Morgunblaðið - 12.04.1981, Síða 48

Morgunblaðið - 12.04.1981, Síða 48
Síminn á afgreiðslunni er 83033 JW«r0unblfll>it> Síminn á afgreióslunni er 83033 JH*r0unblflbib SUNNUDAGUR 12. APRÍL 1981 Fjórir hlut- hafar hafa stefnt stjórn Fiskeldis NÚ HEFUR verið ákveðið að byKKja nýjan <>« í{læsile«an skíðaskála 1 Bláfjöllum á vck- um Bláfjallanefndar. Nýlega var verkið boðið út ok bárust 9 tilboð. Væntanlejfa verður verkið hafið á næstu vikum ok ætlunin er að Ijúka þvi um na-stu áramót. Áætlaður kostn- aður hönnuða, Teiknistofu Manfreðs <>k borvaldar. er tæp- ar 5 milljónir. Aðalástæðan fyrir byggingu skálans er það ófremdarástand, sem nú ríkir í Bláfjöllum hvað öryggi og snyrtiaðstöðu varðar. í skálanum verður mjög vönduð snyrtiaðstaða,' geymsla fyrir skíðaútbúnað og pinkla, ýmis konar þjónusta og veitingasalur, þar sem skíðamenn geta bæði snarlað nesti sitt eða keypt sér eitthvað í gogginn. Þá verður þar einnig aðstaða fyrir starfsfólk skíðasvæðisins, skíðaleigu, hjálparsveitir og fleiri aðilja. Þá er þar snyrtiaðstaða fyrir hreyfihamlaða. Skálinn er 467 fermetrar að grunnfleti, kjallari, hæð og ris- hæð, eða alls rúmlega 1.000 fermetrar. Kjallari er stein- steyptur, en húsið að öðru leyti byggt úr timbri. Arkitekt skálans er Manfreð Vilhjálmsson, en teikningar voru gerðar á Teiknistofu Manfreðs og Þorvalds. Árslaun á aflahæstu skuttogurunum: Hhitur skipstjórans um 680 þús. krónur TEKJUR sjómanna eru mjög mismunandi eftir því um hvers konar fiskiskip er að ræða. Bátasjómenn hafa t.d. ekki sömu kjör og þeir, sem eru á loðnuskipunum og á tveimur skipum, sem talin eru i sömu andránni. er oft ekki um sambærileg laun að ræða. Sömu sögu er að segja um togaraflotann, þar eru laun mjög mismunandi eftir skipum. Ef tekið er dæmi um hlut á skuttogara af minni gerðinni, sem kemur að landi með um 3.600 lestir í ár, sem talinn er meðalafli, má reikna með að hásetahlutur verði 230 þúsund krónur (um 23 milljónir gkróna). Skipstjórahlut- ur á sama skipi yrði um 460 þúsund krónur (46 milljónir gkróna). Aflahæstu minni skuttogararn- ir komu á síðasta ári með yfir 5 þúsund tonn að landi. Á slíku skipi má reikna, með, að háseta- hlutur verði um 340 þúsund krón- ur í ár (34 milljónir gkróna), og skipstjórahluturinn þá um 680 þúsund krónur (68 milljónir gkróna). Miðað er við fiskverð sem nú er í gildi og nýgerða kjara- samninga. FJÓRIR hluthafar í Fiskeldi hf. hafa höfðað mál fyrir bæjarþingi Reykjavíkur á hendur Fiskeldi og eru kröfur m.a. þær, að aðalfund- ur félagsins verði lýstur ógildur, að lýstar verði ógildar sölur hluta- bréfa til annarra en áskrifenda, að boðað verði til nýs aðalfundar og stjórnarkjörs og að hlutafjár- aukning, sem þar kynni að verða ákveðin, verði boðin hluthöfum 1 hlutfalli við hlutafjáreign. Yfirborgardómarinn í Reykjavík gerir stefnu þessa kunna í Lögbirt- ingablaðinu hinn 8. apríl sl. Stefn- endur eru Eyjólfur Friðgeirsson fiskifræðingur, Ingimundur Kon- ráðsson, Jakob V. Hafstein og Pétur Rafnsson, allir fram- kvæmdastjórar í Reykjavík. Eyjaljallajökull, Markaríljót og Vestmannaeyjar. Ljósm. Snorri Snorrason. Kjartan Jóhannsson formaður Alþýðuflokksins: Ekki aðeins skilyrði, heldur nauðsyn að mynda nýja stjóm Ekki önnur ríkisstjórn tilbúin, svo ég viti, segir Steingrímur Hermannsson í Lögbirtingablaðinu segir að málavextir stefnenda séu: Að stjórnin hafi engin bráðabirgða- skírteini gefið út en auglýst eftir greiðslu áskriftarloforða í gíró. Við þetta hafi margir áskrifenda ekki viljað sætta sig og því ekki innleyst loforð sín, er ekki var boðin fram lögmæt kvittun, að stjórnin hafi ráðstafað áskriftarhlutum til ann- arra, án þess að tilkynna áskrif- endum það sérstaklega, að stjórnin hafi síðan ákveðið hækkun hluta- fjár og það hlutafé að verulegu leyti verið keypt af nýjum hluthöf- um; afleiðingar þessa séu nú orðn- ar þær að hlutafélag, sem stofnað var til af nokkrum hundruðum félaga, sé nú komið í hendur tiltölulega fárra manna. Þá segir einnig í stefnunni, að Jóni Gunnari Gunnlaugssyni fram- kvæmdastjóra Fiskeldis og Tómasi Árnasyni viðskiptaráðherra sé stefnt til réttargæzlu, en málið mun verða þingfest hjá bæjarþingi Reykjavíkur þriðjudaginn 21. apríl. „VITASKULD eru ekki aðeins skilyrði til að mynda nýja ríkis- stjórn, það ber nauðsyn til þess. Umbótasinnar eiga að taka hönd- um saman að hrista af sér stöðvunarfargan litils minni- hluta sem drepur nú alit i dróma,“ sagði Kjartan Jóhanns- son, formaður Alþýðuflokksins. i tilcfni af ummælum Geirs Hall- grimssonar, formanns Sjálfstæð- isflokksins. i Mbl. i gær um að öll skilyrði séu til að mynda nýja rikisstjórn. Steingrimur Her- mannsson, formaður Framsókn- arflokksins, sagði. að honum væri ekki kunnugt um, að önnur rikisstjórn væri tilbúin. og að hann hefði ekki tekið þátt i slíkum tilraunum og myndi ekki gera það á meðan hann starfaði i annarri ríkisstjórn. Ummæli Geirs Hallgrímssonar í Mbl. í gær eru til komin vegna yfirlýsinga Alberts Guðmunds- sonar um, að hann muni greiða atkvæði gegn tillögum um láns- fjárheimild til byggingar flug- stöðvar, þar sem hann telji nýja ríkisstjórn ekki fyrir hendi, ef Alþýðubandalagið gengur út úr þessari. Kjartan Jóhannsson sagði einnig: „Þetta á ekki aðeins við í flugstöðvarmálinu heldur einnig í virkjunarmálum og atvinnumál- um almennt, svo dæmi séu tekin. Það verður að hefja framfara- og umbótasókn, sem treystir lífskjör- in á varanlegan hátt. Útkoman úr stöðvunarvaldsfyrirbærinu er al- gjör núllstefna, það er algjörlega óþolandi. Nú er meira að segja svo langt gengið, að heill þingflokkur greiðir atkvæði gegn nýsam- þykktri stefnu sinni og eigin ráðherra, undir fargi stöðvunar- valdsins, og gerir þannig sjálfan sig og alþingi að athlægi. Allir réttsýnir menn sjá, að svona skrípaleikur getur ekki haldið áfram. Þess vegna eiga umbóta- sinnar að taka höndum saman um myndun nýrrar ríkisstjórnar, sem endurvekur traust alþingis og virðingu, áður en það er orðið of seint." „Mér er ekki kunnugt um, að önnur sé tilbúin," sagði Stein- grímur. Hann sagði einnig, að hann væri ekki búinn að vera svo lengi í stjórnmálum, að honum væri kunnugt um, hvort það væri vaninn að reyna að mynda nýja ríkisstjórn áður en sú, er starfaði, væri farin. „Ég vinn að minnsta kosti ekki þannig,“ sagði hann. Nýr skíðaskáli byggður í Bláf jöllum

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.