Morgunblaðið - 12.04.1981, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 12.04.1981, Blaðsíða 36
36 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. APRIL 1981 Daglegt líf í Póllandi Hver átökin taka við af öðrum í Póllandi. Að baki spennunnar liggur algert hrun efnahagslífsins og ótrúlegir erfiðleikar fólks í daglegu lífi, skrifa tveir blaðamenn franska blaðsins Express Christian Jeles og Georges Valance, sem eru nýkomnir frá Póllandi og segja í blaði sínu frá því sem þeir sáu. Við tökum hér upphafið af frásögu þeirra í íslenzkri þýðingu. Einn góðan veðurdag í febrúar- mánuði fékk orðrómur vængi í litlu iðnaðarborginni Tichy, ná- lægt Katowice í Silesíu. Viðbótar- magn af Fíat 126 yrði til sölu. Og til afhendingar strax gegn 30% aukagreiðslu. Þrátt fyrir verðið á bílnum (180 þús. zloty, sem eru yfir þrjátíuföld meðallaun) mynd- aðist strax biðröð við dyr Fíatsöl- unnar. P’leiri kaupendur eru til staðar en bílar til sölu. Þeir fyrstu komast á biðlista, og á hann bætast nöfn. Biðin virðist ætla að verða löng. Þeir sem fara úr röðinni missa óhjákvæmilega sinn stað. Biðin sú stendur í 19 daga — og auðvitað 19 nætur. A næturnar blunda mennirnir í svefnpokum eða útistólum. A daginn er þeim fært nesti og heitur drykkur. Stundum skiptist fjölskyldan á. í lok 19. dagsins tilkynnir verk- smiðjustjórinn að hætt sé við söluna, án nokkurra skýringa. Fólkið nöldrar og skammast. Til Endalausar bioraðir fyrir framan budirnar. Menn standa ( heima og sér um þá sjálf. Bogdan hefur gert upp útgjöld á mánuði. Leiga ......................... 1200 zloty Rafmagn, gas ................... 500 zloty Fargjöld ....................... 100 zloty Greiösla á láni til fjölskyldunnar ............ 1200 zloty til Ursus ..................... 1000 zloty íbúöasparilán .................. 500 zloty Fæöi .......................... 3500 zloty Alls -------------------------- 8000 zloty Þannig duga laun Bogdans rétt fyrir fæði, húsnæði og greiðslu á skuldum. „Þegar ekki er auka- vinna í verksmiðjunni," segir hann, „þá borðum við ekki kjöt. Og það fáum við aðeins einu sinni í viku fyrir hjálp félaga minna í Ursus, sem koma með úr sveitinni kjöt fyrir 80 zloty kg. með bein- um.“ Það sem kona Bogdans vinn- ur sér inn með því að gæta tveggja barna dugir ekki til að klæða þau og fyrir dægrastyttingu eða sumarleyfi. Skv. opinberri yfirlýsingu frá Pr. Antoni Rajkiewicz, fram- Lýsing tveggja íranskra blaðamanna kvæmdastjóra félagsvísindadeild- ar háskólans í Varsjá, er algert lágmark fyrir eina manneskju að lifa á 2480 zloty á mánuði, 4230 fyrir hjón og 8600 fyrir fjölskyldu með fjórum börnum. Tekin eru fleiri dæmi. Svo sem Alina, sem er 23ja ára gömul og landmælingamaður. Hún og mað- ur hennar, sem var að ljúka verkfræðiprófi, hafa í laun 8000 zloty. Þau búa þrjú í einu herbergi hjá tengdaforeldrum hennar. Sl. ár hafa þau Alina og maður hennar ekkLgetað fengið sér eina flík. Ekki einn kjól. Ekki eina peysu. Öll launin fara í fæði (um 1/5) og barnið. Ódýrasti útigalli fyrir Thomas kostaði 2000 zloty, skyrta 80 zloty í venjulegri búð en 150 á svörtum markaði. Rúmið hans brotnaði og nýtt kostaði 1500 zloty og næstum í hverjum mán- uði hafa þau reynt að útvega sér 3—5 dollara á svörtum markaði til að geta keypt í Pewex-búð sápu, olíu, sjampo og talkúm, en slíkt er ófáanlegt í venjulegum búðum. Sængurfatnaður er ófáanlegur. Þegar það kemur fyrir eru óend- anlegar biðraðir. Alina saumar, gerir upp, prjónar. Miðlungspeysa kostar 3800 zloty, kjóll 4000-5000 og gallabuxur 4000, og er aðeins fáanlegt á svörtum markaði, skór kosta 1000 til 7000 zloty. Alínu dreymir um vel búna íbúð með skápum, eldhúsi með góðum eld- húsbúnaði. En það er bara draum- ur. Einfaldur skápur kostar 7föld mánaðalaun hjónanna og stóll tíunda hluta. Tekið er dæmi um „vel setta“ fjölskyldu, hann arkitekt og hún yfiriæknir á geðveikrasjúkrahúsi, sem hafa samtals í laun 11.000 að draga úr æsingnum er gerður samningur. Þeir sem eiga nöfn sín á biðlistanum, skulu hafa forgang ef af sölu verður seinna. Enginn grundvöllur er til sam- anburðar á daglegu lífi í Frakk- landi og Póllandi. Skorturinn framkallar vonbrigði, sem ekki eiga sér hliðstæðu í neytendaþjóð- félagi. Fyrirlitning neytendanna er himinhá. Ekki getur maður heldur borið saman raunveruleg meðallífskjör í Póllandi og Frakklandi með því að miða við kaupmátt launa. Þá yrði að sleppa öllu lífsgæðamati og miða eingöngu við magn. Þegar kommúnistaleiðtoginn franski Georges Marchais nefnir næstum fría húsaleigu, þá má ekki láta sér detta í hug húsnæðislánaíbúð heldur er þar um að ræða „af- kima“, þar sem hrúgast saman m-illjónir manna. Hús eru byggð á landsskikum eins og þeir koma fyrir, án skóia, án barnaleikvalla og án verzlana í nágrenninu. Og frönsk heimili fúlsa við því, sem tilsvarandi heimili í Póllandi fá í matinn. Dýrafita sem manni býð- ur við að sjá, þrátt smjör, vafa- Diplomatabíllinn, sóður með augum pólska teiknarans Krauze. samt kjöt, vatnsósa kartöflur, slíkt þekkist ekki á frönskum matvælamarkaði. Og vilji maður endilega halda áfram að bera saman lífsskilyrði Pólverja og Frakka, hvernig á maður þá að meta biðina, biðraðirnar? Biðraðirnar eru endalausar fyrir framan búðir og á auðum svæðum. Hvarvetna blasir við þessi sama mynd vonbrigða og sama setningin endurtekin „Ni- ema“ (Allt búið). Kjötbúðir eru hörmulega tómar. Sama sagan um kælivöruborðin, þar sem maður ætti að finna egg, smjör, osta og fisk. Staðið er í biðröðum fyrir hvað sem er, sykur jafnt sem þvottaefni, klósettpappír og fyrstu útgáfu í 30 þús. eintökum af ljóðum Czeslaw Milocz. Biðröðin, sem er þarna frá laugardagskvöldi fram á mánudagsmorgun, er vegna júgóslavneskra húsgagna, sem komin eru í Emi!iu''erslunina, nálægt járnbrautastöðinni í Varsjá, eða til að innrita sig í námskeið. Öryggisleysi vegna vörudreifingarinnar sést best á innkaupanetinu, sem enginn skil- ur við sig. Er sá sem fram hjá fer með eitthvað? Strax er leitað eftir því: hvar, hvenær og hvernig? Og menn flýta sér á staðinn. Iðulega til einskis. í millitíðinni er allt búið. Pólsku húsmæðurnar þekkja vel þessa erfiðu daga, sem fara í að bíða á hverjum sölustaðnum eftir annan til að hafa í fjölskyldu sína. Biðraðamenningin kallar á pavlovska hegðun. Maður stillir sér kannski upp í einhverja bið- röðina og spyr: Hvað er hér til sölu? Enginn fer í grafgötur með að loforðum opinberra aðila eru lítt að treysta. Þegar stjórn Jaruz- elskis hershöfðingja tilkynnti „baráttu gegn vodka“, skildi al- menningur strax að þeir sem völdin hafa höfðu ákveðið að hækka verðið á áfengi. Og ráðist var á búðirnar. Biðraðirnar eru orðnar þvílíkar, að sumir reyna annað hvort í reiði sinni, af því þeir hafa betri aðstöðu eða einfaldlega geta ekki annað, að borga eftirlaunafólki jafnvirði þess sem því tekst að fá keypt fyrir að útvega það. Konur „fá að láni“ börn nágrannans til að komast í forgangsröð. Barbara gerir til dæmis innkaup sin með fjögur börn, sín eigin og tvö önnur, sem hún gætir á daginn. Fyrir þá hernaðartækni tekst henni að komast á undan og stundum að fá svolítið kjöt, því „framan við kjötbúðina byrjar fólk að standa í röð kl. 6 að morgni, og kjötið kemur kl. 8, en kl. 9 er það uppselt," segir hún. Bogdan W. 32ja ára gamall, giftur og tveggja barna faðir, vinnur í Ursus dráttarvélaverk- smiðjunum í útborg Varsjár. Hann býr í þriggja herbergja samvinnuíbúð á neðstu hæð í húsnæðismálahúsi á mörkum nýs blokkahverfis. Bogdan og kona hans hafa, eins og öll önnur ung hjón, fyrst búið tvö ár hjá foreldr- um hennar og síðan tvö ár hjá foreldrum hans. Sambýlið var erfitt milli konunnar og tengda- föðurins. „Eftir fimm ár gátum við keypt húsgögn og fatnað, og með því að fá lán hjá fjölskyldun- um og verksmiðjunni gátum við komið okkur fyrir. Til að borga húsgögnin varð ég að vinna 11 klst. á dag í verksmiðjunni og bæta svo við 5 klst. vinnu sem vélfræðingur í aukavinnu," segir Bogdan. Ursus borgar vel. Bogdan hefur þar 7000 zloty. Til samanburðar eru meðallaun ekki nema 5400 zloty. Kona Bogdans vinnur ekki. Hún mundi hafa 2000 zloty á mánuði sem hjúkrunarkona. En vegna skorts á barnaheimilum þá mundi kosta 1500 zloty að láta gæta drengjanna, svo hún er

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.