Morgunblaðið - 27.03.1981, Page 2

Morgunblaðið - 27.03.1981, Page 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. MARZ 1981 íslendingur grípinn á Kastrup: Ljósmyndin varð fíkniefnasmygl- aranum að falli LJÓSSMYNDIR. sem fíkniefna- deild lögreglunnar i Reykjavik sendi út til Danmerkur urðu til þess að 23ja ára Kamall tslend- ingur var Kripinn á Kastrupflug- velli á fimmtudaK í siðustu viku með rúmlejfa 300 grömm af fikniefnum. Maðurinn var að koma frá Amsterdam i Hollandi og hafði hann fíkniefnin i plast- pokum. sem hann limdi á bakið á sér. Langmestur hluti fikniefn- anna var amfetamin en ekki heróin, samkvæmt upplýsinuum. sem Moncunblaðið aflaði sér í Kaupmannahöfn í gær. Maður- inn situr nú i Kæzluvarðhaldi en búist er við að dómur falli í máli hans i bæjarrétti Kaupmanna- hafnar eftir 10-15 daga. •Umræddur maður kom mjö« við sögu umfangsmikils fíkniefna- máls, sem fíkniefnadeildin í Reykjavík hafði til meðferðar í febrúar sl. Þótti nauðsynlegt að fá manninn framseldan frá Dan- mörku og var lýst eftir honum í Danmörku og myndir settar upp á lögreglustöðvum. Síðan fréttist af manninum í Hollandi og var hann þá með mikla fjármuni. Var eftir- lit þá hert og sl. fimmtudag var hann gripinn á Kastrup-flugvelli við komuna þangað frá Amster- dam. Lögreglumaður einn, sem hafði grandskoðað manninn á mynd, kom auga á hann meðal flugfarþega og var hann þegar handtekinn. Hann hafði falið á sér 300 grömm af amfetamíni, tæpt gramm af kókaíni og 20 grömm af hassi. Söluverðmætið er um 60 þúsund danskar krónur eða um 6 milljónir íslenzkra gkróna. Að- spurður sagðist íslendingurinn hafa tekið efnin fyrir einhvern Englending en þeirri sögu trúir lögreglan ekki. Líklegt er talið að efnið hafi átt að fara á markað í Danmörku. Islendingurinn hefur margsinnis komið við sögu í fíkni- efnamálum á Islandi svo og í Danmörku, þar sem hann hefur verið í félagsskap íslenzkra og erlendra fíkniefnasala. Enn vex áhugi fyr- ir ræktun loðdýra Tæplega 50 um- sóknir um refabú og 19 vilja rækta angórakanínur NÚ HÍÐA tæplega 50 umsóknir um rekstur refahúa afgreiðslu í landbúnaðarráðuneytinu, en hér á landi eru nú rekin eða eru að hefja starfrækslu níu blárefabú. Þá liggja einnig i ráðuneytinu um- sóknir um níu minkabú. 19 bú fyrir angórakanínur og eitt bú fyrir kjötkanínur. Þá er ein um- sókn um chinchilla-hú. Auk þessa hefur talsvert verið rætt undanfarið um ræktun busia hér á landi. Öðru nafni gengur dýr þetta undir nafninu vatnsrotta eða nutria, en Haukur Jörundarson hefur kosið að nefna dýrið busla. Haukur sagði í gær, að þessi mikli fjöldi umsókna um ræktun loðdýra segði sína sögu um vaxandi áhuga Loftleiða- flugmenn samþykkir Loftleiðaflugmenn hafa sam- þykkt tillögur Flugleiða um ráðningar f þær stoður sem Flugleiðir auglýstu fyrir skömmu. 5 flugstjórastoður á Boeing 727 og 5 flugmannsstoð- ur og flugstjórastöður á Fokk- er. Samkvæmt niðurstöðu Flug- leiða miðar félagið við sameig- inlegan starfsaldurslista og er gert ráð fyrir að FÍA-menn fái allar stöðurnar á Boeing 727, en 8 menn af DC-8 vélum verði flugstjórar á Fokker. FÍA hefur formlega mótmælt þessari skipan mála við Flug- leiðir og hefur flugfélagið ekki afgreitt málið ennþá að sögn Leifs Magnússonar fram- kvæmdastjóra flugrekstrar- deildar. Hafa FÍA-menn átt viðræður í gær við samgöngu- ráðherra og þingmenn um málið og einhverjar viðræður hafa farið fram milli flugmannafé- laganna. fyrir þessari búgrein og sagðist hann ætla að umsóknirnar yrðu afgreiddar um miðjan næsta mán- uð. Refabúin sem nú eru starfrækt hér á landi eru í Eyjafirði, fjögur talsins, tvö eru í Skagafirði, eitt í Hjarðarholti í Dölum og eitt í Krísuvík. Þá er rekstur að hefjast í blárefabúi í Ketildalahreppi skammt frá Bíldudal. Umsóknirnar um ný refabú eru frá bændum víðs vegar um land. Margar umsóknir eru frá stöðum í Skagafirði, Eyja- firði, og Þingeyjarsýslum, umsóknir eru frá bændum á Jökuldal og Fljótsdalshéraði, frá Eskifirði og Reyðarfirði. Sex umsóknir eru úr Rangárvallasýslum og fleiri stóðum á Suðurlandi. Fjórir umsækjendur eru úr ná- grenni Reykjavíkur og m.a. er sótt um leyfi fyrir refabú að Vatnsenda við Elliðavatn. Ein umsókn er úr Borgarfirði og sótt er leyfi fyrir 3 refabú í viðbót í Dalasýslu, nánar tiltekið í Saurbæ, og umsóknir eru einnig frá Haga og Brjánslæk á Barðaströnd. Ein umsókn er úr ísafjarðardjúpi, þ.e. Botni í Reykja- firði og loks er ein af Ströndum. Þeir, sem sækja um leyfi fyrir minkabú, eru tveir úr Gullbringu- og Kjósarsýslu, einn úr ísafjarðar- sýslu, þrír úr Eyjafirði, einn úr N-Múlasýslu, nánar tiltekið nokkrir bændur saman í Vopnafirði, og einn úr Ölfusi. Nítján manns sækja um leyfi til að rækta angórakanínur og eru þeir einkum af þremur svæðum á landinu, þ.e. S-Þingeyjarsýslu, A-Skaftafellssýslu og af Suður- landi. Loks er ein umsókn af Suðurlandi um Ieyfi fyrir ræktun kjötkanína og ein umsókn er fyrir chinchillabú. Allt er á kafi i snjó á Bolungarvik, eins og víðast hvar annars staðar á norðurhluta landsins. (Ljósm. Gunnar.) Bolungarvík: Tíðindi, að engra rafmagns- truflana varð vart i hretinu lioluniíarvík. 25. marz. ÞESSI vetur heíur verið fremur harður og umhleypingasamur og verður að fara allmörg ár aftur i tímann til að finna samanburð i tiðarfari. Þegar veðrinu slotaði kom i ljós, að 3—4 smásnjóflóð höfðu runnið úr Traðarhyrnu. Þarna er aðal- skiðasvæði Bolvikinga og er sjaldgæft að þarna falli snjó- flóð. Ekkert tjón varð á mann- virkjum eða slys á fólki. 1 dag hafa skiðamenn unnið við að moka ofan af skiðalyftunni. Talsverðan snjó setti niður í hretinu, sem gekk yfir á dögun- um. Linnulaus stórhríð hefur verið hér undanfarna 10 daga, en norðanhríðina þekkja Bolvík- ingar, þeir fara bara í þykku úlpurnar og bölva veðrinu örlít- ið. Annars er fremur lítið af þessu veðri að segja. Enginn tiltakanlegur skortur varð á neinu, sem til nauðsynja telst, en það telst hins vegar til tíðinda hér, að ekki varð vart neinna rafmagnstruflana. Þá er nú flest í lagi. — Gunnar Flugleiðir: Tapið á innanlandsfluginu 436 millj. gkróna í fyrra „UNDANFARIN ár hefur verið tap á innanlandsfluginu og er fyrirsjáanlegt að svo verði áfram nema afstaða stjórnvalda breytist, allur kostnaður hefur stórhækkað, en hækkanir far- gjalda til samræmis hafa ekki fengist,“ sagði Sigurður Helga- A meðfylgjandi töflu sést að innanlandsfargjöld hér á landi eru lægri en víðast hvar annarsstaðar samkvæmt upplýsingum Flugleiða, en félagið vekur athygli á þvf að samt sem áður sé flugrekstur hér erfiðari en víða um lönd og veldur þvi m.a. veðurfar og landslag og einnig eru ýmsir kostnaðarliðir, sem eru hærri hérlendis en í öðrum londum. son forstjóri Flugleiða á blaðamannafundi á Hótel Esju i gær. „Samkvæmt bráðabirgða- uppgjöri er tapið á sl. ári 436 milljónir gkr.“ „Nú er svo komið,“ sagði Sig- urður, „að innanlandsfargjöld þurfa að hækka um 26%. Verð- lagsyfirvöld samþykktu 6%, en ríkisstjórn hefur ekki enn af- greitt þá hækkun. Verðhækkanir á eldsneyti og verðbólga ásamt tregðu yfirvalda til nauðsynlegra hækkana hefur því orsakað tapið á innanlandsfluginu. Sagði Sigurður að á sl. 5 árum hefðu Flugleiðir tapað 3,5 millj- örðum króna á innanlandsflug- inu, framreiknað, og væri það hrikalega há tala, en hann kvað svo virðast sem algjörlega væri um geðþóttaákvarðanir að ræða hvort beiðnir um hækkanir væru teknar fyrir og hvernig þær væru afgreiddar ef þær fengju af- greiðslu á annað borð. Flestar leiðir færar að nýju VEÐUR var víðast hvar gengið niður á landinu siðastllðlnn þriðjudag og var þá hafinn mokst- ur og fjallvegir víða orðnir færir. en í gær tók að skafa aftur og tepptust þá nokkrir vegir. Arnkell Einarsson hjá vegaeftir- liti ríkisins sagði í samtali við Morgunblaðið, að í fyrrdag hefði ruðningur á norðurleiðinni hafizt og var orðið fært allt. til Þórshafn- ar frá Reykjavik í gær, en þá fór að skafa aftur og þungfært var þá orðið í Langadal og á Vatnsskarði og Öxnadalsheiði orðin ófær vegna veðurs.' Fært var orðið til Siglu- fjarðar og frá Akureyri til Dalvík- ur og frá Húsavík upp í Mývatns- sveit. Fært var vestur um til Hólma- víkur og um Snæfellsnes, nema að Fróðárheiði var ófær, og í Reyk- hólasveit um Heydal og frá Patr- eksfirði suður á Barðaströnd og stórum bílum til Tálknafjarðar, er, Hálfdán var ófær. í gær var verið að ryðja leiðina á milli Þingeyrar og Flateyrar, en Breiðdals og Botnsheiði eru ófærar. Frá ísafirði var fært til Bolunga- og Súðavíkur. Fært var um Hellisheiði og Þrengslin allt austur á Reyðar- fjörð, en byrjað að skafa í Fá- skrúðsfirði og færð þar tekin að spillast. Fagridalur var fær, en hætta varð við að ryðja Oddsskarð og ófært er frá Egilsstöðum til Seyðisfjarðar og Borgarfjarðar og víða þungfært á Fljótsdalshéraði. Hjá veðurstofu íslands fengust þær upplýsingar, að hvöss suð- austlæg átt væri víðast hvar á landinu og í dag mætti búast við slyddu sunnan lands, en éljagangi á Vestfjörðum og við Austurland og úrkomuleysi norðanlands og að næstu daga hlýnaði heldur í veðri með úrkomu sunnanlands.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.