Morgunblaðið - 22.03.1981, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 22.03.1981, Qupperneq 22
22 MORGUNBLAÐIÐ. SUNNUDAGUR 22. MARZ 1981 Sjö dagar í Líbanon texti: Björn Bjarnason/myndir: Kjartan Gunnarsson Stofuhugmynd veróur að styrjaldarferó Pollar voru á flugvellinum í Beirút, þegar við hoppuðum út úr norsku Herkúles-vélinni eftir rúmlega tíu klukkustunda ferðalag frá Gardermoen utan við Osló. Það hafði snjóaö nóttina sem við gist- um í Osló. Og á herflugvellinum Værlose skammt fyrir utan Kaup- mannahöfn, þar sem við náðum í nokkra danska Sameinuðu þjóða- hermenn^. var snjóföl á jörðu. Frá Danmörku flugum við í einni lotu til Laranka-flugvallar á Kýpur. Kvöddum Danina og gátum sent póstkort í flugstöðinni, áður en við lögðum í síðasta áfangann til Líbanon. Flugið milli Kýpur og Beirut tók aðeins um hálftíma. Það var gott að geta teygt úr sér og andað að sér hressandi Miðjarðarhafsloft- inu. Myrkur var á flugvellinum en í bílljósunum kom norskur herfor- ingi til okkar, þar sem við vorum að taka hljóðdeyfandi bómullina úr eyrunum, og sagði að aðalræðis- maður Islands í Beirut væri þarna á flugvellinum og vildi hitta okkur. Fyrir tilstuðlan utanríkisráðu- neytisins vissi hann af komu okkar, auk þess sem við vorum með bréf til hans frá ráðuneytinu. Við hittum ræðismanninn, Franco- is Jabre, og létum hann hasfa bréfið. Hann sagði, að við gætum ekki látið okkur nægja að dveljast aðeins á átakasvæðinu í Suður- Líbanon. Nú væri þriðjudagskvöld, hvort við gætum ekki hitt hann um hádegisbilið á mánudag í austur- hluta Beirut. Við töldum það heillaráð. Hann rissaði upp mynd af húsinu, þar sem við áttum að halda til, það væri ölgerð merkt með skilti, sem á stæði: Almaza. Við skyldum fá norsku hermenn- ina til að aka okkur þangað; þeir yrðu ieystir út með bjór að skiln- aði. Ekki væri unnt að treysta á símasambandið í landinu, þess vegna væri best að ákveða þetta allt þarna á staðnum. Við gerðum það og kvöddumst síðan. Ræðis- maðurinn ók á brott í Mercedes- Benz með tveimur mönnum: Líf- verðir, slógum við föstu. Og fuglasöngur með silfurtón i sedrusviðnum á Libanón Þannig komst Grímur Thomsen að orði í kvæði sínu Draumaland. Við undirbúning farar okkar sótti þó ekki fuglasöngur á hugann. Hugmyndin fæddist nokkrum vik- um fyrir jól, þegar við Kjartan Gunnarsson hittum Arnór Sigur- jónsson lautinant í norska land- hernum, sem kom í nokkra daga heim til ísiands í leyfi frá skyld- ustörfum í norsku friðargæslu- sveitum Sameinuðu þjóðanna í Suður-Líbanon. Við sóttum um heimiid norskra yfirvalda til að fá far með flugvél norska hersins til Beirut og heim aftur viku síðar. Leyfið fékkst og af vinsemd var okkur boðin öll aðstoð auk þess sem Arnór yrði fylgdarmaður okkar í Suður-Líbanon að svo miklu leyti, sem hann yrði ekki bundinn við skyldustörf. Ljóst var, að sex mánaða þjónustutími Arn- órs í Líbanon rynni út 18. mars, við þann tíma miðaðist ferðin. Þegar við höfðum kvatt ræð- ismanninn spurði norski foringinn okkur, hvort við hefðum ákveðinn næturstað í huga í Beirut. Við sögðum það ekki vera. Hann nefndi þrjú hótel og auvitað þekkt- um við ekkert þeirra, en völdum það, sem hann sagði selja nætur- gistingu á meðalverði. A leiðinni inn í bæinn töldum við sex varð- stöðvar, þar sem hermenn með alvæpni litu eftir ökutækjum. Við vorum ekki stöðvaðir, enda var rútan hvítmáluð og á henni ein- kennisstafir Sameinuðu þjóða- sveitanna á ensku, „UN“. Hótel Riviera var niðri við ströndina. Fyrir utan nokkra norska herforingja virtust þar ekki margir gestir. Á leiðinni til hótelsins höfðum við ekið um verslunargötu, þar sem kvöldið iðaði af fólki, sem smeygði sér fimlega á milli bílanna á götunni og skriðdreka, sem stóðu uppi á gangstéttinni. Við akváðum að halda kyrru fyrir á hótelinu. Brottför frá Hótel Riviera klukkan 7.15. Miðvikudaginn 24. febrúar var farið á hin tvö hótelin og náð í þá, sem þar gistu. í rútunni voru um 30 manns, þar á meðal sjónvarpsflokkur frá norska ríkisútvarpinu, sem var að safna efni í barnatíma. Ætlun hans var að búa til 25 mínútna þátt um börn í stríði. Nú sáum við Beirut fyrst í dagsbirtu. Borgin stendur á tanga, sem teygir sig út í Miðjarðarhafið og í norður og suður frá henni sést strandlengjan en fyrir austan borgina taka við fjöllin og þar ber hæst fjallið Líbanon — fjallið hvíta. Við sáum snævi þakta bungu þess í fjarska. Líbanon er lítið land, strandlengjan um 200 km frá Sýrlandi í norðri til ísraels í suðri og inn að landamærum Sýrlands í austri er lengst um 100 km. Að flatarmáli er Líbanon 1/10 hluti íslands eða 10400 ferkíló- metrar. íbúarnir eru um 3 milljón- ir, þar eru auk þess um 150 þúsund Sýrlendingar og um 500 þúsund palestínskir flóttamenn. Líbanon er því eitt þéttbýlasta land í heimi, um 340 menn á ferkílómetra. Þegar sú tala er hugleidd, er nauðsynlegt að minnast þess, að Líbanon er fjallaland. Víða erfitt yfirferðar vegna þverhnípis og undan sólu helst snjór í fjöllum allt árið, en hæstu fjallatindar ná í 3000 metra hæð. Við stefndum inn til fjalla, þvert í gegnum Beirut. Áður en við héldum af stað, var staðnæmst hjá UNIFIL-höfuðstöðvunum í Beirut. (UNIFIL er skammstöfun á liðs- afla Sameinuðu þjóðanna í Líban- on og stendur fyrir United Nations Interim Force in Lebanon.) Við UNIFIL-húsið bættust tveir bílar í hópinn. Tveir Land Rover-jeppar búnir vopnuðum hermönnum og vélbyssum. — Við gerum þetta alltaf, þegar við erum með gesti, sagði norski foringinn, þegar við héldum af stað í ábúðarmikilli bilalest með annan jeppann á undan og hinn á eftir. Á götum Beirut iðaði mannlífið. Börn voru á leið í skóla, fótgang- andi eða í skólabílum, sem flestir báru áletranir á frönsku. Verka- menn voru að búa sig undir að hefja störf sín í hálfbyggðum húsum, götuverslunin var að hefj- ast og bílarnir virtust streyma inn á breiðgötuna, sem við ókum eftir, úr öllum áttum. Marghljóma bíl- flautur ómuðu og ysinn og þysinn stakk í stúf við loftvarnabyssurn- ar, sem teygðu sig upp á milli húsþakanna. Við ókum við hliðina á „grænu línunni". Á vinstri hönd sáum við rústirnar eftir styrjöld- ina 1975/76. Við vorum á sýrlensku yfirráðasvæði og stefndum á fjallaveginn til Damaskus (109 km), fornfræga samgönguæð, sem tengir Miðjarðarhafið við höfuð- borg Sýrlands og liggur þaðan um Amman í Jórdaníu til Bagdad í Irak og síðan austur á bóginn til Teheran í íran. „Græna línan“ er einskis manns land, sem er eins og holsár þvert í gegnum Beirut. Þeim megin sem við vorum, að suðvestanverðu, eru múhameðstrúarmenn, Sýrlend- ingar og Palestínumenn, en hinu- megin eru kristnir menn. Ferðin í gegnum borgina gekk vel og brátt tóku við brattar hlíðar. Inn á milli húsanna mátti sjá víghreiður Sýr- lendinga, skriðdreka, brynvarða vagna og tjöld. Sýrlenski herinn kom inn í Líbanon í ársbyrjun 1976 til að grípa í taumana í borgara- styrjöldinni og halda aftur af Palestínumönnum í landinu, 25— 30 þúsund sýrlenskir hermenn eru nú í Líbanon. Við ókum í snjó efst í fjöllunum en sáum lítið fyrir niðaþoku. Þokunni létti, þegar við héldum aftur niður, og við sáum yfir Beekadalinn. Mikið hafði rignt og akrarnir í dalnum lágu undir vatni. Sýrlendingar ráða yfir daln- um. Hann er talinn frjósamasti hluti Líbanon. Þar er stunduð akuryrkja og haft er á orði, að dalurinn geti brauðfætt 10 til 12 milljónir manna. Sannarlega bar hann það ekki með sér, þegar við ókum í gegnum hann. Þar eins og annars staðar á leiðinni sýndist óþrifnaði við veginn engin tak- mörk sett. Bílhræ og annað drasl blasti alls staðar við og af eigin hyggjuviti ályktuöum við, að ekki liði á löngu, þar til landið allt yrði þakið drasli með sama framhaldi. í dalnum og fjöllunum í kring er ræktaður hampur í hass. Hefur sú ræktun dafnað dável, eftir að upplausnin varð í Líbanon. Þaðan og frá Pakistan berst þetta eitur- efni í miktu magni til Evrópu og má víst greina á milli framleiðsl- unnar eftir lit hampsins. í Beekadalnum miðjum beygð- um við til suðvesturs út af Dam-

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.