Morgunblaðið - 27.03.1981, Side 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. MARZ 1981
Viggó var
hetja B.
Leverkusen
VIGGÓ Sigurdsson var heldur
betur hetja Bayer Leverkusen
í fyrrakvöld, er liðið sigraði
Kiel 16—15 í þýsku deildar-
keppninni i handknattleik.
Viggó skoraði sigurmarkið á
siðustu sekúndum leiksins og
átti auk þess stórleik. skoraði
7 mörk i leiknum. Leverkusen
hefur verið i nokkurri fall-
hættu, en hagur liðsins vænk-
aðist að sjálfsögðu mikið við
sigurinn i fyrrakvöld.
íslenskir kylf-
ingar hita upp
á irlandi
ÞAÐ GERIST æ vinsælla með-
al islenskra kylfinga, að þeir
taki forskot á sæluna og fari
margir saman til trlands um
páskana og berji þar kúlur
sinar fram og til baka á
hinum frægu golfvöllum þar i
iandi.
Stór hópur kylfinga, sem
skipa meðal annars ýmsir af
kunnustu golfmönnum lands-
ins. ætla sér að leggja land
undir fót um komandi páska
og halda til trlands i 14 daga
ferð á vegum Samvinnuferða.
Á dagskrá verður meðal ann-
ars 8 daga ferð víða um trska
lýðveldið. þar sem komið
verður við á öllum helstu
golfvöllum landsins.
Ríkharður sigraði naumlega
- barátta hans og Gunnars mjög jöfn og spennandi
RÍKHARÐUR Hrafnkelsson varð
hlutskarpastur i einkunnagjöf
Morgunblaðsins fyrir hið ný-
lokna keppnistimabil i körfu-
knattleik og hlýtur þvi nafnbót
blaðsins, leikmaður Islandsmóts-
ins 1980—1981. Keppnin var
geysilega hörð að þessu sinni og
aðeins munaði einu stigi á Rik-
harði og skæðasta keppinaut
hans, UMFN-leikmanninum
kunna Gunnari Þorvarðarsyni.
Þegar upp var staðið hafði Rik-
harður hlotið 141 stig úr 20
leikjum, eða meðaleinkunnina
7,05. Gunnar, sem varð íslands-
meistari með UMFN eftir margra
ára strit í þá átt, fékk hins vegar
140 stig úr jafn mörgum leikjum
og meðaleinkunnina 7,00.
Tveir leikmenn fengu reyndar
hærri meðaleinkunnir, en hvorug-
ur lék lágmarksleikjafjölda þann
sem Mbl. gerir kröfu til að menn
leiki. Það voru þeir Jón Sigurðsson
KR, sem fékk 109 stig fyrir 15
leiki, meðaleinkunnina 7,26 og
Pétur Guðmundsson Val, sem fékk
52 stig fyrir 7 leiki, eða 7,42 í
meðaleinkunn. Aðeins fyrrnefndir
fjórir leikmenn náðu því að fara
yfir 7,00 í meðaleinkunn. Þar sem
þeir Jón og Pétur töldust ekki
gjaldgengir, má glöggt sjá af
meðfylgjandi lista yfir hæstu leik-
menn í einkunnagjöfinni, að þeir
Ríkharður og Gunnar höfðu tölu-
verða yfirburði. En rennum nú
yfir listann:
Ríkharður Hrafnkelsson, Val
Gunnar borvarðarson, UMFN
Kristján Ágústsson, Val
Garðar Jóhannsson, KR
Torfi Magnússon, Val
Jónas Jóhannesson, UMFN
Guðsteinn Ingimarsson, UMFN
Gísli Gíslason, ÍS
Jón Jörundsson, ÍR
Ágúst Lindal KR
Valdemar Guðlaugsson, Árm.
Bjarni G. Sveinsson, ÍS
ÍS renndi
sér í úr-
slitaleikinn
ÍS TRYGGÐI sér rétt til þess að
leika til úrslita i bikarkeppninni
i blaki, er liðið sigraði UMFL að
Laugarvatni i íyrrakvöld. ÍS
sigraði 3—0, en þær tölur segja
ekki mikið um gang leiksins.
IS vann fyrstu hrinuna 15—11,
en í næstu hrinu komst UMFL í
12—5 áður en allt loft lak úr
blöðrunni og IS vann 15—13. Enn
Ríkharður Hrafnkelsson glaðklakkalegur með einn af mörgum
bikurum sem Valsmenn hafa hreppt siðustu misserin.
sonar af lista þessum. Eins og Jón
Sigurðsson og Pétur Guðmunds-
son, lék hann ekki nógu marga
leiki til þess að vera gjaldgengur.
Hann lék 15 leiki, fékk 102 stig,
eða meðaleinkunnina 6,80. Síðar á
árinu mun Ríkharður ásamt hin-
um íslenska stigakóngi íslands-
mótsins og öðru íþróttafólki vera
heiðraður.
—gg
Leika í
Keflavík
í kvöld
í KVÖLD kl. 20.00 fer íram
annar landsleikur Finna og ís-
lendinga i körfuknattleik. Má
búast við hörkuspennandi leik á
milli liðanna.
Við látum nægja að geta á
þennan hátt þeirra leikmanna sem
náðu meðaleinkunninni 6,00 eða
meira, en þó má fylgja hér með, að
þeir Jón Steingrímsson Val og
Árni Guðmundsson ÍS voru alveg
við það að ná sexunni. Einhverjir
sakna kannski Kristins Jörunds-
stig leikir eink.
141 20 7,05
140 20 7,00
126 19 6,63
131 20 6,55
129 20 6,45
128 20 6,40
127 20 6,35
125 20 6,25
111 18 6,16
117 19 6.15
122 20 6,10
122 20 6,10
hafði UMFL undirtökin framan af
þriðju lotunni, komst í 13—8, en
tapaði síðan aftur 13—15. UMFL
var einnig í eldlínunni á þriðju-
dagskvöldið, tók þá á móti Þrótti
og tapaði 0—3. Tveir leikir fóru og
fram á mánudagskvöldið, í 1. deild
kvenna sigraði Víkingur ÍS 3—1
og Þróttur sigraði Víking 3—2 í 1.
deild karla.
Sem fyrr segir tryggði IS sér
rétt til að leika til úrslita í
bikarkeppninni. Liðið mætir
Þrótti í úrslitunum 2. apríl næst-
komandi klukkan 20.00. Strax að
þeim leik loknum mætast IS og
Víkingur í úrslitaleiknum í bikar-
keppni kvenna.
Garöar stigakóng
ur í körfunni
GARÐAR Jóhannsson úr KR
varð stigahæsti íslendingurinn
á hinu nýlokna fslandsmóti i
körfuknattleik, en þeim manni
veitir Morgunblaðið ár hvert
viðurkenningu fyrir aírekið.
Garðar skoraði 312 stig I leikj-
unum 20, eða fjórum stigum
meira en Rikharður Hrafn-
kelsson, einkunnakóngurinn úr
Val. Síðar á þessu ári mun
Garðar vera heiðraður ásamt
fleira íþróttafólki sem unnið
hefur til þess að mati Morgun-
blaðsins. Listinn yfir stiga-
hæstu íslendingana lýtur þann-
ig út:
Garðar Jóhannsson KR 312
Ríkharður Hrafnkelsson Val 308
Kristján Ágústsson Val 294
Gunnar Þorvarðarson UMFN292
Jón Sigurðsson KR 285
Valdemar Guðlaugsson Árm. 281
Bjarni G. Sveinsson ÍS 271
Torfi Magnússon Val 266
Jón Jörundsson ÍR 257
Kristinn Jörundsson ÍR 237
Gísli Gíslason ÍS 230
Ágúst Líndal KR 223
Árni Guðmundsson ÍS 190
Jónas Jóhannesson UMFN 186
Kristján Rafnsson Árm. 170
Aðrir leikmenn íslenskir skor-
uðu minna en hópur þessi.
Garðar Jóhannsson
Bandaríkjamennirnir voru jafn-
an atkvæðamiklir og ef þeir
væru með á lista þessum liti
hann öðruvísi út. Þeir Banda-
ríkjamenn sem léku hér á landi
skoruðu sem hér segir:
Danny Shouse UMNF 798
Mark Coleman ÍS 571
Andy Fleming ÍR 468
Keith Yow KR 410
Brad Miley Val 349
James Breeler Árm. 196
• Útbúið ykkur góða æfingabraut með hólum og lautum, brekkum og jafnsiéttum, beygjum og sveiflum.
• í slíkri braut getið þið lært mikið á skömmum tíma.
J