Morgunblaðið - 12.04.1981, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. APRÍL 1981
77
'5?>, % %
Þessir hringdu . . .
Mega sumir
en aðrir ekki?
Selásbúi hringdi og hafði eft-
irfarandi að segja: — Ég ek
Kleppsveginn tvisvar á dag og
hef tekið eftir því að lögreglan
er þar tíðum við hraðamæl-
ingar, og lætur oft lítið fara
fyrir sér einhvers staðar í nánd
við Laugarásbíó. Fólk er mis-
kunnarlaust tekið ef það fer yfir
leyfilegan ökuhraða þarna á
beinni brautinni, en hann er
yfirleitt 60 km/klst., að undan-
teknum kaflanum frá Þróttar-
heimilinu að Laugarásbíó. Þar
er hann 50 km/klst. í gær var ég
á leið niður í bæ um kl. 17 og ók
eftir Kleppsveginum. Þá voru
þeir að mæla. Um kl. 19 var ég á
heimleið og kom inn á Sætúnið
(við Steintún) á leið í átt að
Kleppsvegi. A undan mér ók
lögreglujeppi og dró ekki af sér,
en það skal tekið fram að hann
var hvorki með sírenu né ljós-
merki í gangi. Honum var ekið
sitt á hvað eftir akreinunum til
að flýta ferð og komast inn í
eyður og aldrei slegið af. Ég
reyndi að fylgja honum eftir og
sá að hraðinn fór ekki niður
fyrir 80 km. Ég skrifaði hjá mér
númerið á jeppanum og hugsaði
með mér: Sumir mega en sumir
ekki. Hvaða skýringu getur lög-
reglan annars gefið á þessu
aksturslagi?
og vildi tala við hann á auglýst-
um símatíma. Hann var ekki
við, heldur á einhverjum áríð-
andi fundi að sagt var. Ég
kvartaði yfir þessu við stúlkuna,
sem svaraði í símann og sagði
henni að þetta væri nú ekki í
fyrsta skipti, sem svona væri
ástatt fyrir blessuðum forstöðu-
manninum. Hún tók athuga-
semdum mínum með ljúfu geði
og kvenlegri siðprýði og benti
mér á, að hún réði ekki yfir tíma
forstöðumannsins. Hann væri
hins vegar undir miklu álagi og
gæti ekki sinnt viðtölum í síma,
eins og nú stæðu sakir. „Það er
einmitt það,“ asgði ég, „og þakka
þér nú kærlega fyrir." „Gerðu
svo vel,“ sagði hún og lagði tólið
á. Það var þessi síðasta setning
hennar, gerðu svo vel, sem ég
skildi ekki í þessu samhengi.
Ekki svo að skilja að þetta sé í
fyrsta sinn, sem ég hef orðið var
við þetta fyrirbæri. En hvers
vegna tekur fólk svona til orða í
þessu samhengi? Veit það ekki
hvað „gerðu svo vel“ þýðir? Satt
að segja er ég alveg undrandi
yfir svona málnotkun, og það er
ástæðan til þess að ég bið þig
um að láta þetta koma fram
opinberlega. Svo mætti svona í
lokin bæta við: Hvað segja
snillingar eins og Guðni Kol-
beinsson og aðrir um þetta
fáránleikans fyrirbrigði?
Bæjarstjórn
Hafnarfjarðar á
menningarvöku
H.H. hringdi og hafði eftirfar-
andi að segja:
Á llamrinum okkar er risinn hláleKur kofi.
IIvislaA er art ha jarstjórnin þangaó klofi
á skellinoórum til skrafs ok ráóa;
skammarleKt þe«ar fólk er genKtö til naóa.
Gerðu svo vel
Gaflari hringdi og sagði: —
Sagan sem ég ætlaði að biðja þig
fyrir fjallar ekki um neitt eins-
dæmi. Mér varð það á að hringja
í ríkisstofnun nokkra sem út af
fyrir sig er ekki í frásögur
færandi. Ég átti erindi við
forstöðumann stofnunarinnar
hafinn, engin stétt manna væri
vitlausari, hélt hann. Ég kvaðst
ekki hafa nema góða reynslu af
langferðabílstjórum í öðrum ferð-
um en áætlunarferðum, en ég vildi
heldur senda velvakanda ádrepu
um þetta sem mætti birtast undir
yfirskriftinni „Varizt að ferðast
með áætlunarbílum". Sérleyfis-
hafinn mælti með því.
Ilagsmiinir sérleyf-
ishafa í veði
Erlend hjón, kunningjar mínir,
sögðu mér nýlega frá því að þau
ætluðu að koma til landsins í
sumar og datt í hug að ferðast
kringum landið með áætlunarbíl-
um. Ég samdi tillögu að hringferð
og sendi þeim. Eftir þessa reynslu
og samferðina með sérleyfishafan-
um athugaði ég að mér hafði láðst
að taka fram í bréfinu hvað þau
ættu á hættu með reykingar og
músíkhávaða í áætlunarbílunum.
Það er ekki skemmtilegt fyrir
þann sem skiptir um bíl minnst 10
sinnum á slíkri hringferð að vita
aldrei á hverju er von og sjáandi
það að bílstjórinn tekur ekki
sjálfur mark á reglum handa
farþegum, eins og ég hef oftsinnis
reynt á ferðum mínum. Tillits-
leysi reykingafólks er eins og
kunnugt er engin takmörk sett,
en hér eru einnig hagsmunir
sérleyfishafa í veði.
Skáhallt
réttlæti
Friðfinnur Finnsson skrif-
ar:
„Ágæti Velvakandi.
Bestu þakkir fyrir síðast.
Nýlega var á það minnt í
íslenskutíma útvarpsins að orð-
ið stúdíó félli mjög illa að
íslensku máli og væri vel ef
einhver vildi láta sér detta í
hug betra orð. Mér datt í hug
orð sem er að minnsta kosti
íslenskt. Það er orðið baðstofa í
stað stúdíós.
Skynsamleg
ráðstöfun
Nú hefir verið á það minnst í
útvarpinu að stytta dagskrána
og spara tilkostnað. Þetta tel ég
skynsamlega ráðstöfun. Mér
dettur í hug, að vel færi á því
að enda kvölddagskrána á lestri
Passíusálmanna yfir föstuna.
Væri það ekki hæfileg virðing
við höfund þeirra?
Hafði aðra skoð-
un á málinu
Fyrir nokkru varð talsvert
fjaðrafok út af veitingu lyfsölu-
leyfis í Dalvík. Er það eðlilegt
þegar haft er í huga, að meiri
hluti lyfsölunefndar mælti ein-
róma með umsækjanda sem
hann taldi hæfastan til starfs-
ins, svo og aðrir umsagnaraðil-
ar með sama umsækjanda. Það
hefði því sýnst vandalaust fyrir
ráðherra að fara að ráðum
þessara aðila. En hann hafði
aðra skoðun á málinu og veitti
leyfið öðrum en þeim sem
fengið hafði sterkust meðmæl-
in. Og var margur óánægður
með þessa ráðabreytni ráðherr-
ans, m.a. jafnréttisráð. Finnst
mörgum sem þarna hafi verið
framið skáhallt réttlæti.
Væri ekki réttara að svona
mál væru afgreidd heima í
héraði að öllu leyti, og land-
læknir hefði þar úrskurðarvald,
ef með þyrfti?"
52P S\GeA V/öGA 2 ‘íiLVEgAU
to ^KK/ *EN6\Q\
VÍ/Ó 17/. M ‘dMyIMA MAW,
WYA'Klo MÖN A 'öVO
Litaver auglýsir
Sommer-veggdúkur
20 litir. Breidd 65 cm. Lækkað verð.
Veggfóður — Nýtt úrval
Vinyl og pappírs-veggfóður. Verö frá
40.00, rúllan.
Veggstrigi — Nýtt úrval
50 gerðir. Verð 16.00 m.
Hurðar-skrautlistar
14 geröir.
Líttu við í Litaver, því þaö hefur ávallt borgað
sig.
Grensásvegi, Hreyfilshúsinu. Sími 82444.
GENGI VERDBRÉFA 5. APRÍL 1981
VERÐTRYGGÐ
SPARISKÍRTEINI RÍKISSJÓÐS: Kaupgangi pr. kr. 100.-
1969 1. flokkur 6.210.01
1970 1. flokkur 5.689,68
1970 2. flokkur 4.146,88
1971 1. flokkur 3.748,81
1972 1. flokkur 3.251,96
1972 2. flokkur 2.776.53
1973 1. flokkur A 2.064,88
1973 2. flokkur 1.901,99
1974 1. flokkur 1.313,06
1975 1. flokkur 1.073,66
1975 2. flokkur 808,61
1976 1. flokkur 766.07
1976 2. flokkur 621,64
1977 1. flokkur 577,31
1977 2. flokkur 483,62
1978 1. flokkur 394,10
1978 2. flokkur 311,07
1979 1. flokkur 263,02
1979 2. flokkur 204,09
1980 1. ftokkur 158,31
1980 2. flokkur 124,87
1981 1. flokkur nýtt útboö 108,54 ♦ dv.
Msðalávóxtun spariakírtaina umfram varft-
tryggingu ar 3,5—6%. Sölutimi ar 1—3
dagar.
VEÐSKULDABRÉF
MEO LÁNSKJARAVÍSITÖLU:
Kaupgungl m.v. nafnvaxti 2<ö% (HLV) 1 afb./éri 2 afb./éri Ávöxtun umfram varötr.
1 ár 98 98 5%
2 ár 96 97 5%
3 ár 95 96 5%
4 ár 94 95 5%
5 ár 93 94 5%
6-10 ár 91-86 92-87 5V*%
11-15 ár 83-79 84-80 6%
16-20 ár 76-72 77-73 6V*%
VERÐTRYGGÐ
HAPPDRÆTTISLÁN
RÍKISSJÓÐS
Kaupgangi
pr. kr. 100.-
A — 1972 2.137,70
B — 1973 1.760,60
C — 1973 1.504,42
D — 1974 1.281,48
E — 1974 882.46
F — 1974 882,46
G — 1975 591,00
H — 1976 564,94
I — 1976 432,58
J — 1977 403,81
OfanakréO gangi ar m.v. 4% Avöxtun
P-á. umfram varOtryggingu auk vinn-
ingavonar. Happdrattiabréfin aru gaf-
in út é handhafa.
HLUTABRÉF
Trygginga- Kauptilboö
miðatöAin hf. öakaaf
VEDSKULDABRÉF
ÓVERÐTRYGGÐ:
Kaupgengi m.v. nafnvaxti
(HLV)
12% 14% 16% 18% 20% 38
65 68 67 69 70 81
54 56 57 59 60 75
46 48 49 51 53 70
40 42 43 45 47 66
35 37 39 41 43 63
TÖKUM OFANSKRÁÐ VERDBRÉF í UMBOÐSSÖLU
MÍnraTmaMtfáM íiummha
VERÐBRÉFAMARKAÐUR, LÆKJARGÖTU 12 R.
Iðnaðarbankahúsinu. Sími 28566.
Optð alla virka daga frá kl. 9.30—16.
$A6V
QA6T?\tVAQ
^íimw Yiív
MHT'