Morgunblaðið - 14.04.1981, Side 29

Morgunblaðið - 14.04.1981, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. APRÍL 1981 37 ur viljum við, vinir hennar og samferðafólk, votta börnum henn- ar og öðrum vandamönnum samúð okkar og hluttekningu. Við viljum einnig minnast As- laugar með þakklátum huga fyrir vináttu hennar, tryggð við okkur og óteljandi gleðistundir sem við urðum aðnjótandi með henni í okkar litla félagsskap þar sem nú er skarð fyrir skildi. Þeir, sem þekktu Aslaugu As- geirsdóttur vita að harmatölur voru henni síst að skapi og skulu þær ekki viðhafðar hér. Yfir lífshlaupi Áslaugar er birta og fegurð sem við fengum að njóta með henni og birta er yfir minn- ingu hennar. Raunum þessa heims og mótlæti fékk Áslaug að kynnast ekki síður en aðrir. Er skemmst að minnast þungbærra veikinda hennar und- anfarna mánuði sem hún bar uns yfir lauk með því æðruleysi og rósemi sem voru svo ríkur þáttur í skapgerð hennar. Áslaug var gæfumanneskja og taldi sig eiga forsjóninni mikið að þakka. Mesti hamingjudagur lífs hennar var tvímælalaust þegar þau Gísli Ingibergsson gengu í hjónaband 7. október 1944. Þau voru jafnaidrar, 24 ára, þetta merkisár. Á þeim árum er ævisól- in hátt á lofti og geislar hennar bera okkur fyrirheit um bjarta daga sem bíða okkar barmafullir af heillandi viðfangsefnum, ást og hamingju. Óhætt mun að fullyrða að draumar þeirra Áslaugar og Gísla á brúðkaupsdaginn um bjarta framtíð og gæfuríka hafi orðið að veruleika. Börnin þeirra þrjú sem nú eru öll uppkomin bera með sér þá ástúð, hlýju og umhyggju sem þau urðu aðnjótandi á þeirra fallega heimili þar sem friður ríkti og gagnkvæm virðing. Þau Áslaug og Gísli lögðu metn- að sinn, atorku og allar frístundir í það að gera heimili sitt sem best úr garði. Húsið þeirra að Langa- gerði 2 ber þess líka ljósan vott hvort heldur er innan dyra eða utan. Smekkvísi þeirra og listrænt handbragð blasa við sjónum þegar inn er gengið í þetta fallega hús og Fædd 24. desember 1897. Dáin 5. apríl 1981. Martr* minnast. marvft er hér aó þakka. GuAi sé loí fyrir liAna tíA. Martfs er aó minnast. rnar^s er að sakna. Guð |>erri tregatárin stríð. Þetta erindi úr sálminum „Kall- ið er komið“, kom mér í hug er ég kom að dánarbeði tengdamóður minnar, Rögnu Matthíasdóttur. Ég kynntist Rögnu fyrir 30 árum er ég kvæntist dóttur henn- ar, Ragnheiði. Það er margs að minnast og margt að þakka fyrir þau kynni, svo vel reyndist hún mér og mínum. Umhyggja hennar fyrir velferð barnanna og okkar allra var slík að leit mun vera að öðru eins, enda voru þær mæðgur mjög samrýndar. Ragna var af góðum ættum, hafði í heiðri gamla siði og venjur. Hún var föst fyrir og skapsterk kona, mat mikils heiðarleika og einlægni. Hún var traust og vina- föst og lét sér annt um sína og náungann. Ragna var fædd í Reykjavík 24. desember 1897. Foreldrar hennar voru hjónin Matthías Matthíasson kaupmaður, og Ragnheiður Skúla- dóttir. Hún ólst upp í föðurhúsum, hlaut almenna menntun og einnig stundaði hún nám við Kvenna- skólann í Reykjavík árin 1912 til 1914. Ragna mun hafa stundað almenna vinnu á æskuárum sínum eins og tíðkaðist á þeim tíma, samt var henni hugleiknust vinna í sveit, enda var hún mikið í kaupavinnu á sumrin, m.a. á Móeiðarhvoli, þaðan sem móðir hennar var ættuð, enda var hún náttúrubarn að eðlisfari, vildi vera sjálfstæð og frjáls. Hinn 12. maí 1919 réðst hún til náms hjá listaverk unnin af Áslaugu með nál og þræði eru fleiri en tölu verði á komið. Innileg gestrisni og hlýtt viðmót heimilisfólksins var svo í eðlilegu samræmi við það sem fyrir augu bar. Hér var gott að vera gestur enda voru þær margar kvöld- stundirnar sem setið var, rabbað og saumað að Langagerði 2. Enginn sér fyrir hvað morgun- dagurinn ber í skauti sínu. Suma daga skeður það fyrirvaralaust að kolsvart ský dregur uppá himin- hvolfið og byrgir sýn til sólar. 23. október 1974 rann upp slíkur dagur að Langagerði 2. Þann dag lést Gísli Ingibergsson mitt í dagsins önn á þeim aldri sem menn eru taldir vera í blóma lífsins. Þann dag brast sá strengur í lífshörpu Aslaugar sem hún gat síst án verið og enginn þessa heims gat bætt. Trú Áslaugar og traust á leið- sögn æðri máttar var henni mikill styrkur í þessum raunum. Vissan um endurfundi þeirra Gísla á æðra stigi tilverunnar var henni eins og lýsandi stjarna þau ár sem hún lifði umfram mann sinn. Við trúum því líka, vinir þeirra, að þau Gísli hafi fundist á ný og gangi nú saman hönd í hönd, til þeirra staða þar sem fegurð og friður ríkir um alla eilífð. Blessuð sé minning þeirra. Vinir Trú mín er sú, að nú hafi þau hist aftur, Áslaug og Gísli. Síðasta árið sem Áslaug lifði var henni og börnum hennar mjög erfitt, og verst nú síðustu vikurn- ar. En þrátt fyrir hennar miklu veikindi, var hún alltaf kát og glöð, eins og hennar var váni, og ekki var hún að kvarta yfir sínu hlutskipti. Hún kunni ekki að æðrast, og fyrst var hún til að hringja í mín foreldrahús ef eitt- hvað var þar að, og ég veit að sömu sögu hafa margir að segja. Áslaug var alin upp í Hafnar- firði hjá Ingibjörgu Ófeigsdóttur frá Fjalli á Skeiðum, og reyndist hún henni hin besta móðir, og “ •' I ~ % 4 Landsíma íslands og var skipuð talsímakona við símstöðina í Reykjavík 1. nóvember sama ár. Þar vann hún síðan í 23 ár sem talsímakona til 1. september 1925 að hún var skipuð varðstjóri. Hún lét af störfum 1. des. 1942. Ragna bjó alla tíð í Reykjavík. Hún var eljusöm og dugleg til verka. Hún las mikið og fylgdist vel með. Helsta áhugamál hennar var ættfræði og var hún vel að sér í þeim efnum. Þann 10. desember 1937 kvæntist Ragna Indriða Ólafssyni, brunaverði, og eignuð- ust þau tvö börn, Ragnheiði og Birgi Matthías. Var heimili þeirra rómað fyrir myndarskap, enda bæði þannig gerð að vilja vera ljós samtíðar sinnar í mannlegum samskiptum. Barnabörn Rögnu eru sjö og var henni mjög annt um þau. Sást það best á því hve hænd börnin voru að henni. Ánægja Rögnu var hvað mest er þau náðu áföngum í lífi Áslaug hin besta dóttir, það sýndi sig best hversu vel hún og Gísli hlúðu að Ingibjörgu síðustu árin heima í Langagerði. Áslaug var mikil fjölskyldu- manneskja. Vott um það bera börn hennar nú. Hinn 7. okt. 1944 giftist hún manni sínum, Gísia Ingibergssyni, rafvirkjameistara, en hann andaðist hinn 23. okt. 1974 aðeins 54 ára, og var það Áslaugu og börnunum gífurlegt áfall, hversu snöggt hann fór héðan, en Áslaug átti eins og alltaf þessa miklu innri ró og dugnað. Þau eignuðust þrjú börn, með eindæmum myndarleg og yndisleg í alla staði. Þau eru Ingibjörg Sigríður, gift Sveinbirni Óskars- svni, og eiga þau fjögur börn, Áslaugu Ingibjörgu, Guðrúnu Jónu, Óskar Gísla og Hafdísi Örnu. Þá Hafdís, sem er fulltrúi á Fræðsluskrifstofu Reykjavíkur og yngstur er sonurinn Gísli Þór, en hann leggur stund á rafvirkjun við Iðnskólann í Reykjavík. Hafdís og Gísli Þór eru bæði í foreldrahús- um. Heimilið í Langagerði 2 er, og hefur alltaf verið, stórglæsilegt og rómað af öllum sem til þekkja. Á því leikur engin vafi að þar stjórnaði fyrirmyndarhúsmóðir, og það voru samhent hjón sem stofnuðu það, og alltaf var gott að koma í Langagerði og hitta fjöl- skylduna þar. Eftir að Áslaug var orðin ekkja, var áberandi hve sterkum böndum hún var tengd börnum sínum og þau henni. Ég vil aðeins með þessum fá- tæku orðum mínum þakka föður- systur minni það mikla sem hún var mér og foreldrum mínum. Ég bið góðan Guð að gefa börnum hennar, tengdasyni og barnabörnum styrk og blessun. Ég, eiginmaður minn og dóttir vottum þeim okkar dýpstu samúð í þessari miklu sorg. Far þú i Iriði. írióur Guds þii{ blessi. hafdu þokk fyrir allt ok allt. Gekkst þú meó Gudi Guð þér nu ÍvIkí hans dýrdar-hnoss þú hljóta skalt. Vald. Briem. Kristín Hraundal. sínu, þá gladdist hún með þeim og hvatti til nýrra átaka. Árið 1975 í janúar varð Ragna fyrir því slysi að detta og lær- og handleggs- brotna; eftir það áfall náði hún sér aldrei til fulls. Hún náði aldrei því þreki sem hún áður hafði. Var það mikil breyting fyrir manneskju jafn eljusama og hún var enda voru það fáir dagar sem hún var ekki á ferli um borgina að sinna erindum sínum áður en hún slas- aðist. En allar ferðir eiga sér endi. Síðustu 3 árin var hún að mestu bundin við hjólastól. Hún fluttist til Vestmannaeyja árið 1978 sem vistmaður á elliheimilið Hraun- búðir. Sonur hennar Birgir, bjó þá í Vestmannaeyjum. Veit ég að Ragna vill færa starísfólki elli- heimilisins þakkir fyrir góða um- önnun enda leið henni vel þar. Dótturdóttir hennar og nafna Ragna Birna, og maður hennar Helgi Bjarnason, fluttust einnig til Eyja haustið 1978. Það létti Rögnu mikið stundirnar og var henni huggun og.örvun að sætta sig við grimm örlög, hve vel þau Ragna Birna og Helgi reyndust henni. Umhyggja þeirra og vin- átta var henni mikils virði og sannur ljósgeisli svo vel hugsuðu þau um hana. Ragna veiktist 31. mars sl. og andaðist 5. apríl sl. Hún fékk því þá ósk sína uppfyllta að þurfa ekki að vera lengi rúmliggjandi. Ég þakka Rögnu allt sem húri gerði fyrir mig og var mér. Ég flyt henni kveðjur sonar míns, Gunn- ars Indriða, sem er fjarri vegna framhaldsnáms. Ég veit að hugur hans er hjá henni. Guð varðveiti minningu hennar og gefi syrgjandi ástvinum styrk til að bera harm sinn. Megi guðleg forsjón fylgja tengdamóður minni er nú gengur á fund skapara síns og horfinna ástvina. Ég kveð hana með þessu erindi úr ljóði. Ok kuóIok blikar Köislarós í KfKnum harmaský. því sérhvert slokknaó lífsins Ijós fær Ijóma sinn á ný. Baldvin Jóhannesson Ragna Matthíasdótt- ir — Minningarorð Nýtt frá Pilar □ Teg.: 3930 Litur: Brúnn/dökkbrúnn. Stærðir: 20—29. Verö: 132,90—147,90. □ Teg.: 3845 Litur: Vínrautt. Stæröir: 20—33. Verö: 132,90—160,90. □ Teg.: 3910 Litur: Rauöur. Stæröir: 20—29. Verö: 132,90—147,90. □ Teg.: 3940 Litur: Drappl. Stæröir: 20—29. Verð: 132,90—147,90. □ Teg.: 3915 Litur: Rautt/hvítt eöa pastel- blátt/grátt. Stærðir: 20—30. Verö: 132,90—147,90. □ Teg.: 3927 Litur: Hvítt. Stærðir: 24—39. Verö: 142,30—183,20. □ Teg.: 3908 Litur: Rautt/drappl., pastel- blátt/grátt. Verö: 132,90—160,20. □ Teg.: 3847 Litur: Blátt/hvítt. Stærðir: 20—29. Verö: 132,90—147,90. m Póstsendum □ Teg.: 3928 Litur: hvítt. Stærðir: 29, 40, 39. Verö: 132,90—179,70. □ Teg.: 3861 Litur: Hvítt. Stæröir: 34—39. Verö: 183,20. □ Teg.: 3857 Litur: Rautt/hvítt. Stæröir: 20—29. Verö: 132,90—147,90. □ Teg.: 3957 Litur: Pastel-blátt/grátt. rautt/hvítt. Stærðir: 20 — 35. Verö: 140,20—187,40. samdægurs.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.