Morgunblaðið - 12.04.1981, Side 16
64
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. APRÍL 1981
MHinum
varnarlausu
refsaó
ekki
hum seku”
KORCHNOI í
BRÉFI TIL BREZHNEVS
Fjandskák, bók Viktor Korchnois
stórmeistara, kemur út hér á iandi nú
upp úr helginni. Hún fjallar um heims-
meistaraeinvígiö á Filippseyjum og
aödraganda þess og eftirleik, sem
og baráttu hins frábæra skákmanns
fyrir frelsi fjölskyldu sinnar. Hagprent
hf. gefur út, og er þetta frumútgáfan
í Evrópu. Morgunblaöiö birtir hér 2.
og 3. kafla bókarinnar allnokkuö
stytta og útdrátt úr formála rithöfund-
arins og andófsmannsins Vladimir
Bukovskis.
„Grár leikur og vinnur“ — þessa
yfirskrift hafdi skákdálkahöfundur
einn á frásögn sinni af einvíginu
milli Karpovs og Korchnois, eða
öllu heldur einvíginu milli Korch-
nois og Sovétríkjanna og þeirra
fjölmörgu vina.
Eitt sinn gaf The House of
Freedom í Bandaríkjunum út heim-
skort þar sem alræðisríkin og ríkin
undir einræðisstjórn voru í svörtum
lit, en hin frjálsu ríki táknuð hvít.
Því miður er þessi bjartsýna svar-
ta/hvíta mynd af heiminum ekki
sönn lengur. Eftir tíu ára hægfara
undanlátssemi, sem kölluð hefur
verið slökun (détente), er ríkjandi
litur á kortinu grár: hin gráu
áhrifasvæði Sovétríkjanna.
Hvernig mátti hinn ópólitíski
maður Viktor Korchnoi vita, að
hann myndi lenda í hringiðu þess-
arar haráttu þegar hann valdi hið
fjarlæga og „hlutlausa“ land Filips-
eyjar?
Hin nýja bók Viktors Korchnoi
fjallar ekki aðeins um einvígið um
heimsmeistartignina í skák, heldur
engu síður um hið dapra ástand í
heiminum á vorum tímum sem
háður er Sovétríkjunum eigi minna
en að þremur fjórðu. Er eitthvað
furðulegt við þetta? Hugtakið um
drengskap (fair play) hefur ein-
faldlega ekkert innihald í Sovétr-
íkjunum, þar sem allt er pólitískt —
séu það vísindi, listir eða íþróttir.
Sérhvert afrek er sönnun yfirburða
sósíalismans. Sérhver ósigur er
álitshnekkir fyrir Sovétríkin. Sér-
hver sem reynir að varðveita sjálf-
stæði sitt á einhverju sviði, í hvaða
máli sem er, er óumflýjanlega
lýstur óvinur stjórnarfarsins í
heild. Ofurveldi Sovétríkjanna,
allri ríkisvélinni, er þegar í stað
beitt til þess að berjast gegn
þessum örvæntingarfuUa ofurhuga.
Þegar í upphafi er hann lentur í
hinni ójöfnu baráttu eins manns
gegn öllu kerfinu. Öll brögð eru
réttlætanleg svo fremi að andstað-
an sé moluð niður. — „Drengskap-
ur“ kemst þar ekki að.
Heimsmeistaraeinvígið á Filips-
eyjum var í þessum skilningi ein-
stæður og sérstæður táknrænn við-
burður. Á sama hátt og Korchnoi
fékk ekki varðveitt sjálfstæði sitt
án þess að verða pólitískur and-
stæðingur Sovétstjórnarinnar, varð
Karpov óhjákævmilega að taka þátt
í sovésku glæpaverkunum. Karpov
er veigamikið áróðustákn í Sovétr-
íkjunum, foringi kommúnistaæsk-
unnar og félagi í miðstjórn Koms-
omol (sovézka æskulýðshreyfingin),
og sömuleiðis persónulegur vinur
böðlanna í Kreml.
Hann var (á sama hátt og
geimfararnir) valinn úr geysistór-
um hópi líklegra áður en hann var
mótaður meistari. Hann verður að
vera ímynd hins sovézka siðgæðis,
holdi klædd hugsjón kommúnism-
ans ogjafn ósigrandi og sovétveldið
sjálft. Rússneskur, að sjálfsögðu,
(og ekki einhver grunsamlegur
Gyðingur), úr „öreigafjölskyldu", að
sjálfsögðu, og með tandurhreinan
uppruna. Hann getur ekki tapað;
honum leyfist það ekki.
Að baki hans stendur allt kerfið
með sína milljarða rúbla og njósn-
ara, opinhera sendimenn og erlenda
félaga í kommúnistaflokknum.
Heilir herskarar „hinna gráu“ um
heim allan.
Hin fáránlega mynd af komu
sovézku „skáksendinefndarinnar“
til Filipseyja, sem skipuð var nær
tveim tugum KGB-njósnara, töfra-
manna og karate-sérfræðinga undir
forystu Baturinskys, ofursta í KGB,
hefði verið verðugt viðfangsefni
fyrir penna Bulgakovs.
Á hinn bóginn var Korchnoi ekki
aðeins „liðhlaupi“, „flóttamaður“ og
„svikari“ sem ekki mátti nefna á
nafn í Sovétríkjunum, heldur var
hann einnig maður sem hafði vogað
sér að krefjast mannréttinda sinna.
Jafnvel áður en t'aflið var hafið
var hann sviptur ýmsum manna
sinna. Fjölskyldu hans var haldið í
gíslingu í Sovétríkjunum; sonur
hans er í fangelsi.
Barátta Korchnois er barátta
eins manns gegn hinu miskunnar-
lausa kúgunarkerfi sem hefur veitt
heiminn í tálsnöru, yfirfærð vegna
duttlunga örlaganna frá pynd-
ingarklefum sovézku fangabúðanna
að skákborðinu á Filipseyjum.
Cambridge, 6. marz 1980,
V. BUKOVSKY
Nú varð ég að hugsa um hvert
einstakt atriði í hólmgöngunni
sem framundan var. Ég fór mér
hægt. Ég tefldi í sterku skákmóti í
Hollandi þar sem ég náði öðru
sæti á eftir Portisch, síðan í
Beersheva í ísrael þar sem ég varð
efstur með ágæta útkomu eða 12
vinninga af 13 mögulegum.
Þann 15. febrúar var opinber-
lega tilkynnt í aðalstöðvum FIDE
hvaða lönd hefðu gert tilboð í að
halda Heimsmeistarkeppnina.
Þau hagstæðu peningalega séð —
að upphæð ein miiljón svissneskra
franka — voru frá Hollandi,
Austurríki, Filipseyjum og Vest-
ur-Þýzkalandi. Mesta freisting
þeirra allra var tilboðið frá
Vestur-Þýzkalandi. Og fyrst í stað
hafði ég ætlað mér að velja
Hamborg.
Fjármálin skiptu verulega sköp-
um þegar velja skyldi keppnisstað.
Til þess að geta séð aðstoðar-
mönnum mínum fyrir vinnu á
meðan á einvíginu stæði, varð ég
að hafa geysimikil fjárútlát sem
ekki varð jafnað við annað en
kostnað sovézka ríkisins við þetta
einvígi! Ég get sagt það strax, að
alls eyddi ég töluvert yfir 100
þúsund svissneskum frönkum, en
það var heildarupphæð verðlauna-
sjóðsins em skáksambönd Frakk-
lands, Sviss og Ítalíu buðu.
A hinn bóginn var meginvið-
fangsefnið að finna land þar sem
hægt væri að tryggja keppendum
jöfn og söm skilyrði og þar sem
mótshaldararnir væru hlutlausir.
Ég minntist þess hverju hlýlega
Karpov hafði verið tekið í Þýzka-
landi, hvernig hann hafði teflt við
þýzka sjónvarpsáhorfendur og
hlotið að launum hvorki, meira né
minna en Mercedes Benz glæsi-
vagn.
Ég komst að því, að einn hinna
líklegu mótshaldara hafði í vörslu
fyrir Karpov þann erlenda gjald-
eyri sem hann vann sér inn í
Vetur-Evrópu og Ameríku. Dag-
inn áðr en tilboðin voru opnuð bar
svo við í aðalstöðvum FIDE, að
fulltrúi sjónvarpsstöðvar í Ham-
borg, hr. Jungwirz, sagði mér
einkennilega sögu. Hann og félag-
ar hans höfðu verið að taka
sjónvarpsmyndir frá einni skák-
inni í einvíginu í Belgrad þar sem
furðuleg framkoma Spasskys
vakti mikla athygli. Jungwirz
sagði mér að þessi sjónvarpsmynd
hefði verið seld mörgum erlendum
sjónvarpsstöðvum, og Þjóðverj-
arnir hefðu sent hana til fyrirtæk-
is til að framkalla nægilega mörg
eintök. En svo vildi til að eldur
kviknaði í fyrirtækinu (eða var
kveiktur af ásettu ráði!) og mynd-
in eyðilagðist.
Hvað sem þessu líður vissi ég að
sovézkir flugumenn flæddu yfir
Vestur-Þýzkaland, og þeir voru
svo færir í þýzku, að engin leið var
að greina framburð þeirra frá
framburði venjulegra þýzkra
borgara. Þegar allt kemur til alls
er ríkasta land í heimi jafnvel nú í
lakari aðstöðu og háð Sovétríkjun-
um.
Ég þekki Rússa einn sem búið
hcfur í Þýzkalandi í 34 ár og hefur
ekki verið veittur þýzkur ríkis-
borgararéttur. Innanrikisráðu-
neytið segir við hann: „Skrifaðu
fyrst til Moskvu. Fáðu þá til að
staðfesta opinberlega, að þú sért
ekki borgari þeirra." Maður veit
ekki hvort maður á að hlæja eða
gráta!
Þegar ég hafði hugleitt öll þessi
atriði, ákvaö ég að ég skyldi alls
ekki tefla í Þýzkalandi. Ég setti
Austurríki efst sem valkost, í
annaö sæti Filipseyjar og í þriðja
sæti Holland.
Hvers vegna Filipseyjar? Ég
hafði þær upplýsingar, að ekkert
sovézkt sendiráð væri á Filipseyj-
um, en þær voru úreltar, það hefði
verið stofnað 1975. Ég ályktaði
eins og hagvanur stjórnmálamað-
ur, að því lengra sem ég væri frá
Sovétríkjunum, því lengra frá
pólitískum áhrifasvæðum þeirra,
því betri hlyti staöurinn að vera.
Hvílíkur auli! Þegar hér var
komið sögu átti ég að hafa gert
mér grein fyrir því, að áhrifa-
svæði Sovétríkjanna er öll jarð-
arkringlan og að fálmarar þessa
risakolkrabba teygja sig um álfur
allar. Hvernig átti ég að vita, að
um þessar mundir var háð áköf
barátta í blöðum á Filipseyjum
fyrir því, að bandarískar herstöðv-
ar þar yrðu lagðar niður, og að
ríkisstjórn Filipseyja hefði ekki
leitað til sinna næstu nágranna
þegar hún var að svipast eftir
annarri uppsprettu pólitískrar,
fjárhagslegrar og efnahagslegrar
aðstoðar?
Campomanes, fulltrúi skáksam-
bands Filipseyja — sá var nú
tungumjúkur og ísmeygilegur þá
stundina gagnvart mér! Hvernig
átti ég að vita að hann var í nánu
sambandi við Sovétmenn? Hefði