 1981.
Eldri umsóknir þarf aö endurnýja og skila á
sérstökum eyöuþlööum er fást afhent á skrifstofu
borgarverkfræðings.
Borgarstjórinn í Reykjavík.