Morgunblaðið - 14.04.1981, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. APRÍL 1981
13
Samtök heil-
brígðisstétta:
Reykinga-
varnir
eru mikil-
væg heilsu-
vernd
SAMTÖK heilbrigðisstétta héldu
nýlega 12. aðalfund sinn, en
samtökin voru stofnuð 1%9.
Að stofnun samtakanna stóðu
10 félög heilbrigðisstétta. Alls eru
aðildarfélögin nú 16 og heildarfé-
lagatala samtakanna 5575. Félög-
in eru nú: Fél. forstöðumanna
sjúkrahús á Islandi, Fél. gæslu-
systra, Fél. íslenskra sjúkraþjálf-
ara, Hjúkrunarfél. íslands,
Ljósmæðrafél. íslands,
Lyfjafræðifél. íslands, Læknafél.
íslands, Meinatæknafél. íslands,
Sjúkraliðafél. íslands, Tannlækn-
afél. íslands, Dýralæknafél. ís-
lands, Fél. háskólamenntaðra
hjúkrunarfræðinga, Fél. íslenskra
röntgentækna, Fél. ísl. læknarit-
ara, Iðjuþjálfafél. íslands og
Lyfjatæknafél. íslands.
Á fundinum var Davíð Á. Gunn-
arsson, forstjóri ríkisspítalanna
kjörinn formaður í stað Maríu
Pétursdóttur, sem ekki gaf kost á
sér til endurkjörs. María Péturs-
dóttir hafði að þessu sinni gegnt
formennsku undanfarin 3 ár, en
hún var aðal hvatamaður að
stofnun samtakanna og fyrsti
formaður þeirra.
Á fundinum voru gerðar eftir-
farandi samþykktir:
Aðalfundur Samtaka heilbrigð-
isstétta vekur athygli á vel skipu-
lögðum og gagnmerkum fræðslu-
þáttum um skaðsemi reykinga,
sem fram hafa komið í fjölmiðl-
um, fyrir forgöngu reykinga-
varnanefndar.
Reykingavarnir eru mikilvæg
heilsuvernd, sem ber að efla, og
hvetur fundurinn heilbrigðisstétt-
ir eindregið til þess að sýna gott
fordæmi með því að reykja ekki á
heilbrigðisstofnunum.
Jafnframt telur fundurinn
nauðsynlegt að heilbrigðisyfirvöld
setji samræmdar og nákvæmar
reglur um reykingar á heilbrigð-
isstofnunum, þar sem stefnt verði
að því að hætta reykingum á
slíkum stofnunum, svo fljótt sem
verða má.
Þá skoraði fundurinn á mennta-
málaráðherra að beita sér fyrir
því að ríkisfjölmiðlarnir og skóla-
kerfið taki upp markvissa fræðslu
um heilbrigðismál. Einnig verði
skipulagðir í ríkisfjölmiðlum
kynningarþættir um heilbrigðis-
stofnanir. Samtök heilbrigðis-
stétta eru reiðubúin að leggja
fram aðstoð við framkvæmd
fræðslu þessarar.
Stjórn samtakanna skipa nú:
Davíð Á. Gunnarsson, formaður
frá Fél. forstöðumanna sjúkra-
húsa, Svanlaug A. Árnadóttir,
varaformaður frá Hjúkrunarfél.
ísl., Anna Atladóttir, ritari frá
Fél. ísl. læknaritara, Magnús R.
Gíslason, gjaldkeri frá Tann-
læknafél. Isl., Arinbjörn Kol-
beinsson, meðstj. frá Læknafél.
ísl.
Fréttatilkynning.
Ræða um yfir-
töku Olíumalar
,ÞAÐ HEFUR borizt beiðni inn á
okkar borð frá fjármálaráðuneyt-
inu og Útvegsbankanum þess efnis,
að þessir aðilar og Framkvæmda-
stofnun yfirtaki rekstur Olfumalar
hf.sagði Eggert Haukdal, stjórn-
arformaður Framkvæmdastjórnar,
i samtali við Mbl.
„Það var sett á laggirnar sam-
starfsnefnd þessara aðila, en engin
ákvörðun hefur enn verið tekin í
málinu. Málið er í skoðun, m.a.
bíðum við eftir upplýsingum frá
Vegagerð ríkisins um hverjar horf-
urnar séu á markaðnum næstu
árin,“ sagði Eggert Haukdal enn-
fremur.
e,P^ítíma
"næstubóka
Lundia hillukerfló er ódýrt og einfalt í uppsetningu
Lundia hillukerfió er selt í stykkjum,
þannig aö hverri einingu hagar þú eftir
eigin smekk.
Lundia hillukerfið er úr massívri
finnskri furu, mjög ódýrt og einfalt í upp-
setningu.
GRÁFELDUR HF.
ÞINGHOLTSSTRÆTI 4. S. 26626.
Tilvalið í stofuna, barnaherbergið,
ganginn, skrifstofuna, verslunina. . .
Hringið og biðjió um upplýsingabækl-
ing.
í stíl við Lundia hillukerfið, höfum við
einnig fáanlega klappstólaog borð.