Morgunblaðið - 03.05.1981, Side 23

Morgunblaðið - 03.05.1981, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 3. MAÍ 1981 55 Á nýafstöðnu náttúruverndar- þingi var mikið rætt um óhelgi útivistarsvæða í þéttbýli, þar sem nú virðist færast mjög í vöxt.að ráðamenn grípi umsvifa- laust til þeirra ef þá vantaði lóð undir byggingar. I Reykjavík er verið að taka opin svæði ætluð til útivistar undir hverfi íbúðar- bygginga, en annars staðar hafði einstökum byggingum verið dembt þar niður, svo sem kirkju í Hafnarfirði og elliheimili í Keflavík. Varð þá Hilmari Bjarnasyni frá Eskifirði að orði: Börnum á að bera mjólk á barnaheimilunum. En best er guð og gamalt fólk geymt í skrúðgörðunum. Leirlistamaður bætist i hópinn Margur listamaður og hag- leiksmaðurinn býr til muni sem eru á boðstólum íslenskum heimilisiðnaði. Það hefur verið siður þar á bæ að kynna á hverju ári sérstaklega listafólk, sem starfar fyrir verzlunina. Nýr listamaður hefur nú bætzt í hópinn, leirlistamaðurinn Borg- hildur Óskarsdóttir og er hún Leirlistamaðurinn Borghildur Óskarsdóttir. kynnt með sýningu í verzluninni í Hafnarstræti 3 á venjulegum opnunartíma. Borghildur stundaði mynd- listanám og þá sérstaklega kera- miknám í Edinburgh College of Art, eftir að hafa verið hér heima við nám í Myndlista- og handíðaskólanum og Myndlist- arskólanum í Reykjavík. Síðan hefur hún kennt bæði í almenn- um skóla og Myndlistarskólan- Hagyrðingurinn Hilmar Bjarnason frá Eskifirði. um í Reykjavík, og nýlega komið sér upp keramikverkstæði í gamalþekktu húsnæði við Berg- staðastræti þar sem Glit var lengi. Er þess skemmst að minn- ast að hún var ein af íslenzku listakonunum, sem tóku þátt í listsýningu Norðurlandakvenna á Kjarvalsstöðum. Vinnur sem- sagt í margvíslegt efni. Best geymd í skrúðgarðinum ft'lk f fréttum Milli manns og hests Biskupinn okkar, sr. Sigur- björn Einarsson, fer að hætta störfum og hefur verið nokkuð í sviðsljósinu að undanförnu. Þessi skemmtilega mynd af hon- um var í „Hestinum okkar" með grein sem hann skrifaði um hann Krumma sinn, sem hann átti þegar hann var ungur mað- ur á Breiðabólstað. Þetta hafði verið mikill villingur, og fyrri eigendur löngu gefist upp á að tjónka við hann. En þeir sr. Sigurbjörn urðu miklir mátar og lýsir biskup sérkennilegum og nærfærnum samskiptum þeirra Krumma. Þessi lýsing sr. Sigur- bjarnar á samskiptum manns og hests á við myndina: „Af göml- um og grónum vana (eða sér og mér til skemmtunar?) tók hann jafnan nokkur hröð og tígullega dansspor, þegar ég kom með hnakkinn sinn. En brátt gaf hann mér til kynna, að nú vildi hann fá hnakkinn. En áður en ég færi á bak vildi hann líka sýna mér, að þetta væri gagnkvæmt samkomulag okkar á milli og engin nauðungarskylda frá hans hálfu. Ég leyfði honum að leika listir sínar og spjallaði við hann á meðan. Og þegar hans stund var komin tók hann snöggt viðbragð, reisti makkann, stóð eins og hann hefði verið lostinn og sló makkanum utan um mig og þrýsti fast. Engan hest hefi ég séð eða vitað gera þetta með líkum tilburðum. Því miður er ekki til nema ein ófullkomin mynd af okkur saman í þessum sporum. Það kemur ekki fram til hlítar á henni hvernig hann fór að mér, þegar hann var að bjóða mig veikominn á bak sitt. Ég veit ekki hvað hann hefði getað unað lengi í slíkum faðmlögum, því það var alltaf ég, sem sleit atlotunum, aldrei hann. Og þá tók hann því með gleði að ég færi á bak. Þegar við héldum af stað lék hann við mig á hverja lund og naut þess finnanlega að skynja, hvernig mér leið og hvað ég vildi. Hann var eins og hugur minn.“ En sr. Sigurbjörn lýsir líka þeim tveimur skiptum, sem Krummi gleymdi sér í galsa eða fornar tiltekjur hlupu í hann óvart. Tvisvar var hann hætt kominn á Krumma, allsendis óvænt í bæði skiptin og hann óviðbúinn en í bæði skiptin bjargaði hann honum úr háskan- um jafn snarlega og hann stofn- aði til hans. I annað skiptið, þegar Krummi hafði áttað sig og tók nærri sér hvað hann hafði gert, „var þéttur og heitur makk- inn hans þegar hann 'þrýsti honum utan um mig þarna í myrkrinu, titrandi allur eftir átökin og geðshræringuna," skrifar biskup. „Og hlý var snoppan hans í lófa mínum og við vanga minn. Ég held að honum hefði ekki leiðst, þótt að við hefðum staðið þarna og kjassað hvor annan lengi næt- ur.“ Frækinn sem for- maður Maðurinn í fréttunum í liðinni viku er án efa Ágúst Guð- mundsson, sem þreytti sund milli eyja, sér og öðrum til bjargar, eins og fornmaður í Islendingasögu. Hefur hann þar óvænt fengið smjörþefinn af því efni, sem hann var einmitt að snusa af í þessari ferð, kjörum og afrekum Gísla Súrssonar og hvernig megi þau sýna á kvik- myndatjaldinu. En í sögunni bjargar Gísli sér á sundi undan Berki digra eftir bardagann í Hergilsey og kemst undan. Þótti það dágott afrek, ekki síst fyrir særðan mann, en spjóti var varpað á eftir Gísla. Nú á Arnar Jónsson að leika afrekið eftir fyrir kvikmynd þá, sem Ágúst er að gera, og mun hann hafa verið að athuga aðstæður. Getur varla hafa gert það betur en að reyna straumþungan sjó Breiðafjarðar á eigin skrokki. Kvikmyndun á Gísla sögu Súrssonar er í fulium gangi, vetraratriðin hafa þegar verið tekin, og í sumar verður kvik- myndað í Hítardal, úti í Breiða- firði og í Geirþjófsfirði. Fara þeir kvikmyndagerðarmennirnir Ágúst Guðmundsson, Sigurður Kvikmvndagerðarmaðurinn Ágúst Guðmundsson. Sverrir Pálsson og Jón Her- mannsson um með mikið lið, 20—40 manns að jafnaði, þar af 10 manna tæknilið. Verður það lið sjálfsagt all mikilúðlegt, sem fer um sveitir í sumar, því í lið fornkappanna hefur verið safnað skeggjuðum og þeim bannað að skera hár sitt og skegg þar til kvikmyndun er lokið í sumar. Mæti maður úfnum og svo skeggjuðum manni á götu að varla sést í andlitið má því búast við að þar fari kappar úr kvik- myndaliði þeirra Ágústs. Unnu saman að fagurri bók Þessi mynd birtist í menningar- dálki Morgenavisen í Danmörku í tilefni þess að taka á teikningar frá 1947 eftir danska málarann Asger Jorn og Pierre Weamer og vefa þær í gobelinteppi í París. I grein um Asger Jorn í blaðinu er frá því skýrt að myndir hans fari síhækkandi á markaðinum og séu mjög eftirsóttar. Suður Evrópubú- ar sækist eftir elstu myndunum hans, en Norðurlandabúar mynd- um eftir 1950. Blaðið birtir mynd af Halldóri Laxness og Asger Jorn, sem tekin var í St. Gallen í Sviss upp úr 1970 þegar þeir voru að vinna saman að bók. Én bókin sem um ræðir mun vera Sagan af brauðinu dýra eftir Halldór Lax- ness, sem Asger Jorn mynd- skreytti og þykir mikill dýrgripur. Halldór Laxness og Asger Jorn. Á bak við fréttirnar Þeir eru venjulega ekki í fréttunum, þessir kappar, heldur miklu fremur bak við fréttirnar. Þegar stendur undir fréttamynd hér í blaðinu Rax eða Kristján, þá eru það þeir Kristján Einarsson eða Ragnar Axelsson, sem mundað hafa myndavélina. Til myndatökuferðalaga nota þeir iðulega nútímafararskjóta, á borð Við þessa tveggja sæta Cessnu, sem þá er tekin á leigu. Ragnar hefur einkaflugmannspróf og eru því allir loftvegir færir, og Kristán hefur tekið sóloflugpróf. Nú til dags þykir það kannski ekki tíðindum sæta að ungir menn fljúgi um loftin í myndatökuferðir. En það var það sannarlega, þegar elsti ljósmyndari blaðsins, Ólafur K. Magnússon hóf störf upp úr 1950 og flaug vél af K-Z-gerð, sem hann átti sjálfur til að taka myndir á héraðsmótum úti á landi eða öðru fréttnæmj þeirra tíma. Þar var hann sannarlega brautryðjandi. Kristján Einarsson og Ragnar Axelsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.