Morgunblaðið - 12.04.1981, Síða 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. APRÍL 1981
Hinn 7. mars sl. var
opnuð hér í Danmörku sýn-
ing á 374 myndverkum úr
dánarbúi „málara aldarinn-
ar“, Pablo Picassos. Sýn-
ingin sem er í Louisiana-
safninu í Humlebæk verður
opin til 21. júní nk.
Louisiana-safniö í Humle-
bæk hefur nú á síöustu árum
oft veriö gestgjafi fyrir far-
andsýningar. Ohætt mun þó
aö fullyröa aö á þessu ári sé
ríkulegar veitt en oftast áö-
ur. A hundraö ára ártíö
meistarans Pablo Picassos
gefst nú tækifæri til aö líta
augum mörg þeirra lista-
verka hans sem hann lét
aldrei frá sér og komu því í
arf afkomenda hans. Þegar
Picasso lést áriö 1973 var
Picasso
Nær 400 verk á sýningu í Danmörku
Ijóst aö erföaskattur af nær
öllum eigum hans skyldi
greiöast í Frakklandi. Arið
1968 höföu veriö samþykkt
lög í franska þinginu þess
efnis aö heimilt skyldi aö
greiöa erföaskatt af lista-
verkum meö ákv. hluta
þeirra. Þaö tók síöan nær
fimm ár aö ganga frá mati á
Picasso-arfinum og réði þar
mestu hve mikill hluti lista-
verkanna var óskrásettur í
hinum mörgu aösetrum
meistarans.
Þau verk sem franska
ríkiö valdi úr dánarbúi Pic-
assos spanna nær allan
hans feril. Hér er því komið
þaö yfirlit yfir þróun listar
hans sem margir hafa óskaö
aö væri á einum staö. Það
hefur því verið ákveöiö aö
reisa í París safn er beri nafn
Picassos og hýsi þann hluta
dánarbúsins sem kom í hlut
Frakka. Vonir standa til aö
safniö veröi fullgert á næsta
ári, en þangað til hefur
franska ríkiö lánaö stóran
hluta verka Picassos á þá
farandsýningu sem nú gistir
Danmörku.
Sýningin í Louisiana hefur
fengiö mjög góöa dóma hér í
Danmörku. Almennt eru
listagagnrýnendur sammála
um aö þaö sýnishorn sem
hér er um aö ræöa af list
Picasso gefi mjög góöa
mynd af ferli hans. Sýningin
er mjög skemmtilega upp-
sett og meö aöstoö lit-
skyggna og texta er upplýs-
ingum um hin ýmsu tíma-
skeiö í listsköpun Picassos
komiö til sýningargesta.
Humlebæk er aöeins 30 km
fyrir noröan Kaupmannahöfn
og ætti því að vera sjálf-
sagöur viökomustaöur
feröalanga sem vilja njóta
listar í fallegum húsakynnum
og gróðursælu umhverfi.
Kaupmannahöfn
29. mara 1981.
Þórólfur Árnason.
Frá blaðamannafundinum I HallKrímskirkju. Á myndinni má m.a. þekkja herra Sigurbjörn Einarsson
biskup. séra Ragnar Fjalar Lárusson og séra Karl Sigurbjörnsson sóknarpresta. i^ma. Mb.: rax
Kemst Hallgrímskirkja
undir þak á þessu ári?
„OKKUR dreymir um að koma
kirkjunni undir þak á þessu
ári. En i Ijósi nýjustu upplýs-
inga varðandi kirkjuhvelf-
ingarnar, getur verið, að við
þurfum að haga okkur eitthvað
öðruvísi en við höfðum áætlað,“
sagði Ilermann Þorsteinsson,
formaður byggingarnefndar
llallgrímskirkju, á fundi með
fréttamönnum i gær. Hermann
og fulltrúar hinna ýmsu aðila
er eiga aðild að kirkjubygging-
unni kynntu þá fyrir blaða-
mönnum hina ýmsu verkþætti
byggingarinnar, en í fyrradag
náðist sá áfangi í kirkjubygg-
ingunni, að lokið var við að
steypa inni í kirkjunni sjálfri.
Er nú aðeins eftir að fuílgera
hvelfingarnar. svokallaða þak-
ramma, og loks þakið sjálft.
„Það er eins og við höfum
einhvern meðbyr núna,“ sagði
Hermann. „Mönnum finnst tími
vera kominn til að ljúka bygging-
unni. Við höfum hingað til reitt
okkur að mestu á Vini og velunn-
ara kirkjunnar, en gerum okkur
vonir um, að ráðamenn ríkis og
borgar sýni því aukinn skilning,
að brýnt er að ljúka jiessu verki,
enda má segja, að nú sé enda-
spretturinn að hefjast.
„Við stöndum að vísu með tvær
hendur tómar, ef frá er skilið
höfðinglegt framlag Kvenfélags
Hallgrímskirkju í dag, en félagið
gaf okkur tvær milljónir í fyrra og
sömu upphæð nú. Kassinn er þó
þeirrar náttúru, að hann tæmist
aldrei alveg. En við þurfum á
einni milljón nýkróna að halda á
þessu ári. Kirkjan þarf því enn
sem áður á því að halda, að til
hennar sé litið, að vinir hennar
iáti í sér heyra," sagði Hermann
Þorsteinsson.
• Hermann sagði, að í fyrra hefði
verið unnið fyrir 88,2 milljónir
gkróna, og væri kostnaður frá
upphafi orðinn 238,4 miiljónir
misstórra króna. í byggingarsjóð-
inn komu 6,2 milljónir frá Hall-
grímssöfnuði, 30,6 milljónir komu
inn í formi áheita og gjafa,
útsýnisturn kirkjunnar gaf af sér
3,8 milljónir brúttó, framlag ríkis-
sjóðs voru átta milljónir, frá
borgarsjóði og kirkjubyggingar-
sjóði Reykjavíkur komu 7,5 millj-
ónir, tvær milljónir frá kvenfélagi
kirkjunnar, eins og áður sagði, og
rúmar 17 milljónir komu inn fyrir
húsaleigu.
Á þessu ári er gert ráð fyrir 20
milljónum gkróna úr ríkissjóði, 15
milljónum gkróna úr kirkjubygg-
ingarsjóði Reykjavíkur, fimm
milljónum frá söfnuðinum og 35
milljónum gkróna í formi gjafa og
áheita.
„Já, við vonum, að hækki á
kirkjunni risið í sumar og vonum
að það hugsi fleiri hingað til
Hermann Þorsteinsson