Morgunblaðið - 12.04.1981, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. APRÍL 1981
Flugstöðin á Keflavíkurflugvelli:
Minni flugstöð þjón-
ar ekki tilgangi
— segir Garðar Halldórsson, húsameistari
„VIÐ mundum tclja það mik-
inn ábyrjíðarhlut að loKKja til
að byKtfð yrði minni fluKstöð
á Keflavíkurflujívelli en nú
cr fyrirhujíað. I>að er ljóst að
við erum að byBJíja fyrir
framtíðina auk þess, sem ver-
ið er að jjera nauðsynlejíar
úrbætur á ýmsum sviðum ují
við teljum það mjuj? vafasamt
að hæjít sé að minnka byjíjí-
Búist yið aukn-
um fjölda ferða-
manna frá
Bandaríkjunum
Ferðamálaráð jjerir ráð
fyrir að umtalsverð aukn-
injí verði á þessu ári á
ferðum Bandaríkjamanna
til íslands, en um það bil
helminjö fleiri Banda-
ríkjamenn hafa nú pantað
far til íslands en á sama
tíma í fyrra. I>á sejjir í
frétt frá ráðinu að í síð-
asta mánuði hafi skrif-
stofu Ferðamálaráðs bor-
ist 800 fyrirspurnir um
ísland.
í frétt Ferðamálaráðs segir, að
á síðasta ári hafi öflug auglýs-
inga- og kynningarherferð hafist
í Bandaríkjunum í samvinnu við
Flugleiðir. Birtar hafi verið aug-
lýsingar í blöðum og tímaritum,
fréttatilkynningar hafi verið
sendar út og greinar um Island
birst í fjölda dagblaða og tíma-
rita. Þessari starfsemi hafi verið
haldið áfram á þessu ári og svo
virðist sem árangur sé nú að
koma í ljós. Þá er einnig búst við
að veruleg aukning verði á fjölda
ferðamanna frá Evrópulöndum
og er gert ráð fyrir að heildar-
aukning ferðamanna til Islands í
ár verði um 8% miðað við síðasta
ár.
inguna meira en þegar hefur
verið gert. Með því myndi
flugstöðin ekki geta þjónað
tilgangi sínum," sagði Garð-
ar Ilalldórsson, húsameistari
ríkisins, er blaðamaður
Morgunblaðsins innti hann
cftir þeim ummælum hans að
minni flugstoð gæti ekki
þjónað tilgangi sínum.
„Á jarðhæð hússins verða brott-
farar- og komusalir, stærri og
betri en í núverandi byggingu,
stórbætt snyrtiaðstaða og nauð-
synlegur aðbúnaður starfsfólks,
stórbætt öryggis- og tollskoðunar-
aðstaða og farangursskáli, þar
sem bætt er til muna afgreiðsla
farangurs og öll aðstaða til vinnu.
Það er okkar mat að ekki sé hægt
að minnka þessa þætti flugstöðv-
arinnar. Komu- og brottfararsalir
verða að vera það stórir að þeir
geti tekið við farþegum af 2 til 3
vélum og snyrtiaðstaðan þarf að
geta ráðið við það líka,“ sagði
Garðar.
Efri hæðin skiptist í þrennt,
biðsal með veitingasölu, fríhöfn og
ýmiskonar verzlunum og þjón-
ustu; skrifstofupláss, sem leigt
verður út til aðilja, sem eru í
tengslum við flugþjónustuna og
eldhús og matarafgreiðsla fyrir
flugvélar, gesti og starfsmenn.
Hugsanlegt er að á þessari hæð
hefði mátt minnka eitthvað, þó við
teljum það ekki hagkvæmt. Eins
og áður sagði verður biðsalurinn
að geta tekið við allt að 800 manns
í einu og það hlýtur að verða að
teljast hagkvæmt að sem mest
þjónusta við flugfarþega sé í sama
húsinu, en ekki í öðru húsi við
hliðina eða jafnvel niðri í Kefla-
vík. Ef það á hinn bóginn kemur í
ljós að Ameríkuflugið leggist
niður meðan á byggingu stendur
má alltaf fresta því að fullgera
hluta efri hæðar byggingarinnar
og spara þannig kostnað um
stundar sakir, en ég legg áherzlu á
að við erum að byggja fyrir
framtíðina, ekki bara fyrir okkur
heldur jafnvel næstu 2 ættliði og
til þess verður að taka tillit," sagði
Garðar.
Ragnar Arnalds um flugstöðvarmálið:
Líf og land hélt í gær borgarafund um trúmál og var myndin tekin við það tækifæri.
Voru þarna flutt allmörg erindi um kirkju og kristni og voru auk þeirra fyrirspurnir
Og Umræður. Ljó«in. KHstján.
Athugasemd frá
Albert Guðmundssyni
í FRÉTT í Morgunblaðinu í gær
sagði, að Albert Guðmundsson
hefði setið þingflokksfund sjálf-
stæðismanna, þar sem ákvörðun
var tekin um flutning breyt-
ingartillögu varðandi flugstöðv-
arbygginguna og ekki lýst and-
stöðu við hana. Albert Guð-
mundsson sagði í samtali við
Morgunblaðið í gær, að þetta
væri rangt. Þvert á móti hefði
hann varað við þessari tillögu og
talið hana þess eðlis, að ríkis-
stjórnin gæti vel samþykkt
hana, þar sem í henni fælust
aukin völd til handa ríkisstjórn-
inni, umfram það sem hún sjálf
óskaði eftir í lánsfjáráætlun.
Samþykkt tillögunnar ræður
út af fyrir sig ekki úrslitum
„SAMhYKKT tillögunnar
ræður út af fyrir sig ekki
úrslitum um framgang
málsins, því við höfum
neitunarvald um það í rík-
isstjórn og við myndum
ekki nota slíka heimild,"
sagði Ragnar Arnalds
fjármálaráðherra, er Mbl.
spurði hann hvort alþýðu-
handalagsmenn myndu
ganga úr ríkisstjórn, ef
breytingartillagan við
lánsfjárlagafrumvarpið
yrði samþykkt í neðri
deild Alþingis á mánudag.
Þá sagði Ragnar að ef tillagan
yrði samþykkt með atkvæðum
stjórnarsinna þá væri það algjört
brot á stjórnarsamningnum, einn-
ig að ef einhver stjórnarliða
greiddi atkvæði með tillögunni
myndu þeir (þ.e. alþýðubanda-
lagsmenn, innsk. Mbl.) taka það
sem mikla ögrun, en ekki vildi
hann sejga neitt ákveðið um hvort
alþýðubandalagið gengi úr ríkis-
stjórn, ef tillagan yrði samþykkt.
— Én hvað með sannfæringu
þingmanna og undirskrift þeirra
undir yfirlýsingu um að starfa
samkvæmt henni?
„Sannfæringu. Jú, menn geta
haft sína sannfæringu. Þeir geta
haft þá sannfæringu að það eigi að
eyða nokkrum milljörðum í þetta
eða hitt, en það er ekki víst að
menn greiði alltaf atkvæði í sam-
ræmi við það. Menn hljóta að
velja. Eru þeir í stjórnarsamvinnu
við ákveðna aðila eða eru þeir
bara í samvinnu við alla í einu?
Annað hvort stjórn eða stjórn-
leysi.“
Ragnar sagðist fullviss um að
tillagan yrði felld á mánudag.
Aðspurður hvort hann teldi að
Jóhann Einvarðsson hefði sam-
þykki þingflokks síns til að greiða
atkvæði með tillögunni, eins og
Ólafur Jóhannesson gerði í efri
deild, sagði hann: „Ólafur var
búinn að hafa orð á þessu lengi að
hann ætlaði að ganga í lið með
stjórnarandstöðunni í þessu máli,
en ég trúi ekki að nokkur annar
þingmaður Framsóknarflokksins
geri slíkt."
o
INNLENT
Þórshafnartogarinn:
Ríkisábyrgðin tekin fyrir
i ríkisstjórn á þriðjudag
Málið verið umdeilt, segir Ragnar
Arnalds, þess vegna fyrir rikisstjórn
„NEI, ÞAÐ er nú ekki frá-
gengið mál. Ég býst við, að
málið verði rætt í rikisstjórn-
inni á þriðjudag," sagði
Ragnar Arnalds fjármálaráð-
herra, er Mbl. spurði hann,
hvort hann hefði tekið
ákvörðun um að yfirfæra
ríkisábyrgðina, sem hann gaf
til kaupa á Ingar Ivarscn,
svonefndum Þórshafnartog-
ara, yfir á nýsmíði togara í
Noregi sem samningar hafa
náðst um.
— Nú veittir þú þessa ríkis-
ábyrgð upp á einsdæmi og sagðir
þá, að þetta væri háð einhliða
ákvörðun ráðuneytisins. Nú ætlar
þú að leggja málið fyrir ríkis-
stjórn. Hafa forsendur breyst að
þínu mati?
„Ríkisábyrgðir heyra undir fjár-
málaráðuneytið, en hins vegar
hefur mál þetta verið mjög um-
deilt og því tel ég rétt að ræða það
í ríkisstjórninni, áður en ákvarð-
anir verða teknar."
Þá spurði Mbl. Steingrím Her-
mannsson sjávarútvegsráðherra,
hvort hann myndi styðja það í
ríkisstjórn, að Þórshafnarbúar
fenjyu þennan togara. Hann sagði:
„Ég styð það, að Þórshafnarbúar
fái þennan togara, ef hann kostar
ekki meira, enda skiptir engu máli
út af fyrir sig, hvers konar togari
drepur þorskinn, fyrst ég féllst á
að veita þeim leyfi á annað borð.“
Kynningarfund-
ur um stofnun
stálverksmiðju
UNDIRBÚNINGSNEFNI) Stálfé-
lagsins heldur I dag, sunnudag kl.
1B:30 i Húsi iðnaðarins, kynn-
ingarfund um stálverksmiðju á
íslandi. Hcfur undirbúningsnefnd-
in nú hafið söfnun hlutafjárlof-
orða með það í huga að rcisa
stálverksmiðju til framleiðslu á
steypustyrktarstáli úr islcnzku
brotajárni.
Á kynningarfundinum í dag verð-
ur rætt um stofnun verksmiðjunn-
ar, hlutafjáröflun, framkvæmda-
áætlun og mengunar- og umhverf-
ismál. í frétt frá undirbúnings-
nefnd segir að eftir viðamiklar
athuganir sé máliö nú komið af
umræðustigi á framkvæmdastig, en
athuganirnar gefi jákvæðar niður-
stöður.
Kór Langholtskírkju:
Messías endurtekinn á mánudagskvöldið
ÁRLEGIR vortónleikar Kórs
Langholtskirkju voru haldnir i
Fossvogskapellu í gær og verða
endurteknir á mánudag kl. 20. Á
efnisskrá er Messías, oratóría
llandels. og með kórnum syngja
einsöngvarar og leikur hljóm-
sveit skipuð 25 félögum úr Sin-
fóníuhljómsveit Islands.
Stjórnandi er Jón Stefánsson og
einsöngvarar eru Elín Sigurvins-
dóttir, Rut L. Magnússon, Garðar
Cortes og Halldór Vilhelmsson
auk þriggja kórfélaga, Ragnheiðar
Fjeldsted, Signýjar Sæmundsdótt-
ur og Viðars Gunnarssonar. Verði
húsfyllir á mánudagskvöld eru
enn ráðgerðir tónleikar á þriðju-
dag og þriðjudaginn 21. apríl
flytur kórinn verkið í Keflavík.