Morgunblaðið - 19.07.1981, Side 1

Morgunblaðið - 19.07.1981, Side 1
Sunnudagur 19. júlí Bls. 33—64 Ljósm. Mbl. Ragnar Axelsson texti: Jóhanna Kristjónsdóttir Hann kemur á móti mér í forsalnum á Sögu, léttur á fæti og glaðlegur, fagnar mér eins og gömlum vini þótt við höfum aldrei sézt. Við settumst inn á Mímisbar og þangað var okkur borið kaffi. Ég tók eftir því hvað hann hafði góð augu. Ég spurði hann hvernig hann hefði unað sér á íslandi í þetta skiptið. — Afar vel. Nú hef ég verið fáeina daga að veiðum norður í Víði- ____ dalsá. Ég fékk fjóra góða, sex og níu pund, hreint ekki svo afleitt. Þetta er ekki í fyrsta skiptið sem ég kem hingað í lax og vonandi ekki hið síðasta. Þetta byrjaði með komu minni á Listahátíð fyrir fimm árum ... Jú, mér féll afar vel að spila fyrir svo spila ég fyrir blómin íslenzka áheyrendur, þeir eru langt frá því að vera líkir veðráttunni. Laxveiðar hafa lengi verið áhugamál, áður fór ég oft í veiði í Kanada og víðar. En hér er öðruvísi en annars staðar. Ég get hreint fallið í stafi yfir fegurðinni. Það skilja ekki allir töfra þess að standa heilu og hálfu dagana úti í á og bíða eftir að fá’ann. En það er margt fleira sem kemur til. Og landslag- ið hér er svo fallegt — og þarna fyrir norðan eru engin tré sem skyggja á mikilleik náttúrunnar. Ég nota alltaf flugu, ég veit að hér veiða menn líka á spún og orma, en mér þykir engin veiði nema á flugu ...

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.