Morgunblaðið - 14.04.1981, Síða 1
48 SÍÐUR MEÐ 8 SÍÐNA ÍÞRÓTTABLAÐI
87. tbl. 69. árg.
ÞRIÐJUDAGUR 14. APRÍL 1981
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Geimfer jan undirbýr
háskalega lendingu
John Young með gleraugu
um borð í Columbiu á
mánudagsmorgni. Ilann
og félagi hans, Robert
Crippen. voru vaktir af
værum svefni með kúreka-
lagi. sem nú er mjög vin-
sælt fyrir vestan og fjallar
um Columbiu og ævintýrið
í kringum hana.
CanaveralhoíAa. Florida. 13. apríl. AI\
FERÐ Kcimferjunnar Columhia hefur gengið snurðulaust ok áhöfnin hóf
í dag undirbúninK hinnar hættuleKU lendingar á mornun. þettar reyna
mun á hæfni geimskutlunnar til að fljúga klakklaust inn i Kufuhvolfið
ok lenda eins ok fluKvél.
Enn ríkir nokkur vafi um hvort
hitavarnarflísar neðan á Columbia
séu óskemmdar og það hefur aukiö
þá spennu, sem ríkir fyrir lending-
una.
Hingað til hefur allt gengið eins
og í sögu. „Eini gallinn er að verða
að lenda," sagði John Young, yfir-
maður ferðarinnar.
Young sagði George Bush vara-
forseta í samtali við Hvíta húsið að
„geimskipið stæði sig frábærlega
vel“. Allir þeir sem standa að
tilrauninni eru sammála um þetta.
„Ég held að ferð ykkar muni vekja
hrifningu og auka framsýni í land-
inu,“ sagöi Bush og bætti því við að
í Hvíta húsinu yrði fylgzt af
miklum áhuga með -fluginu inn í
gufuhvolfið og lendingunni.
Young og Robert Crippen, félagi
hans, eiga að lenda kl 1.28 að
staðartíma (1828 gmt) í Edwards-
flugstöðinni í Kaliforníu. Útlit er
fyrir heiðskírt veður og golu þegar
Columbia lendir.
Þar sem saknað er tveggja hita-
varnarflísa skutlunnar og tugir
flísa ofan á geimskipinu hafa
skemmzt tók flugherinn nákvæmn-
ismyndir af belgnum þegar geim-
ferjan fór yfir Hawaii. Myndirnar
virtust sýna að allar flísarnar væru
á sínum stað, en ský skyggðu á og
niðurstaða myndarannsóknarinnar
var ekki ótvíræð. Sérfræðingar
rannsökuðu myndsegulbönd og
myndir teknar með fjarlægðarlins-
um, en ekkert sást athugavert.
„Við höfum mikinn áhuga á að
skilja hvað gerðist, en menn hafa
enn engar áhyggjur," sagði Charles
Redmond, talsmaður geimvísinda-
stofnunarinnar NASA. Hann taldi
ekki að geimfararnir væru í lífs-
hættu og sagði að hér væri alls
ekkert stórvandamál á ferðum.
Fyrstu nóttina var dálítið kalt í
Columbia, en starf geimfaranna
hefur gengið svo vel að þeir eru á
undan áætlun og Young hafði á orði
að yfirmaður þeirra, Chris Kraft,
ætti að gefa þeim frí það sem eftir
væri dagsins. Sjá biS- 18 og 19>
Fá ekki að hitta Hess
Herlin. 13. apríl. AP.
Sovézkir embættismenn neituðu i
Hess. staðgengils Adolf Hitlers, að
elsi, þar sem hann liggur veikur af
Wolf-Rudiger Hess sagði að
hann, kona hans og börn hefðu
reynt að fá sérstakt leyfi til að
heimsækja hann, þar sem þau
teldu að líf hans væri í hættu.
Hess var fluttur í nálægt brezkt
hersjúkrahús á þriðjudag í síðustu
dag að leyfa fjölskyldu Rudolfs
heimsækja hann i Spandau-fang-
lungnabóígu.
viku og samkvæmt skýrslu um
líðan hans á föstudaginn var hann
á góðum batavegi.
Brezkir embættismenn neituðu
að tala um yfirlýsingu Hess yngra
og líðan Hess í dag.
Walesa hvetur stjórnina
til að samþykkja kröfur
Varsjá. 13. april. AP.
LECII WALESA skoraði á pólsku
ríkisstjórnina í viðtali í aðalfrétta-
tíma sjónvarpsins i kvöld að ganga
að krofum verkamanna án þess að
neyða þyrfti hana til þess með
verkföllum. „Stjórnin verður að
koma fram með eitthvað, sýna
frumkvæði, án þess að við verðum
að kreista það út úr henni,“ sagði
hann.
Viðtalið virðist vera fyrsta svar
Walesa við samþykkt þingsins í
síðustu viku, þegar hvatt var til þess
að ekki yrði efnt til verkfalla í 60
daga. „Við verðum að hafa sterka
ríkisstjórn og sterkt þing,“ sagði
Walesa, en bætti því við að stjórnin
yrði því aðeins sterk að hún stæði
við það sem áður hefði verið samið
um og þá yrði henni trúað. Hingað
til höfum við orðið að knýja allt
fram, sagði Walesa.
Enn er óljóst hvort stjórnin hafi
rift samkomulaginu um lausn verk-
fallanna í fyrrasumar með sam-
þykktinni á föstudaginn, eða hafi
aðeins ályktað að ekki skyldi koma
til verkfalla næstu tvo mánuði.
Walesa bergmálaði athugasemd í
kommúnistablaðinu Trybuna Ludu
þess efnis, að samþykktin, sem væri
einsdæmi, væri ekki samningsbrot,
en betra væri að ekki þyrfti að koma
til verkfalla.
„Ég held að nóg sé komið af
samningum ... við ættum ekki að
gera fleiri, því að annars drukknum
við í þeim,“ sagði Walesa. Hann bað
ríkisstjórnina um skjótari viðbrögð.
Annar æðsti maður Varsjár-
deildar Samstöðu, Seweryn Jaw-
orski, lýsti jafnframt yfir stuðningi
við fjóra pólitíska fanga, sem verða
leiddir fyrir rétt 27. apríl, og sagði
að hreyfingin mundi halda blaða-
mannafund með ættingjum fang-
anna einni viku áður en réttarhöldin
fara fram.
Sjostakovitsj-
feðgar í felum
ENN HEFUR Maxim Sjosta-
kovitsj, sovézki hljómsveitar-
stjórinn. sem hað um pólitískt
hæli fyrir sig og son sinn i
V-Þýzkalandi á sunnudaginn
var, ekkert viljað segja opin-
berlega um þessa ákvörðun.
Ekki er vitað um dvalarstað
feðganna i V-Þýzkalandi, en
myndin hér að ofan var tekin
af hljómsveitarstjóranum.
Sjá nánar á bls. 20.
London. 13. aprll. AP.
WILLIAM Whitelaw innanrikisráð-
herra fyrirskipaði rannsókn i dag á
ástaxiunum fyrir kynþáttaócirðun-
um sem Keisuðu tvö kvöld i röð i
blokkumannahverfinu Brixton i
London.
Óeirðir brutust enn út i hvcrfinu i
kvold. er fjölmennur hópur svartra
unKlinKa a-ddi um götunnar. og
loKreKluliðsauki var sendur á vett-
vanK- Jafnframt fordæmdi Margar-
et Thatcher forsætisráðherra óeirð-
irnar i sjónvarpsviðtali og kvað
atvinnuleysi enKa afsökun.
En leiðtogar Verkamannaflokksins
sögðu að rannsóknin yrði aðeins
yfirklór og mundi ekki draga úr
fjandskap milli ungra, brezkra
blökkumanna og hvítra lögreglu-
manna.
Whitelaw sagði á þingi að áfrýjun-
ardómari mundi stjórna rann-
sókninni, sem mundi beinast að því
að kanna þær þjóðfélagslegu og
efnahagslegu ástæöur er leiðtogar
blökkumanna segja að séu undirrót
aukinna kynþáttavandamála Bret-
lands.
En hægriþingmaðurinn Enoch
Powell, sem í síðasta mánuði spáði
Blökkumaður klappar félaga sínum sem var handtekinn eftir óeirðirnar í
Brixton. 244 slösuðust og rúmlega 30 byggingar hrunnu til kaldra kola.
Talið er að pólitiskir ofgamenn hafi komið óeirðunum af stað.
„borgarastríði" í Bretlandi út af
kynþáttavandamálinu, sagði í dag að
vegna fyrirsjáanlegrar fjölgunar
þeldökkra landsmanna væri þetta
aðeins byrjunin.
Nokkrir hægrisinnaðir þingmenn
hvöttu til þess að innflutningur
þeldökks fólks yrði bannaður og
hvöttu til heimflutnings 1,9 milljóna
þeldökkra íbúa Bretlands af 56 millj-
ónum alls.
Lögreglan segir að kyrrt sé í
Brixton eftir óeirðirnar, en óttazt er
að til nýrra óeirða muni komi þar
sem róttækir blökkumannaieiðtogar
hafa boöað útifund í hverfinu
Nýskipuð „Vari:arnefnc Brixton”
hvatti þeldökkt l'olk hvarvetna í
Bretlandi að mæta.
Sjá bls. 46.
Rannsókn fyrirskipuð
á óeirðunum í Brixton