Morgunblaðið - 12.04.1981, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. APRÍL 1981
21
Ættartölur Karls Bretaprins og laföi Díönu
Spencer.
Eins og sjá má geta þau bæði rakið ættir sínar til Jakobs 6. konungs í Skotlandi og
1. konungs Breta og Önnu drottningu hans sem var dönsk.
m
Diana vakti mikla athygli er hún kom íram opinberlega með Karii i fyrsta skiptið.
Karl eitt sinn. „Hún giftist líka lífsstíl hans
og starfi." Á þesu má skilja að Karl muni
gera þá kröfu, andstætt allri jafnréttisbar-
áttu, að konan hans falli fullkomlega að
persónu hans og lífsstíl. Ekki þykir líklegt
að Díana muni mótmæla þessu kröftuglega.
Og þó. Hún vakti mikla athygli er hún kom í
fyrsta skipti opinberlega fram með Karli
eftir að trúlofunin var tilkynnt. Hún braut
þá allar venjur og hefðir um klæðnað
konunglegra tignarmeyja. Hún klæddist
fleygnum kjól sem hæfir ungum stúlkum, að
sögn fjölmiðla, en lét lönd og leið þá formúlu
að konunglegum klæðaburði sem manni
birtist í vaxmyndasafninu í London.
Sumir áttu erfitt með að kyngja þessu
frjálslyndi ungu stúlkunnar en aðrir fögn-
uðu því að hún skyldi hafa hugrekki til að
klæða sig eftir eigin smekk og halda þannig
persónueinkennum sínum.
Drottningin mun ekki
láta af embætti
Líklegt er aö langt verði þar til Karl og
Díana taka við ríkinu. Það verður sennilega
þeirra hlutverk að stýra Bretlandi inn í 21.
öldina. Þangað til munu þau enga ákveðna
stöðu hafa í bresku þjóðfélagi.
Þótt skoðanakannanir í Bretlandi sýni að
flestir séu á þí að drottningunni beri að
víkja fyrir syni sínum er konungsfjölskyld-
an ekki á því máli.' Hún ill ekki að
þjóðhöfðingjaembættið verði að starfi sem
fólki verði vikið úr er það kemst á
eftirlaunaaldur. Hún álítur að það komi til
með að grafa undan virðingu manna fyrir
þessu embætti.
Árið 1965 hóf Elisabet þó umræður við
forsætisráðherrann og erkibiskupinn af
Kantaraborg um það hvort henni bæri að
láta af embætti í hendur Karls þegar hann
væri orðinn færari til að annast þau
verkefni sem því fylgdu. „Þú ættir að gera
það góða mín,“ sagði maður hennar í
góðlátlegum tón. „Læknarnir munu örugg-
lega halda í þér lífinu svo lengi.“
Síðan þá hefur drottningin komist á þá
skoðun að henni beri ekki að láta af embætti
og Karl er þeirrar skoðunar líka.
Einangraður en ánœgður
Þó svo virðist sem Karl vilji láta á sér
bera, marka sín spor í mannkynssöguna,
finnst mörgum hann hafa einangrast um of
og hafa stungið upp á því að hann snúi sér
meira að málefnum bresks almennings, t.d.
málefnum iðnaðarins, bæði konungsfjöl-
skyldan og iðnaðurinn þurfi þess með. En
samkvæmt yfirlýsingum frá höllinni finnst
honum það sér ekki samboðið.
Karl á ekki marga vini. Hann velur sér
vini sem kunna að umgangast tignarfólk og
sem hann treystir að muni ekki hlaupa í
fjölmiðla með upplýsingar um persónuleg
mál sín. Allir vinir hans hneigja sig og
segja: „Yðar hátign" er þeir heilsa honum og
þar á eftir ávarpa þeir hann með „sir“.
tók trúiofunarmyndina
af lafði
Diönu.
En þrátt fyrir vinsældir Karls meðal
almennings virðist hann höfða síst til sinnar
eigin kynslóðar. Hann virðist hafa misst
mest allt samband við jafnaldra sína. Þeir
sem til þekkja segja að Karl eyði fleiri
kvöldum einn fyrir framan sjónvarpið í íbúð
sinni en nokkurn gruni. Og þegar hann er
meðal fólks segir hann að það fólk sem hann
vilji kynnast sé of feimið til að gefa sig á tal
við hann. Félagar í breska hernum spurðu
hann eitt sinn hvort hann vildi ekki heldur
lifa lífi almennings og geta t.d. farið á krána
á kvöldin. „Það skemmtilegasta sem ég geri
er að fara ekki á krána,“ sagði Karl. „Eg lifi
mínu eigin lífi og þekki ekki annað. Þess
vegna líkar mér það líf. Kannski þætti mér
skemmtilegra að lifa lífi einhvers annars.
Að fara á krána á kvöldin er ekki það
skemmtilegasta í lífinu. En ef þér finnst
gaman að fara á krána þá verður það það
skemmtilegasta í lífinu.
Karl hefur á margan hátt lifað öðru vísi
en hefur verið venja breskra ríkisarfa. Hann
er sá fyrsti sem gengur í skóla með öðrum
börnum og sá fyrsti til að taka háskólapróf.
Hann er einnig fyrsti ríkisarfinn sem hefur
stjórnað skipi, verið fyrirliði landsliðs í
íþróttum, æft köfun og fallhlífarstökk. Auk
þess er hann fyrsti prinsinn af Wales sem
lærir velsku.
Færir Karli fersk-
leika kynslóðar sinnar
Lafði Díana er fædd 1. júlí 1961. Hún er
dóttir Edwards Johns, jarls af Spencer og
Frances Ruth Roche greifynju. Foreldrar
hennar skildu árið 1969. Móðir hennar er nú
gift kaupsýslumanni, Peter Shand Kydd að
nafni, en faðir hennar er giftur Raine
KARL prtnt »t W»le«
t. 1948
1 ELISABET II Bratadrotlning f 1926 i I FiLIPPUS hartogi af Edinborg f. 1921
■ \ GEORG VI Brotakonungur 1. 1895 d 1952 I i Laf6i ELISABET BOWLES-LYON 1. 1900
I GEORGV Bretakonungur f. 1867 d. 1936 i I VIKTORÍA MARÍA alTock f. 1867 d 1953
I JATVARDUR VII Bretakonungur f. 1841 d. 1910 i \ ALEXANDRA af Danmörku I. 1844 d. 1925
I VIKTORÍA Bretadrottmng f. 1819 d 1901 i I ALBERT prin» 1. 1819 d 1861
I JATVAROUR hartogi af Kant f. 1767 d. 1820 i I VIKTORÍA MARÍA af Sachaan-Coburg-Gotha f. 1786 d. 1861
r GEORGE III Bratakonungur f. 1738 d. 1820 i 1 KARLOTTA af Macklanburg-Starlitz f. 1744 d 1818
i FRIDRIK prins af Walas f. 1707 d. 1751 1 1 AGUSTA af Sachsan- Coburg-Altanburg f. 1744 d. 1772
1 GEORGE II Brotakonungur f. 1681 d. 1760 l I KARÓLINA af Brandanburg-Ansbach f. 1683 d 1737
I GEORG 1 Bretakonungur f. 1660 d 1727 I i SOFFÍA DÓRÓTHEA af Brúnavík-LOnaburg og Calla
r ERNST AGÚST kjórfursti at Hannovor f. 1629 d. 1698 I SOFFÍA 1 1630 d 1714 L
FRIDRIK V ELISABET
konungur at B»heimi t. 1596 d. 1662
I 1596 d. 1632
JAKOB VI og I
Brotakonungur
t. 1566 d. 1625
McCorquodale dóttur Barböru Cartland,
rithöfundarins fræga.
Diana þekkir konungsfjölskylduna frá því
hún var barn að aldri. Heimili hennar í
Northamptonshire er við hliðina á sveita-
setri konungsfjölskyldunnar. Faðir hennar
var um tíma hestavörður Georges I og síðar
Elisabetar drottningar. Sögur herma að
börn Spencer fjölskyldunnar og börn drottn-
ingar hafi leikið sér saman á yngri árum og
hafi Karl m.a. kennt Díönu að synda. Karl
og Díana geta og rakið ættir sínar saman,
þau eru bæði afkomendur Jakobs I Breta-
konungs.
En þótt Díana sé eðalborin og alin upp í
því að umgangast tignarfólk hefur hún ekki
einangrast frá almenningi. Margir telja að
hún sé rétta konan handa Karli vegna þess
að hún komi til með að bera inn í líf hans
frískleika kynslóðar sinnar og ilminn af
lífinu fyrir utan girðingu Buckinghamhall-
ar.
Mikið tUstand
Enn eru rúmir tveir mánuðir í brúðkaupið
mikla. En þegar hafa verið framleiddir
haugar af minjagripum sem allir renna út
eins og heitar lummur. Búist er við að bresk
minjagripafyrirtæki muni hala inn allt að
115 milljónum punda fyrir 29. júlí. Og
minjagripirnir eru alls konar. Állt frá
fingurbjörgum upp í fána, ölkrúsum og
herðatrjám upp í postulínsplatta.
Og það er víst að mikið verður um dýrðir
um landið allt á brúðkaupsdaginn. Prins af
Wales hefur ekki gengið í hjónaband síðan
1963 og þetta verður mesti viðburður innan
bresku konungsfjölskyldunnar síðan Elisa-
bet var krýnd árið 1953.
LalM DIANA SPENCER
I. 1961 '
EOWARD JOHN FRANCES RUTH ROCHE
S. j»rl »1 Sp*nc»r gift 1954
f 1924
ALBERT EDWARD JOHN L»f6i CYNTHIA ELEANOR
7. |»rl »1 Spancar HAMILTON
I 1892 d. 1975 d. 1972
I CHARLES ROBERT 6. jarl af Spancar f. 1857 d. 1922 i I MARGRÉT BARING d. 1906
i FREDERICK 4. jarl af Spancar f. 1791 d 1857 ADELAIDE HORATHIA d. 1877 I
1 Sir HORACE (SEYMOUR) f. 1791 d. 1856 I I ELISABET PALK d. 1827
Í HUGH SEYMOUR aömíráll f. 1759 d. 1801 l l Latði ANNA HORATHIA WALDEGRAVE d. 1801
FRANCIS (SEYMOUR) 1. markgreifi af Hertford f. 1718 d. 1794 I ISABELLA f. 1726 d. 1782 I.
r~ CHARLES (FITZROY) -2. hartogi at Grafton 1 1683 d. 1757 I I Laföi HENRIETTA SOMERSET d 1726
| HENRY (FITZROY) 1. hartogi af Grafton f 1663 d 1690 i Lafði ÍSABELLA BENNETT d 1723
KARL II Bretakonungur f. 1630 d. 1685 i I BARBARA VILLIERS hartogaynja af Clavaland f. 1641 d. 1709
I KARL 1 Bratakonungur f. 1600 d. 1649 i 1 HENRIETTA MARÍA af Frakklandt f. 1609 d. 1669
Anna af Danmðrku f. 1574 d 1619
Árið 1948 áttu Bretar við erfiðleika
eftirstríðsáranna að etja. Fæðing ríkisarfa
lífgaði upp á tilveruna þá. í dag, þrjátíu
árum síðar, eiga Bretar við nýja erfiðleika
að etja og enn ber Karl birtu inn í þjóðlífið.
Hann er vinsæll meðal landa sinna og þeir
gleðjast með honum og brúðinni hans ungu.
rmn.
Heimildir: Now, The Observer. Time og AP
Karl er mikinn gefinn fyrir iþróttir alls
konar og útiveru.
Karl prins hefur undanfarin ár komið til íslands til laxveiða í Hofsá á hverju sumri.