Morgunblaðið - 22.03.1981, Qupperneq 41

Morgunblaðið - 22.03.1981, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. MARZ 1981 41 Sýnishorn af þeim sjaldséðu fiskum, sem rekið hefur á fjörur fiskifræðinKa siðustu mánuði, frá vinstri: stóra brosma. trjónufiskur, tveir sædjöflar og tveir búrfiskar. (Ljósm. Ernilía) Dr. Gunnar Jónsson, fiskifræðingur, með búrfisk. Búrfiskur hefur verið frekar sjaldséður gestur í veiðarfærum íslenzkra sjómanna, en undanfar- ið hafa nokkrar fréttir borizt um þennan rauða fisk og Hafrann- sóknastofnun fékk tvo slíka til skoðunar á dögunum. Búrfiskur barst í fyrsta skipti í hendur dýrafræðinga í nóvember 1949 er þýzkur togari fékk fimm í einu á Öræfagrunni á 180 m dýpi, en síðar hafa margir fengizt til viðbótar. I bók sinni „Fiskarnir" segir Bjarni Sæmundsson, að hér sé um nýjan fisk að ræða fyrir vísindin. Lítið er vitað um lífs- hætti búrfisks. Loks er að geta stóru brosmu, en eina slíka gat að líta í safni Hafrannsóknastofnunar í vikunni. Stóra brosma veiddist i fyrsta skipti hér við land, svo sögur fara af, á 110 metra dýpi i Jökuldjúpi þann 23. maí 1908. Bjarni Sæ- mundsson rannsakaði fiskinn og taldi um nýja tegund vera að ræða og nefndi hana á íslenzku stóru brosmu. Hér við land hafa fundizt innan við tveir tugir af stórum brosmum á þessari öld, að því að bezt er vitað. Nokkuð var á reiki um fisk þennan, en nú er talið að hér sé um fisktegund að ræða, sem lifir við strendur N-Ameríku, frá Nýfundnalandsmiðum suður til Norður-Karólínu. Gamlir fiskar leggjast ósjaldan í flakk og lenda þá oft víðs fjarri heimkynnum sínum. Þær stóru brosmur, sem hér hafa veiðzt hafa allar verið gamlar og stórar, eða frá 75—110 cm langar, en við strendur Norður-Ameríku veiðast sjaldan lengri en 70 cm fiskar. „Þær vilja sjá ísland og deyja síðan,“ sagði Gunnar Jónsson. áij Skipverji á Haferninum með myndarlegan sædjöful, sem fékkst i „Villta vestrinu“ fyrir 10 dögum siðan. (Ljósm. Jón Páll). Lúsifer. Skipverjar á Vestmannaeyjabáti komu með lifandi Lúsifer að landi fyrir fjórum árum og var hann settur i búr i Náttúrugripasafn- inu i Eyjum. Á myndinni er Lúsifer að sporðrenna loðnu, greinin er uppi og ljós á öngum. (Ljósm. Sigurgeir). Dinette BORÐSTOFU- SETT Dinette er fallegt og nútímalegt boröstofusett úr dökku mahogany frá hinu þekkta fyrirtæki í Noregi Húsgagnasýning kl. 2—5 dag Komið og skoðið okkar fjölbreytta úrval af húsgögnum Verið velkomin 6 - Sími 44544 LSHeHán. m Smiðjuvegi EFÞAÐERFRÉTT- NÆMTÞÁERÞAÐÍ MORGUNBLAÐENU AUGLYSINGA- SÍMINN ER: 22480

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.