Morgunblaðið - 12.04.1981, Síða 1
80 SIÐUR
86. tbl. 69. árg.
SUNNUDAGUR 12. APRÍL 1981
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
íbúaf jöldi Kína
nálgast milljarð
Wa.shingt(»n. 11. april. AP.
KÍNVERJAR eru fjölmennasta
þjóð heims og Indverjar næstfjöl-
mennastir, aö þvi er sagði i
tilkynninnu Alþjóðabankans i
dat;. Kinverjar eru 952 milljónir
ok Indverjar 643. samkvæmt upp-
lýsingum bankans.
Þessar þjóðir hafa algjöra sér-
stöðu, því í þriðja sæti koma
Sovétmenn, sem eru 261 milljón, og
því tæplega 400 milljónum færri en
Indverjar. Bandaríkin eru í fjórða
sæti með 218 milljónir íbúa og
Indónesía í fimmta sæti með 135
milljónir.
Brazilía er í sjötta sæti með 119
milljónir íbúa, þá koma Japanir,
sem eru 114 milíjónir, 84 milljónir
búa í Bangladesh, 80 í Nígeríu og 76
milljónir í Pakistan.
Biggs
áfrýjar
í 11.—15. sæti eru Mexíkó með 65
milljónir íbúa, V-Þýzkaland með 61
milljón, Ítalía með 56 milljónir,
Stóra-Bretland með 55 milljónir og
Frakkland með 53 milljónir.
Spánverjar eru fimmta fjölmenn-
asta þjóð Evrópu, en þeir eru 37
milljónir. Júgóslavar og Rúmenar
eru 21 milljón hvor þjóð, Austur-
Þjóðverjar eru 16 milljónir, Tékkar
15, Hollendingar 13, Ungverjar 10,
Belgar níu og Svíar átta, sam-
kvæmt þessum heimildum.
Svíar eru fjölmennastir Norður-
landaþjóða, eða 8.277.000, Danir eru
næstfjölmennastir, eða 5.106.000,
þá Finnar, sem eru 4.754.000 og
Norðmenn eru 4.059.000, samkvæmt
upplýsingum bankans.
A árunum 1970—’78 varð árleg
fólksfjölgun hlutfallslega mest í
Kuwait, eða 6,8%. í öðru sæti var
Fílabeinsströndin með 5,8% fjölg-
un, og Líbýa var í þriðja sæti með
4,2% fjölgun. Þá kom Saudi-Arabía
með 3,5%, Líbería og Kenýa með
3,4% hvort, Irak og Venezuela með
3,4% og Mexíkó með 3% fjölgun að
meðaltali á ári.
Gosið i Heklu var sizt i rénun um hádegisbilið í gær, samkvæmt upplýsingum sem Mbl. aflaði sér. Árla
i gærmorgun var bjart i nágrenni Heklu og sáust hraunelfur streyma niður hliðar fjallsins. begar líða
tók á daginn gekk á með éljum og Hekla hvarf i skýin. Á þessari mynd sér til gosstöðvanna úr
nágrenni Búrfells og grillir í hraunstrauma i vesturhliðinni við Litlu Heklu. Gosmökkinn leggur til
norðurs og norðausturs og vegna kröftugra vinda nær hann ekki að stíga nema i tæplega fjögurra
kilómetra hæð yfir sjávarmáli. Ljósm. Mbl. Krútján
BridKetown, 11. aprll. AP.
LESTARRÆNINGINN Ronald
Biggs mun áfrýja úrskurði
dómara á Barbados að fram-
selja skuli hann til Englands,
þar sem hann á eftir að af-
plána 28 ár af refsingu, sem
hann hlaut fyrir ránið i póst-
lcstinni 1963.
Dómarinn úrskurðaði í fyrra-
dag, að lestarræninginn skyldi
framseldur brezkum yfirvöld-
um, og hefur hann 15 daga til að
áfrýja þessum úrskurði. Lög-
fræðingar Biggs halda því fram,
að ekki sé hægt að framselja
Biggs með því að skírskota til
framsalssamnings Breta og
Barbadosmanna. Samningur-
inn, sem undirritaður var 1979,
væri ógildur, þar sem þing
Barbados hefði ekki staðfest
hann.
Biggs er í haldi í Glendairy-
fangelsinu í Bridgetown, og er
strangur öryggisvörður við
klefa hans.
Nýir árekstrar virðast
í uppsiglingu í Póllandi
Varsjá, 11. aprll. AP.
NÝIR árekstrar virtust í uppsiglingu í dag milli
verkalýðshreyíingarinnar Solidarnoscz (Samstöðu) og
pólsku stjórnarinnar út aí verkfallsréttinum, sem
verkamenn virtust hafa tryggt sér með verkföllunum í
fyrrasumar, en þingið bannaði á fundi sinum í gær.
Þótt Wojciech Jaruzelski for-
sætisráðherra segði að bann við
verkföllum mundi hafa „róandi
áhrif" og hótaði að segja af sér,
segir Solidarnoscz að bann við
verkföllum geti haft í för með sér
nýjar vinnustöðvanir.
„Afnám verkfallsréttar verður
túlkað af samfélaginu sem til-
kynning um ráðstafanir sem geta
kallað fram verkföll," segir i
yfirlýsingu frá Solidarnoscz.
„Engin ályktun frá þinginu getur
komið í veg fyrir verkföll, ef
öryggi verkalýðshreyfingar okkar
er ógnað með eins hróplegum
lagabrotum."
Verkfallsréttur var viðurkennd-
Mao hækkar í áliti
Pekinx. 11. april. AP.
„MAO FORMAÐUR gerðl al-
varleg mistök, en óhróður um
formanninn getur aðeins skað-
að flokkinn og sósialiskt föð-
urland okkar,“ sagði hátt-
settur cmbættismaður kin-
verska kommúnistaflokksins i
dag i blaðagrcin, sem virðist
fela i sér „uppsveiflu“ á áliti
hins opinbera á arfinum eftir
Mao.
Huang Ke Cheng, ritari aga-
eftirlitsnefndar miðstjórnar
kommúnistaflokksins, segir í
málgagni kínverska hersins að
„mistök Maos séu mistök stór-
brotins byltingarmanns".
Hann segir, að Mao hafi „haft
stórbrotnar og háleitar hug-
sjónir og vonaðist til að geta
framfylgt á nokkrum árum eða
áratugum ævinnar málum, sem
gæti tekið margar aldir að
hrinda í framkvæmd. Og þess
vegna skapaðist óregla og ring-
ulreið."
Ágreiningur um mat á hlut-
verki Maos er talinn skýringin á
því, að flokksfundir, sem lengi
hafa verið ráðgerðir, hafa dreg-
izt úr hömlu, en tilgangur
þeirra er meðal annars sá að
svipta manninn, sem Mao vaidi
arftaka sinn, Hua Guo Feng,
formennskunni. Hua hefur ver-
ið talinn alltof nátengdur mis-
tökum Maos til þess að hann
geti haft á hendi forystu um
tilraunir til að útrýma „vinstri-
stefnu" (þ.e. að koma á of örum
breytingum og magna „mót-
setningar" innanlands).
Huang skrifar, að á síðari
árum hafi Mao „hætt að vera
hygginn. Hann stóð í lítilli
snertingu við daglegt líf alþýð-
unnar og hinn lýðræðislegi stíll
varð slæmur og lélegur. Það er
þess vegna sem hann gerði
mistök og allur flokkurinn ætti
að draga ályktanir af þessu,"
segir Huang Ke Cheng.
Meginmistök Maos voru þau,
segir Huang, að hann varð
alltof óþolinmóður af því hann
vildi skjótan árangur og með-
höndlaði „mótsetningar" innan
flokksins eins og þær væru
„mótsetningar" innan herbúða
óvinanna, svo að slæm öfl gátu
séð við honum.
„Þetta hafði í för með sér tíu
ára óreglu og ringulreið í menn-
ingarbyltingunni (1966—1976).
Þessi tvíþættu mistök leiddu af
sér margskonar (önnur) mis-
tök,“ segir Huang í greininni.
ur af ríkisstjórn Póllands eftir
öldu verkfallanna í fyrrasumar,
þótt slík forréttindi séu einsdæmi
í kommúnistaríkjum, en þingið
hefur aldrei formlega staðfest
verkfallsréttinn og harðlínumenn
saka verkalýðshreyfinguna um að
misnota hann.
„Ástæður fyrir verkföllum eru
alltof oft pólitískar og staðbundn-
ar,“ sagði Jaruzelski þegar hann
færði rök fyrir banni við verkföll-
um. „Við getum ekki starfað
eðlilega undir slíkum kringum-
stæðum."
„Þegar ég tók við embætti
forsætisráðherra lofaði ég að
segja af mér ef ríkisstjórnin gæti
ekki leyst skyldustörf sín af
hendi,“ sagði hann. „Nú er þessi
stund upprunnin ... ég get ekki
unnið mín störf nema því aðeins
að ekki séu hafðar í frammi
hótanir um verkföll...“
Hins vegar tók þingið ekki fram,
hvernig ríkisstjórnin mundi
bregðast við brotum á verkfalls-
banninu og hvatti jafnframt til
þess að samkomulaginu um lausn
verkfallanna í fyrrasumar yrði
framfylgt út í æsar.
„Ríkisstjórnin treystir því, að
afnám verkfallsréttar leiði til þess
að almenn ró og kyrrð færist yfir,“
sagði Jaruzelski.
Hann sagði líka, að ríkisstjórn-
in mundi auka matarskömmtun,
þannig að skömmtunin næði líka
til brauðs og annarrar kornvöru.
Nú þegar hefur verið innleidd
skömmtun á keti og sykri. Gefið
hefur verið til kynna að verð á
matvælum verði enn hækkað, þótt
hingað til hafi slíkar ráðstafanir
leitt til vinnustöðvana, sem nú
hafa verið bannaðar, og jafnvel
matvælaóeirða.
Þjóðartekjur lang-
mestar í Kuwait
Washinxton. 11. april. AP.
AUÐLEGÐ varð hvað mest í
Kuwait árið 1978, en meðaltals-
tekjur þar í landi. miðað við
þjóðarframleiðslu, urðu jafnvirði
15.970 dollara það ár. að sögn
Alþjóðabankans.
I öðru og þriðja sæti voru tvö
önnur olíuframleiðsluríki í Mið-
austurlöndum, Qatar með 15.050
dollara á mann, og Sameinuðu
furstadæmin með 15.020 dollara.
Svisslendingar voru samkvæmt
upplýsingum bankans fjórða rík-
asta þjóð heims, en þar í landi
urðu tekjur á mann 12.990 dollar-
ar. Þá kom Luxemborg með 11.320
dollara, Danmörk með 10.580 doll-
ara, Svíþjóð með 10.540 dollara,
Vestur-Þýzkaland með 10.300 doll-
ara, Bandaríkin með 9.770 dollara
og Belgía með 9.700 dollara.
íslands var ekki getið í frétta-
skeytinu, en meðal fátækustu
þjóða heims voru Afganir, þar
sem þjóðartekjur á íbúa voru 160
dollarar, Indverjar með 180 doll-
ara og Kínverjar með 230 dollara.