Morgunblaðið - 03.05.1981, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGIJR 3. MAÍ 1981
53
ir1981
plötunnar og ætti skiliö feikivin-
sældir.
Lokalagiö er sungið af innlifun
af Diddú eins og hún gerir best.
Hugljúft lag með saxófónsóló og
hugljúfum texta.
Hvað sem hver segir þá held ég
bara að þetta sé stórgóð plata! Og
ein af 10 bestu íslensku plötum
allra tíma. Ilia
„GRETTIR“
Tónlistin úr
samnefndum songleik
(SG hljómplötur SG 145)
1981
Fyrstu breiðskífur ársins eru
mikið tengdar sviði, „Punkturinn",
hvíta tjaldinu, Lög hans Jóns Múla,
söngleikjum, Diabolus platan er
hálfgerður söngleikur og svo söng-
leikur vetrarins „Grettir". Grettir
fjallar um ungling og vandamál
hans og hans vandamanna og er
eins og sagan segir þjóðfélags-
ádeila, í ýktu formi með „húmor"
sem ekki er alltaf húmor, eins og
vill svo oft verða. „Grettir" er ekki
ný Þursaplata, þó Egill Ólafsson
semji tónlistina og Þursarnir leiki
undir. Ýmsar Þursahugmyndir og
dæmigerð stef leika um, en þetta er
fyrst og fremst söngleikjaplata og
stendur ekki án textans og einstök
lög ekki án samhengisins.
Spilasnilld þeirra Þórðar Arna-
sonar, Tómasar Tómassonar og
Ásgeirs Óskarssonar kemur lítt
fram.
Flutningurinn er oft eins og sér
fluttur fyrir ungabörn og framsögn
minnir oft á „Róbert bangsa“ og
leikbrúðusöng.
Lögin eru oft nokkuð léttvæg,
virðist frekar vera um tóna í
kringum texta, og stefin ekki eins
sterk og ætla mætti frá Agli. En
það er ekki svo að ekki séu góðir
punktar á plötunni. „Níðsöngur
gengisins um Gretti" er með kröft-
ugri „punklögum" sungið af Agli og
langsterkasta lagið af hálfu Þurs-
anna með sjarmerandi einföldum
orgeltónum. Líklega gert í fram-
haldi af vinsældum „Jóns pönk-
ara“.
Önnur sterk lög eru „Harmsöng-
ur Tarsans" sem minnir mest á
„Ryksugu“-Iögin hennar Olgu Guð-
rúnar, enda samdi Ólafur Haukur
Símonarson þann texta, en hann
ásamt Þórarni Eldjárn samdi text-
ana í þessum söngleik. „Fagnaðar-
söngur fjölmiðlungamanna" og
„Lofsöngur gengisins um Gretti"
eru sæmileg, eins eru „Uppvakn-
ingsþula", „Sjónvarpsdraugurinn"
og „Útvarpsráðsfundur".
Textarnir eru fagmannlega og
vel gerðir, sumir hverjir þó yfir-
drifnir og tilgerðarlegir. En heildin
er ekki nógu sterk eins og vaninn er
nú re.vndar með svona plötur. En
hlustið alla vega á „Níðsönginn"
hann er með því hressara sem
heyrst hefur á árinu. hia.
„LÖG JÓNS MÚLA
ARNASONAR“
Ymsir flytjendur
(SG hljómplötur SG 144)
1981
Jón Múli Árnason er vitanlega
þekktari sem útvarpsþulur heldur
en lagasmiður, en þrátt fyrir það
var hann (hann virðist alla vega
ekki semja lengur) með betri laga-
smiðum okkar. Flest laganna á
þessari plötu, sem erfitt hefur
verið að nálgast undanfarin ár, eru
fyrir löngu síðan búin að sanna
ágæti sín í íslenska útvarpinu, en
mörg laganna heyrði ég sem smá-
gutti þegar ég sofnaði við útvarps-
tækið á helgarkvöldum, (löngu áð-
ur en sjónvarpið kom til!).
Öll laganna hérna voru flutt í
þrem söngleikjum sem nutu geysi-
mikilla vinsælda: Delerium Bubon-
is, Allra meina bót og Járnhausinn,
en forhliðin á þessu albúmi er úr
því leikriti og má þar sjá Ómar
Ragnarsson sitjandi á tunnu.
Vel valin safnplata með lögum
ágæts lagasmiðs.
hia
Eins og áður hefur komið
fram. munu Utangarðsmcnn
dvelja erlendis mcstan hluta
sumarsins.
I miðri næstu viku halda þeir
utan til að skemmta skandinövum
og meginlandsmönnum, alla vega
út júlímánuð, ef ekki vill betur.
Hljómleikaferðin hefst að öllum
líkindum í Sænska útvarpinu Isis
með klukkutíma upptöku sem
verður útvarpað um leið, en kvöld-
ið eftir verða þeir í Osló. Síðan
liggur leið þeirra tvist og bast um
Noreg, Svíþjóð, Danmörku og
Finnland og síðan Holland.
Verður þetta í annað sinn sem
íslensk hljómsveit leggur út í slíkt
ævintýri á stuttum tíma, en Þurs-
arnir ferðuðust um svipaðar slóðir
f.vrir tveimur árum.
1. maí voru síðustu hljómleikar
Utangarðsmanna, í Háskólabíói,
en þar kom einnig fram hljóm-
sveitin Purrkur Pillnikk, sem mun
leggjast niður með utanferð Utan-
garðsmanna, þar sem fyrirliði
þeirra, Einar Benediktsson, fer
utan með hljómsveitinni sem um-
boðsmaður þeirra, þó hann komi
reyndar heim áður en ferðinni
lýkur. Q4U mun líka leggjast
niður þar sem tveir meðlimir
þeirrar hlómsveitar eru rótarar
hjá Utangarðsmönnum, og Danny
Pollock reyndar meðlimur Utan-
garðsmanna.
Ekki er því ólíklegt að brottför
Utangarðsmanna hafi í för með
sér einhverjar hræringar meðal
yngri hljómsveita.
Nýlega er útkomin 6 laga plata
frá Utangarðsmönnum, „45 rpm“
með lögunum „Fuglinn er floginn"
eftir Mick Pollock og Bubba
Morthens, „Þór“ eftir Bubba,
„Pretty Girls“ eftir Mick, „Drac-
ula“ eftir Danny og Bubba, „Það
er auðvelt“ eftir Danny og Bubba
með hjálp hinna, og „Where Are
The Bodies" eftir Mick.
„45 rmp“ er 45 snúninga eins og
nafnið bendir til, en 12 tommur að
stærð engu að síður, og tæpar 19
mínútur.
Nánar verður fjallað um plöt-
una síðar.
Þess má líka geta hér að þegar
þetta er birt hefur Bubbi líklega
lagt síöustu hönd á sólóplötu sína
sem á að koma út á þjóðhátíðar-
daginn, 17. júní, eins og „ísbjarn-
arblúsinn" í fyrra. Að sögn þeirra
sem heyrt hafa mun sú plata eiga
eftir að koma á óvart. hia
Þeyr gáfu út fyrstu
plötu sumarsins á
sumardaginn fyrsta
Hljómsveitin Þeyr gat sér gott orð fyrir áramót með
ása>kinni piötu. Þagað í hel. sem SG-hljómplötur gáfu út.
Vegna ýmissa tæknilegra galla eins og misheppnaðs
skurðar í upphafi. fór platan líklega ekki jafn víða og ella.
og heil útgáfa ókomin enn. En hljómsveitin kom þó jafnt og
þétt fram á hijómleikum og hefur áunnið sér hóp aðdáenda
sem fylgir vel þeirri stefnu sem hljómsveitin hefur þróað
með sér.
Upp úr áramótum varð liðsbreyting á hljómsveitinni þegar
Þorsteinn Magnússon gerðist gítarleikari í hljómsveitinni.
Á sumardaginn fyrsta, 23. apríl, kom opinberlega út ný lítil
plata frá Þey, hin fyrsta með nýju liðsskipaninni, en
hljómsveitin hefur þróast mjög síðan „Þagað í hel“ „kom
út“. Á þessari nýju plötu eru tvö lög, hvort fyrir sig um
fjórar mínútur að lengd. Lögin eru „Life Transmission", sem
er eftir Hilmar Örn Agnarsson við texta Hilmars Örns
Hilmarssonar, og „Heima er best“, sem er er eftir Magnús
Guðmundsson. Lögin voru tekin upp í Stemmu á Laufásveg-
inum með Tony Cook við hljóðstjórnina.
Þeyr er í dag skipuð Hilmari Erni Agnarssyni (bs),
Magnúsi Guðmundssyni (söngur), Þorsteini Magnússyni
(gtr), Guðlaugi Óttarssyni (gtr) og Sigtryggi Baldurssyni
(trm).
„Life Transmission“/„Heima er best“ er gefin út af
Fálkanum og Eskvímó í sameiningu, en Eskvímó er
hljómsveitin Þeyr ásamt velvildarmönnum þeirra, þeim
Guðna Rúnari Agnarssyni, Hilmari Erni Hilmarssyni og
Eyjólfi Halldórssyni.
Plötuhulstrið er hannað af Kristjáni Karlssyni, en það er
all-nýstárlegt. hia
Pressun erlendra
platna hefst
fyrir alvöru
Pressun erlendra hljómplatna kemur til með að hafa
áhrif á plötusölu hérlendis í ár. Fálkinn hf. og Stcinar hf..
aðalinnflytjendur hljómplatna til íslands og aðaldreif-
ingaraðilar á hljómplötum. hafa báðir hafið pressun á
orlendum plötum hérlendis.
Aðaláhrifin sem þetta hefur eru þau að þessar „heima-
pressuðu" plötur verða ódýrari en erlendar, eða miðað við
daginn í dag, á 148 nýkrónur. íslenzkar plötur hafa síðan í
vetur haft þá sérstöðu að vera nokkuð ódýrari en aðrar
plötur, en þær hafa kostað 129 nýkrónur. Þegar líða tekur á
sumarið má gera ráð fyrir að bæði innlendar plötur og
erlendar plötur, pressaðar hér, verði þó á 148 nýkr., en þess
má geta að algengt er að innfluttar erlendar plötur kosti um
200 nýkrónur, þar sem gjaldmiðill er breytilegur á þeim
mörkuðum sem verslað er við, og öll aðflutningsgjöld eru
marg-margfölduð af yfirvöldum, þar sem tónlistin er jú
súper-lúxus, ekki satt!
Fálkinn hf. hefur þegar gert markaðstilraunir með fjórar
plötur, Dr. Hook-safnplötuna, John Lennon „Shaved Fish“,
„Beaties Ballads" og Richard Clayderman, og hefur tekist
vel. Steinar hf. er í þann veginn að byrja á sínum fyrstu
plötum, sem verða með Spandau Ballet, Pat Benatar,
Ultravox og Blondie, sem allt eru plötur á Chrysalis-
merkinu.
Verður farið með þessar plötur sem um íslenska útgáfu sé
að ræða, þ.e. kynnt á svipaðan hátt og auglýst. í kjölfarið
koma svo 4 plötur á Virgin-merkinu og síðar plötur á A & M
og K-Tel.
Meðfylgjandi mynd var tekin í Alfapressunni í desember í