Morgunblaðið - 03.05.1981, Síða 30

Morgunblaðið - 03.05.1981, Síða 30
62 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 3. MAÍ 1981 Hákon Aðalsteinsson á Húsa- vík hefur beðið mig að flytja frumvarp til laga um hvernig eigi að yrkja kvæði. Eðlilega þykir honum lítið til atómljóða koma og kallar þau gjarna orða- hrúgu. Efnisatriði frumvarpsins eru á þá lund, að hvér maður, sem reyni að yrkja kvæði, skuli fara með vísu þessa sjö sinnum og ef hann getur ekki þulið hana reiprennandi eftir þessi sjö skipti, skal hann annaðhvort skipta yfir í óbundið mál með skáldskap sinn eða leggja hann af með öilu. Vísan er svona (drottkvæð, aðalhent): Viljiröu þekkur þylja þjóðum boöskap í Ijóði, gleðja heyranda geöi, gylla með orðsins snilli fléttaðu rími réttu, raðaðu stuölum hraður. Láttu hugljúfra hátta hrynjanda undir dynja. Eiríkur Eiríksson frá Dag- verðargerði hefur ort hrynhendu vegna frumvarps ríkisstjórnar- innar um „verðlagsaðhald" o.fl, en þar er m.a. talað um ársfjórð- ungsleg meginmarkmið og að verðlagsskrifstofunni sé rétt að leggja lögbann við yfirvofandi verðhækkun: Nú með gleði hlýt ég hér henda nokkrum línum. Þú hefur, Andrés, yljað mér enn með bögum þínum. Finnst mér oft sem undurhljóð andi gola í runni, er ég heyri listaljóð leika í þínum munni. Víst það gæddi gróöur minn, geislar ósum fínum ef að greri arfinn þinn í öllum beðum mínum. Eigi er glötuö glóðin hlý gleður hvötin fögur. Vildi ég föt þín fara í faldaskötumögur. í Jæssum stökum Margrétar er skírskotað til þess að Andrés H. Valberg talaði um að hann vildi gjarnan vera jurt og vaxa í vísnagarði Margrétar. Orðið faldaskötumögur er kenning, væntaniega þannig hugsuð að faldaskata sé kona og mögur hennar eða sonur sé þá maður. í síðasta Vísnaleik var vitlaust farið með einn staf í limru Jóhanns Hannessonar, sem ég bið hann velvirðingar á. Rétt er limran svona og miklu betri: Ársfjórðungsleg meginmarkmiö mótuö skulu þjóö til bóta. Verðlagsaðhald víst má styrkja, vildarhæö og bindiskyldu. Lögbönnum skal lýöur hlíta, lyfja rétt hjá yfirvöldum. Bráölega mun breyskum refsaö byrjun hugrenningasynda. Það neitar því enginn að ölvun hafi orsakað þjóðinni bölvun, en hvað er hún á viö ógæfu þá, sem á eftir að stafa af tölvun? Hér kemur önnur limra eftir Jóhann: í Vísnaleik fyrir skömmu orti Andrés H. Valberg til Margrétar Ólafsdóttur, sem oft hefur látið til sín heyra í Vísnaleik. Margrét hefur nú skrifað mér og sendir Andrési eftirfarandi stökur: Að í lýrik sé mikið um mjúkyröi og mikiö í satírum fúkyrði er víst til að hrósa, en í vönduðum prósa þá virðist mér hvorugt sé brúkyröi. Margrét Ólafsdóttir hafði einu sinni við orð vegna Vísnaleiks þess stærsta sem nokkurn tíma hefur birzt í blaðinu, og í honum tómar limrur (oddhenda): Andans flóð af írskri slóð okkar þjóö nú bagar. Ekkert Ijóö meö erlent blóö okkar sjóöi lagar. Ásgeir Einarsson skrifar mér og segir, að betur fari á því að hafa fyrri hlutann sem birtist í síðasta vísnaleik sem botn. Þess vegna hefur hann prjónað fram- an við hann og yrði vísan þá þannig: Vetrarskuggar daga dimmra draga niður gleðskapinn. Einatt hefur Iftil limra lífgaö upp á kveöskapinn. Sigurjón Yngvason botnar hins vegar: Og glerhúsin í ftokki fimra flikka upp á selskapinn. Að þessu sinni leggur Margrét Ólafsdóttir til fyrri hlutann og verður hann þá þannig (dverg- henda); Kannast þær við karlagrobbiö konurnar. Ekki verður meira kveðið að sinni. Limran Yngismær ein heitir Marta sem var einatt um litblindu að kvarta. Hún ól af sér þrisvar sinnum tvívegis tvisvar: Stundum tvíbura hvíta, oft svarta. Halldór Blöndal. Sýndar rúmlega 70 auglýsinga- kvikmyndir ALÞJÓÐLEG auglýsingakvik- myndahátíð var haldin í Laugar- ásbíói sl. fimmtudag og var það Auglýsingastofan hf. sem fyrir henni stóð en auglýsingakvik- myndahátíðin hefur verið árviss atburður undanfarin átta ár. Á hátíðinni voru sýndar 70 þeirra auglýsingamynda sem hlutu viðurkenningu á kvik- myndahátíðinni í Cannes 1980 en þær voru valdar úr um 2000 auglýsingakvikmyndum fyrir sjónvarp og kvikmyndahús. Áuk þess voru sýndar í Laugarásbíói nokkrar gamlar íslenzkar sjón- varpskvikmyndir. Við setningu hátíðarinnar hélt Gísli B. Björnsson hjá Auglýs- ingastofunni hf. stutta ræðu þar sem hann fjallaði m.a. um störf dómnefndarinnar í Cannes og við- brögð auglýsingamanna við úrslit- um keppninnar á siðasta ári en þá ákvað dómnefndin að veita engri myndanna fyrstu verðlaun. Þá vék Gísli að því að nú á þessu ári hefði Auglýsingastofan hf. starfað í full tuttugu ár og fimmtán ár væru liðin síðan hún gerði fyrstu ís- lenzku sjónvarpsauglýsingakvik- myndina en sú mynd var gerð fyrir Herrahúsið. Þá afhenti Gísli þessa fyrstu íslenzku auglýsingamynd Erlendi Sveinssyni forstöðumanni Kvik- myndasafns Islands til varðveislu og afhenti honum um leið 10.000 kr. að gjöf til stofnunarinnar er hann óskaði að rynnu til skrán- ingar sögu íslenzkrar auglýs- ingakvikmyndagerðar. Um 250 manns sóttu hátíðina og voru það viðskiptavinir Auglýs- ingastofunnar hf., fólk sem starf- ar við auglýsingagerö, kvikmynda- gerðarmenn og fleiri aðiljar er tengjast auglýsingagerð. SR á Siglufirði: MAZDA eigendur Komiö meö bllinn reglulega I skoðun á 10.000 kílómetra fresti eins og framleiöandi Mazda mælir meö. í þessari skoöun er billinn allur yfirfarinn og vélin stillt, þannig aö benzíleyösla veröur I lágmarki. Þetta er mikilvægt atriði meö stórhækkandi benzínveröi. Athugiö ennfremur aó við önnumst alla smurþjónustu fyrir Mazda blla. Allar skoóanir og viógeröir eru færóar I þjónustubók, sem skal ætíó fylgja bilnum og er hún því heimild um góöa umhiröu vió endursölu. MAZDA eigendur Látió sérþjálfaóa fagmenn Mazda verkstæóisins ann- ast skoóanir og vióhald bilsins, þaö margborgar sig. Leitiö upplýsinga og pantið tíma I símum 81225 og 81299. Smiöshöfða 23, sími 812 99. Lengri sumarfrí, en verkamennirnir halda vinnu sinni Á TÍMABILI síðastliðinn vetur var útlit fyrir að stór hópur verkamanna hjá sildarverksmiðj- um ríkisins í Siglufirði missti atvinnu hjá fyrirtækinu i sumar. Meginhluti hópsins var þó endur- ráðinn fyrir tveimur mánuðum, en nú um mánaðamótin áttu 8 verkamenn hjá SR að hætta störfum hjá fyrirtækinu. Nú hefur fyrirtækið hins vegar tekið tilboði starfsmanna fyrir- tækisins um að sumarleyfi verði lengd um eina viku án launa hjá verkamönnum SR, en í staöinn haldi áttmenningarnir vinnu sinni. Sumarleyfi iðnaðarmanna hjá SR verða hins vegar eins og lög gera ráð fyrir, en mikil iðnaðarvinna er fyrirhuguð við margvíslegar framkvæmdir hjá SR í sumar. FRJÁLS UM EVRÓPU ÓTAKMARKAÐ FERÐALAG MEÐ JARNBRAUTUM í 30 DAGA AUÐVITAÐ FER UNGT FOLK MEÐ URVAL Noregur, Sviþjóð, Finnland, Danmörk, V Þyskalarvd, Holland, Belgía, Luxemborg, Austurriki, Ungverjaiand, Rúmenía, Frakkland, Sviss, ttalia, Júgóslavia, Gríkkland, Portúgal, Spánn, Marokkó. Brottfarir: 20., 27. maí -10., 24. júní - 8., 28. júlí - 5., 26. ágúst. Innifalið: Flug fram og aftur Luxemburg. Jámbrautarfarseðill og farfuglahandbók um Evrópu mm URVAL við Austurvoll 'Z 26900.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.