Morgunblaðið - 27.03.1981, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 27.03.1981, Blaðsíða 23
23 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. MARZ 1981 Útgáfa danskra dagblaða stöðvast Kaupmannahofn. 26. marz. AP. DÖNSK bloð hætta að koma út á morKun vegna deilu útgefenda og setjara. Alls stöðvast útkoma 33 dagblaða, sem samtals eru daglega gefin út i 1.5 milljónum eintaka. Smám saman mun útgáfa timarita stöðvast, en upplag þeirra er 2.4 milljónir eintaka. Útgefendur boðuðu verkbann eftir að setjarar höfðu hafnað málamiðl- unarsamkomulagi. Setjarar svöruðu með því að boða til verkfalls frá og með 1. apríl. Til þess, eins og einn þeirra sagði, að útgefendur hafi ekki einir á valdi sínu hvenær blöðin koma út á ný. Útgefendur segja að deilan snúist um launakröfur. Hins vegar segja setjarar það rangt. Hér sé um að ræða deilu um nýja tækni og hverjir hafi heimild til að fram- leiða prentgripi. Útgefendur segja, að ef gengið verði að kröfum setjara, þá þýði það yfir 20% launahækkun, en það er mun meiri hækkun en almennt hefur samist um á danska vinnumarkaðinum. Felldu Viktoríu Dyflinni. 26. marz. AP. ÞRÍR menn voru í dag til yfirheyrsl- an í sambandi við aðgerðir stuðn- ingsmanna írska lýðveldishersins, sem felldu fimm metra háa styttu af Viktoríu drottningu af stalli í Dyfl- inni árla í dag. í fyrstu virtist sem styttan hafi verið sprengd af stalli, en síðar kom í ljós, að skemmdarvargarnir notuðu talíur til að toga hana af stallinum. Mikil harka er hlaupin í deiluna og eru menn vondaufir um lausn hennar á næstunni. Deilan snertir þó ekki öll dönsk dagblöð. Alls verða gefin út 15 dagblöð með upplag samtals um 300 þúsund eintök. Hér er einkum um landshlutablöð að ræða, svo ekki er búist við að stóru biöðin muni tapa mörgum lesendum. Bóluefni við krabbameini? Daytona Beach, 25. marz. AP. VÍSINDAMENN haía bólusett mýs með efnasambandi er líkist krabhameinsvaldandi efnasam- böndum og mynduðu þær mótefni er cyddi áhrifum efnasambands- ins. Talið er að þessar tilraunir eigi eftir að hafa það í för með sér að von bráðar verði hægt að bólusetja menn við krabbameini, a.m.k. sum- um krabbameinsvöldum. Jafnframt var skýrt frá tilaun- um er sýna fram á að efnið Selenium, sem er að finna í náttúr- unni, vinni gegn krabbameini í brjósti. Fyrri tilraunir bentu til þess að efnið komi í veg fyrir krabba í húð, lifur og þörmum. Vísindamenn vöruðu þó við því að enn væri of lítið vitað um hvaða áhrif Selenium hefur á líkams- starfsemina til að hægt væri að segja nokkuð til um notagildi þess. Gera verður breytingar, stundum miklar, á 3.000 norskum fiskiskipum á næstu fjórum árum í samræmi við nýjar reglur norsku siglingamálastofnunarinnar um sjóhæfni skipa. Á þessari mynd má sjá nokkur norsk fiskiskip að veiðum. Norska siglingamálastofnunin: Kröfur um endurbætur á um 3.000 fiskiskipum Osló, 26. marz. frá Jan erik Laure fréttaritara Mbl. FRÁ OG með 1. september næstkomandi taka gildi nýjar reglur norsku siglingamála- stofnunarinnar um sjóhæfni fiskiskipaflotans. Reglurnar hafa það í för með sér, að gera vcrður endurbætur. í mörgum tilfellum verulegar, á um 3.000 eldri fiskiskipum á næstu fjór- um árum. og þeir hátar sem ekki uppfylla kröfur um sjó- hæfni að þrim tima liðnum verða dæmdir ósjófærir eða þeim veittar undanþágur til veiða innan skerja. Ljóst er, að ekki svarar kostn- aði að gera nauðsynlegar endur- bætur á stórum hluta þessara gömlu skipa, og verður þeim því trúlegast lagt. Fiskifræðingar segja það gleðitíðindi, því þá verði færri skip til að bítast um ört minnkandi afla. Hinar nýju reglur fela í sér harðar kröfur um að skipin verði þannig úr garði gerð, að þau verði „veðurþétt". Þannig verður að gera gagngerar breytingar og endurbætur á afturhluta 1.600 báta, sem eru stærri en 25 tonn og undir 45 metrum að lengd. Þá verður að gera umfangsmiklar endurbætur á um 1.400 bátum sem eru innan við 25 smálestir og innan við 10 metrar að lengd. Setja verður í þá vatnsþétta glugga, lúgur og hurðir. Norska siglingamálastofnunin segir, að flest skipanna séú þannig úr garði gerð að sjóhæfni þeirra sé ábótavant, og til að auka öryggi þeirra sé breyt- inganna og hinna hörðu reglna þörf. Nýleg rannsókn í Noregi hefur leitt það í Ijós, að flestir skips- skaðar verða ekki við slæm veðurskilyrði, heldur í hvass- viðri og stinningskalda. Flest skipanna hafa heldur ekki verið hlaðin er tapinn varð. I kyrru veðri standa hurðir, lúgur og loftventlar jafnan opnir, og gefi yfir bátinn leggst hann fljótt á hliðina og sekkur. Sjómenn sýna ekki sömu varkárni þegar veður er ekki slæmt, segir í niðurstöð- um athuganna. Telub-málið: Yissu ráðherrar að um var að ræða hernaðarlega menntun? Mordum mótmælt Blökkubörn i Atlanta i Georgíu fóru i mótmælagöngu i vikunni til að leggja áherzlu á, að morðingi 22 blökkubarna í borginni verði settur á bak við lás og slá. Á mynd Ap-fréttastofunnar sést Joab Chopin niu ára gamall, bera kross eins fórnarlamba morðingjans. Frá Guðfinnu Ragnarsdóttur fréttaritara Mbl. i Sviþjóð. „VIÐ HEFÐUM átt að athuga TELUB-málið betur 1979,“ sagði utanríkisráðherra Svía. Ola UIl- sten, í gær, þegar hann var yfir- Verkamannaflokkurinn í Noregi eykur fylgi sitt Ósló, 26. april, frá Jan Erik Laure. fréttaritara Mbl. „VIÐ VINNUM þingkosningarnar í haust,“ sagði Gro Harlcm Brundt- land forsætisráðherra þegar niður- stöður nýjustu skoðanakannana um fylgi norsku stjórnmálaflokkanna lágu fyrir, en þar kemur í ljós, að Verkamannaflokkurinn hefur aukið fylgi sitt stórum. Samkvæmt könnuninni nýtur Verkamannaflokkurinn fylgis 36,9% kjósenda, en þar er um að ræða rúmlega þriggja prósentustiga fylg- isaukningu frá síðustu könnun, er 33,6% aðspurðra sögðust styðja flokkinn. Talið er að fylgisaukningu Verka- mannaflokksins megi fyrst og fremst rekja til hins nýja forsætisráðherra flokksins, frú Brundtland. I síðustu kosningum, 1977, naut Verkamannaflokkurinn fylgis 42% kjósenda, og telja fróðir menn, að vegna innbyrðis ágreinings borgara- legu flokkanna um stefnu væntan- legrar stjórnar, fari flokkarnir með - en sundrung á landsfundi gœti gert vonir um kosningasigur í haust að engu sigur í kosningunum, og um hvaða flokkur skuli hljóta forsætisráðu- neytið, eigi Verkamannaflokkurinn meiri möguleika nú en áður að vinna kosningarnar. Hins vegar eru einnig í uppsiglingu deilur innan Verkamannaflokksins er blossa munu upp á landsfundi flokksins eftir viku. Ágreiningur er um skipulag flokksforystunnar, einn hópur vill að forsætisráðherra flokksins verði jafnframt formaður hans, en hinn hópurinn vill að þarna verði greint á milli, að sami maðurinn verði ekki í senn forsætisráðherra og flokksfor- maður. Meirihlutinn er því fylgjandi að forsætisráðherrann verði jafn- framt flokksformaður, en Reiulf Steen, núverandi formaður, mun tæplega gefa sinn hlut eftir átaka- laust. Steen á marga andstæðinga í röðum flokksmanna, og allar líkur eru á að honum yrði hafnað í formannskjöri. Búast má við átökum um einstaklinga á landsfundinum, því nú þegar hefur ungliðahreyfing flokksins og ýmsir valdamenn í verkalýðshreyfingunni lýst yfir stuðningi við Steen að fyrra bragði. Norsk blöð skýra einnig frá því um þessar mundir, að Gro Harlem Brundtland rói að því öllum árum á bak við tjöldin að verða bæði formað- ur flokksins og forsætisráðherraefni, en nái þær tillögur ekki fram að ganga, mun hún hafa unnið að því að annar maður en Steen verði kjörinn formaður flokksins. Það mun því velta mikið á útkomu landsfundarins fyrsta sunnudag í aprílmánuði, hvort Verkamanna- flokkurinn eigi einhverja möguleika á því að vinna kosningarnar í haust. heyrður af nefnd þeirri í sænska þinginu, sem nú rannsaka Telub- málið svokallaða. En Telub-málið fjallar um menntun 80 ungra liðs- foringja frá Líbýu. Ymis gögn hafa komið í ljós sem benda til þess að ábyrgir ráðherrar hafi vitað að hér var um hernaðar- lega menntun að ræða, án þess þó að aðhafast neitt í málinu. Varnar- málaráðherrann, Eric Krömark, gerði þó tilraun til þess að stöðva menntunina, en án árangurs. Ákveðin nefnd vinnur nú að því að rannsaka málið, og í síðustu viku fóru fram yfirheyrslur yfir varn- armálaráðherranum og viðskipta- máiaráðherranum, Staffan Bur- enstam-Linder, en Burenstam- Linder neitaði þá að hafa haft nokkra vitneskju um málið. I gær var svo Ola Ullsten yfir- heyrður, en hann var forsætisráð- herra þegar samningar voru undir- ritaðir milli Telub-fyrirtækisins og Líbýu 1979. Hann sagði við yfir- heyrslurnar, að það væri létt að gagnrýna ákvörðun ráðherranna nú þegar við stöndum með svarið í höndunum. „En við höfðum enga ástæðu til að rengja þær upplýs- ingar sem við fengum þá,“ sagði utanríkisráðherrann. „Vissulega fannst mér þá að þetta mál væri heldur ógeðfellt, allt saman, en það var á engan hátt ólöglegt," sagði hann. „En við hefðum átt að athuga málið betur, það játa ég í dag. Þá hefðum við kannski komist að raun um, að þeir hlutar menntunarinnar, sem mikil leynd hvíldi yfir, voru hernaðarlegir.“ Trúlega verða félagsmálaráðherr- ann, Karin Söder, og iðnaðarráð- herrann, Nils G. Asling, einnig yfirheyrð á næstunni, en Karin Söder var utanríkisráðherra þegar samningarnir voru undirritaöir milli Telub-fyrirtækisins og Líbýu 1979. Eldflaugaárás á bandaríska sendiráðið í E1 Salvador San Salvador, 26. marz. AP. SKÆRULIÐAR í E! Salvador gerðu í gær eldflaugaárás á handaríska sendiráðið, að því er handarískir sendiráðsmenn skýrðu frá. Enginn slasaðist í eldflaugaárásinni en ein eldflaug- anna fór í gegn um glugga á fjórðu hæð sendiráðsins og olli talsverðum skemmdum. Skæruliðar voru í þremur hóp- um, 6 manns í hverjum hópi. Öryggisverðir skutu að árásar- mönnunum, en þeir komust undan. Á flóttanum vörpuðu þeir hand- sprengju og sprengdu bíl í loft upp. Fyrr í vikunni var sprengja sprengd við sendiráð Nicaragua í E1 Salvador.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.