Morgunblaðið - 27.03.1981, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. MARZ 1981
47
Pétur Guðmunds8on reynir körfuskot. Pétur átti góðan leik Kegn
Finnum í gær. Hann skoraði 17 stig i fyrri hálfleiknum.
Ljósm.: RaKnar Axolsson
„Leikmenn eru þreyttir"
„Ék ER MJÖG ánægður með leik
íslenska liðsins, sérstaklega
fyrstu fimmtán minútur leiksins.
en þá lék liðið sérle«a vel. Þess
ber að «æta að við höfum æft vel
ok mikið að undanförnu og það
er þreyta í leikmönnum. Þessir
landsleikir Ke>ín Finnum eru
hugsaðir sem æfing íyrir
C-keppnina,“ sagði Einar Bolla-
son landsliðsþjálfari eftir leikinn
við Finna í gærkvöldi.
„Varnarleikur okkar var mjög
góður, en sóknarleikurinn varð
þungur er á leið og hittnin brást
nokkuð en það stafar fyrst og
fremst af þreytu. Það kæmi mér
ekki á óvart að við ættum eftir að
sína mun betri leik gegn Norður-
landameisturunum en þetta. Sér-
staklega er ég vongóður með
leikinn á laugardag. Fyrsti leik-
ur okkar í C-keppninni verður
gegn Skotum og á þann leik
setjum við markið," sagði Einar
þjálfari.
ÍSLENSKA körfuknattleiks-
landsliðið tapaði með sex stiga
mun, 65—71, fyrir Norðurlanda-
meisturum Finna i gærkvöldi. í
hálfleik hafði islenska liðið for-
ystuna i leiknum, 39—36. Leikur
islenska liðsins var allgóður á
köflum, sér i lagi þó fyrstu 15
minútur leiksins en þá réðu
Finnar ekkert við liðið. Pétur
Guðmundsson átti stórleik i fyrri
hálfleiknum og skoraði 17 stig.
En er liða tók á leikinn tók að
gæta þreytu hjá islensku leik-
mönnunum og Finnar sigu fram-
úr og sigruðu örugglega.
tslenska liðið hóf leikinn af
miklum krafti og skoraði hverja
körfuna af annarri án þess að
finnsku leikmönnunum tækist að
svara. íslenska liðið komst í 9—0
og síðan i 11 stig gegn 2. En þá
fór að ganga betur hjá finnsku
leikmönnunum og þeir minnkuðu
muninn smátt og smátt. Þegar
fyrri hálfleikur var hálfnaður
hafði íslenska liðið forystuna
25—23, og þegar 15 minútur
voru liðnar var staðan 29—23.
Þrjú stig skildu liðin síðan að i
hálfleik, islenska liðið hafði skor-
að 39 stig gegn 36 stigum Finna.
Sér i lagi var varnarleikur is-
lenska liðsins góður i fyrri hálf-
leiknum. Þá átti Pétur Guð-
mundsson stórleik og var hreint
óstöðvandi. Sýndi Pétur þarna
vel hvers hann er megnugur og
réðu Finnar ekkert við hann. Þá
var mikil og góð barátta i öllum
islensku leikmönnunum og tölu-
verður hraði í leik þeirra.
í síðari hálfleik var jafnræði
með liðunum fyrstu fimm minútur
hálfleiksins en þá náðu Finnar
forystunni í leiknum og héldu
henni til loka leiksins. Þeir höfðu
mjög strangar gætur á Pétri í
síðari hálfleiknum og oft voru
Island -
Finnland
65-71
tveir leikmenn sem gættu hans er
hann fékk boltann. Það var greini-
legt þrátt fyrir nokkuð örar skipt-
ingar Einars Bollasonar að nokk-
ur þreyta sat í íslensku leikmönn-
unum eftir stífar æfingar að
undanförnu. Kom það fram í
síðari hálfleiknum er hittnin brást
í góðum tækifærum. Þá sást
nokkuð af slæmum sendingum
sem rötuðu ekki rétta leið.
Besti maður íslenska liðsins var
Pétur Guðmundsson og var hann
reyndar einn besti maður á vellin-
um. Jón Sigurðsson, Símon Ólafs-
son og Kristinn Jörundsson áttu
allir góðan leik svo og Torfi
Magnússon sem þó lenti í villu:
vandræðum snemma í leiknum. I
heildina kom íslenska liðið vel frá
leiknum. Það var leikið gegn
sterkasta liði á Norðurlöndum og
því voru úrslit alls ekki svo slæm.
Lið Finna er mjög leikreynt og
leikur góðan körfuknattleik. Mikil
snerpa og kraftur einkennir leik
liðsins. Þá var sóknarleikurinn oft
sérlega vel útfærður.
Stig íslands: Pétur 28, Torfi 10,
Simon 9, Jón 6, Kristján 4, Krist-
inn 4, Valur 2, Agúst 2. Stigahæst-
ir Finna voru þeir Erkki Saaristo
með 15 stig og Heikki Kasko með
12 stig. — ÞR.
Kðriuknaltieikup
Líklegt að Asgeir endurnýi
samninginn við Standard
Standard setur upp 2 milljónir marka fyrir hann
NÚ LÍÐUR að því að þriggja ára
atvinnusamningur Ásgeirs Sig-
urvinssonar við Standard Liege
renni út. Ásgeir er tvimælalaust
okkar þekktasti atvinnuknatt-
spyrnumaður og hann hefur ver-
ið hjá Standard í 8 ár. í blaðavið-
tali við undirritaðan fyrir rúm-
Atta leikmenn West
Ham í úrvalslið
ÁR HVERT koma atvinnuknatt-
spyrnumenn Englands saman i
hófi miklu i Lundúnum, gera sér
glaðan dag og fleira. Meðal þess
sem á dagskrá er, er að velja
leikmenn keppnistímabilsins,
efnilegasta unglinginn og velja
úrvalslið úr hverri deild. Hóf
þetta fór fram fyrir skömmu og
kom varla á óvart að leikmaður
úr liði Ipswich skyldi vera kjör-
inn leikmaður mótsins. Nánar
tiltekið var það John Wark sem
hnossið hreppti. Og félagar hans
Franz Thijssen og Paul Mariner
voru í öðru og þriðja sæti.
Markaskorarinn ungi hjá Aston
Villa, Garry Shaw, var kjörinn
efnilegasti unglingurinn, Sammy
Lee hjá Liverp«K>l kom þar þó
skammt á eftir.
Úrvalslið 1. deildar skipa sjö
leikmenn tveggja efstu liðanna,
Ipswich og Aston Villa ásamt
fleirum, en uppstillingin lítur
þannig út: Peter Shilton (Forest),
Ken Swain (Villa), Ken Sansom
(Arsenal), Alan Evans (Villa),
Russel Osman (Ipswich), Franz
Thijssen (Ipswich), John Wark
(Ipswich), Graeme Souness (Liv-
erpool), Ken Dalglish (Liverpool),
Paul Mariner (Ipswich) og Garry
Shaw (Villa). í úrvalslið 2. deildar
völdu leikmenn hins vegar átta
leikmenn frá West Hain, efsta
liðinu, en að öðru leyti greindu
fréttaskeyti ekki frá skipan liðs-
ins.
um tveimur árum kom fram að
Ásgeir var þá'alvarlega að íhuga
að yfirgefa Evrópuknattspyrn-
una vorið 1981, þegar samningur
hans rynni út, og leika nokkur ár
í Bandaríkjunum. En nú hefur
hann tekið ákvörðun um að
yfirgefa ekki að sinni hinn harða
heim atvinnuknattspyrnunnar í
Evrópu enda maðurinn enn á
bezta aldri. verður 26 ára í maí.
reikna með því að gera tveggja ára
samning í vor og eins og staðan er
í dag er líklegast að ég verði áfram
hjá Standard," sagði Ásgeir þegar
Morgunblaðið sló á þráðinn til
hans í gær. Ásgeir kvaðst mjög
ánægður með dvölina í Belgíu
enda væri hann varla búinn að
vera þar í 8 ár ef annað væri upp á
teningnum. „Mér finnst ég eiga
heima hér í Liege og það þarf
mjög freistandi tilboð til að fá mig
héðan. Standard hefur verið í
fremstu röð liða hér í Belgíu og við
höfum leikið í Evrópukeppni ár
eftir ár. Það eina sem hefur
s^yggt á ánægjuna er að titlarnir
hafa látið bíða eftir sér.“
Eins og undanfarin ár hafa
allmörg stórlið í Evrópu sýnt
Ásgeiri áhuga og mörg af beztu
liðum Vestur-Þýzkalands hafa
spurst fyrir um hann, ekki síst
eftir góða frammistöðu gegn Köln
og Kaiserslautern í Evrópukeppn-
inni í vetur. En Petit, fram-
kvæmdastjóri Standard, er við
sama heygarðshornið. Hann hefur
sett upp geysihátt verð fyrir
Ásgeir, tvær milljónir þýzkra
marka, jafnvirði rúmlega 6 millj-
óna íslenzkra króna, sem er með
því hæsta sem þekkist í þýzku
knattspyrnunni. Þetta háa verð
kann að fæla félögin frá.
Eins og fram hefur komið í
fréttum mun aðalþjálfari Stand-
ard, Ernst Happel, taka við
stjórninni hjá þýzka liðinu Ham-
burger SV í sumar. I hans stað
hefur Reymond Gothals, fyrrum
landsliðseinvaldur Belga, verið
ráðinn aðalþjálfari og Leon
Semmeling verður aðstoðarþjálf-
ari, en hann lék með Ásgeiri fyrst
eftir að hann fór utan. Sagði
Ásgeir að miklar vonir væru
bundnar við störf þeirra.
Ásgeir og unnusta hans, Ásta
Guðmundsdóttir, koma væntan-
lega heim í frí í byrjun júní. Ef
það verður úr að Ásgeir endurnýi
samning sinn við Standard ætlar
hann að reyna að fá lengra
sumarfrí en áður. Hingað til hefur
sumarfrí Ásgeirs aðeins verið 3—4
vikur á hverju sumri sem er
auðvitað allt of lítið fyrir mann,
sem þarf að leggja eins hart að sér
við æfingar og Asgeir.
3S.
Naumur finnskur
sigur í gær
Mikiö blakað
í kvöld
FJÓRIR leikir fara fram á
íslandsmótinu i blaki i Haga-
skólanum i kvöld. Klukkan
17.30 hefst spretturinn með
leik Víkings og ÍMA i 1. deild
kvenna. Siðan leika Fram og
ÚMFL i 1. deild karla og að
þeim leik loknum fara fram
tveir leikir i úrslitakeppni 2.
deildar karla. Fyrst eigast við
ÍBV og ÍMA, siðan B-lið
Þróttar og UMSE.
Ráðast úr-
slit í
kvöld?
HAUKAR og KR mætast í
Laugardalshöllinni klukkan
20.00 i kvöld og er það siðasti
leikurinn i fallkeppninni i
handknattleiknum. Staðan er
mjög ljós, tapi annað liðið, er
það þar með fallið i 2. deild.
þvi Fram hefur 4 stig, en KR
og Haukar 3 stig hvort. Skilji
Haukar og KR jöfn, eru liðin
þrjú þar með i sömu sporun-
um og áður en keppnin hófst.
Það má því búast við þvi að
hressilega verði tekið á i
Höllinni i kvöld og það reyni
rækilega á taugar leikmanna.
MA sigraði
tvöfalt
Menntaskólinn á Akureyri
sigraði bæði i karla og kvenna-
flokki á Framhaldsskólamót-
inu i blaki sem lauk nýlega.
MA hefur tefit fram óvenju-
lega sigursælum liðum í mót-
um þessum siðustu árin.
Þannig hafa strákarnir unnið
fimm sinnum af siðustu átta
skiptum og stúlkurnar sex
sinnum síðustu niu árin.
Formannaskipti
FORMANNASKIPTI urðu i
handknattlciksdeild Vikings á
aðalfundi i vikunni. Eysteinn
Helgason og Rósmundur Jóns-
son, sem gegnt hafa störfum
formanns og varaformanns
um árabil létu af störfum og
við tóku Jón Valdimarsson og
Ómar Einarsson.
Meistara-
mótið í
fimleikum
Keppnistímahil Fimleika-
sambands íslands er nú
langt komið. fslandsmeist-
aramótið i fimleikum er
næsta mótið og verður í
fþróttahúsi Kennaraháskóla
fslands um næstu helgi. þ.e.
28. og 29. mars.
Keppt er í skylduæfingum
karla og kvenna fyrri daginn
og frjálsum æfingum síðari
daginn. Keppendur verða frá
Reykjavik, Kópavogi, Hafn-
arfirði og Akureyri og er von
á bæði spennandi og tvísýnni
keppni í einstökum greinum,
því framfarir eru talsverðar
hjá mörgjim keppenda.
Að íslandsmeistaramóti
loknu eru svo Vormót FSÍ og
vorsýning eftir i maí-mánuði.
Námskeiö
A-STIGS námskeið i knatt-
spyrnu verður haldið 10. og
11. april 1981, ef næg þátt-
taka fæst. Umsóknir berist
skrifstofu KSf, Box 1011,
fyrir þriðjudaginn 7. april,
ásamt kr. 150.00. Almennt
námskehð verður þann 12.
april, nánar auglýst siðar.