Morgunblaðið - 01.05.1981, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 01.05.1981, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 1. MAÍ 1981 19 Matthías Á. Mathiesen: Ríkisstjórnin sniðgekk sérfræðistofnanirnar Hafði hvorki samráð við Þjóðhagsstofnun né Seðlabanka. í ljós kom þegar fjárhags- nefnd þingdeildarinnar ræddi við hankastjóra Seðlabankans, að ekkert samráð var við þá haft, er frumvarp þetta var samið, sajcði Matthias Á Mathi- esen. i umræðu á Alþingi i «a'r um stjórnarfrumvarp um vcrð- laKsaðhald ok hækkun bindi- skyldu lánastofnana i Seðla- hanka. Seðlabankastjórnin var þvert á móti andvig ákvæðum þessa frumvarps um hækkun bindiskyldu ótilgreint sem og mismunun á bindiskyldu ein- stakra lánastofnana. Það var þannig ekki haft samband við Seðlabankann, eina mikilvægustu sérfræðistofnun okkar á þessu sviði. Það var heldur ekki haft samráð við Þjóðhagsstofnun, aðra virta sér- fræðistofnun á sviði efnahags-, mála. Þessi tvö mikilvægu hjálp* artæki í stjórnsýslu efnahags- mála vóru með öllu sniðgengin. Sú spurning hlýtur því að vakna, hvort margfræg kerling með svartan kassa, sem fyrr hefur verið kvödd til ráðuneytis í málaflokkum forsætisráðherra, hafi verið ráðgjafaraðili að þessu sinni. Það virðist fjölhæf kerling og miðað við frumvarps- innihaldið verður ekki dregið í efa að hún hefur verið sótt í flokk fjármálaráðherra. Matthías sagði að forsvars- menn viðskiptabanka og spari- sjóða hefðu lagst eindregið gegn þeim frumvarpsgreinum, sem til þeirra taka. Þá hefði verðlagsstjóri lýst því yfir, ótvírætt, að reyndist nauð- synlegt að veita einum aðila meiri hækkun en um væri rætt yrði að sama skapi dregið úr hækkunum annarra, þannig að meðaltalshækkun stæðist. Þetta þýddi einfaldlega að ef ríkisvald- ið teldi nauðsynlegt að veita einhverri ríkisstofnun umfram- hækkun, yrði það einfaldlega unnið upp með því að ganga á máske enn brýnni hækkunarþörf í hinum almenna atvinnurekstri. Þetta ákvæði byði því upp á mjög grófa mismununarhættu, en ákvæðin um verðlagsstýr- ingu, sem feli í sér geðþótta- ákvarðanir stjórnvalda, og fjár- magnsstýringu, sem fælist í því að skerða ennfrekar ráðstöfun- arrétt almennra banka- og lána- stofnana á eigin innlánsfé, væri og sett til að ná pólitískum miðstýringartökum á hinum frjálsa atvinnurekstri, eftir. kokkabókum kommúnista. Ef framkvæmdin yrði slík mismunun væri hún, að mati Jónatans Þórmundssonar, laga- prófessors, sem nefndin hefði fengið sér til leiðbeiningar, brot á stjórnarskrá lýðveldisins. Tveir aðilar með sömu hækkun- arþarfir gætu sem sé, í ljósi skýringa verðlagsstjóra á fram- kvæmd frumvarpsgreinarinnar, fengið ólíka afgreiðslu, geðþótta- ákvörðun gæti auðveldlega ráðið ferð. aödraganda að því markmiði í verðlagsmálum, sem stefnt var að með setningu laga nr. 56/1978 um verðlag, samkeppnishömlur og óréttmæta viðskiptahætti, sem sjálfstæðismenn og framsóknar- menn beittu sér fyrir og fengu lögfest. Þá er í breytingartillögunum mörkuð framtíðarstefna í verð- lagsmálum. Er þar lagt til, að upphafleg ákvæði 8. og 12. greinar laga nr. 56/1978 taki gildi. Enn- fremur er gert ráð fyrir því, að samþykktir um hámarksálagn- ingu, hámarksverð og aðra fram- kvæmd verðlagseftirlits, sem í gildi eru þann 1. ágúst falli úr gildi eftir 1. desember nk. nema Verðlagsráð hafi tekið afstöðu til þeirra fyrir þann tíma. Eru ákvæði þessa liðar í samræmi við þá framkvæmd verðlagsmála sem gert var ráð fyrir með setningu laga nr. 56/1978, þannig að hafist verði handa á ný á þeirri braut sem þá var mörkuð. Við 4. gr. frv. er lagt til, að niður falli það ákvæði, sem talið er vafasamt að standist ákvæði stjórnarskrárinnar. Við erum andvígir 2. gr. frv. og teljum að slík lagasetning sé andstæð þeim grundvallarsjón- armiðum sem liggja að baki þeim réttarfarsaðgerðum, sem felast í lögunum um kyrrsetningu og lög- bann. Þá erum við andvígir 5. gr. frumvarpsins. Við teljum með öllu óverjandi að Alþingi afsali sér því ákvörðunarvaldi í stjórnun pen- ingamála. Við teljum, að 28% af þeirri sparifjáraukningu, sem spáð er 1981, eða um 450 millj. kr., muni fullkomlega gera Seðlabank- anum kleift að sinna endurlána- kaupum eins og þau nú eru, og erum sammála stjórnendum bankans, að fremur ætti að minnka endurkaup Seðlabankans og lækka bindingu sparifjár inn- lánsstofnana á móti. Við 3. gr., um lækkun vörugjalds á gosdrykkjum, höfum við síður en svo athugasemdir, en hún sýnir m.a. það handahóf og stefnuleysi, sem er einkennandi fyrir störf núverandi ríkisstjórnar. Um það sem ekki fékkst upplýst af áformum ríkisstjórnarinnar um einstaka þætti sem við koma efnahagsmálum og ekki krefjast lagasetningar, getum við að sjálf- sögðu ekkert dæmt. Ljóst er þó af því sem tæpt var á, að ekki hefur orðið samkomulag um neinar ráð- stafanir til viðnáms gegn verð- bólgu, enda margsannað, að nú- verandi ríkisstjórn lýtur boðum og bönnum Alþýðubandalagsins, sem í raun hefur ekki áhuga á því að ráða niðurlögum verðbólgunnar og tryggja undirstöðuatvinnuvegi þjóðarinnar. Alþingi, 30. apríl 1981. Matthias Á. Mathiesen, Matthías Bjarnason, Albert Guðmundsson. Matthías Bjarnason: Dæmigert komm- únistafrumvarp Matthias Bjarnason (S) vakti athygli á þvi að þessa stundina, í miðri umræðu um stjórnar- frumvarp um verðlagsaðhald (kl. 3.25 miðdegis) væri enginn ráðherranna 10 viðstaddur og enginn stjórnarþingmaður. Slíkur væri áhugi stjórnarliðs- ins og ábyrgð og virðing fyrir þingra'ðinu. Hann sagði þetta frumvarp dæmigert kommúnistafrumvarp, valdaafsal Alþingis til ríkis- stjórnar. Erfitt væri að skilja, hvern veg sjálfstæðismenn gætu staðið að slíku frumvarpi, sem gengi þvert á frjálsan atvinnu- rekstur, sama gilti um fram- sóknarmenn, sem töluðu á stundum um frjálsa samkeppni milli samvinnurekstrar og einkarekstrar. En framsóknar- menn, allir nema utanríkisráð- herra, væru sem vax í höndum Alþýðubandalagsins. Matthías sagði bragð að þá barnið fyndi, en aðalmálgagn ríkisstjórnarinnar, Dagblaðið, kæmist svo að orði um þetta stjórnarfrumvarp í leiðara, und- ir fyrirsögninni „Snarvitlaust stjórnarfrumvarp": „Nýjasta vísitölufölsunar- frumvarp ríkisstjórnarinnar er afleitt. Að meginefni felur það í sér sjónhverfingar og skrípaleik. Og samþykkt þess mun flytja íslenzkt þjóðfélag lengra inn í gerfiheim, sem stjórnmálamenn hafa búið til... Ríkisstjórnin segist ætla að skera ríkisútgjöld- in niður ... hitt er verra að þetta er bara tilfærsla ... Tilgang- urinn er einkum sá að falsa vísitöluna ... Skrípaleikur verð- stöðvunar felur m.a. í sér að iðnrekendur flytja rekstur sinn til Færeyja, svo þeir geti flutt vöru sína út og komist framhjá verðstöðvun. Annars fá þeir fóg- eta inn á gafl...“ Matthías sagði frumvarpið uppskrift að atvinnuleysi, flytja ætti verðbólguna í formi taps inn í atvinnurekstur og ríkisfyr- irtæki, sem leiddi til skuldasöfn- unar og nýrrar tilkostnaðar- hækkunar. Með þessu frumvarpi væri siglt inn í atvinnuleysi. Enginn umsagnaraðili hefði lagt þessu frumvarpi jáyrði, hvoi^i embættismenn né talsmenn at- vinnuvega. Duffys duga vel og fara vel.hvaö sem á dynur. Frábær sníð með beinum skálmum Æ.get|t og þrengdum.EFNrTwil] khaki.denim zBfUJÞ ogrifflað flauel.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.