Morgunblaðið - 27.03.1981, Síða 8
8
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. MARZ 1981
Öldungis f ráleitt
- Það veit Tóm-
as eins vel og ég
- segir Ásmundur Stefánsson í tilefni
af ummælum Tómasar
_1>AÐ VEIT Tómas jafnvel og ég, að það var ekki samið við okkar
samtök um þær aðgerðir. Ég var með klukkustundar fyrirvara á
gamlársdag beðinn að mæta á fundi ráðherra og fékk ég með mér þrjá
miðstjórnarfulltrúa og við móttókum þar þennan boðskap. Það að við
okkur hafi verið samið um málið er öldungis fráleitt,“ sagði
Ásmundur Stefánsson, forseti Aiþýðusambands íslands, i samtali við
Mbl. i tilefni af ummælum Tómasar Árnasonar, viðskiptaráðherra, i
fréttaauka Rikisútvarpsins i siðustu viku, þar sem hann lýsti þvi yfir,
að samið hefði verið við samtök launamanna um að skerða verðbætur
á laun.
Þá sagði Ásmundur: „Við gerð-
um ályktun um málið á miðstjórn-
arfundi 8. janúar og eins og hún
ber með sér, þá er engan veginn
um það að ræða að við höfum
samþykkt það sem þar var gert.
Ályktun okkar hefst þannig:
„Stjórnvöld hafa nú ákveðið með
lögum að skerða verðbætur 1.
marz nk. um 7 prósentustig. Með
því er gengið þvert á mikilvægt
samningsákvæði sem eitt sér er
fordæmanlegt." Ég sé ekki ástæðu
til að tíunda neitt frekar vegna
þess, en eins og þessi tilvitnun ber
með sér, þá er ekki um það að
ræða að það hafi verið samþykkt,
enda ekki eftir samþykki leitað."
Nordsat-fundur í
Norræna húsinu
Á SUNNUDAGINN kemur, 29.
mars, efnlr Norræna félagið til
umræðufundar um Nordsat i
Norræna húsinu kl. 14.00.
Frummælendur verða: Árni
Gunnarsson, alþingism., form.
menntamálanefndar Norður-
landaráðs, Birgir Thorlacius,
ráðuneytisstjóri Menntamála-
ráðuneytis, Sigurður Þorkelsson,
yfirverkfræðingur hjá Landsíma
Islands og örnólfur Árnason, rit-
höfundur, framkvæmdastjóri
Listahátíðar.
Ráðherrar, alþingismenn, út-
varpsráðsmenn og útvarpsstjóri
eru sérstaklega boðnir á fundinn.
V öruskiptajöf nuð-
urinn óhagstæður
um 126,6 milljónir
Vöruskiptajöfnuður lands-
manna var óhagstæður fyrstu tvo
mánuði þessa árs um 126,6 millj-
ónir króna, en var á sama tima i
fyrra óhagstæður um 198,1 millj-
ón króna. í febrúarmánuði nú
var vöruskiptajöfnuðurinn óhag-
stæður um 87,2 milljónir, en i
febrúar í fyrra um 87,1 milljón
króna.
Alls var útflutt í janúar og
febrúar fyrir 664,3 milljónir
króna, en innflutningur nam 790,9
milljónum króna. Af útflutningi
nam ál og álmelmi tæplega 85
milljónum, en innflutningur til
ÍSALs nam 26,4 milljónum. Inn-
flutningur til Landsvirkjunar nam
20,5 milljónum og til íslenzka
járnblendifélagsins 8,3 milljónum.
Hagstofan segir í athugasemd
með fréttatilkynningu sinni, að
við samanburð við utanríkisverzl-
unartölur 1980 verði að hafa í
huga, að meðalgengi erlends
gjaldeyris í janúar-febrúar 1981 sé
talið vera 51,4% hærra en það var
í sömu mánuðum 1980.
Yfirlitsmynd af skipulagi svæðisins. Lengst til vinstri sést fjölbýlishúsakeðjan en gegnum hverfið að
endilöngu liggur hlaðbraut, þar sem fótgangandi hafa forgang umfram akandi, og tengir hún
byggðina saman.
Hafnarfjarðarbær:
Sýning á teikningum af
íbúðabyggð í Hvömmum
Hafnarfjarðarbær hefur sett
upp sýningu á kynningarteikn-
ingum og skipulagi nýs ibúða-
hverfis i Hafnarfirði. Er sýn-
ingin i „húsi Bjarna riddara“,
Vesturgötu 6, Hafnarfirði og
stendur til 29. þ.m. Sýningin er
opin mánudag til föstudags frá
kl. 16—19, en laugardag og
sunnudag frá kl. 14—19. Höf-
undar uppdráttanna, arkitekt-
arnir Gylfi Guðjónsson og Ingi-
mundur Sveinsson, munu verða
á sýningarstaðnum i dag og á
laugardag milli kl. 17 og 19.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar
efndi til lokaðrar samkeppni
meðal arkitekta síðari hluta árs
1979 um skipulag og hönnun
þéttrar íbúðabyggðar á tveimur
afmörkuðum reitum í svonefndu
Hvammahverfi í Hafnarfirði.
Fimm aðiljum var boðin þátt-
taka í samkeppninni og voru
verðlaunin þau, að sá aðili er
kæmi með beztu tillöguna að
mati dómnefndar skyldi sjá um
skipulag svæðisins.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar
hugðist fá fram aðlaðandi þétta
byggð með íbúðum í háum gæða-
flokki. Óskað var eftir tillögum
um ýmsar útfærslur þéttrar
byggðar og beinlínis tekið fram
að lág, þétt byggð kæmi ekki
síður til greina en hefðbundin
blokkabygging.
Á blaðamannafundi er bæjar-
stjórn Hafnarfjarðar efndi til
kom fram, að í samanburði og
mati á þeim fjórum tillögum,
sem bárust í keppnina, skoðaði
dómnefndin einkum hvernig
eftirtöldum fjórum atriðum voru
gerð skil: Skipulagi reitanna,
umferð um þá, umhverfi og
raunhæfni.
Nefndin taldi árangur sam-
keppninnar góðan. Sumarið 1980
ákvað bæjarstjórn Hafnarfjarð-
ar að leita samninga við arkí-
tektana Ingimund Sveinssn og
Gylfa Guðjónsson um frekari
útfærslu á skipulagi og grunn-
hönnun bygginga á öðrum sam-
keppnisreitnum á grundvelli
samkeppnistillögu þeirra.
Stærð þess skipulagssvæðis
sem hér um ræðir er 3,4 hektar-
ar. Það markast af Reykjanes-
braut í suðaustri, Hvammabraut
í norðri og einbýlishúsabyggð við
Háahvamm í vestri. Miðbærinn
er í um það bil 1 km fjarlægð frá
skipulagssvæðinu. Landslag á
svæðinu er fjölbreytilegt, land-
halli er tðluverður til norðurs og
vesturs en mismikill. Útsýni er
ekki verulegt, helzt er víðsýnt til
vesturs og norð-vesturs.
Tillagan gerir ráð fyrir að
lágreist sambýlishúsakeðja með
íbúðum í háum gæðaflokki af-
marki og skýli svæðinu að aust-
anverðu. Að öðru leyti er um að
ræða þétta, lága sérbýlishúsa-
byggð af margvíslegum toga.
Trjálundur, Garðarslundur, er
þungamiðja svæðisins. Lundur-
inn tengist annars vegar inn-
garði sambýlishússins svo og
sameinuðu kerfi göngustígs og
akbrautar sérbýlishúsabyggðar-
innar. Um trjálundinn liggur
auk þess gönguleið sem tengja
mun skipulagssvæðið við útivist-
arsvæðið sunnan Reykjanes-
brautar og ibúðahverfi, félags-
lega þjónustu og verzlanir í
norðri, svo og gönguleið niður í
miðbæinn.
Á svæðinu er gert ráð fyrir
100—105 íbúðum, 42 í þriggja
hæða sambýlishúsum, sem verða
byggð um garð á reitnum norð-
austanverðum, og 40—45 íbúðum
í raðhúsum er byggð verða í
fjórum þyrpingum ofan hlaðgötu
sem liggja mun eftir svæðinu
miðju og tengist Háahvammi. 18
raðhús með innbyggðum bíla-
geymslum eru síðan neðan hlað-
götunnar. Á hlaðgötu hafa fót-
gangandi forgang umfram ak-
andi. Lögð er áherzla á að vanda
yfirborð götunnar, t.d. að hún
verði hellulögð.
Fjölbýlishúsið er að því leyti
óvenjulegt, að hæðir eru mis-
stórar, þ.e. húsið mjókkar er
ofar dregur. Ibúðagerðir og
stærðir eru því fjölbreytilegar.
Eru svalir tiltölulega stórar og
þannig möguleiki á að stækka
íbúðimar með því að taka hluta
af svölunum undir þak. íbúðirn-
ar í húsinu vita allar að inn-
svæði, sameiginlegum garði og
leiksvæði.
Byggingarkostnaður raðhús-
anna hefur verið áætlaður og
virðist svipaður og byggingar-
kostnaður álíka stórra íbúða í
fjölbýlishúsum. Miklir mögu-
leikar eru á fjölbreytilegum
íbúðagerðum og breyta má innra
skipulagi með því að hliðra til
léttum innveggjum. í nokkrum
raðhúsanna er um tvíbýli að
ræða.
Borgarstjórn samþykkir:
Samþykkt að bæta aðstöðu
blindra og heyrnarlausra
SAMÞYKKT var tillaga frá
borgarfulltrúum Sjálfstæð-
isflokksins um málefni
blindra og heyrnarlausra á
fundi borgarstjórnar á
fimmtudag. Tillagan var
samþykkt með fimmtán
samhljóða atkvæðum og
henni vísað til nefndar um
alþjóðaár fatlaðra. Tillag-
an er svohljóðandi:
Borgar9tjórn samþykkir, að við
yfirstandandi endurskoöun á
Lögreglusamþykkt Reykjavíkur
verði gerð breyting á 29. grein
hennar, sem miðist að því að
fastmóta reglur um notkun hins
hvíta stafs blindra í umferðinni
og virðingu annarra fyrir honum
sem umferðartákni. Umferðar-
nefnd gangist fyrir kennslu í
meðferð hvíta stafsins í umferð-
inni og sérstökum umferðarnám-
skeiðum fyrir blinda og sjón-
dapra vegfarendur. Enn fremur
verði kannað, hvort unnt sé að
koma á notkun samræmds endur-
skinsmerkis fyrir blinda og
heyrnarlausa og aðra fatlaða,
sem eiga í örðugleikum í umferð-
inni.
Borgarstjórn samþykkir, að
blindir skuli njóta fólksflutn-
ingaþjónustu, sem borgin starf-
rækir í þágu fatlaðra. Stjórn
Strætisvagna Reykjavíkur verði
falið að bæta þjónustu fyrirtæk-
isins við blinda og heyrnarlausra
farþega, m.a. með greinilegri
leiðarmerkjum á vögnunum sjálf-
um, leiðakorti inni í vögnum,
merkingu biðstöðva og kynningu
viðkomustöðva í kallkerfi vagn-
anna.
Lögð verði áherzla á að fram-
fylgja til hins ýtrasta ákvæðum í
20. gr. lögreglusamþykktar um
frágang á gangstéttum og aðvar-
anir um farartálma, sem verða
kunna á skipulögðum gönguleið-
um vegna viðgerða. Einnig verði
gengið ríkt eftir því, að ákvæði
74. gr. lögreglusamþykktar um
götuspjöld og húsnúmer séu virt í
framkvæmd.
Borgarstjórn beinir því til al-
mannavarnanefndar, að hún
hlutist til um, að í almannavarn-
akerfinu verði sérstakt tillit tekið
til blindra og heyrnarlausra,
hvernig koma megi boðum til
þeirra og koma þeim til aðstoðar
í neyðarástandi.
Sérstök athugun verði gerð á
aðstöðu blindra og heyrnarlausra
varðandi tómstunda- og félags-
starf. Kannað verði hvernig
stofnanir Reykjavíkurborgar, svo
sem félagsmálastofnun, æsku-
lýðsráð, námsflokkar, borgar-
bókasafn og Kjarvalsstaðir, geti
bætt aðstöðu þessara borgara til
þátttöku í félags- og menningar-
starfsemi, sem stunduð er.
Haft verði náið samstarf við
samtök blindra og heyrnarlausra
um aðgerðir borgaryfirvalda í
þessum málum.
Sælkera-
hátíð
í Nausti
HIN ÁRLEGA hátíð sælkera-
klúbbsins verður haldin í
Nausti laugardaginn 28. marz
nk.
Matseðill kvöldsins: Sæl-
kerasalat, fisk-paté, rauðvíns-
steikt lambalæri, glóðaður
Port Salut-ostur og heimalag-
aður vaniIIuÍ8 með Peter
Heering.
Jóhannes Kristjánsson eft-
irherma skemmtir. Stuðlatríó
leikur fyrir dansi til kl. 2.
(Fréttatilkynning)