Morgunblaðið - 12.04.1981, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. APRÍL 1981
71
SKÓLAKÓR GARÐABÆJAR
100
syngjandi
börn
í 3 kórum
+ SKÓLAKÓR Garðabæjar er
fimm ára um þessar mundir.
Kórinn varö til á útmánuöum 1976
eftir uppsetningu og flutning á
óperunni „Ull í Gull“, en formlega
var hann stofnaður 1. desember
það ár. Stofnendur voru þáver-
andi söngkennarar skólans, Guö-
mundur Norðdahl og Guöfinna
Dóra Ólafsdóttir, en hún hefur
stjórnað kórnum frá upphafi.
Starfsemi kórsins hefur verið um-
fangsmikil á þessum árum, og nú
eru um 100 syngjandi börn í
Flataskóla í þremur kórum.
Skólakór Garöabæjar hefur
haldiö fjölda tónleika, innanbæjar
og utan, sungiö í kirkjum, skólum,
sjúkrahúsum og öörum stofnun-
um víös vegar um landiö. Hann
hefur tekiö þátt í kóramótum og
margvíslegu samstarfi viö aöra
kóra og sungiö meö þeim. Fyrir
skömmu kom hann fram í óper-
unni „Otello“ eftir Verdi meö
Sinfóníuhljómsveitinni í Háskóla-
bíói.
Kórinn hefur sungiö á annaö
hundraö innlend og erlend lög og
einnig frumflutt lög. Á 20 ára
afmæli Flataskóla söng skólinn
inn á 20 laga plötu, ennfremur eru
til þrjár snældur meö söng kórs-
ins.
Kórinn hefur sungiö nokkrum
sinnum í útvarpi og sjónvarpi.
Hann hefur fariö í nokkur söng-
ferðalög, til Noröurlands og aust-
ur til Hornafjaröar. Til Færeyja fór
kórinn 1977 og til Svíþjóðar og
Danmerkur 1979. Síöari hluta
maímánaöar nk. fer hann í söng-
för til Noregs og Svíþjóðar.
Kórinn heldur árlega Vortón-
leika sína í dag kl. 17.15 í
Bæjarbíói í Hafnarfiröi. Á efnis-
skránni eru alls 28 lög. Allur ágóöi
af tónleikunum rennur í feröasjóö
kórsins.
Aöal-kórinn
Miö-kórinn
j
Litli-kórinn
Frá fróttamannafundinum i bækistöðvum Framsóknar. Baldur óskarsson á miðri myndinni. næstur
ráðherrunum. Ljósm. Mbl. Kristján Einarsson.
Heim á fornar slóðir
+ Það vakti athygli framsókn-
arráðherranna Tómasar Árna-
sonar og Steingríms Hermanns-
sonar á fréttamannafundi, sem
þeir efndu til í húsakynnum
Framsóknarflokksins við Rauð-
arárstíg í síðustu viku, að ný-
skipaður ritstjóri Þjóðviljans,
Baldur Óskarsson, mætti þar í
eigin persónu fyrir hönd blaðs
síns. Tómas og Steingrímur buðu
hann sérstaklega velkominn á
„fornar flóðir", en spurðu samt,
líklega til öryggis," hvort hann
væri nokkuð kominn til að vera
til frambúðar."
Baldur var einn af Möðruvell-
ingunum sem yfirgáfu Fram-
sóknarflokkinn hér um árið, sem
kunnugt er. Starfsmaður Fram-
sóknarflokksins, sem sat
fréttamannafundinn, bætti aft-
an við kveðjur ráðherranna, að
Baldur hefði nú „alltaf kunnað
betur við sig í Tjarnargötunni."
Fátt varð um svör hjá Baldri, en
vitað er að hann yfirgaf húsið í
lok fundarins, þannig að liklega
hefur hann ekki komið „til að
vera“, að minnsta kosti ekki að
sinni.
Söngkonan Hallbjörg
oröin myndlistamaöur
+ Flestir íslendingar, sem
komnir eru af barnsaldri, muna
eftir Hallbjörgu Bjarnadóttur,
söngkonunni sem m.a. hafði svo
vitt raddsvið, að hún gat hermt
eftir allt frá bassasöngvurum
eins og Paul Robson og upp í
frægustu tenora og sopransöng-
konur, og skemmti bæði hér
heima og víða erlendis með söng
og eftirhermum. Nú er hún hætt
að syngja en hefur um árabil
stundað listmálun. Hún og Fich-
er maður hennar hafa undanfar-
in 2 ár sýnt að staðaldri í
Gallery 33 i New Jersey. Hér er
mynd af Hallbjörgu, þar sem
hún er að skipta á myndum í
sýningarsalnum.
Spilar á vordansleik
Sameinuðu þjóðanna
+ Gítarleikararnir Símon H.
ívarsson og Siegfried Kobliza
spiluðu á vordansleik hjá Sam-
einuðu þjóðunum í Vínarborg 21.
mars sl. við góðar undirtektir.
Einnig komu þar fram margir
þekktir skemmtikraftar frá
ýmsum löndum. Ágóði skemmt-
unarinnr rann til fatlaðra barna.
— Símon H. ívarsson lauk ein-
leikaraprófi frá Músikháskóla
Vínarborgar fyrir ári með mjög
góðum vitnisburði. Hann er nú
búsettur í Sviss en á hausti
komanda mun hann flytjast til
Islands og hefja kennslu við
Tónskóla Sigursveins D. Krist-
inssonar.
I október nk. spila þeir félagar
Símon og Siegfried hér á íslandi.
Á efnisskránni verður spænsk og
suður-amerísk músik sem þeir
hafa að mestu útsett sjálfir. Þeir
sem hafa áhuga á að ná sam-
bandi við þá félaga vegna fyrir-
hugaðrar tónleikaferðar geta
hringt í síma 24818, Hamrahlíð
9, Reykjavík.
Nýr hæstaréttarlögmaöur
+ Þann 17. mars sl. var Páli
Arnóri Pálssyni héraðsdómslög-
manni veitt leyfi til málflutnings
fyrir Hæstarétti. Páll Arnór er
fæddur 5. júní 1948 í Reykjavík,
sonur Guðrúnar Stephensen
kennara og Páls S. Pálssonar hrl.
Hann lauk stúdentsprófi frá M.R.
1968 og kandidatsprófi í lögfræði
frá Háskóla íslands í júní 1974.
Að loknu prófi hóf hann störf á
málflutningsskrifstofu föður síns,
en þann 23. október 1975 varð
hann héraðsdómslögmaður. Frá 1.
júní 1979 hefur hann rekið Lög-
mannastofuna, Bergstaðastræti
14, ásamt föður sínum, Páli S.
Pálssyni hrl., og bróður, Stefáni
Pálssyni hrl.
Páll Arnór er kvæntur Ragn-
heiði Valdimarsdóttur, klippara
hjá Sjónvarpi, og eiga þau tvö
börn.