Morgunblaðið - 14.04.1981, Qupperneq 42

Morgunblaðið - 14.04.1981, Qupperneq 42
22 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. APRÍL 1981 „Takmarkið er að KA festi rætur í 1. deild“ — segir Alex Willoughby, þjálfari KA, sem kominn er til landsins á ný ÞÖKK SÉ Willoughby, kappanum knáa, sagði Gisli Jónsson menntaskólakennari i snjallri limru á sigurhátið KA i haust, þegar Akureyringar fögnuðu stórglæsilegum sigri KA í 2. deild íslandsmóts- ins i knattspyrnu. Akureyringar höfðu svo sannarlega ástæðu til að gieðjast þvi bór hreppti hitt 1. deildar-sætið svo sigur Akureyrarlið- anna var tvöfaldur. I limrunni, sem visað er til hér að framan, á Gisli Jónsson auðvitað við þjálfara KA í fyrra, Skotann Alex Willoughby. Alex þótti mjög snjall þjálfari og sigursæll var hann, því ekki aðeins náði KA-liðið frábærum árangri undir hans stjórn heldur vann hann lika hugi og hjörtu þeirra sem með honum störfuðu með líflegri og alúðlegri framkomu. Willoughby er nú kominn til Akureyrar á nýjan leik til að undirbúa KA-menn fyrir átök sumarsins. Blaðamaður Mbl. átti stutt spjall við Alex og kom hann þar viða við. — Mér líkaði dvölin á Akureyri ákaflega vel og það sama er að segja um konu mína, sagði Alex í upphaTi samtalsins. Það var því erfið ákvörðun sem beið þeirra hjóna sl. haust. Um tvennt var að velja, endurnýja samninginn eða taka girnilegu tilboði brezks utan- deildarliðs, sem bauð Alex stöðu framkvæmdastjóra. En eftir nokkra umhugsun tók hann þá ákvörðun að snúa aftur til Akur- eyrar og hingað er hann kominn, KA-mönnum til mikillar ánægju. Þeirra von er að undir stjórn Alex Willoughby takist liðinu að festa rætur í 1. deild. — Ég veit nú ósköp lítið hvað bíður okkar í 1. deildinni, sagði Alex. Ég sá ekki einn einasta leik í 1. deildinni sumarið 1980, aðeins 25 mínútur af leik Víkings og Breiðabliks. Ég er engu að síður bjartsýnn á sumarið, mínir menn eru vel agaðir og viljugir til að leggja hart að sér. Það eru engir stjörnu- leikmenn í liðinu en allt góðir leikmenn, sem gaman er að vinna með og andinn í liðinu með því bezta sem ég hef kynnzt. Stjórn- armenn eru einnig afar hjálplegir og góðir félagar og get ég í því sambandi nefnt Ragnar Ragnars- son, Örlyg ívarsson og Gunnar Kárason. Valdi Rangers — Ég er alinn upp í Glasgow og ég hef spilað fótbolta síðan ég man eftir mér, sagði Alex, er hann var beðinn að skýra frá uppruna sínum og hvað á daga hans hefur drifið í knattspyrnunni. — Þegar ég komst á unglings- aldur fóru knattspyrnufélögin að veita mér athygli og mörg buðu mér að koma til sín. Þegar valið stendur á milli margra félaga er ekki vandi að fækka liðunum niður í 2—3 en hjá mér var valið ennþá auðveldara. Það komu að- eins tvö félög til greina, Rangers og Celtic, og þar sem ég hafði fylgt Rangers að málum frá því að ég var smástrákur valdi ég auðvitað Rangers. — Á þessum árum var skipu- lagið allt annað en það er í dag. Þá fóru strákarnir 15 ára gamlir til félaganna og unnu alls konar störf á völlunum í tvö ár. Það var margt sem þurfti að gera, þrífa leikvang- inn eftir leiki og sömuleiðis bún- ingsherbergi og annað, bursta skóna hjá leikmönnunum o.s.frv. Auk þess spiluðu strákarnir í unglinga- og varaliðum og ég man t.d. að ég lék minn fyrsta leik með 3. liði Rangers. Það lið lék ekki í ákveðinni keppni heldur við 2. deildar-lið, sem áttu frí þá helgina sem leikið var. í þessum 2. deild- ar-Iiðum voru margir reyndir leik- menn og því var þetta góður skóli fyrir mig. Nokkru áður en ég varð 17 ára gamall og þar með fullgild- ur atvinnumaður komst ég í 2. lið Rangers og það var mikill áfangi. Spilad gegn stórstjörnum — Ég skrifaði undir samning við Rangers á 17 ára afmælisdag- inn og fyrsta leikinn með aðallið- inu lék ég 18 ára gamall. Það þóttu talsverð tíðindi því venjulega náðu leikmenn ekki fastri stöðu í aðal- liðinu fyrr en 22—23ja ára gamlir. Fyrsta leiktímabil mitt í aðallið- inu var mjög minnisstætt því ekki aðeins náði ég að tryggja mér fasta stöðu í liðinu heldur lék minn fyrsta bikarúrslitaleik. Þetta var vorið 1963 og við unnum Celtic 3:0. Sama árið spilaði ég með Rangers gegn Real Madrid með Puskas, De Stefano, Gento, Santamaria og fleiri stjörnum innanborðs. Auðvitað var þetta mikil upplifun því aðeins þremur árum áður hafði ég séð þessar stjörnur í Real Madrid vinna Eintrakt Frankfurt 7:3 í úrslita- leik Evrópukeppninnar í Hamp- den Park í Glasgow og í þeim leik skoraði Puskas 4 mörk og De Stefano skoraði 3 mörk. — Ég var hjá Rangers í 10 ár, en fannst þá tími kominn til að breyta til. Arið 1967 hafði Arsenal reyndar haft áhuga á að kaupa mig en ekkert varð úr sölunni. Árin hjá Rangers voru mjög ánægjuleg, og ferðaðist um allan heim og lék á móti flestum af beztu liðum heimsins. Það eina sem skyggði á var að ég var aldrei valinn í skozka landsliðið. Ég spilaði með unglingalandsliðunum og var oft nefndur sem líklegur landsliðsmaður en framkvæmda- stjórarnir sögðu alltaf að ég væri of ungur og minn tími ætti eftir að koma. En það varð aldrei úr áð ég klæddist skozku landsliðspeys- unni, því miður. 5 ár hjá Aberdeen Alex var í 5 ár hjá Aberdeen og lék yfir 200 leiki. Á því tímabili vann Aberdeen m.a. það afrek að vinna Celtic í bikarkeppninni, 3:1, og í þrjú ár spilaði Alex með liðinu í Evrópukeppni meistaraliða og UEFA-keppninni. Hann gegndi einnig starfi aðstoðarþjálfara og reynslan í því starfi kom að góðum notum vorið 1974 þegar Alex hætti hjá Aberdeen og byrj- aði að starfa sem þjálfari í útlöndum. Fyrst lá leiðin til Hong Kong, síðan til Suður-Afríku og þaðan til Ástralíu. Alls staðar átti hann velgengni að fagna sem þjálfari og einnig sem leikmaður, því hann lék einnig með liðnnum, sem hann þjálfaði. — Þegar ég hafði verið í Ástr- alíu í tvö ár vildi ég fara eitthvað annað. Ég hafði úr nokkrum tilboðum að velja, m.a. frá Eng- landi og Skotlandi. En ég vildi ekki rasa um ráð fram heldur var ákveðinn að velja það félag, sem ég taldi að hefði mestan metnað. Eg fann þennan metnað um leið og ég fór að vinna hjá KA, ég fann að þar voru piltar, sem litu sömu augum á knattspyrnuna og ég og voru tilbúnir að leggja mikið á sig til þess að ná góðum árangri. Náðum settu takmarki — Ég var ánægður með árang- urinn fyrsta árið mitt. Við settum okkur ákveðið takmark og náðum því. Annars fannst mér mest áberandi í 2. deildinni sumarið 1980 hve liðin voru ójöfn, mikill getumunur á efstu og neðstu liðunum. Þau slökustu myndu ekki • Alex Willoughby heldur ræðu myndinni er ennfremur örlygur deildar KA. einu sinni fá að leika í áhugamannadeildinni í Glasgow. Þegar deildarkeppnin hófst fylgd- ist ég með öðrum liðum en KA til þess að meta styrkleika liðanna. Ég taldi þá að Fylkir myndi verða hættulegasta liðið en annað kom á daginn og það vakti undrun mína. Árangur Fylkis var alls ekki í samræmi við getu liðsins og ef ég hefði átt að vinna með öðru liði en KA hefði ég kosið Fylki. Það er erfitt fyrir mig að benda á ein- staka leikmenn í 2. deild, annan miðvörð Völsungs og 2—3 aðra leikmenn í deildinni hefði ég getað notað í mínu liði, aðra ekki. Lék með Þórólfi Beck Alex Willoughby var ekki ókunnur íslenzkri knattspyrnu áð- ur en hann kom hingað. Þegar hann var unglingur lék hann gegn íslenzku liði úti í Skotlandi en á sigurhátíð KA haustið 1980. Á ívarsson, formaður knattspyrnu- man ekki lengur hvað það hét. Fyrir 6 árum stóð jafnvel til að hann kæmi til landsins og þjálfaði KR. Hann átti viðræður við þá Svein Jónsson og Kristin Jónsson en einhverra hluta vegna varð ekkert af því að hann tæki við KR. Og síðast en ekki síst voru þeir saman tvö ár hjá Rangers Alex og Þórólfur Beck, fyrrum fyrirliði íslenzka landsliðsins. Þeir voru báðir einhleypir þá að sögn Alex og urðu góðir vinir. Alex bar Þórólfi vel söguna og kvað hann hafa verið frábæran knattspyrnu- mann. En nú er Alex sem sagt kominn aftur í slaginn. — Takmarkið er að tryggja KA fast sæti í 1. deildinni og ég myndi líta á það sem bónus ef okkur tekst að gera betur, t.d. að ná UEFA-sæti, sagði hann í lok samtalsins. - SS. Skíðamót Islands hefst í dag EINS OG skýrt hefur verið frú, fer Skiðamót íslands fram á Siglufirði dagana 14. til 19. april. Pmg* 4—Rengers Ntm, Wednasday, June 11, 1900 ALEX’S INCREDIBLE12 GOALS INJUST4 WEEKS... Defeat gave him his chance and how he took it! THE l)ATK Janaary 28, 1967 is not onc which Rangers fans IHte to remember. I hat wns the day the IJf(ht Blues made a shoclt exit from the Scottwh Cap af'ain.sf an inspired Berwick and the aftermath of that defeal led to several changes in Ihe Ibrox line-up, some of whkk Xave men in ,t«e second strinfj the chance lo brrak thronfh m the Ooe such ptayer wac Akx WdloucMry. who was indudrd in the l.ight Bloes’ eteven which ÍRced Hearu one week after the Rerwkfc dehacte and Alex crrtainly made hi> maifc m thal Rame have trorrW Aktrátr* In May I4U. When Hcarts’ Danny- Pergusoo p«t the Edinburgh ude in front, many an- tiripaled a further siide in the Ibrox side’s fortunes, bot Kangers wcre to hil bacfc with ‘‘We playad wefl that nifht and it was good to see our lcading up work being rewarded with goak and, of course, I was chuffed with my own performance. magnitude in tryiog to break down the Saragossa defensive wall , . Disaster Grein um Alex Willoughby í Rangers News. Þar segir frá því, er Alex skoraði 12 mörk á fjórum vikum fyrir Rangers i byrjun árs 1967, þar af skoraði hann 10 mörk i aðeins þremur ieikjum. Mikill undirbúningur hefur átt sér stað á Siglufirði siðustu daga og er allt tiibúið fyrir mótið, sem hefst i dag með mótsetningu að Hóli kl. 13.00. Fyrsta keppnis- greinin er 10 km ganga 17 til 19 ára. Síðan rekur hver keppnis- greinin aðra. Föstudaginn 17. apríl fer svo fram skiðaþing. Siðasti keppnisdagur er 19. april. Dagskrá Skiðamóts íslands móts- dagana verður þessi: Þriðjudagur 14. april: Kl. 13.30 Mótssetning að Hóli. Kl. 15.00 10 km ganga 17 til 19 ára. 15 km g. 20 ára og eldri. 5 km ganga kvenna. 3.5 km g. 16-18 ára stúlkur. Miðvikudagur 15. april: KI. 16.00 Stökk 17 til 19 ára. Stökk 20 ára og eldri. Stökk, norræn tvíkeppni. Fimmtudagur 16. april: Kl. 11.00 Stórsvig karla, f. ferð Stórsvig kvenna, f. ferð Kl. 14.00 Stórsvig karla, s. ferð Stórsvig kvenna, s. ferð. Kl. 15.00 Boðganga 3x10 km. Föstudagur 17. apríl: Skíðaþing. Þingtími ákveð- inn í samráði við SKÍ. Laugardagur 18. aprii: Kl. 11.00 Svig karla, f. ferð. Svig kvenna, f. ferð. Kl. 14.00 Svig karla, s. ferð. Svig kvenna, s. ferð. Sunnudagur 19. apríl: Kl. 13.00 Flokkasvig karla. Flokkasvig kvenna. Kl. 14.00 30 km g. 20 ára og eldri. 15 km ganga 17 til 19 ára. 7.5 kg ganga kvenna. 5 km g. 16-18 ára stúlkur. Kl. 18.00 Verðlaunaafhending og mótsslit. Nafnakall mun fara fram á mótsstað 1 klst. fyrir keppni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.