Morgunblaðið - 27.03.1981, Side 36

Morgunblaðið - 27.03.1981, Side 36
36 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. MARZ 1981 Drake- leiðangurinn 2. grein Eftir Úlfar Daníelsson Úlfar í miöbaugsskírninni moö grænum baunagraut. Eye of the Wind var nýkomið úr slipp þegar ég kom til Mombasa þar sem skipið var. Svo það var strax farið að skrapa og mála. Af nógu var að taka. Unnið var að taka vistir og gera skipið ferðbúið næstu 5 daga, en þá lét skipið úr höfn. Einnig var Young Explores, YEunum eins og við kölluðum þá í daglegu tali, kennd undirstöðu- atriði í sjómennsku, svo sem binda hnúta, hringa upp og ganga frá böndum, en um borð var heill frumskógur af böndum, læra nöfnin á seglunum, seglameðferð o.fl. 8. ágúst fórum við frá Mom- basa. Mikil spenna var því flestir YEana höfðu aldrei farið á sjó ’ fyrr. Veðrið var hálfleiðinlegt, 6—7 vindstig af SA. Ekki brostu aliir, því fljótt fór græni liturinn að birtast. YEar lágu um allt dekkið og ældu hver á annan eins og múkkar. Vaktin sem ég hafði umsjón með var frá 4—8. Mitt verk á vaktinni var að sjá um stjórn skipsins, seglameðferð, stefnu, auk hinna ýmsu vaktarstarfa, s.s. að þvo dekkið o.fl. 5 vaktir voru um borð: 3 siglingavaktir, 12—4, 4—8, 8—12. Dekkvakt, sem sá um að skrapa og mála, yfir henni réð Börkur Arnviðarson frá Húsavík. Eldhúsvakt sá um að elda. Skipt var um vaktir á 5 daga fresti. Þau siglingatæki sem voru um borð í skipinu voru sjókort, sext- antar og áttavitar, radar var um borð en bilaður, svo siglingatækin voru hálf frumstæð miðað við 20. öldina. Fljótlega fór tilbreytingarleysið að gera vart við sig. Sömu hlut- irnir voru gerðir aftur og aftur. En brátt fór að draga til tíðinda. Skömmu eftir að við sigldum yfir miðbaug vorum við öll skírð. Lítið ker var búið til og þar var hellt yfir okkur allskonar drullu, gerðri úr mat, svo var okkur dýft ofan í kerið. Líktist þetta hinum hefð- bundnu busavígslum menntaskól- anna á íslandi. Þann 14. ágúst settum við skipsmet, fórum við 224 mílur á 24 tímum en það gerir 9,33 hnúta hraða. Þetta er mesti hraði sem skipið hefur náð á 70 ára ferli sínum. 15. ágúst sigldum við fyrir austasta horn Afríku, Ras Has- um. Þegar við komum inn í Gulf of Aden tók á móti okkur tugir af hnísum sem léku sér í kringum skipið og sýndu fáséða takta. Vindurinn, sem hafði verið 7 vindstig, datt alveg niður og hitinn hækkaði upp í 40°C og rakinn jókst svo að ekki var þurr blettur á nokkrum manni. Það endaði með því að við tókum niður seglin og fórum öll í sjóinn, 20 km undan strönd Sómalíu. Lítil kæl- ing var í því, því sjórinn var um 36°C heitur. Vonlaust var að sofa neðan þilja svo allir sváfu uppi á dekki. Mikið var um skipaferðir, aðal- lega flutningaskip og olíuskip, en fáséðari skip voru þarna lika, s.s. skuttogarar að veiðum og herskip. í gegnum Gulf of Aden þurftum við að sigla fyrir vélarafli því annaðhvort var logn eða vindur- inn var beint á stefnið. Nýir erfiðleikar komu samfara vélar- notkuninni en það var að skipta þurfti um olíusíur ca. 2—4 sinnum á sólarhring, vegna skítugrar olíu. 20. ágúst sigldum við inn í Rauða- hafið. Vegna þess hve mikið við notuðum vélina, þurftum við að koma við í Port Súdan til að taka olíu. Þegar við komum til Port Súd- an, vakti það furðu manna að fleiri skip biðu fyrir utan Port Súdan en voru inni í höfninni, svo mikil var umferðin um höfnina, en sem betur fór komumst við strax i skipalægi í seglbátahöfn- inni. í Port Súdan vorum við í 3 sólarhringa við að taka olíu, vatn og vistir. Frá Port Súdan héldum við til kóralrifs sem var um 4 tíma siglingu frá höfninni. Þar stopp- uðum við í 2 sólarhringa og skoðuðum lífríki sjávar. Að synda í kóralrifi er eins og að synda í gullfiskabúri. Frá rifinu tókum við stefnuna á Port Súes en til Súes var 6—8 daga sigling. Fleiri erfiðleikar fóru að koma í ljós, útblástursrörið rifnaði, kæli- vatnsreimarnar slitnuðu og olíu- truflanir herjuðu aftur á okkur. Á einni vaktinni minni var skipt 3 sinnum um olíusíur. Vindurinn Auga vindsins Allir þurftu aö vera klárir í möstrin til aö seglbúa skipiö. Hvarvetna vakti Auga vindsins torvitni Úlfar aö kenna einni stúlkunni aö taka manna þegar síglt var í höfn. landmiö. sigla áfram á 1 hnúts hraða brunuðu um 100 skip á sólarhring framhjá okkur á um 15—25 hnúta hraða. Það vakti undrun manna að þó að Gulf of Sues sé margra mílna breiður, eru siglingaleiðirn- ar fram og til baka 1—3 mílur á breidd. Það sem þrengir siglinga- leiðirnar eru eyjur, olíusvæði, olíuborpallar og sprengjusvæði. Þurftum við stanslaust að vera að taka mið af landi til að halda okkur á réttri siglingaleið. Veðrið var enn um 8—9 vindstig af NV og stefnan okkar ar akkúrat í NV. Þetta endaði með því að við leituðum vars svo við yrðum ekki olíulausir. í varinu var strax tekið til við að vinna og gera við það sem aflaga hafði farið. Á þriðja degi á þessum stað kom þyrla með þau skilaboð að dráttarbátur kæmi okkur til aðstoðar og léti okkur fá olíu og tæki YEana en þeir áttu að fara til Egyptalands að planta trjám. Daginn eftir kom sá al- stærsti dráttarbátur sem ég hef séð, lagðist hann við hliðina á okkur og var dælt olíu yfir, en við borguðum með YEum, voru það ekki slæm viðskipti. Eftir að YEarnir voru farnir voru aðeins 13 manns um borð til að sigla skipinu til Egyptalands. í 5 daga í viðbót lágum við við ankeri og var tíminn vel notaður til vinnu. Á 6. degi drógum við upp ankeri, sama veður var, 8—9 vindstig af NV og stefna okkar til Port Súes var akkúrat NV. Ekkert gekk, t.d. sigldum við aðeins 1 mílu á einni vaktinni, sem er 4 tímar. Það fór ekki að ganga fyrr en við gátum breytt stefnunni og stefndum á Sínaískagann, þar sigldum við svo að segja undir skaganum. Uppi yfir okkur gnæfðu fjöll beint upp úr sjó, en skaginn er mjög hálend- ur og á hæstu tindunum sáum við fallbyssuhreiður. Skipstjórinn á Auga vindsins tekur sólarhæöina á sextant. jókst og var allt upp í 8—9 vindstig og ölduhæðin eftir því. í einni öldunni fór bugspjótið í kaf og netið undir því rifnaði í sundur, Jollýbáturinn, sem hékk í davíðunum aftur á skut brotnaði upp í davíðurnar og þær bognuðu. Þann 5. september sigldum við inn í Gulf of Sues en það er flóinn á milli Sínaískagans og Egypta- lands. Meðan við börðumst við að

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.