Morgunblaðið - 14.04.1981, Qupperneq 14
14
MQftG.U’NBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. APRÍL 1981
Pleklutindur kögraður
gosmekki, en frá topp-
RÍKnum sést hraun og
grjót slettast upp úr gígn-
Ljósmyndir Mhl. Ragnar.
IVÍ argar skemmtilegar
hraunmyndanir voru inni
í nýja hrauninu og hitinn
sem lagði upp frá hraun-
breiðunni gerði bak-
grunninn að eins konar
málverki eins og sjá má.
Hraun-
slettur
og grjót
úr
rymjandi
topp-
gígnum
TOPPGÍGUR Heklu vældi
annað veifið eins og þoku-
lúður sl. sunnudag þegar
blaðamenn Morgunblaðsins
gengu á fjallið til þess að
fylgjast með gosinu sem
stendur yfir, en er með ró-
legra móti af hálfu drottn-
ingarinnar Heklu. Þegar
nær dró fjallinu ágerðust
drunurnar og það var eins
og fjallið kúgaðist, hefði
ekki neitt til þess að skila
upp um gígana í toppi f jalls-
ins. I>ar kraumaði þó nokkuð
í gígnum og sprengingar úr
gígunum þeyttu hraunslett-
um hátt í loft og hluti þeirra
hrundi niður hlíðarnar við
toppgíginn ásamt grjót-
hnullungum.
Hraunrennslið er nær hætt
að skríða fram, en hefur held-
ur hlaðist upp í þeim þremur
hraunflóðum sem urðu í þessu
gosi. Tvö liggja vestur úr
Heklutindi niður að Litlu-
Heklu, sem er bunga út úr
þeirri stóru og hafa hraunran-
arnir runnið norðan og sunn-
an við Litlu-Heklu nokkuð
niður á jafnsléttu, en hraun-
raninn norðaustur úr Heklu er
ekki eins mikill að vöxtum.
Þegar blaðamenn Morgun-
blaðsins gengu meðfram
hraunbreiðunni snarkaði í
hrauninu, og stanslaust hrundi
úr köntum hraunjaðarsins
þannig að auðséð var að ein-
hver hreyfing er á því en mjög
lítil þó.
Þegar við nálguðumst topp
Heklu varð ekki lengra farið
vegna hrauns og grjóts sem
gígurinn þeytti frá sér, hundr-
uð metra í loft upp og þar
nötraði fjallið þegar mestu
rokurnar gengu yfir. Þokuslæð-
ingur lá þá yfir tindinum af og
til og þó sérstaklega nokkru
neðar í hlíðinni. Um miðjan
dag hreinsaði tindurinn sig
algjörlega af skýjum og var þá
vel hægt að fylgjast með
gangi mála í gígnum, slettum
úr kraumandi gíg og grjótkast-
inu sem rigndi óreglulega
niður hlíðina og svo mikill var
krafturinn að vindurinn úr
vestri virtist lítil áhrif hafa á
stefnu grjótflugsins.
Engar mælingar hafa verið
gerðar á magni hraunsins, en
það er mun minna en í ágúst sl.
þegar það gos hófst sem nú
hefur orðið framhald á í sömu
gígum og voru mjög virkir í
um það bil sólarhring í ágúst.
Hekla er sjálfstæðasti ein-
staklingurinn í hópi eldfjalla á
íslandi, því það er svo erfitt að
spá í hegðun hennar þegar gos
er hafið en það lofar góðu að
ekkert vikurfall hefur fylgt
þessari hrinu og lítil aska.
— á.j.