Morgunblaðið - 12.04.1981, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. APRÍL 1981
27
LJókiii. Stebbi II.
Intci Hrafn Hauksson mynd-
listarmadur. Þessi mynd er
tekin í Stúdói 5 og hafði
listamaðurinn klæðst smók-
ing í tilefni myndatökunnar.
A brjóstvasa hans hanga
þrjár medalíur er Ingi Hrafn
hefur smiðað og eru á meðal
verka á sýningunni.
Sýning
Inga Hrafns
í Stúdíói 5
INGI Hrafn Hauksson, mynd-
listarmaður, hefur opnað sýn-
ingu í vinnustofu sinni, Stúdíói
5 við Skólastræti. Á þessari
sýningu Inga Hrafns er skúlp-
túr, lágmyndir og vatnslita-
myndir, og eru þessi verk öil
unnin á síðustu tveim árum.
Sýningin er opin frá kl. 15—22
daglega en henni lýkur 26.
apríl nk.
Philips
fcrminsar-
gjaffi
Philishave rakvélar. Segulbönd fyrir rafhlöður. Inn- Sambyggð útvarps- og segul- Vekjaraklukkur með rafhlöðu.
Verð frá 415 krónum. byggður hljóðnemi. bandstæki, LM, MB og FM. Verð frá 317 krónum.
Verð frá 759 krónum. Verð frá 1426 krónum.
Hitabursti, léttur og þægilegur Útvarpstæki fyrir rafhlöður. Hárblásarasett, með greiðu, Morgunhaninn, vekjari með
í notkun. FM, MB og LM. bursta og krullujárni. LM, MB og FM.
Verð frá 235 krónum. Verð frá 543 krónum. Verð 575 krónur. Verð frá 543 krónum.
heimilistæki hf
Hafnarstræti 3 — Sætúni 8.
Jassballett-
skóli Báru
heldur nem-
endasýningu
Annað kvöld og á miðvikudags-
kvöld efnir Jassballettskóli Báru
til nemendasýninga i Alþýðuleik-
húsinu i Hafnarbiói og hefjast
þær bæði kvöldin kl. 20.30.
Sýnt verður verkið „Martröð"
eftir Báru Magnúsdóttur, skóla-
stjóra Jassballettskólans, og fjall-
ar það um nýgift hjón. 23 dansar-
ar taka þátt í sýningunni, en
aðalhlutverkin eru í höndum Sig-
rúnar Waage og Guðbergs Garð-
arssonar.
ÞJÓÐMINJASAFN
ISLANDS:
Erindi um danskt
silfur á Islandi
I sambandi við sýningu á verk-
um Sigurðar Þorsteinssonar
1714—1799 mun danski silfur-
fræðingurinn Ole Villumsen Krog
flytja erindi um danskt silfur á
íslandi á vegum Þjóðminjasafns
Islands í forsal safnsins mánudag-
inn 13. apríl 1981 kl. 20.30. Erindið
verður flutt á dönsku. Öllum er
heimill aðgangur.
TÓNSKÓLI
SIGURSVEINS:
Vortónleik-
ar í sal MH
í dag heldur Tónskóli Sigur-
sveins D. Kristinssonar sina árlegu
vortónleika í sal Mcnntaskólans við
llamrahlíð og hefjast þeir kl. 14. Á
þessum tónleikum koma fram nem-
cndur á ýmsum námsstigum og eru
tónleikar þessir að mörgu leyti
þverskurður af þeirri starfsemi
sem farið hefur fram 1 Tónskólan-
um i vetur.
Blokkflautukórinn, sem saman-
stendur af nær öllum nemendum í
forskóladeildum Tónskólans, frum-
flytur tvö vorlög undir stjórn Sigur-
sveins D. Kristinssonar sem einnig
hefur fært lögin í þann búning sem
þau birtast í á þessum tónleikum. Þá
mun fjöldi einleikara og hópa koma
fram.
Allir eru velkomnir meðan hús-
rúm leyfir.
r-— f— p-
innsk furusmíð
Lundia hillukerfió er ódýrt og einfalt í uppsetningu
Lundia hillukerfið er selt í stykkjum,
þannig aö hverri einingu hagar þú eftir
eigin smekk.
Lundia hillukerfið er úr massívri
finnskri furu, mjög ódýrt og einfalt í upp-
setningu.
GRÁFELDUR HF.
NNGHOLTSSTRÆTI 4. S. 2 6626. WW
Tilvalið í stofuna, barnaherbergið,
ganginn, skrifstofuna, verslunina. . .
Hringið og biðjið um upplýsingabækl-
ing.
í stíl viö Lundia hillukerfið, höfum við
einnig fáanlega klappstóla og borð.