Morgunblaðið - 27.03.1981, Side 20

Morgunblaðið - 27.03.1981, Side 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. MARZ 1981 Margrét Eiríksdóttir: Of oft litið á tónlistamám sem tómstundagaman ám \/ afmæli Tónlistarskólans i Reykjavík Tónlistarskólinn í Reykjavík minnist 50 ára afmælis síns um þessar mundir með tónleikadögum. Hafa alla vikuna verið tónleikar nemenda á Kjarvalsstöðum og verða hinir síðustu þar í kvöld, en á morgun, laugardag verða einnig tónleikar og þá í Háteigskirkju. Hér eru birt viðtöl við þrjá pianókennara skólans, sem starfað hafa að tónlistarkennslu um árabil. Hólmfríður Sigurjónsdóttir: Tónlistarnámið er sífelld ögun og vinna MEÐAL fyrstu nemenda sem út- skrifuúust frá Tónlistarskólanum i Reykjavík var Marjfrét Eiriksdótt- ir pianókennari. en hún kennir nú við skólann. Eftir námið hélt hún utan ok hefur kennt siðan bæði á Akureyri, i Kópavogi og Reykjavík og fyrr á árum hélt hún óðru hvoru sjálfstæða tónleika. Margrét er i fyrstunni beðin að segja nokkuð frá náminu við Tónlistarskólann. en hún útskrifaðist árið 1934: — Þá voru meðal kennara Páll ísólfsson, sem þá var skólastjóri og dr. Mixa, en hann kenndi á píanó og var hann einnig hljómsveitarstjóri og stjórnaði Hljómsveit Reykjavík- ur. Við vorum þrír píanónemendur, sem útskrifuðumst saman, og einn fiðlunemandi, Björn Ólafsson, og var það að loknu fjögurra ára námi. Áður hafði ég sótt tíma hjá Páli ísólfssyni. Eftir það hélt ég til Bretlands og lauk þar á tíu árum fjögurra ára námi, en stríðið tafði þarna fyrir og ég varð að koma heim í nokkur ár. Margrét stundaði kennslu í einka- tímum eftir námið ytra og hélt tónleika bæði í Reykjavík og úti á landi, ísafirði, Siglufirði og Akur- eyri, og fluttist hún síðar til Akur- eyrar og kenndi þar á píanó og var prófdómari. Fyrir tíu árum flutti hún aftur suður, kenndi við Tónlist- arskóla Kópavogs og síðar Tónlist- arskólann í Reykjavík. Hún er spurð hvort mikill munur sé á píanó- kennslu og aðstöðu nemenda í dag og fyrr á árum: — Tónlistarnám í dag er náttúr- lega varla sambærilegt við það sem var fyrir 40 til 50 árum, og er ein mesta breytingin fólgin í auknum kröfum til nemenda ekki síst um kunnáttu í ýmsum aukafögum, tón- fræði og hljómfræði, tónlistarsögu, tónheyrn, kennslufræði og sálfræði o.fl. og eftir að hinar ýmsu deildir skólanna komu til sögunnar hefur tækifærunum fjölgað. Aðferðir við hljóðfæranámið sjálft hafa kannski lítið breyst, þetta er ennþá jafnerfitt nám og menn þurfa enn í dag að leggja sig jafnmikið fram og áður. En tækifærin eru fleiri þó ekki sé nefnt annaö en hvað hvers kyns tónleikahald hefur aukist bara á síðustu tíu árum. Þá gat maður nokkurn veginn fylgst með öllum tónleikum, en nú eru þeir orðnir svo margir, að maður missir oft af góðum tónleikum, þegar velja þarf á milli. Menn læra mjög mikið á því að hlusta á tónlist, og sá sem kann að hlusta á sjálfan sig spila, hann er besti kennarinn. En þeir eru kannski fáir, flestir vilja bara glamra eitt- hvað og vita varla hvað þeir eru að gera. Aðstaða öll er mun betri, Hljóm- skálinn var ekki upp á það allra bezta og húsnæði Tónlistarskólans í dag er ágætt þó þröngt sé orðið. Ég held að varla nokkur skóli sé eins vel nýttur og hann, þarna er kennt frá 9 á morgnana til 9 á kvöldin og oft er einhvers konar starfsemi lengur fram eftir á kvöldin, hljómsveitar- æfingar eða þvílíkt. Annað sem breyst hefur með árunum er samkeppnin, hún verður alltaf meiri og meiri. Nemendur, sem vilja halda út til náms, verða að blanda sér í harða baráttu þar og nefna má líka, að skólar, sem stundum verða að takmarka aðgang, eru einatt að berjast um að fá góða kennara. En kennarar eru misjafnir erlendis rétt eins og hér og mér finnst stundum sárt að vita af nemendum halda utan án þess að vita alveg hjá hverjum þeir verða. Það er ekki alltaf nóg að vera hjá Þessi mynd er tekin um það leyti sem Margrét útskrifaðist. Fremri röð frá vinstri: Katrín Ólafsdóttir Hjaltested, Svala Einarsdóttir, Jórunn Viðar, Guðriður Guð- mundsdóttir, Hólmfriður Andrés- dóttir, Anna Ólafsdóttir, Katrin Dalhoff og Margrét Eiriksdóttir. Aftari röð frá vinstri: Árni Björnsson, Rögnvaldur Sigur- jónsson, ólafur Markússon, Hauk- ur Gröndal, Þórarinn Kristjáns- son, Björn Ólafsson og Indriði Bogason. frægum hljóðfæraleikara, því það að vera góður kennari er ekki það sama og vera góður hljóðfæraleikari. Geta allir lært á hljóðfæri? — Það geta kannski flestir lært að vissu marki, en ég tel heilbrigðast að ákvörðun komi frá mönnum sjálfum hvort þeir vilja læra á hljóðfæri eða ekki. Við getum ekki séð það fyrir hvort menn eru efni í tónlistarmenn fyrr en komið er nokkuð áleiðis í námi. Menn geta verið músíkalskir, en þeir hafa kannski ekki þann persónuleika sem þarf til að læra, því það þarf margt til að verða músíkant. Og þó menn hafi gaman af tónlistarnámi og geti kannski stundaö það af hörku, er ekki víst að öllum séu gefnir nauð- synlegir listrænir hæfileikar. En hvað verður um þá sem hætta eftir margra ára nám, hafa þeir lært til ónýtis? Margrét Eiriksdóttir pianókenn- ari. I.jnsm Rax. — Það kemur auðvitað fyrir að menn hætta tónlistarnámi, gefast upp og geta verið margar ástæður fyrir því, en ég held að enginn sjái eftir því að hafa lært eitthvað á hljóðfæri. Þá á hann þessa kunnáttu fyrir sjálfan sig. Annars hafa menn of oft litið á tónlistarnám sem tómstundagaman, sem þeir ætla í t.d. að loknu einhverju námi og vilja þá taka það eins og öldungadeild. En það þarf að leggja á sig meiri vinnu en aðeins tímasóknina. Og tónlist- arnám þarf að byrja snemma og þýðir varla að hugsa um það þegar menn eru fulltíða, það fer t.d. enginn í ballettnám eftir tvítugt og það sama álít ég að eigi að vera með tónlistarnám. öll þjálfun þarf að byrja á yngri árum og hæfileikar og líkamshreyfingar glatast með árun- um. Þá finnst mér stundum gæta þess um of að menn séu kærulausir fyrir hljóðfærunum. Það er ekki sama á hvaða hljóðfæri lært er, það verður að vera gott, ófalskt og við finnum það fljótlega ef eitthvað amar að því hljóðfæri, sem nemandinn æfir sig á daglega. Stundum er þetta hálfgert stríð við foreldrana og mörgum finnst þetta hnýsni í mér að hafa afskipti af því, finnst ég alltof kröfuhörð að vilja fá flygil eða stórt og gott píanó, því þessi lágu píanó, sem núna eru algeng, finnst mér varla annað en blikkdósir. ÉG HEF verið að kenna við Tónlistarskólann frá þvi um haustið 1947, en vorið áður lauk ég prófi i pianólcik frá skólanum og þegar Páll ísólfsson hringdi og bauö mér kennslustarf sló ég til. sagði Hólmfriður Sigurjónsdóttir pfanókennari f samtali við Mbl. En Hólmfriður hefur lika starfað á öðrum vettvangi innan skólans: Framan af var ég eingöngu við kennslustörf, en eftir að Jón Nor- dal tók við skólastjórn fór hann þess á leit við mig að ég aðstoðaði hann við stjórnunar- og skrifstofu- störf og hef ég gert það allar götur síðan og verið staðgengill hans sem skólastjóri þegar hann hefur þurft að fara frá. En þrátt fyrir aukin umsvif hér á skrifstofunni hef ég ekki sleppt píanókennslunni, enda nauðsynlegt að vera í nánu sam- bandi við nemendur og tónlistina og þannig hef ég líka reynt að sækja námskeið. Hefur aðstaðan og kennslan sjálf breyst mikið þessi ár? — Aðstaðan hefur breyst mjög, ekki síst frá því við vorum fyrst í Hljómskálanum og þeir Árni Kristjánsson og Björn Ólafsson urðu að kenna okkur nemendum klæddir yfirhöfnum vegna þess að húsið hriplak og öðru hverju urðu þeir að bæta á kolaofninn. Frá Hljómskálanum lá leiðin í Þjóð- leikhúsið og þar var skólinn til húsa þegar ég hóf störf við hann, siðan vorum við í Þrúðvangi og nú við Skipholt og er húsnæðið orðið of lítið, því sífellt eykst skólastarf- ið. Píanókennslan sjálf hefur tekið litlum breytingum, en hins vegar eru komnar hinar ýmsu deildir skólans, píanókennaradeild var sú fyrsta, síðan hafa komið tón- menntakennaradeild, fiðlukenn- aradeild og blásarakennaradeild. Undanfarin ár hefur skólinn haldið margs konar námskeið fyrir nem- endur og kennara, nú síðast í marz með Gerard Souzay og Dalton Baldwin. Mesta breytingin hefur vissulega orðið á aðstöðu nemendanna sjálfra, nú eru tækifærin miklu fleiri, þeir geta farið á sumrin á námskeið erlendis en það þekktist ekki hér fyrr á árum. Slík nám- skeið bæta mjög upp hið langa sumarfrí, en segja má að of langt sumarfrí sé nokkur galli, þá er hætta á að menn missi niður Hólmfriður Sigurjónsdóttir. LjÓHm. Emllig. eitthvað af því sem þeir hafa byggt upp um veturinn. Nemendur sækja líka miklu meira tónleika en áður, þar eru tækifærin líka fleiri, flestir eiga nú orðið hljómflutningstæki og hlusta mikið á plötur og þannig mætti lengi telja. En vinna við námið sjálft hefur ekki breyst, tónlistarnám er vinna og ögun og ekki síst nú á dögum þurfa menn ögunar við, því áður var ekki sjónvarp eða önnur af- þreying að glepja fyrir fólki, nú þarf að halda vel á spöðunum til að ná árangri í tónlistarnámi og láta ekkert trufla sig. Hólmfríður Sigurjónsdóttir hef- ur starfað nær samfellt við Tónlist- arskólann frá haustinu 1947 að undanskildum tveimur árum. Það fyrra var hún við nám í London og lauk þaðan píanókennaraprófi í Royal College of Music og það síðara á námsferð um Bandaríkin. — Núna eru um 270 nemendur í skólanum og kennarar milli 50 og 60 en með mjög mismikla kennslu hver. Nemendafjöldinn hefur hald- ist nokkuð óbreyttur síðustu árin, en samt hefur vinnan aukist, hver nemandi fær kennslu í fleiri grein- um en áður var og farið er að kenna á fleiri hljóðfæri. Tónlistarnámið er líka mjög einstaklingsbundið og segja má kannski að skólinn verði að aðstoða hvern og einn nemanda sérstaklega og hjálpa honum til að finna hina réttu stefnu. Við getum ekki tekið nemendafjöldann á haustin og raðað honum niður í nokkra bekki og búið til einfalda stundaskrá, við þurfum að taka tillit til hvers og eins, annarra skóla og finna hverjum nemanda og kennara þá tíma sem báðum hæfa og nauðsynlegir eru. Þetta krefst mikillar vinnu, en er jafn- framt skemmtilegt og lifandi starf.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.