Morgunblaðið - 12.04.1981, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 12.04.1981, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. APRÍL 1981 Pólýfónkórinn flytur Jóhannesarpassíu Bachs: }}Þegar að hljóm- leikum kemur er allt erfiði gleymt og ekkert nema ánægjan eftir44 Litið inn á æfingu hjá Pólýfónkórnum og rætt við nokkra kórfélaga „Bach er alltaf Bach,“ sagði ung stúlka í Pólýfónkórnum i samtali við blaðamann MurKun- hlaðsins er hann var staddur á a'finjiu hjá Pólyfónkórnum sl. fostudaiískvold. Beethuven sajfði um Bach að hann hefði átt að heita Meer en ekki Bach — sjór en ekki lækur, eins ug þessi nafnurð letftfjast út á þýzku. Þessi urð Beethuvens lýsa verk- um Bachs betur en nokkur önn- ur, þvi þau eru sá fjársjóður sem tónlistarmenn marjfra kynslóða hafa jfenjfið í ojí við erum ennþá að ausa af. En sjálfur varð Bach ekki fræjfur fyrir tónsmíðar sín- ar meðan hann lifði on það liðu reyndar um 100 ár frá því að hann lést uff þar til þær urðu almennt kunnar. Pólýfónkórinn æfir nú Jóhann- esarpassíu Bachs undir stjórn Ingólfs Guðbrandssonar og verður verkið flutt á föstudaginn langa kl. 14:00 í Háskólabíói. Passían var frumflutt undir stjórn höf- undarins sjálfs á föstudaginn langa árið 1723 en síðar gerði hann á því nokkrar breytingar. Uppistaða textans er guðspjall Jóhannesar, 18. og 19. kapítuli, með tveim innskotum úr Matthe- usarguðspjalli en einsöngstextar eru að mestu byggðir á píslarljóði eftir Barthold Heinrich Brockes. Ásamt Pólýfónkórnum og hljómsveit undir stjórn Rutar Ingólfsdóttur koma fram á tón- leikunum einsöngvararnir Elísa- bet Erlingsdóttir, sópran; Hjálm- ar Kjartansson, sem syngur hlut- verk Pilatusar, Jón Þorsteinsson tenór, sem syngur hlutverk guð- spjallamannsins og tenór-aríur, Kristinn Sigmundsson, sem syng- ur bassa-aríur Anne Wilkens, sem syngur allt-aríur og Graham Titus barítonsöngvari, sem syngur hlut- verk Krists. Konsertmeistari er Rut Ingólfsdóttir. Blaðamaður Morgunblaðsins ræddi við fjóra félaga í Pólýfón- kórnum og var umræðuefnið að sjálfsögðu Jóhannesarpassían, æf- ingarnar og væntanlegir tón- leikar. Hilmar Ágústsson „Þetta er þriðji veturinn sem ég syng með Pólýfónkórnum," sagði Hilmar Ágústsson, sem syngur tenór. „Það má segja að þetta sé bæði gefandi starf og hvetjandi. Þetta er mikil vinna, og mikið af þessari vinnu er ekki beint skemmtileg en þegar verkið fer að taka á sig endanlega mynd koma laun erfiðisins. Það er út af fyrir sig mikið tónlistarlegt uppeldi að vera hér í kórnum og það er alveg furðulega mikið sem stjórnandanum tekst að kenna í sönglist á þessum sameiginlegu æfingum með kórn- um. Það er að vísu skilyrði að menn séu læsir á nótur og séu tónvísir til að komast inn í hann en það er fyrst þegar maður byrjar að syngja með kórnum sem hinn eiginlegi lærdómur hefst. Að jafnaði er æft tvisvar í viku en svo fjölgar æfingum þegar líður að konsert — síðustu tvær vikurnar æfum við flesta daga vikunnar." Hvernig finnst þér æfingar á Jóhannesarpassíunni hafa gengið? „Það hefur gengið svipað og með önnur verk sem við höfum æft — hægt og bítandi en alltaf fikrast í áttina. Ég hef reyndar ekki neinn samanburð en mér finnst Ingólfur túlka þetta verk ákaflega vel. Ég hef því enga ástæðu til að ætla annað en að utkoman verði góð.“ Ásdís Gísladóttir „Ég vonast til að passían muni koma vel út í flutningi Pólýfón- kórsins að þessu sinni — Bach er alltaf erfiður, það er mikið að gerast í verkum hans og vanda- samt að ná tökum á þeim — en ég er bjartsýn á að þetta takist vel hjá okkur,“ sagði Ásdís Gísladótt- ir sem syngur sópran í kórnum. „Ég hef verið í Pólýfónkórnum í 9 ár og söng með honum þegar hann flutti Jóhannesarpassiuna 1974. Ég held að flutningur kórs- ins á verkinu núna verði ekki síðri en þá. Ég hef lært mikið á því að syngja með Pólýfónkórnum og maður kynnist ýmsu í gegnum það. Reyndar stunda ég söngnám í Tónlistarskóla Kópavogs hjá Elísabetu Erlingsdóttur en hún sér um að raddþjálfa sópranhqp- inn hér í kórnum, við erum alltaf í raddþjálfun einu sinni i viku fyrir utan sameiginlegu æfingarnar. Það er búinn að fara ansi mikill tími til æfinga á þessu verki núna. Ingólfur lætur kórinn aldrei kom- ast upp með að syngja illa — hann stöðvar heldur flutninginn og læt- ur okkur byrja aftur og aftur þar til kórinn hefur náð góðum hljómi. Hann er afar fær stjórnandi og Hilmir Ágústsson •’úþíviuérluii a æfiiigu i >vivu skóla sl. föstudagskvöld. Ljósm. Emilía. mér hefur alltaf fundist að honum gengi mjög vel að túlka verk Bachs." Ingólfur Guðbrandsson, stjórnandi Pólýfónkórsins. Ragnar Pálsson „Ég held að flutningur kórsins á Jóhannesarpassíunni muni heppn- ast ákaflega vel,“ sagði Ragnar Pálsson sem syngur bassa. „Það náðist mikill árangur strax í haust, þegar Evgenia Ratti kom hingað frá Ítalíu og stjornaði raddæfingum kórsins um tíma — þá náðist sérstaklega góður hljómur og Ingólfur hefur unnið mikið að því að viðhalda þessum árangri. Mesta vinnan við æfingu svona verks liggur e.t.v. i því að halda uppi þessum hljóm, þannig að hvergi slakni á í gegnum allt verkið. Nei, það veldur manni alls ekki leiða að syngja þetta svona oft. Þegar maður er virkilega kominn upp á lag með að syngja sitt hlutverk í svona verki þá verður maður ekki svo gott leiður á því. Tónverk eins og Jóhannesarpassí- an eru líka það margbrotin og stór í sniðum að það er erfitt að hugsa sér að nokkur geti orðið leiður á þeim eins og t.d. dægurlagi." Hvað liggur að baki vel heppn- aðs flutnings á svona verki? „Ætli það séu ekki miklar æf- ingar fyrst og fremst. Aðalatriðið er að hver og einn kórfélagi breyti eftir því sem stjórnandinn segir á æfingum hverju sinni — því það er að sjálfsögðu mikið undir stjórnandanum komið hver hin endanlega útkoma verður. Ingólf- ur er afskaplega duglegur og áhugasamur — hann gerir líka miklar kröfur til kórsins, sem er auðvitað nauðsynlegt eigi góður árangur að nást.“ Hvað ert þú búinn að syngja lengi með Pólýfónkórnum? „Það er um eitt og hálft ár. Ég var í tónlistarnámi um sjö ára skeið en hætti því, ég hafði ekki tíma til að sinna því. En ég vildi ekki leggja tónlistina alveg á hilluna og gekk því í Pólýfónkór- inn — ég er líka þeirrar trúar að tónlist sé ákaflega holl fyrir mann. Ég sé alls ekki eftir þeim tíma sem í þetta fer og ætla mér ekki að hætta í náinni framtíð. Að lokum vildi ég hvetja alla sem lesa þessi viðtöl til að koma á tonleikana á föstudaginn og hlýða á þetta einstaka verk sem Jóhann- esarpassían er.“ María Ammendrup „Ég er ekki búin að vera í Pólýfónkórnum nema síðan í haust, þannig að Jóhannesarpassí- an er fyrsta verkið sem ég syng með kórnum," sagði María Ammendrup. „Hvers vegna ég byrjaði? Ég fékk bara svona skemmtilega hugdettu, mig hafði lengi langað til að syngja í kór, en bara ekki drifið mig í það fyrr. Ég hef lítið sem ekkert fengist við tónlistarnám, — hef svona aðeins verið að dútla við hljóðfæri en ekkert meira en það.“ Hvernig, finnst þér Jóhannes- arpassían koma út hjá kórnum? „Það er hægt að túlka svona verk á margvíslegan hátt og mér finnst það koma mjög vel út hjá Ingólfi. Það hefur líka verið mikið verk að æfa þetta og verið æft stíft að undanförnu — maður þarf

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.