Morgunblaðið - 12.04.1981, Side 18
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. APRÍL 1981
18
Apótekarafélag íslands:
Kyimingarrit um
lyf og með-
ferð þeirra
APÓTEKARAFÉLAG íslands heí
ur hafiA útxráfu á upplýsinnahækl-
inKum fyrir almenninK um lyf, sem
afKreidd eru án lyfseðils. Nú eru
þrir slíkir bæklinKar fullKerðir ok
fjalla þeir um eftirtalda lyfja-
flokka:
1. Verkjastillandi lyf.
2. Sýrubindandi lyf.
3. Lyf við hægðatregðu.
Auk þess eru aftan á hverjum
bæklingi almenn heilræði um með-
ferð lyífja. Ástæðan fyrir útgáfu
bæklinganna er fyrst og fremst sú að
upplýsingar til almennings um lyf og
meðferð þeirra hafa verið af frekar
skornum skammti.
Bæklingana má fá í öllum lyfja-
búðum landsins.
Stjórn Happdrættis DAS við gömlu happdrættistromluna. F.v.
Baldvin Jónsson, framkvæmdastjóri, Hilmar Jónsson, Garðar Þor-
steinsson, Tómas Guðjónsson og Pétur Sigurðsson.
Hjúkrunarheimilið fyrir aldraða við Hrafnistu i Hafnarfirði sem verið
er að reisa. Áætlað er að það verði fokhelt i haust og tekið i notkun á
næsta ári. í baksýn sést vistheimili aldraðra er rúmar 103 vistmenn.
Nýtt happdrættisár hjá Happdrætti DAS:
Upplýsingar
um lyf
Vinningar bæði fleiri og hærri
r------------i
Verkja-
stillandi
»yf
UTGEFAMOt: APÖTTKAH AFtLAG ISLANDS
1981
NÝTT happdrættisár er nú hafið
hjá Happdrætti dvalarheimilis
aldraðra sjómanna eða Happ-
drætti DAS eins og það er oftar
kallað. Sala á lausum miðum
hefst á þriðjudag, 14. april, en
endurnýjun ársmiða og flokks-
miða hefst strax eftir páska.
Dregið verður i 1. flokki 5. mai
nk. Hefur vinningum hjá DAS
fjölgað miðað við i fyrra og
einnig hafa þeir verið hækkaðir.
Lægsti vinningur er nú 700
krónur en var 350 krónur. Hæsti
vinningur verður húseign eftir
vali á 700 þúsund krónur, en var
350 þús. krónur, og er hann sem
áður langstærsti vinningur á
einn miða hérlendis.
Ferðavinningar til utanlands-
ferða verða 300 á 10 þús. kr.
Sumarbústaður að Hraunborgum
í Grímsnesi, fullfrágenginn og
með öllum búnaði, að verðmæti
350 þús. kr. verður dreginn út í
júlí. Vinningar til íbúðakaupa
verða nú á 150 þús. kr., nema í 1.
flokki á 250 þús. kr. Vinningar til
bílakaupa verða á 50 þús. kr. og 30
þús. kr. en valdir bílar verða: í maí
Peugeot 505 að verðmæti 137 þús.
kr. og í des. American Eagle að
verðmæti 170 þús. kr. Húsbúnað-
arvinningar verða á 2 þús. kr og
700 kr.
Þar sem miöalager á skrifstofu
varð uppurinn á seinasta ári hefur
happdrættið nú fengið heimild til
Deilur á útvarpsráðsfundi:
Samþykkt að sjónvarpið
taki „Dallas66 til sýninga
Útvarpsráð ákvað á fundi
sínum í gær að sjónvarpið taki
til sýninga handaríska mynda-
flokkinn Dallas, sem að undan-
förnu hefur verið sýndur víða
um heim við miklar vinsældir.
en þó misjafnar undirtektir. I
Danmorku og Sviþjóð hafa til
dæmis staðið yfir miklar deilur
um þættina. Fjórir útvarps-
ráðsmenn voru fylgjandi því að
kaupa þættina en þrir andvigir,
en áður en til atkvæðagreiðslu
kom horfðu útvarpsráðsmenn á
tvo þætti úr flokknum.
Þeir, sem voru fylgjandi sýn-
ingu þáttanna voru Ellert B.
Schram, Markús örn Antonsson,
Guðni Guðmundsson og Markús
Á. Einarsson. Andvígir voru
Erna Ragnarsdóttir, Olafur R.
Einarsson og Vilhjálmur Hjálm-
arsson.
Þættirnir hafa einkum verið
umdeildir vegna þess að þeir séu
hreint afþreytingarefni, sem lít-
ið skilji eftir sig. Einnig hefur
því verið haldið fram að þeir ali
á kvenfyrirlitningu, þar sem
gáfnafar og hegðan þess kven-
fólks er þar komi fram, sé ekki
upp á marga fiska. Þeir sem
fylgjandi eru sýningu þáttanna
hafa hins vegar talið þá spenn-
andi framhaldsmyndaflokk, sem
vel eigi heima sem skemmti- og
afþreyingarefni innan um marg-
víslegt annað efni sjónvarpsins.
Samþykkt var að kaupa 20
þætti, en alls munu hafa verið
framleiddir 80 þættir. Sýningar
munu væntanlega hefjast eftir
sumarlokun sjónvarps í ágúst
næstkomandi.
Athugasemd frá Herði Pálssyni
Vegna ummæla sem höfð eru
eftir mér í Morgunblaðinu 7. apríl
sl. frá fundi Sjálfstæðisfélaganna
1. apríl sl. með þeim Pálma
Jónssyni landbúnaðarráðherra og
Friðrik Sophussyni, alþingis-
manni, vil ég taka fram eftirfar-
andi:
1. Ég taldi að Sjálfstæðisflokkur-
inn ætti trúlega ekki aðra
hæfari forustumenn en þá Geir
Hallgrímsson og Gunnar Thor-
oddsen, en meinbugur á þeirra
samstarfi er sá að þá virðist
skorta vilja til aö starfa saman,
því væri forystan í flokknum
svo veik sem raun bæri vitni.
2. Þá sagði ég það mína skoðun að
þessi ágreiningur næði miklu
lengra aftur en til myndunar
síðustu ríkisstjórnar og taldi að
leita mætti að minnsta kosti til
ársins 1974.
Á síðasta landsfundi hefðu
þeir báðir, það er að segja
Gunnar og Geir, lofað bót og
betrun í þessum efnum og
strengt þess heit að vinna
saman af alhug, en við þær
yfirlýsingar hefur ekki verið
staðið og öll þekkjum við fram-
haldið.
3. Þá taldi ég að eftir myndun
síðustu ríkis8tjórnar sem bar
að með svo óvenjulegum hætti,
er brotnar voru allar leikreglur
og flokkurinn skilinn eftir í
sárum, þá hafi borið brýna
nauðsyn til þess að kalla saman
landsfund hið bráðasta, en for-
ysta flokksins hefur ekki talið
ástæðu til þess og múr sá sem
myndaðist við stjórnarmynd-
unina hækkar stöðugt og að
sama skapi veikist staða Geirs
Hallgrímssonar í flokknum.
4. Það er skoðun flestra sjálfstæð-
ismanna að ágreiningurinn
standi fyrst og fremst um menn
en ekki málefni og því ætti að
vera auðvelt að ieysa hann með
góðum vilja.
5. Það er skoðun mín að flokkur-
inn verði ekki sameinaður að
nýju með núverandi forystu.
Því verði að nota tímann vel til
haustsins til að finna flokknum
nýjan formann og varafor-
mann, og að sjálfstæðismenn
komi sameinaðir til næsta
landsfundar, þannig að flokkur-
inn verði eins og hann hefur
verið, sterkasta stjórnmálaaflið
í landinu.
Með þökk fyrir birtinguna.
Ilörður Pálsson, Akranesi.
að gefa út 80 þúsund miða í stað 75
þúsund áður. Er þessi aukning
6,67% en fjölgun vinninga hins
vegar 20%.
Nokkrar breytingar hafa verið
gerðar á húsnæði aðalumboðs
Happdrættis DAS í Vesturveri og
starfar það nú þar sem verzlunin
var áður, en skrifstofur happ-
drættisins eru nú á efri hæðinni í
Vesturveri. Hefur þetta húsnæði
allt verið endurnýjað og búið
nýjum innréttingum.
Á blaðamannafundi sem stjórn
Happdrættis DAS efndi til kynnti
Pétur Sigurðsson, formaður sjó-
mannadagsráðs, þær framkvæmd-
ir sem nú er unnið að fyrir aldraða
á vegum ráðsins. Þar ber hæst
framkvæmdir við hjúkrunarheim-
ili fyrir aldraða við Hrafnistu í
Hafnarfirði en það verður vænt-
anlega fokhelt síðla á þessu ári og
tekið í notkun á næsta ári, 1982.
Verða þar 79 rými á sérhönnuðum
íbúðarhæðum. Á fyrstu hæð verð-
ur aðstaða til endurhæfingar, og
sundlaug o.fl., en á jarðhæð m.a.
barnaheimili fyrir starfsfólk og
öryggismiðstöð. Á öryggismið-
stöðin að þjóna einbýlishúsahverfi
aldraðra er mun rísa í grennd við
hjúkrunarheimilið. Verða þau
tengd við öryggismiðstöðina með
kallkerfi þannig að þegar í stað
verður hægt að sinna bráðatilvik-
um þaðan. íbúar einbýlishúsanna
munu einnig geta sótt ýmsa aðra
þjónustu til hjúkrunarheimilisins
en þó að langmestu leyti sjá um
sig sjálfir.
Þá minntist Pétur á þátt Happ-
drættisins í fjármögnun slíkra
verkefna og hvað það hafa lagt til
drjúgan skerf á síðustu árum.
Rinnu 60% af tekjum happdrætt-
isins til slíkra verkefna en 40% í
Byggingarsjóð aldraðs fólks. Kvað
hann undir miklu komið að fólk
styrkti þetta starf og stuðlaði að
bættum kjörum aldraðra með að
taka þátt í happdrættinu — og
minnti hann á í því sambandi að
bæði fyrrverandi og núverandi
heilbrigðisráðherrar hefðu talað
um „neyðarástand í málefnum
aldraðra".