Morgunblaðið - 14.04.1981, Síða 12

Morgunblaðið - 14.04.1981, Síða 12
12 MORGUN’BLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. APRIL 1981 Tilkynning til hluthafa S.F.A. Akranesi Þar sem ákveðin hefur verið útgáfa jöfnunarhluta- bréfa í síldar- og Fiskmjölsverksmiðju Akraness hf., Akranesi, er hér með skorað á alla þá, sem telja sig eiga eöa geta gert tilkall til bráðabirgðaskírteina eða hlutabréfa í fyrirtækinu, að hafa samband við skrifstofu fyrirtækisins að Akursbraut 13, Akranesi, í síma 93-1755 fyrir 5. maí nk. og koma þannig á framfæri athugasemdum sínum og frekari uþþl. Lillý, Laugavegi 62, sími 12535. Drengjaspariföt og kjólar á 1 — 12 ára. Káþur, leðurlíkisjakkar, skírnarkjólar. Skíðagallar í þáskaferðina á 5—14 ára. Mikiö úrval af barnafatnaði. Póstsendum. Alltaf ódýrast og best að versla í Kaupfélög — Verzlanir Mikiö úrval af portúgölskum sængurgjöfum og ungbarnafatnaði nýkomið. BABY MOON — umboðiö. Heildverzlun Kára B. Helgasonar. Hamarshúsinu viö Tryggvagötu. Sími17130. MORGUNBLAÐIÐMORG MORGUNBLAÐIÐMOR MORGUN^LAÐIÐMO* MORGU MORGIy MORG/ MOP> MOjg MOPJ MC\ MO) MOP\ MOR( MORG\ MORGj) M«t M(l MC\ M0\ MOi\ MOR\ MOR(\ mcmj MC/ 'n //" Blað- burðar- fólk óskast Austurbær OIOMORGUNBLAÐiL) ■QMORGUNBLAÐIÐ QGUNBLAÐIÐ INBLAÐIÐ Lindargata Laugavegur frá 1- Hringið í síma 33 35408 Míthcjvn; MORGUKhC MORGUNBLV—.-------XTmrrrrz^ MORGUNBLAOIbs'''""f/CífiZSh V/ )IÐ ÐIÐ \ÐIÐ MORGUNBLAÐIÐMöv fNBLAÐIÐMt <5l>\OIÐ ■BLAÐIÐ ^LAÐIÐ flBLAÐIÐ /ONBLAÐIÐ ■UNBLAÐIÐ /tGUNBLAÐIÐ rRGUNBLAÐIÐ Verzlunarráð íslands stofnar réttarverndarsjóð - til að aðstoða einstaklinga og fyrirtæki við að leita réttar síns gagnvart því opinbera STJÓRN Verzlunarráðs íslands ákvað á fundi sínum sl. mánudaK að stofna sérstakan réttarvernd- arsjóð í vörzlu ráðsins. TilganKur með þessari sjóðstofnun er að hvetja einstaklinKa og fyrirtæki til að leita réttar síns fyrir dómstólum gaKnvart ákvörðun- um stjórnvalda ok annarra opin- berra aðila. sem ætlað er að brjóti KöBn ákvæðum lajja. reKlu- Kerða eða stjórnarskrár. svo ok hvers konar valdníðslu. sem beint er gegn atvinnurekstri í landinu. í frétt frá Yerzlunarráði íslands segir, að á undanförnum árum hafa komið til kasta Verzlunar- ráðsins æði mörg atvik, þar sem ætla má, að lög stangist á við ákvæði stjórnarskrárinnar, reglu- gerðir eigi sér ekki stoð í lögum, og opinberar ákvarðanir séu látn- ar taka gildi án lögformlegrar birtingar, og því miður verður atvinnureksturinn í landinu iðu- lega fyrir margs konar valdníðslu af opinberri hálfu, sem sjaldnast er andmælt eða skýrt frá opinber- lega. Vegna kostnaðar við rekstur mála fyrir dómstólum hefur margur orðið að láta kyrrt liggja, þótt hann teldi brotinn á sér rétt. Til sjóðsins er stofnað með 5000 króna stofnframlagi af hálfu Verzlunarráðsins, sem síðar verð- ur aukið við, en einnig skal sjóðurinn byggður upp á frjálsum framlögum einstaklinga og fyrir- tækja auk þess sem við rekstur einstakra mála verður leitað eftir framlögum þeirra samtaka at- vinnugreinar eða greina, sem einkum eiga hagsmuna að gæta við úrlausn viðkomandi máls, eins og segir í reglugerð fyrir sjóðinn. Aðalfundur Sveinafélags húsgagnasmiða: Félagsmenn vinni ekki við samsetningu eða uppsetningu á innfluttum húsgögnum AÐALFUNDUR Sveinafélags hús- gagnasmiða var haldinn fyrir skommu og var Hailgrímur G. Magnússon kjörinn formaður. Varaformaður var kjörinn Kári Kristjánsson. ritari Hilmar Sig- urðsson. gjaldkeri Bolli A. Ólafs- son. varagjaldkeri Jón Þorvalds- son og í varastjórn þau Birgir Guðmundsson og Kristín Ragnars- dóttir. A fundinum voru eftirfar- andi ályktanir samþykktar. Aðalfundur Sveinafélags hús- gagnasmiða haldinn 25.3. '81 lýsir yfir þungum áhyggjum vegna stöð- ugt vaxandi innflutnings húsgagna og innréttinga, sem framleiða má hér innanlands. Fundurinn vill því hvetja stórnvöld til aðgerða, sem snúi þessari þróun við. Það hlýtur að samræmast stefnu stjórnvalda í atvinnumálum, að koma í veg fyrir jafn taumlausan innflutning og verið hefur í þessu efni, því at- vinnuöryggi þess fólks, sem við húsgagnaiðnaðinn vinnur, er í veði. Aðalfundurinn vill jafnframt skora á féiagsmenn Sveinafélags húsgagnasmiða að vinna ekki við samsetningu eða uppsetningu inn- fluttra húsgagna og innréttinga. Aðalfundur Sveinafélags hús- gagnasmiða, haldinn 12.3. ’81, sam- þykkir eftirfarandi: Þar sem grun- ur leikur á að þeir erlendu ráðgjaf- ar, sem að undanförnu hafa starfað við ýmis hagræðingarverkefni í húsgagnaiðnaðinum, hafi hvatt for- svarsmenn fyrirtækja til að segja húsgagnasmiðum upp störfum felur fundurinn stjórn félagsins að láta rannsaka málið. Ef þessi grunur reynist réttur skal stjórnin boða til fundar þar sem tækifæri gefst til að ræða um viðbrögð og ráðstafanir af hálfu félagsins, sem koma í veg fyrir uppsagnir af slíkum orsökum. Aðalfundur Sveinafélags hús- gagnasmiða, haldinn 25.3. '81, sam- þykkir eftirfarandi: Um leið og fundurinn fagnar ýmsum þeim ávinningum, sem unnist hafa fyrir tilstuðlan stjórnvalda í félagslegum réttindamálum iaunafólks, vill fundurinn vara stjórnvöld við hverskonar afskiptum af kjara- samningum, sem leiða til kjara- skerðingar, eða breyta gerðum samningum. Afskipti af því tagi, sem stjórnvöld gripu til um síðast- liðin áramót eru um margt óeðlileg og gætu gefið tilefni til enn frekari afskipta stjórnvalda af kjaramálum með ófyrirséðum afleiðingum. Sam- tök launafólks þurfa að geta treyst því, að samningar, sem gerðir eru við atvinnurekendur, og ríkisvaldið hefur reyndar áhrif á að meira eða minna leyti, geti staðist eftir undir- ritun án afskipta utanaðkomandi aðila á samningstímanum. Neytendasamtökin á Akureyri og nágrenni: Lokun Iðunnar þýðir veru- lega verðhækkun á skóm Nú er svo komið að engir tollar eru á skóm frá þessum löndum en 16% frá öðrum. Árið 1978 voru tollar á skóm frá EFTA-löndunum 13%, en 31% frá þeim löndum sem standa utan bandalagsins. Kven- skór frá EFTA-rtki sem kosta kr. 308 út úr búð mundu kosta kr. 354 ef á þá væri lagður 13% tollur. Stjórn NAN óttast að ef til lokunar Iðunnar komi muni skór hækka verulega í verði, því líklegt er að skór verði aftur tollskyldir. Með þessu vill stjórn NAN benda á að starfræksla einu skógerðar landsins er alls ekki einkamál Akureyringa. MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi fréttatilkynning frá Neytendasamtökum Akureyris og nágrennis: Að undanförnu hefur mikið verið rætt um erfiðan rekstur skógerðarinnar Iðunnar á Akur- eyri, einu skógerðar landsins. Stjórn samtakanna, NAN, vill í þessu sambandi benda á eftirfar- andi: Við aðild Islands að Fríverslun- arbandalagi Evrópu, EFTA, féll- ust íslendingar á að lækka í áföngum og fella loks niður tolla á vörum frá aðildarríkjunum, hvort sem samskonar vörur eru fram- leiddar hér á landi eða ekki. Þriðji kaldasti veturinn frá 1920 VETRARMÁNUÐIRNIR desember til marz hafa verið umhleypinga- samir og erfiðir samkvæmt upplýs- ingum frá Veðurstofu íslands. I Reykjavík var meðalhiti vetrarins mínus 1..4 gráður eða 2 gráðum undir meðailagi og hefur einungis tvisvar orðið svo kalt þar um vetur síðan 1920. en það var veturna 1951 og 1979. en þá var meðalhitinn mínus 1.7 gráða. Þá hefur nýliðinn marzmánuður verið kaldur og erf- iður. Miklir kuldar voru dagana 18,—22. og var hitinn víða um landið 8—9 gráður undir meðal- lagi. í yfirliti Veðurstofunnar um vetr- armánuðina segir, að um sunnan- og vestanvert landið hafi myndast mik- il klakalög vegna tíðra veðrabreyt- inga og hafi það hamlað mjög samgöngum. Þá segir, að í Reykja- vík hafi úrkoma mælst 294 milli- metrar í vetur, sem er um meðallag. Febrúarmánuður var vætusamastur sunnanlands og mældist úrkoma í Reykjavík hálf önnur meðalúrkoma og úrkomu varð vart alla daga mánaðarins. Sólskinsstundir voru 180 sem er um 23 stundum færri en venja er. Jörð var talin alhvít i Reykjavík 56 daga, sem eru tvöfalt fleiri dagar en meðaltal áranna 1961-1975. Á Akureyri var meðalhiti vetrar- ins mínus 3,4 gráður og er það talsvert kaldara en í meðalárferði. Á Akureyri var talið alhvítt 104 daga af 121 og snjódýptin mældist flesta daga á bilinu 10—30 cm nema þrjá daga í marz var hún mun meiri eða allt að 80 cm. Úrkoma mældist 203 mm og er það 20 mm umfram meðallag. Urkoman var mjög mikil í mars, tvöföld meðalúrkoma en í febrúar mældist aðeins hálf meðal- úrkoma. Um nýliðinn marsmánuð segir í yfirliti Veðurstofunnar: „Hríðarveð- ur og snjóþyngsli hafa mjög hamlað samgöngum og hafa byggðarlög víðs vegar um landið verið einangruð um lengri eða skemmri tíma. Miklir kuldar voru dagana 18.—22. og var hitinn víða um landið 8—9 gráður undir meðallagi. Meðalhitinn í Reykjavík í marz- mánuði var mínus 0,9 gráður sem er 2.4 gráðum undir meðallagi. Úr- koma mældist 45 mm sem eru % hlutar meðalúrkomu. Sólskins- stundir voru 111 klukkustundir sem er 5,1 klukkustund umfram meðal- lag. Á Akureyri var meðalhitinn mín- us 2,9 gráður, sem er 2,6 gráðum undir meðallagi. Úrkoma mældist 78,2 mm og er það tæplega tvöfalt úrkomumagn. Úrkomu varð vart ailflesta daga mánaðarins og urðu sólskinsstundir 45,7 klukkustundum færri en venja er, eða 30,4 klukku- stundir. Á Höfn í Hornafirði var meðalhit- inn í marzmánuði mínus 0.2 gráður sem er 1.5 gráðum undir meðallagi og úrkoma mældist þar 151 mm sem eru 4/5 hlutar meðalúrkomu. Á Hveravöllum var meðalhitinn mínus 7.4 gráður. Úrkoma þar mældist 32 mm og sólskinsstundir voru 94.4 klukkustundir.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.