Morgunblaðið - 03.05.1981, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 3. MAÍ1981
35
Látleysi og fagurt raunsæi
segir NY-Post um Land og syni
KVIKMYNDIN Land oK synir
hefur verið sýnd i Norejfi og
Danmörku og er væntanleg til
sýninga innan tiðar i Sviþjóð,
Finnlandi og Þýzkalandi, auk
þess sem hún fer á kvikmynda-
hátiðina i Sydney i Ástralfu i
maimánuði. Sl. haust var Land
og synir sýnd á skandinaviskri
kvikmyndaviku i Museum of
Modern Art i New York og í Los
Angeles, og var þá sérstaklega
boðið á kvikmyndahátiðina i
Chicago. Núna i april var hún svo
á Filmex-hátiðinni i Hollywood
og hlaut þar lofsamlega dóma.
eins og reyndar alls staðar ann-
ars staðar þar sem hún hefur
verið sýnd. Og þess má geta að
ein sýning verður enn á mynd-
inni á íslandi, þ.e. i Hafnarfjarð-
arbíói í kvöld kl. 7.
Sem sýnishorn af dómum sem
myndin hefur fengið í Bandaríkj-
unum má nefna skrif úr New York
Post, þar sem ber saman amerísk-
ar kvikmyndir og kvikmyndina
Land og synir, þeirri síðarnefndu
mjög í hag. Og þar er raunar talað
vel um Óðal feðranna. Fyrirsögnin
í blaðinu er Iceland’s Classic. Þar
kveðst gagnrýnandinn Archer
Winsten hafa lent í innrás 29
Norðurlandakvikmynda, sem
Moderne safnið kom með, ogséð
fimm myndanna. „Men Can’t Be
Raped“, þar sem konu er nauðgað
og nær að hefna sín, „Marmalade
Revolution" eftir einn af uppá-
haldsleikurum Ingmars Berg-
mans, Erland Josephson, „Shall
We Dance First?“, sögu af 16 ára
gamalli danskri stúlku, sem í
fjölskylduandrúmslofti verður
ófrísk og fær fóstureyðingu,
„Fathers Estate" eftir Hrafn
Gunnlaugsson, sem gerir íslensku
landslaei otr sveitafólki í vanda
frábær skil, og loks „Land and
Sons“ eftir Ágúst Guðmundsson,
annað lítið listaverk frá íslandi.
Og um þá mynd fjallar hann svo:
„Þessa siðastnefndu mynd vil ég
sérstaklega draga fram. Meðan ég
horfði á hana þyrmdi yfir mig
þessi skelfiiega mótsögn við amer-
ísku kvikmyndirnar, sem svo oft
nota lágkúrulega höfðun til klám-
og kynóramarkaðarins, blóðugs
ofbeldis, vísindahugaróra og
martraðarhryllings, sem lætur
kalt vatn renna niður eftir bakinu
á börnum."
„Land og synir fjallar af látleysi
og fögru raunsæi um afskekktan
bóndabæ á íslandi, þar sem faðir-
inn neitar að horfast í augu við
vaxandi skuldir og sætta sig við
ákvörðun sonarins að flytja til
borgarinnar Reykiavíkur. Faðir-
inn deyr eftir uppskurð á spitala,
sonurinn fellir og heygir uppá-
halds reiðhestinn sinn, selur kind-
urnar og hina hestana, svo og
jörðina og losar sig þarmeð úr
skuldunum til að fara til borgar-
innar. Dóttir vellauðugs ná-
grannabónda hefur reynt að fá
hann til að vera kyrran í sveitinni
og faðir hennar látið þau orð falla
að allir íslendingar séu skuldugir
og enginn muni nokkurn tíma
borga upp skuldir sinar.
Þetta er hljóðlátlega sögð saga
lands og borgar, frásögn af hvers-
dagslegu fólki, þar sem ekki vottar
fyrir tilgerð í erfiðleikunum. Þetta
er göfug mynd, án efa allt of góð
til þess að verða tekið tveim
höndum af viðskipta-sýnendum,
sem tekist hefur svo vel að spilla
okkur."
Afmælisrit
Auðar Auðuns
Áskrifendur
fyrir 8. maí
Áskrifendur, sem óska eftir að
vera með á heillaóskalista í af-
mælisriti Auðar Auðuns, sem er í
undirbúningi, eru beðnir um að
tilkynna það á skrifstofu Lands-
sambands sjálfstæðiskvenna og
Hvatar í Valhöll, pósthólf 1392,
sími 82900. Til þess að hægt verði
að prenta nöfnin á heillaóskalist-
ann fremst í bókinni þurfa nöfnin
ásamt áskriftargjaldi, kr. 200, að
hafa borist fyrir 8 maí næstkom-
andi.
7% hækkun á
daggjöldum
spítala
DAGGJALDANEFND sjúkra-
húsa hefur fyrir nokkru tilkynnt
um hækkun daggjalda og gildir
hún frá 1. mars i þrjá mánuði eða
til loka þessa mánaðar. Að sögn
Páls Sigurðssonar ráðuneytis-
stjóra er hér að meðaltali um að
rséða 7% hækkun sem er svipuð
launahækkunum sem urðu 1.
mars, en í nokkrum tilvikum er
um meiri hækkun að ræða vegna
halladaggjalda.
Sem dæmi um daggjöld má
nefna, að í Borgarspítala eru þau
nú 1.437 krónur og eru 197 krónur
þar af halladaggjald. Þetta á við
spítalann í Fossvogi en á Grensás-
deild eru daggjöld 557 krónur og
690 krónur í Hafnarbúðum.
Daggjöld sjúkrahússins á Akur-
eyri eru 1.155 kr, 825 í sjúkrahús-
inu í Keflavík, 794 kr. í sjúkrahús-
inu á ísafirði, 749 kr. í sjúkrahús-
inu í Vestmannaeyjum og 192 kr. í
sjúkraskýlinu á Flateyri. í Landa-
kotsspítala eru daggjöldin 1.050
krónur, í St. Jósefsspítala í Hafn-
arfirði 716 krónur, 179 krónur í
heilsuhæli NLFÍ í Hveragerði og
192 kr. í Hrafnistu í Hafnarfirði.
Worker jean
Fodvidde 36 cm
Str. 25-34.
Skridt 34.
er eitt af
nýju sniðunum
frá
Höfum nú
fengið stórkost
legt úrval
af hinum
glæsilega
Wrangler
sportfatnaði
Wrangler
föt
fást í
fíSÍ KARNABÆR
Laugavegi 66 — Glæsibæ — Austurstræti 22
Sími trá skiptiborði 85055
og einkaumboðsmenn
um land allt