Morgunblaðið - 22.03.1981, Page 27

Morgunblaðið - 22.03.1981, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. MARZ 1981 27 Guðmundur Ragnars- son Minningarorð Fæddur 17. mai 1920. Dáinn 21. febrúar 1981. Vinur minn og starfsfélagi, Guðmundur Ragnarsson baðvörð- ur, lést laugardaginn 21. febrúar síðastliðinn og jarðarför hans hefur farið fram. Guðmundur var fæddur og upp- alinn í Reykjavík, sonur hjónanna Ragnars Guðmundssonar tré- smiðs og Petrínu Þórarinsdóttur. Guðmundur ólst upp í hópi systk- ina sinna, þriggja systra og eins bróður. Guðmundur kvæntist eftirlif- andi konu sinni Hólmfríði Karls- son og áttu þau hjónin þrjá syni og eina dóttur. Guðmundur var bæði nærgætinn og ástríkur heim- ilisfaðir og átti margar ánægju- stundir með börnum sínum og barnabörnum. Guðmundur Ragnarsson var hvers manns hugljúfi, með mjög ríka réttlætiskennd, traustur fé- lagi og drengur góður. Þannig kom hann okkur starfsfélögum sínum í Sundhöllinni fyrir sjónir, sem oft á tíðum nutum félagslyndis hans og félagshyggju. Betri samstarfs- mann var varla hægt að hugsa sér, ósérhlífinn í öllum verkum og ætíð reiðubúinn að taka upp hanskann fyrir þá sem minna máttu sín. Þá var Guðmundur hrókur alls fagnaðar hvar sem hann fór og glaðlyndi hans setti mark sitt á umhverfi hans og samferðamenn. Guðmundur var góður hesta- maður og hafði yndi af hestum. Atti hann margar góðar minn- ingar frá hestamennsku sinni. Síðari árin var Guðmundur mikill áhugamaður um fjarskipti og sem „radíóamatör" átti hann marga góða vini. Þetta var hans tómstundaiðja eftir að hann missti heilsuna og stytti honum marga stundina. Aldrei minntist Guðmundur á sjúkleika sinn af fyrra bragði við okkur samstarfsfólk sitt, en oft sáum við að hann tók út við störf sín, enda þótt hann bæri það með æðruleysi og karlmennsku. Við eigum því, starfsfólkið í Sundhöllinni, góðum vini bak að sjá, vini sem við þökkum samver- una og ómetanlega vináttu á liðnum árum. Eiginkonu hans, börnum, barnabörnum og öðrum aðstandendum og vinum, sendum við innilegar samúðarkveðjur. Stefán Trjámann Tryggvason Skúli G. Bjarnason fv. póstmaður - Minning Á morgun, mánudaginn 23. marz, verður til moidar borinn frá Fossvogskirkju Skúli G. Bjarna- son fv. póstmaður, en hann andað- ist þann 13. mars sl. í Borgarspít- alanum, eftir stutta legu þar, en hann átti við vanheilsu að stríða síðustu tvö árin. Skúli Gunnar, en svo hét hann fuilu nafni, var fæddur í Reykja- vík 13. ágúst 1914, sonur hjónanna Valgerðar Einarsdóttur og Bjarna Jónssonar kennara. Hann ólst upp hjá foreldrum sínum og bjó hjá þeim meðan þau lifðu. Árið 1952 festi Skúli kaup á lítilli íbúð við Grandaveg, þar sem hann bjó þangað til á síðasta ári, er hann fékk inni sem vistmaður á Elli- og hjúkrunarheimilinu Grund, en þar naut hann hlýju og umönnunar. Skúli lauk námi í prentiðn árið 1934 og hlaut þá verðlaun frá Iðnskólanum í Reykjavík fyrir siðprýði og góða ástundun. Til ársins 1939 vann Skúli að iðn sinni í prentsmiðjunni Akta og einnig í Prentsmiðju Jóns Helgasonar, en það ár veiktist hann af berklum og dvaldist á Vífilsstöðum í tvö ár. Þegar hann útskrifaðist af Vífils- stöðum árið 1941, hóf hann störf hjá Póststofunni í Reykjavík og vann lengst af við útburð á pósti. Hjá Póststofunni starfaði hann samfellt í 38 ár, eða til ársins 1979, er hann varð að láta af störfum vegna heilsubrests. Skúli vann öll sín störf af einstakri trúmennsku og alúð. Hann var alinn upp á kristnu heimili, undir handleiðslu bráðgreindra foreldra, sem ekki aðeins báru virðingu fyrir krist- inni trú, heldur iðkuðu hana í daglegu lífi sínu og gáfu þessum syni sínum með því bæði fyrir- mynd og leiðsögn, er dugði honum til hinstu stundar. Bjarni Jónsson, faðir Skúla, var einn af brautryðj- endum íslensks kristniboðs meðal heiðingja og virkur þátttakandi í kristilegu leikmannastarfi hér í Reykjavík. Hann var formaður og síðar ritari Kristniboðsfélags karla í mörg ár, en hann lést árið 1951, á 89. aldursári. Á heimili foreldra sinna lærði Skúli að elska Guð og frelsarann, sem hann sendi, Jesúm Krist. Þar lærði hann einnig að elska Kristniboðið og varð virkur þátt- takandi í starfi Kristniboðsfélags karla. í það félag gekk hann 17 ára gamall og hafði því verið í því sem virkur félagsmaður í 50 ár, nú þegar hann féll frá, þar af sem ritari í nærri 30 ár. Þessi störf innti Skúli af hendi af einstakri trúmennsku og bera fundargerðir hans vitni um greind hans og góða hæfileika hans í því starfi. Skúli unni tónlist, lék sjálfur á orgel og varð með þeirri kunnáttu sinni til mikiliar hjálpar í kristi- lega starfinu, bæði á fundum félagsins og ekki síst á almennum samkomum í Kristniboðshúsinu Betaníu, þar sem hann lék undir söngnum í fjöldamörg ár. Skúli starfaði einnig mörg ár í Sunnu- dagaskóla Kristniboðsfélaganna, bæði sem kennari og undirleikari. Að leiðarlokum viljum við, fé- lagar hans i Kristniboðsfélagi karia og vinir hans í Kristniboðs- húsinu Betaníu, þakka honum trúfasta þjónustu hans og kær- leika, er hann auðsýndi. Við trúum því, að hann hafi nú fengið að heyra hin eftirsóknarverðu orð af munni Jesú: „Gott, þú góði og trúi þjónn, yfir litlu varstu trúr, yfir mikið mun ég setja þig. Gakk Lnn til fagnaðar herra þíns.“ Til þessa fagnaðar þráði hann að fara. Guð blessi eftirlifandi ástvini hans og Guð blessi okkur öllum minn- ingarnar um hann. Baldvin Steindórsson IP i flMAN I N TT Lítiö meira Sér permanentherbergi Tímapantanir í síma 12725 mest Rakarastofan Klapparstíg Nafn ....... Heimilisfang Ég undirritaður óska eftir ad fá eftirtalin fornrit send í póstkröfu. Alls krónur íslendingabók, Landnámabók kr. 270.50 Egils saga Skalla-Grímssonar kr. 244.55 Borgfiröinga sögur kr. 244.55 Eyrbyggja saga kr. 244.55 □ Laxdæla saga kr. 244.55 □ Vestfiröinga sögur kr. 244.55 Grettis saga kr. 244.55 Vatnsdasla saga kr. 244.55 Eyfiröinga sögur kr. 244.55 □ Ljósvetninga saga kr. 244.55 □ Austfiröinga sögur kr. 244.55 □ Brennu-Njáls saga kr. 270.50 □ Kjalnesinga saga kr. 244.55 □ Heimskringla I kr. 270.50 Heimskringla II kr. 270.50 Heimskringla III kr. 270.50 OTA CA □ □ □ □ O o o

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.