Morgunblaðið - 27.03.1981, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. MARZ 1981 29
Sjötugur:
Skúli Magnússon
kennari Akureyri
í dag er vinur minn, Skúli
Magnússon, kennari, sjötugur.
Skúli er Hörgdælingur, fæddur í
Hátúni þar sem foreldrar hans,
Magnús bóndi Friðfinnsson og
kona hans, Friðbjörg Jónsdóttir,
bjuggu. Þau fluttu er hann var
unglingur að Skriðu í Hörgárdal,
sem er gamalt ættaróðal Skúla í
móðurætt.
Eftir að hafa lokið stúdents-
prófi frá MA 1935 fór Skúli til
Kaupmannahafnar til náms í sál-
arfræði.
Þar kvæntist hann, 1938, heit-
konu sinni og fyrrverandi skóla-
systur, Þorbjörgu Pálsdóttur,
dóttur Þorsteinsínu Brynjólfs-
dóttur og Páls Gíslasonar, stór-
bónda að Víðidalsá í Steingríms-
firði.
Vegna stríðsins 1939 kom Skúli
heim og settist í Kennaraskólann
og iauk þaðan prófi 1940.
Eftir það kenndi hann eitt ár í
Vestmannaeyjum en flyst 1941 til
Akureyrar og kenndi í 37 ár við
Gagnfræðaskóia Akureyrar, einn-
ig við Iðnskólann og Tækniskól-
ann seinni árin. Auk þess var
hann prófdómari í sögu við
Menntaskólann á Akureyri. Með
prúðmannlegri og alúðlegri fram-
komu sinni aflaði Skúli sér virð-
ingar samkennara sinna og nem-
enda.
Nemendur hans hafa sagt mér
að hann hafi haft aðal góðs
kennara, agavandamál þekktust
ekki í tímum hjá honum og hann
hélt athygli nemendanna óskiptri.
Eftir samkennara hans hef ég
að víðtækur skiiningur Skúla á
íslensku máli og íslenskum
kveðskap, þekking hans á sögu,
bókmenntum og humaniskum
fræðum og síðast en ekki síst
skilningur hans á getu nemenda
sinna hafi gert hann að afburða
kennara.
Gamla ættaróðalið, Skriða, átti
ailtaf mikil ítök í Skúla. Á honum
sannaðist að „Römm er sú taug er
rekka dregur föðurtúna til“. I
Skriðu dvaldi hann löngum á
sumrin með fjölskyldu sinni við
heyskap og önnur bústörf og átti
lengi hálfa jörðina á móti Finni,
bróður sínum. Öll ræktun er
honum mjög að skapi og rík í eðii
hans. Hann hefur komið sér upp
reit í gamla fjölskyldulandinu og
fetað þar í fótspor langalangafa
síns, Þorláks Hallgrímssonar, sem
fyrstur manna gróðursetti tré á
íslandi, og var einnig með þeim
fyrstu að rækta kartöflur hér á
landi.
I reitnum sínum hafa þau hjón-
in, Þorbjörg og Skúli, átt margar
góðar stundir við gróðursetningu
runna og trjáplantna sem eru nú
óðum að vaxa úr grasi.
Skúli er, eins og áður er sagt,
ágætur íslenskumaður, talar og
ritar mjög vandað mál. Það er því
eðlilegt að tómstundirnar hafi
farið í lestur góðra bóka. Nú
síðustu árin hefur hann fengist
við þýðingar. Fyrir síðustu jól
kom út bókin Ríki mannsins, drög
að geðheilsufræði eftir Vibeke
Engelstad, sem Skúli þýddi úr
norsku, frábærlega vel, að dómi
gagnrýnenda.
Við Skúli kynntumst fljótlega
eftir að ég kom til Akureyrar fyrir
nær 30 árum. Voru það skyldleik-
ar konu minnar og hans, sem þar
lágu að baki. Það leyndi sér ekki
hvern mann Skúli hafði að geyma.
Prúðmennskan og góðvildin eru
honum svo eðlislægar að manni
líður ávaiit vel í návist hans.
Skúli er hamingjumaður í
einkalífi sínu og hefur lagt sömu
alúð við heimilið og allt annað sem
hann hefur lagt hönd á.
Þau hjónin, Þorbjörg og Skúli,
hafa verið einstaklega samhent í
lífinu, staðið saman í blíðu og
stríðu og skapað sér menningar-
legt heimili, sem enst hefur með
sama blæ alla tíð. Börnin fimm,
sem öll eru stúdentar frá MA,
bera foreldrunum ótvírætt vitni
um góðar erfðir og gott fordæmi í
uppvextinum, en þau eru: Magnús,
iæknir á Húsavík, Margrét, kenn-
ari í Reykjavík, Páll, prófessor við
Háskóla Islands, Þórgunnur, er að
ljúka námi í bókmenntum við
Háskólann í Árósum, Skúli, nem-
ur líffræði við Háskóla íslands.
Barnabörnin eru tíu.
Þorbjörg og Skúli fluttust til
Reykjavíkur fyrir tveim árum í
nágrenni barna sinna, sem flest
eru búsett þar. Þau hafa komið sér
vel fyrir að Meistaravöllum 13. Á
heimili þeirra þar ræður sama
gestrisnin ríkjum og var á heimiii
þeirra hér á Akureyri. Til þeirra
er alltaf gott að koma og okkur
hjónum tekið með opnum örmum.
Við sendum hlýjar afmælis-
kveðjur suður yfir heiðar til Skúla
og fjölskyldu hans.
Hjörtur Eiríksson
Skúli Magnússon kennari frá
Skriðu í Hörgárdal er sjötugur í
dag, og í tilefni þessa heiðurs- og
hátíðisdags senda vinir hans og
nemendur nú hlýjar óskir og
þakkarhug heim í Meistaravelli 13
í Reykjavík.
Hann varð stúdent frá Mennta-
skólanum á Akureyri árið 1935 og
nam svo sálarfræði við Kaupman-
nahafnarháskóla.
Þegar styrjöldin var í aðsigi
árið 1939, kom hann heim til
íslands, þá nýlega kvæntur skóla-
systur sinni frá MA, Þorbjörgu
Pálsdóttur frá Víðidalsá við
Steingrímsfjörð. Hann lauk kenn-
araprófi árið 1940 og stundaði
eftir það kennslustörf. Fyrst
kenndi hann eitt ár í Vestmanna-
eyjum, en svo lá leiðin til Akur-
eyrar, þar sem hann hlaut kenn-
arastöðu við barnaskólann. Árið
1944 kom Skúli að gagnfræðaskóla
Akureyrar, og starfaði hér við
skólann meginhluta starfsævi
sinnar, þar til þau hjón fluttust til
Reykjavíkur árið 1978. Jafnframt
kenndi hann nokkuð við Iðnskól-
ann á Akureyri og var lengi
prófdómari í sögu við Menntaskól-
ann.
Leitun mun vera að jafnvand-
virkum og sómakærum kennara
og Skúli Magnússon er. Honum
tókst að gera námsefnið lifandi og
heillandi fyrir nemendum sínum,
vekja áhuga og spurn, svala jákv-
æðri forvitni og fróðleiksþorsta og
á þann hátt að nemendum hans
þótti öllum vænt um hann. Aga-
vandamál voru honum fjarlæg og
árangur hans við kennslu og
nemenda hans í námi og á prófum
var frábær.
Alúðleg, einiæg og fáguð fram-
koma hans, stilliieg og festuleg í
senn, sýndi nemendum hans og
öðrum samferðamönnum, að þar
fór háttvís drengskaparmaður, og
allir, sem kynnst hafa honum.
bera til hans hug vinsemdar og
virðingar. Það er sómi hverrar
stéttar að eiga menn á borð við
Skúla í röðum sínum, og það var
happ og heill íslenskri kennara-
stétt, að hann skyldi skipa
kennarastól.
Það var ekki síst happ og'gæfa
Gagnfræðaskóla Akureyrar, að
Skúli skyldi gerast starfsmaður
hans og kenna við skólann í 34 ár.
Hér á hann ótalin spor og verk,
orð og athafnir, í þágu æskufólks
á Akureyri og menningar á ís-
iandi.
Héðan berast í dag þakkir og
heillaóskir til Skúla og Þorbjargar
og barna þeirra. Frá okkur gömlu
félögunum á kennarastofunni -
koma alúðarkveðjur með þökk
fyrir langt samstarf og heila
vináttu, sem aldrei bar hinn
minnsta skugga á. Þeim fylgir
einlæg ósk um góða heilsu og
bjarta daga, gæfu og gengi.
Sverrir Pálsson
Byggingarvísi-
talan 682 stig
IIAGSTOFA íslands hefur
reiknað út vfsitölu byggingar-
kostnaðar eftir verðlagi í fyrri-
hluta marzmánaðar og reynd-
ist vísitaian vera 682 stig.
miðað við grunninn 100 í
október 1975. Hækkun frá
fyrrihluta desembermánaðar
er 8,95%, sem þýðir verðbólgu-
hraða á einu ári 41%.
Samkvæmt eldri grunni, 1.
október 1955 er byggingarvísi-
talan nú 13.543 stig og gildir
hún á tímabilinu frá apríl til
júní 1981, svo sem eins og hin
vísitalan, sem miðuð er við
yngri grunninn.
smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar
Kvennadeild Rauða
kross íslands
Konur athugið
Okkur vantar sjólfboöaliöa til
starfa fyrir deildina. Uppl. f
sfmum 34703, 37951 og 14909.
Heildsalar
Ódýrt vörupartí til sölu meö
afslætti Allskonar bönd á
spjöldum, hentug fyrir smásölu.
Sími. 30465.
Útungunarvélar
Tll sölu 2 útungunarvélar í góöu
lagl. Uppl. í síma 99-1916.
Lestrarkennsla
fyrir 4ra—5 ára börn hefst 2.
apri). Sfmi 21902.
Atvinnuhúsnœði óskast
Óska eftir 100 til 150 fm.
atvinnuhúsnæöi. Ein til 2 aö-
keyrsludyr. (jaröhæö). Uppl. (
síma 71357 á kvöldln.
IOOF 1 = 1623278’4 = 9.0
Skemmtikvöld
veröur föstudaginn 27. marz kl.
20.30 á F arfuglaheimilinu, Lauf-
ásvegi 41. Margt veröur til
skemmtunar. Mætum öll.
Skemmtinefndin.
FERDAFELAG
ÍSLANDS
ÖLDUGÖTU3
3ÍMAR11798 og 19533.
Námskeiö fyrir
fjallgöngufólk
Feröafélag fslands heldur nám-
skeiö fyrir fjallgöngufólk n.k.
sunnudag 29. marz Leiöaval
veröur meö tilliti til snjóflóöa-
hættu og kennd veröur notkun á
fsðxi og göngubroddum. Leiö-
beinendur veröa Torfl Hjaltason
og Helgi Benediktsson. Farlö frá
Umferöarmiöstööinni kl. 9 f.hog
gengiö á Skarösheiöina. þar
sem kennslan fer fram.
Þátttakendur veröa aö vera van-
ir fjallgöngum og ennfremur að
hafa þann útbúnaö, sem aö ofan
getur. Verð kr. 70.-
Feröafélag islands.
Skíðadeild K.R.
Reykjavíkurmót 1981
Stórsvig nk. laugardag. Stúlkur
13—15 ára, kl. 11.30. Drengir
13—14 ára kl. 12. Drengir 15—
16 ára kl. 13. Svig nk. sunnudag
sama tímasetning.
FERÐAFÉLAG
ÍSLANDS
ÖLDUGÖTU 3
SÍMAR11798 og 19533.
Dagsferðir
sunnudaginn 29. marz:
1. kl. 13 Tröllafoss í Leirvogsá í
vetrarskrúöa. Fararstjóri: Baldur
Sveinsson.
2. kl. 13 SkíÖaganga á Mos-
fellssheiöi Fararstjóri: Tryggvi
Halldórsson.
Verö kr. 40. Farlö frá Umferöar-
miðstööinni austanmegin. Far-
miöar v/bfl.
Ferðafélag islands.
Al'GLYSINGASIMINN F.R:
22410
Jhergunblabib
É5>
raöauglýsingar — raöauglýsingar — raðauglýsingar
Húnvetningafélagið
auglýsir
Sigursteinn Guömundsson, héraðslæknir,
sýnir myndir teknar í Húnavatnssýslu á sl.
árum. Sýningin veröur í Félagsheimili Sel-
tjarnarness kl. 14.30, sunnudaginn 29. marz
nk.
Skemm tinefndin
tilboö — útboö
Útboð
Tilboð óskast í lagningu 2. áfanga aðveitu og
dreifikerfis fyrir Hitaveitu Hjaltadals.
Útboðsgögn fást afhent á verkfræðistofunni
Fjölhönnun hf„ Skipholti 1, Reykjavík og hjá
Gísla Pálssyni, Hofi í Vatnsdal, Austur-
Húnavatnssýslu, gegn 500 kr. skilatryggingu.
Tilboðum skal skilaö á sömu staði fyrir kl. 17
þann 22. apríl.
Hitaveita Hjaltadals.
Útboð
Hitaveita Egilsstaðahrepps og Fella óskar
eftir tilboðum í eftirfarandi verk:
1. Smíði 750 rúmmetra stáltanks.
2. Einangrun og stálklæðningu sama tanks.
Útboðsgögn eru afhent hjá Hitaveitu Egils-
staðahrepps og Fella, Lyngási 12, Egils-
stöðum, sími 97-1466 og verkfræðistofnun-
inni Fjölhönnun hf„ Skipholti 1, Reykjavík,
sími 91-26061 gegn 750 kr. skilatryggingu.
Tilboðin veröa opnuð á skrifstofu hitaveit-
unnar 22. apríl kl. 11.00.
Hitaveitustjóri