Morgunblaðið - 19.07.1981, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19. JÚLÍ1981
39
„Hvernig munu vopnabræður
þeirra bregðast við þegar þeir sjá
konu tekna til fanga eða tætta
sundur af byssukúlum ...“
(SJÁ: Hermennska)
FÍNA FÓLKIÐ
Hætt að vera
forkastanlegt
að lifa í synd
Breska ritið Debrett’s Peerage,
sem lengi hefur stundað það að
leKKja Bretum lífsreKlurnar, til-
kynnti fyrir skömmu ýmsar veru-
lejtar breytinjíar á þeirri heKðan,
sem nú telst vera góð ok Kild meðal
fína fólksins þar i landi.
Nú þykir það ekki lenKur viðeÍK-
andi af fólki, sem efnir til sam-
kvæmis á sveitasetrinu, að ætla
unKum elskendum að sofa hvort í
sínu herbergi þegar ljóst er, að þau
búa saman hvort eð er. Gf það er
ekki gert mætti nefnilega líta á það
sem andúð gestgjafanna á háttalagi
unga fólksins. Undantekningu má að
vísu gera frá þessu, einkum þegar
roskið og ráðsett fólk er viðstatt,
sem kynni að hneykslast á þessu
fyrirkomulagi.
Ekki þykir það heldur lengur
nauðsynlegt að líta svo á, að maður,
sem fer á fjörurnar við ógifta konu,
hafi endilega hjónaband í huga,
heldur önnur og skemmri kynni.
Debrett’s bendir þó á, að eftir sem
áður sé mikil hætta á því að annar
aðilinn geti misskilið fyrirætlanir
hins.
Debrett’s segir einnig, að ekkert sé
við það að athuga þó að einstæðir
foreldrar segi frá barnsfæðingu og
iætur fylgja nákvæmar upplýsingar
um hvernig eigi að koma slíkri
upplýsingu í The Times. Um aðra
hversdagslegri atburði segir, að allt í
lagi sé fyrir konur að hneigja sig
eins og karlmenn fyrir drottn-
ingarslektinu í stað þess að krjúpa
næstum á kné eins og siður hefur
verið, enda eiga margar konur erfitt
með slíka leikfimi ef þær vilja tolla í
tískunni og klæðast aðskornum flík-
um.
Þegar fólki er boðið í mat er ekki
lengur þörf á að fara sólarsinnis í
kringum borðið þegar maturinn er
borinn fram heldur má rétta fram
diskinn vinstra megin við gestinn
þannig að hann geti verið tilbúinn
með skeiðina í hægri hendinni. Nota
má pappírsservíettur.
Þessar upplýsingar koma fram í
nokkurs konar handbók, sem
Debrett’s gefur út, þar sem réttri
eignast aukið og endurbætt siöa-
kver.
framkomu og góðum siðum eru gerð
góð skil en guðsóttanum hins vegar
alveg sleppt. í bókinni er víða komið
við og fjallað um allt það helsta, sem
breskir betri borgarar, sem lítið
hafa látið að sér kveða i uppþotunum
að undanförnu, þurfa að vita, allt frá
því hvernig setja skuli saman eitt
lítið lettersbréf til drottningar og til
þess hvernig siðaður maður heldur á
hnífapörum („hafðu hnífinn í hægri
hendi og mundu að leggja vísifingur-
inn á skaftið").
Ritstjóri handbókarinnar er frú
Elsie Burch Donald, bandarísk kona
sem búið hefur í Englandi í 13 ár.
Sér til aðstoðar hefur hún sjö
sérfræðinga í mannasiðum.
„Við teljum að þetta sé yfir-
gripsmesta bókin um mannasiði,
sem gefin hefur verið út síðan í
þjóðfélagsbyltingunni á sjöunda ára-
tugnum þegar heilmiklu af gömlum
kreddum og formlegheitum var rutt
úr vegi,“ segir frú Donald.
Ein nýbreytnin hjá henni frú
Donald er kafli um skilnað og lýkur
honum með þeirri ráðleggingu, að
þegar annað hjónanna fyrrverandi
giftist aftur sé það sjálfsögð kurteisi
að bjóða gamla makanum í brúð-
kaupið. - ALAN HAMILTON
HERMENNSKA
Það verður
líka kvenfólk
í valkestinum
„Stefna hersins á undanförnum
árum hvað varðar þjónustu kvenna
hefur valdið þvi, að ef til striðs
kemur verða þær sendar út á
vigvellina með allri þeirri áhættu
sem þvi fyÍKÍr.“
Þessi klausa er í samantekt, sem
þriðja herdeild bandariska hersins í
Vestur-Þýskalandi hefur sent frá sér
en þar er einkum fjallað um það
hvernig best sé að nýta þann mann-
afla, bæði menn og konur, sem
herinn hefur yfir að ráða.
Bandaríski herinn er nú skipaður
sjálfboðaliðum en að margra viti er
hann alls ekki sú spegilmynd af
bandarísku þjóðfélagi, sem stefnt
hefur verið að. „Okkur skortir alveg
menn úr miðstéttunum," segir einn
foringjanna.
Einn foringjanna í þriðju her-
deildinni, sem hefur undir sinni
stjórn 530 konur, hefur reiknað það
út, að að jafnaði séu um 9% þeirra
ófrískar og þar af ' helmingurinn
einhleypur. Sú saga er einnig sögð
um marga nýliðana af báðum kynj-
um, sem koma frá æfingabúðum í
Bandaríkjunum, að þeir séu bæði
ólæsir og óskrifandi og geti því ekki
með nokkru móti skilið jafnvel nýju
hermannahandbókina þar sem hlut-
irnir eru þó gerðir eins einfaldir og
unnt er.
t þriðju herdeildinni í Vestur-
Þýskalandi eru 1060 konur og af
þeim munu 936 verða í eldlínunni ef
til átaka kemur. Af þvi hafa menn
þó engar áhyggjur heldur hinu,
hvernig vopnabræður þeirra, karl-
mennirnir, munu bregðast við þegar
þeir sjá konu tekna til fanga eða
tætta sundur af byssukúlum. Hvað
verður þá um agann og eldmóðinn?
spyrja foringjarnir.
Einnig er að því spurt hvort
konurnar séu notaðar á réttan hátt.
„Við höfum komist að því, að konur
hafa ekki líkamlega burði til að
rogast með særðan félaga sinn
tiltekna vegalengd. Þær vantar ekki
viljann, síður en svo, þær eru bara
ekki nógu sterkar," segir einn starfs-
mannastjórinn frá þriðju herdeild-
inni.
Eftir öðrum er haft, að konur í
herlögreglunni verði óhjákvæmilega
að fást við verkefni, sem þær ráði
ekki við líkamlega.
Kynþáttavandamál eru ekki leng-
ur fyrir hendi í 7. hernum eins og
fyrir fimm eða sex árum en mennt-
unarástand margra hermannanna er
hins vegar afar bágborið. Foringi
einnar véladeildarinnar sagði, aö af
760 mönnum í deild hans væru 184
„óiæsir og kynnu ekki einu sinni
einfalda samlagningu".
- DREW MIDDLETON
höfum fqiáð
símske>ti nú
B&O! I
ersa
(t\r •
a^* _ \r\Q
t0 co^
tev'®\s'te’oSe
joO’f’
\eVeP
°°r
rVO’O
-eV.V.V'9
rrrO a , a’f'® .
waf'1®' 0\.arA at>ö
* <t\0^e1' ‘ ar\d
to
v.v.o'**
1 lV\e prSaS ^
&s 3'"'~ . ftívOD y ivre
our
„
ive
i’b'oW
,v\b»°”„Q8.0W’*®"|iye)3r
.,geW0'’^ sta6teS" ...sett09
tteSSf»í 5U „
Rretiand °usíöan f^r ukar eru ge
sfessssaasr*-**
kkur
áoKÍÖIS'8800^atl8fa
tiiefn' t»
Beocf„
ker
-Íeí"""'
Eins og þegar hefur komið fram í
fjölmiölum hafa fremstu verksmiðjur í
sjónvarps- og myndsegulbandafram-
leiöslu nú þegargertsamninga um V2000
kerfið frá Philips, en alls hafa 23 fyrir-
tæki samið um framleiðslurétt, - þeirra
á meðal eru Grundig, Siemens,
Bang & Olufsen, ITT, Pye, Siera og
Zanussi. *
Það fer ekki á milli mála, að Philips-
kerfið fer nú sigurför um heiminn.
Nýjar verksmiðjur i Austurriki og Hollandi
koma til með að margfalda framleiðslu-
afköstin á næstu mánuðum, en langur
biðlisti liggur fyrir hjá Philips með
umsóknum um framleiðsluleyfi.
Philips V2000
hf
Hafnarstræti 3 — Sætúni 8.
*Vfö biöjum luxor wlvirðingar á því aö vtð notuðum nafn þeirrai auglySmgtt.
Luxot háfur ökki fangið tramhnðsluleyti annþð