Morgunblaðið - 19.07.1981, Qupperneq 4
36 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19. JÚLÍ1981
Video-stríð í algleymingi Viðtöl: Anders Hansen. Myndir: Guðjón Birgisson.
Eru öll kerfin jafngóð, eða tekur eitt
öðrum fram, Betamax, VHS eða V-2000?
Leitað álits seljenda myndsegulbandanna hérlendis
MIKILL fjörkippur virðist hafa
færst í sölu og uppsetningu á
myndsegulböndum hér á landi að
undanförnu, og þau eru sennileg fá
heimilin á landinu, þar sem ekki
hefur komið tii tals að festa kaup á
siíkum tækjabúnaði, eða þá að rætt
hefur verið um að komast í sam-
band við kerfi myndsegulbanda
sem víða hafa verið sett upp í
fjölbýlsihúsum og jafnvel í ein-
býiishúsahverfum. Myndsegulbönd
eru tiltölulega ný af nálinni hér á
landi, enda ekki ýkja langt síðan
litasjónvörp ruddu svarthvítum
tækum til hliðar, en fæstir munu
hugleiða kaup á myndsegulbandi
til að tengja við svarthvítt sjón-
varpstæki.
- Til skamms tima hefur fólki
verið ráðlagt að bíða í lengstu lög
með að fjárfesta í myndsegul-
bandstækum, þar sem tæknin á
þessu pviði taki það örum framför-
um, að jafnvel það besta í dag verði
orðið úrelt á morgun. Það hefur
einnig valdið kaupendum erfiðleik-
um og heilabrotum, að ekki er um
að að ræða að á markaðnum sé eitt
nkerfi“ myndseglubanda, líkt og er
til dæmis um hljómflutningstæki
og sjónvörp. Lengst af hafa nefni-
lega verið tvö kerfi myndsegul-
banda í umferð, VHS og Betamax,
og nú síðast hefur svo það þriðja
bæst við, V-2000. Nu er á hinn
bóginn ekki búist við að fleiri kerfi
komi á markaðinn, né heldur eru
fyrirsjáanlegar stökkbreytingar á
tækniþróuninni. Þessi atriði, ásamt
hinni árlegu en þó óvenjuiöngu
„sumarlokun" íslenska sjón-
varpsins, valda því nú að óvenju-
mikil erftirspurn og sala er í
myndsegulbandstækjum hérlendis.
Til þess að kanna þessi mái
nánar, tii þess að reyna að varpa
einhverju ljósi á þann frumskóg,
sem „video-stríðið" er öllu venju-
iegu fólki, fóru blaðamaður og
ljósmyndari Morgunblaðsins á
stúfana, heimsóttu verslanir er
selja myndsegulbönd, og ræddu við
kaupmenn um gæði varnings
þeirra og hvað þeir ráðlegðu fólki
er það þarf að gera upp á milli
þriggja kerfa, sem ekki er hægt að
nota saman á sama hátt og t.d. er
fólk getur auðveldlega fengið
hiómplötur lánaðar hvað hjá öðru,
og ekki þarf að hafa áhyggjur af
því að piata sem keypt er, passi í
tækið eða ekki. — Svör þau er
umboðsmenn og seljendur mynd-
segulbandanna gáfu voru æði mis-
munandi, og ekki gott að átta sig á
því hver fer með rétt mál, hvort
allir gera það, eða hvort „sölu-
mannshæfileikarnir" eru aðeins
mismunandi miklir. Nokkrar stað-
reyndir virðast þó liggja fyrir:
• .AUir japanskir framleiðendur
framleiða tæki sem annaðhvort
tilheyra Betamax- eða VHS-kerf-
unum.
• .VHS- og Betamax-kerfin eru
þegar mjög útbreidd í Japan og
Bandaríkjunum, og raunar einnig í
Evrópu, en í Evrópu er þó talið að
V-2000 kerfið muni ná mikilli
útbreiðslu.
• .Flestir þeir er rætt var við, telja
að tæknilega skilji ekki ýkja mikið
á milli kerfanna þriggja, það sem
kaupendur verði fyrst og fremst að
hafa í huga, sé hvernig markaður-
inn muni þróast, og þar með hversu
auðvelt muni verða að fá efni í það
kerfi sem á endanum verður keypt.
• .Enn virðist vera mest úrval
efnis í Betamax- og VHS-kerfin
hér á landi, en úrval mynda og
þátta á V-2000 kerfinu fer vaxandi,
og umboðsmenn þeirra fullyrða að
þeir muni ekki standa hinum kerf-
unum að baki eftir örfáa mánuði.
• .Mjög sennilegt er að öll kerfin
þrjú haldi velli, þannig að fólk þarf
ekki að óttast að myndsegulbönd
þess verði úrelt, hvaða kerfi sem
það kann að velja. Þó hefur verið á
það bent, að á sínum tíma ruddi ný
segulbandsspóla frá Philips öðrum
úr vegi. Það sama gæti mögulega
gerst aftur.
• .Verð tækjanna er mjög mis-
munandi, og fer það mest eftir því
hversu fullkomin þau eru, til dæm-
is hvort um fjarstýringu er að ræða
eða ekki. Almennt má þó segja að
tækin séu á verðbilinu að vera um
50% til 100% dýrari en litsjón-
varpstæki af sama gæðaflokki.
• .Myndsegulböndin munu halda
áfram að verða til eftir að video-
diskurinn svonefndi kemur, og mun
mismunur á notkun þar líkjast því
sem nú er með hljómplötur annars
vegar og segulbandstæki hins veg-
ar.
• .Framleiðendur „video-disk-
anna“ eiga nú í samningaviðræðum
um það að koma með á markaðinn
eitt kerfi, þannig að sama sagan og
varð í hönnun myndsegulband-
anna, endurtaki sig ekki. — En
hvort sem af því verður eða ekki,
skiptir ekki máli hvaða myndsegul-
bandskerfi er valið, það mun ekki
snerta video-diskinn, sem tengist
sjónvarpstækinu beint.
Svör seljenda myndsegulbanda
hérlendis fara hér á eftir, en nánar
verður vikið að samanburði á
gæðum tækjanna í blaðinu síðar.
VHS-kerfið hef-
ur reynst mjög vel
- segir Björn Hilmarsson
verslunarstjóri hjá Faco
BJÖRN Hilmarsson verslunar-
stjóri hjá Faco á Laugavegi, við
sýnishorn af JVC-myndsegul-
bandstæki, sem verslunin hefur
haft til sölu. í augnablikinu
sagði Björn tækin ekki vera
fáanleg hjá verslunini, en þau
væru væntanleg og væri stöðugt
mikil eftirspurn.
JVC tækin nota VHS-kerfið,
sem Björn sagðst telja að nyti
mikils trausts hér á landi sem og
í öðrum löndum Evrópu, í
Bandaríkjunum og Japan. Sagð-
ist hann ekki eiga von á að Faco
tæki upp önnur kerfi, svo vel
sem þetta hefði gengið.
VHS og Betamax verða til áfram
Höfum ekki áhuga á V-2000 kerfinu
- segir Birgir Skaptason verslunarstjóri hjá Japis
„Við hér bjóðum upp á bæði
VHS- og Betamax-kerfin, Sony-
-tæki, en þeir eru hönnuðir Bet-
amax-kerfisins, og National Pan-
asonic-tæki, sem nota VHS-kerfið.
Við höfum ekki áhuga á V-2000
kerfinu, annað hef ég ekki að segja
um það kerfi." — Það er Birgir
Skaptason verslunarstjóri hjá
Japis, — Japansk-íslenska versl-
unarfélaginu hf. sem þetta segir,
er við leituðum álits hans á því
hvað fólk ætti að kaupa ef það
fengi sér myndsegulbandstæki, og
hvað þeir hefðu á boðstólum.
Birgir sagði að svar hans ætti
að vera fullnægjandi hvað V-2000
kerfið snertir, en ekki vildi hann
gera upp á milli Betamax- og
VHS-kerfanna. „Ég tel ekki vafa
leika á því að bæði VHS- og
Beta-kerfin munu verða til áfram,
útbreiösla þeirra er orðin það
mikil að ekki verður aftur snúið í
þeim efnum. Betamax er liklega
útbreiddara í blokkum og annars
staðar þar sem sett hafa verið upp
samtengd kerfi, enda er þar auð-
velt að fá efni á leigu.“
Birgir sagði að algengast væri
að fólk keypti sér spólur á lengd-
arbilinu 2 til 3 klukkustundir,
bæði á Betamax- og VHS-kerfinu.
Hafsteinn Andrésson og Birgir Skaptason i versluninni Japis i
Skipholti, en þar er boðið bæði upp á VHS- og Betamax-kerfi
myndsegulbanda.
V-2000 kerfið er nú notað
af 23 leiðandi framleiðendum
- segir Rafn Johnson hjá Heimilistækjum
I verslun Heimilistækja: Rafn Johnson og Birgir örn Birgis verslunarstjóri.
Rafn kvaðst óánægður með þær auglýsingar, sem birtar hafa verið að
undanförnu, þar sem geflð er i skyn að V-2000 kerfið sé á einhvern hátt lakara
en hin tvö, VHS og Betamax. Slíkt væri fjarri veruleikanum, og V-2000 kerfið
nyti sivaxandi álits um allan heim.
Hjá Heimilistækjum varð fyrir
svörum Rafn Johnson, er við spurð-
umst fyrir um álit verslunarinnar á
kerfunum þremur, sem nú eru
fáanleg á markaði myndsegulbanda
hérlendis. Rafn sagðist fyrst vilja
segja það, vegna þess „auglýs-
ingastríðs", sem að undanförnu
hefur mátt sjá á síðum dag-
blaðanna, að það væri spaugilegt að
sjá umboðsmenn myndsegulbanda-
framleiðenda afneita V-2000 kerf-
inu, sem Philips hafi þegar selt
umboðsfyrirtækjum þeirra.
Ragn sagðist þeirra skoðunar, að
V-2000 kerfið hafi þegar unnið
video-stríðið svonefnda. Kerfið hafi
þegar sýnt svo marga mikilvæga
yfirburði í sölu og tækni, sem best
sjáist á því að 23 leiðandi fyrirtæki
í framleiðslu myndsegulbandstækja
hafi gert bindandi samninga við
Philips um framleiðslu á V-2000
Skeyti frá Bang og Olufsen til
Heimilistækja i Reykjavík, þar sem
staðfest er að fyrirtækið framleiði og
muni halda áfram framleiðslu og
sölu á myndsegulbandskerfum með
V-2000 kerfinu.
kerfinu, undir sínu eigin merki. Þar
á meðal séu heimsþekkt fyrirtæki á
borð við Bang og Ólufsen, Grundig,
Siemens, Zanussi, Pye, ITT og
Siera. Bang og Olufsen sagði hann
hafa gert bindandi samning um
V-2000 kerfið fyrir nokkru síðan, en
vegna takarkaðrar framleiðslugetu
gæti B og 0 ekki sent tæki á
Islandsmarkað enn sem komið
væri. Um Luxor sagði Rafn hins
vegar að ekki hefðu tekist samning-
ar milli þess og Philips um fram-
leiðsluleyfi. Það hefði strandað á
viðskiptalegum grunni en ekki
tæknilegum.
Rafn sagði, að V-2000 kerfið hafi
ekki verið sett á markað fyrr en
framleiðendur hefðu verið fullvissir
um ágæti þess. Sögusagnir um
innköllun tækja vegna bilana hafi
hvergi heyrst nema hérlendis, og
Heimilitækjamenn sagði hann ekki
hafa áhyggjur af slíku.
Myndsegulbandið sagði Rafn, að
væri nú orðið fast í sessi á íslandi,
þar yrði ekki aftur snúið. Hér væri
ef til vill um að ræða einn hinna
mörgu tísku- og lúxushluta sem
almenningur festi kaup á, en einnig
mætti minna á að tækin væru nú í
vaxandi mæli notuð við kennslu og
fræðslu margs konar, í skólum, á
vinnustöðum og hjá félagasamtök-
um. Video-klúbb Philips sagði hann
hafa á skrá sinni fjölbreytilegt
myndefni, sem þegar væri vinsælt
hjá sjómönnum, vaktavinnufólki og
mörgum öðrum starfshópum sem
leigja saman efni.