Morgunblaðið - 19.07.1981, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19. JÚLÍ1981
37
Birgir Helgason verslunarstjóri hjá Nesco við Grundig-myndsegulbands-
ta ki og sjónvarpstseki, en hið nýja V-2000-kerfi segir hann þegar hafa
fengiö frábærar undirtektir.
V-2000 kerfið hannað
af Philips og Grundig
og útbreiðsla fer vaxandi
- segir Birgir Helgason
verslunarstjóri hjá Nesco
„HÉR í þessari verslun seljum
við bæði AKAI-myndsegul-
bandstæki, sem tilheyra
VHS-kerfinu, og og Grundig-
myndsegulbönd, sem hafa tekið
upp hið nýja V-2000 kerfi,“ sagði
Birgir Helgason verslunarstjóri í
sjónvarpsdeild Nesco á Laugavegi
er við komum við hjá honum.
Birgir sagði, að VHS væri nú
langútbreiddasta kerfið í Banda-
ríkjunum, um það væri ekki deilt,
og þeir gætu boðið upp á ágæt
tæki af AKAI-gerð. Því væri á
hinn bóginn ekki að neita að
V-2000 kerfið, sem nú væri sem
óðast að koma inn á markaðinn,
byði upp á ýmsa skemmtilega
möguleika, og því færi fjarri að
það kerfi ætti litla framtíð fyrir
sér eins og margir hefðu haldið
fram.
Birgir sagði að V-2000 kerfið
væri til komið eftir sameiginlega
vinnu Grundig- og Philips-verk-
smiðjanna. Þær hefðu hannað
þessi nýju myndsegulbandstæki í
sameiningu, en eftir að undirbún-
ingsvinnu hafi lokið, hafi þau
byrjað framleiðslu í sitt hvoru
lagi, undir sitt hvoru merkinu.
V-2000 kerfið hefði þegar fengið
frábærar móttökur, og efni sem
boðið væri upp á ykist stöðugt.
Nú þegar sagði Birgir að Nesco
hefði til sölu meira en 100 titla,
og færu viðskipti með spólurnar
þannig fram að ein væri keypt
með tækinu í upphafi, en síðan
gætu notendur komið og skipt á
öðrum myndumí verslunni út
árið, endurgjaldslaust. Titlafjöld-
ann sagði hann nú fara sífellt
stækkandi, eftir örfáar vikur yrði
hann orðinn tvöfalt stærri en nú
er, og myndir myndu skipta
hundruðum innan fárra mánaða.
Birgir sagði, að fólk yrði að
hafa það vel í huga er það festi
kaup á myndsegulbandi, að unnt
yrði að fá efni í tækin í fyrir-
sjáanlegri framtíð. í því sam-
bandi sagði hann meðal annars
mikilvægt að fólk vissi, að ekki
væri hægt að kaupa þau mynd-
segulbönd sem mest eru notuð í
Bandaríkjunum og Frakklandi,
og nota hér. Þar væri um annað
sjónvarpskerfi að ræða.
NTSC-kerfi í Bandaríkjunum og
SECAM í Frakklandi, en á ís-
landi og víðast í Evrópu væri
notað PAL-kerfi. Myndir sagði
hann ekki ganga milli þessara
tækja, og því væri ekki sann-
gjarnt að bera úrval í Bandaríkj-
unum saman við það sem hér
fæst. Sérstaklega yrði að biðja
um evrópska kerfið ef keyptar
væru myndir í Bandaríkjunum,
og það væri alls ekki til alls
staðar. I Þýskaladi og Bretlandi
væri á hinn bóginn mikið og
sívaxandi efni að fá fyrir V-2000
kerfið, svo eigendur tækja af
þeirri gerð þyrftu engu að kvíða,
ekki frekar en þeir sem nota
evrópsku gerð VHS eða Betamax.
Þau myndsegulbönd frá
Grundig sem Nesco hefur selt,
hafa reynst mjög vel að sögn
Birgis, og hafa nánast engar
bilanir komið til. Þvert á móti, þá
væri almenn ánægja með tækin,
og ekkert lát á eftirspurn.
Þá sagði Birgir að hinar löngu
spólur nytu mikilla vinsælda, og
staðreynd væri að verð á spólum
eða kassettum væri lægra í V-
2000 kerfinu en hjá öðrum.
VHS-kerfið er í fararbroddi
í Japan og Bandaríkjunum
- segja starfsmenn Karnabæjar
í verslun Karnabæjar á Laugavegi. talið frá vinstri: Pétur Björnsson,
Akira Kurihara og Bjarni Stefánsson. Sharp-tækin, sem Karnabær selur
sjást til vinstri handar Bjarna. — Bjarni sagði að ætlunin hefði einnig
verið að selja Luxor-tæki með V-2000 kerfinu en Luxor hefði nú fallið frá
þvi kerfi.
„Við erum hér með japönsk tæki,
Sharp, sem nota eingöngu
VHS-kerfið, en framleiðendur tækj-
anna framleiða nú um 60 þúsund
tæki á mánuði," sagði Bjarni Stef-
ánsson hjá Karnabæ, er blaðamenn
hittu hann og Pétur Björnsson að
máli í verslun þeirra við Laugaveg
fyrir nokkrum dögum. — Hjá þeim
var þá einnig staddur fulltrúi jap-
önsku framleiðendanna, Akira Kuri-
hara, sölustjóri Sharp í Evrópu, með
aðsetur t Hamborg í Þýskalandi.
Bjarni sagði að mjög mikil sala væri
í myndsegulbandstækjum þessa dag-
ana, og hefði Karnabær varla undan
við að útvega þeim tæki er vildu.
Þeir þremenningarnir sögðust
ekki telja rétt að vera með yfirlýs-
ingar um gæði einstakra tækja sem
á markaðnum væri, né heldur um
gæði þeirra þriggja kerfa, sem nú
eru fáanleg, þó þeir fyrir sitt leyti
væru fullvissir um gæði bæði
Sharp-tækjanna og VHS-kerfisins.
Kurihara sagði, að í Japan væru
líklega framleidd um sex milljón
myndsegulbandstæki árlega. Þar
væri eingöngu um að ræða tvö kerfi,
Betamax og VHS. V-2000 kerfið væri
hins vegar evrópskt, og þar væri
markaðssvæði þess fyrst og fremst.
Kurihara sagði, að t rauninni væri
það fyrst og fremst markaðurinn,
sem ráða ætti því hvaða tæki fólk
keypti sér. Tæknilega séð mætti
vafalaust draga fram eitt og annað
öllum kerfunum til góða, og einnig
til lasts, en ætla mætti að öll
stæðust þau þær kröfur sem gera
verður til myndsegulbanda eins og
þau þekkjast í dag. Aðalatriðið væri
á hinn bóginn það, að ekki væri nóg
fyrir fólk að eiga góð tæki, heldur
yrði einnig að vera auðvelt og ódýrt
að afla efnis til að sjá í tækjunum.
Þar væri augljóst að VHS-kerfið
hefði umtalsverða yfirburði, þótt
Betamax fylgdi víða fast á hælana.
V-2000 kerfið hefði enga útbreiðslu í
samanburði við hin tvö, og margt
benti til að það hefði hreinlega misst
af lestinni í þessu efni.
Bjarni sagði því ekki að neita, að
talsverð óvissa hefði ríkt í þessum
málum, þar til nýja Philips-kerfið,
V-2000 kom á markaðinn. Margir
hefðu haldið að sér höndum þangað
til það kæmi, þar sem fastlega hefði
verið gert ráð fyrir einhverri tækni-
byltingu. Nú væri V-2000 kerfið
komið fram, og þegar ljóst að ekkert
slíkt væri á ferðinni. Aðeins væri
komið fram þriðja kerfið í myndseg-
ulbandstækninni, sem enn yki á
ruglinginn í þessum efnum.
Bjarni sagðist því vera þess full-
viss að VHS-kerfið myndi standa af
sér allar auglýsingaherferðir, tækni-
lega séð væri það samkeppnisfært,
það væri stærst á markaði í Japan
og Bandaríkjunum, og mikið fram-
boð væri af alls kyns efni fyrir
VHS-kerfið. Einnig væri mikilsvert
atriði að myndböndin frá VHS væru
jafnlöng og önnur, til dæmis V-2000,
það er að segja öðru megin. Boðið
væri upp á 4ra tíma spólur, sem væri
það sama og V-200Ö byði upp á, því
ef nýta ætti alla 8 tímana í því kerfi
yrði að snúa kassettunni við er
komið væri á enda tímanna fjögurra.
örugglega standast
1 1 VMtMZ'WSk.-: ' %
Þór Þorbjörnsson verslunarstjóri Radióbúðarinnar við Skipholt. Hann
stendur við Nordmende-myndsegulbandstæki, en á myndinni sjást einnig
upptökuvélar, eins konar kvikmyndatökuvéiar, sem taka upp efni sem siðan
má sýna i myndsegulböndunum.
VHSmun
- segir Grímur Lax-
dal í Radíóbúðinni
„Við höfum til sölu Nordmende-
myndsegulbandstæki, sem notar
VHS-kerfið, en hvað sem líður öllum
umbrotum á þessum markaði er
öruggt að VHS-kerfið mun koma til
með að standast," sagði Grímur
Laxdal í Radíóbúðinni er hann var
spurður um horfur í myndsegul-
bandsmálum og um hvaða tæki hann
hefði til sölu.
Grímur sagði, að gæðamunur væri
á VHS- og Betamax-kerfunum VHS í
hag, samkvæmt þeim upplýsingum er
hann hefði um þessi mál. Betamax-
kerfið sagðist hann halda að dytti
upp fyrir smátt og smátt, og mætti
þegar sjá þróun í þá átt í Evrópu, þar
sem það hefði þokað fyrir VHS-kerf-
inu.
V-2000 kerfið sagði Grímur að
væri að nokkru óþekkt stærð, og ekki
gott að segja hvað því tækist að
komast inn á markaðinn. Vitað væri
þó að þar hefði verið við ýmsa
tæknilega erfiðleika að glíma, svo
sem eins konar „ofhönnun", sem
gerði það að verkum að allar bilanir
væru erfiðar viðfangs og kostnaðar-
samar vegna þess hve tæknibúnaður-
inn er flókinn. Þór Þorbjörnsson,
verslunarstjóri Radíóbúðarinnar,
sagði, að þeir hefðu reynt að fá tæki
af V-2000-gerðinni frá Bang & Oluf-
sen, en nú hefði komið tilkynning um
að ekki væri unnt að afgreiða
pöntunina. Þór sagðist ekki vita
hvers vegna, en grunur léki á að þeir
hefðu hætt við eða biðu nú með að
fara út í það kerfi.
Grímur Laxdal sagði að varla væri
um það deilt að VHS-kerfið væri það
sterkasta á markaðnum í dag, og
væri fólki því örugglega óhætt að
fjárfesta í tækjum með því kerfi.
Spólur selur Radíóbúðin einnig,
óáteknar, og þá er þar hægt að kaupa
upptökuvélar, þannig að fólk getur
sjálft tekið upp sinar myndir á
myndsegulband, og séð í sjónvarpinu
heima hjá sér.
Mælum með Betamax-kerfinu
og þorum að standa við það
- segir Þorsteinn Garðarsson hjá Sjónvarpsbúðinni
Þorsteinn Garðarsson i Sjónvarpsbúðinni við Borgartún með myndsegul-
bandstæki er versiunin selur, en hann kveðst eindregið mæla með
Betamax-kerfinu.
„SKOÐUN mín er sú að VHS og
Betamaxkerfin séu svipuð að gæð-
um, enda komu þau fram á svipuð-
um tima“ sagði Þorsteinn Garð-
arsson eigandi Sjónvarpsbúðarinn-
ar er við litum inn hjá honum fyrir
nokkrum dögum. „V-2000 kerfið
hefurá hinn bóginn ekki reynst
nægilega vel“ sagði Þorsteinn
ennfremur, „þannig að ég hef litla
trú á að það eigi eftir að ná
nokkurri fótfestu á markaðinum. —
Ég get nefnt sem dæmi, að togar-
arnir á tsafirði sem höfðu haft
þessi tæki, eru nú að skipta vegna
sífelldra bilanda, og eins hefur það
valdið erfiðleikum, hve lítið úrval
mynda er til innan þessa kerfis.“
Sjónvarpsbúðin býður upp a
Fischermyndsegulbandstæki frá
Japan, sem nota Betamaxkerfið.
Sagði Þorsteinn söluna háfa verið
mikla að undanförnu, sjálfsagt met
vegna sumarlokunar Sjónvarpsins,
og svo vegna þess að þessi tækni er
nú óðum að ryðja sér hér til rúms,
eftir litvæðingu Sjónvarpsins. —
„íslenska Sjónvarpið er náttúrlega
heill kapítuli útaf fyrir sig“ sagði
Þorsteinn, „og ekki tóm til að ræða
það sem skyldi að þessu sinni. Fólk
er hreinlega að gefast upp á þeim
fjölmiðli, enda er eins og allt
hjálpist að við að gera það sem
aumast. Að hugsa sér til dæmis, að
innheimtudeild Sjónvarps og Hljóð-
varps ein skuli kosta 700 milljónir
króna á ári! — Hjá stofnum í
fjársvelti væri skynsamlegra að
innheimta þetta með öðrum skött-
um, auk þess sem skil yrðu betri.
Nóg um það að sinni.“
Að sögn Þorsteins eru miklir
möguleikar á að afla efnis í Beta-
maxkerfið hér á landi. í Keflavík sé
stærsta myndsegulbandaleiga
landsins, sem sé með efni fyrir
Betamaxkerfið, og útibú hafi verið
sett upp frá henni í Reykjavík. „Það
er því ekkert vafamál að óhætt er
að mæla með því við kaupendur að
þeir kaupi sér tæki með Betamax-
kerfinu, og hið sama tel ég að eigi
við um VHS-kerfið. Um V-2000
kerfið þarf ég ekki að endurtaka
það sem ég hef þega sagt, þar hafa
framleiðeindur átt í erfiðleikum
með tæknileg atriði, markaðurinn
af myndum er mjög takmarkaður
og ósennilegt að miklar breytingar
verði þar á í framtíðinni. V-2000
kerfið býður að vísu upp á 8
klukkustunda langar spólur, en þær
eru aðeins 4 tímar hvoru megin og
snúa sér ekki við sjálfar, þannig að
vandséð er hvaða yfirburðir felast
þar í. Auk þess er það staðreynd að
spólur frá VHS og Betakerfunum
eru ekki dýrari en þær sem boðið er
upp á frá V-2000. — Auglýsingar
þær sem að undanförnu hafa birst
um ágæti V-2000 kerfisins hafa að
mínum dómi gengið of langt, og þar
hefur verið fullyrt ýmislegt sem
ekki er unnt að standa við. Já, við
mælum áfram með Betamax, og
stöndum við það“ sagði Þorsteinn
að lokum.