Morgunblaðið - 19.07.1981, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19. JÚLÍ1981
59
.
i
Hausar fljúga af bolnum.
Hugarstríð
Gamla bió: SkyKKnar
(„Scanners“)
Ilandrit og leikstjórn: Dav-
id Cronenberg. Kvikmynd-
ataka: Mark Irwin. Förð-
un: Dick Smith. Banda-
risk-kanadísk frá 1981.103
min.
Dulinn máttur hugans,
hryllingskómedíur, galdra-
brögð með hljóð, förðun og
búninga, allt á þetta uppá
pallborðið hjá almenningi í
dag. Stephen King, sá ágæti
stílisti, sagnaþulur og meg-
in hrollvekjumeistari nú-
tímans, (Carrie, Salem’s
Lot, The Shining, The Dead
Zone, The Stand, o.fl.), og
einn vinsælasti rithöfundur
á Vesturlöndum í dag, hef-
ur haft geysileg áhrif á
samtíðina. I nýjustu bók
sinni, Firestarter, fjallar
hann einmitt um svipaða
atburði og gerast í Skyggn-
ar, persónu með óhugnan-
lega hugarorku sem stafar
af lyfjagjöfum, og hroða-
legar afleiðingar hennar sé
henni misbeitt.
Leikstjórarnir John
Carpenter og George Rom-
ero hafa á undanförnum
árum gert athyglisverðar
og ódýrar „öðruvísi" hryll-
ingsmyndir og með Skyggn-
ar er hinn ungi David
Cronenberg kominn í
þröngan hóp æðstu presta
hinnar nýju hryllingsstefnu
þar sem söguhetjur vel-
flestar og umhverfi er ofur
venjulegt og blátt áfram, en
undir niðri er ekki allt með
felldu ...
„Skyggnar" er hópur
manna sem hafa yfir að
ráða ofurmannlegum hug-
arkrafti. Þeir geta lesið
hugsanir annarra, stjórnað
þeim og jafnvel drepið með
einbeitingunni einni saman.
Samkvæmt kokkabókum
Cronenbergs eru þessar
ógnvekjandi sálir talsvert á
þriðja hundraðið. Sagan
hefst á því að fjölþjóðafyr-
irtæki hyggst beisla þennan
yfirnáttúrulega mátt, en þá
kemur á daginn að undir-
heimarnir eru með svipaðar
ráðagerðir á prjónunum.
Upphefst nú gamli slagur-
inn á milli þess góða og illa,
sannkallað hugarstríð!
Söguþráðurinn er nokkuð
hressilegur og vel sagður
hvað snertir tæknibrögð og
þá einkum og sér í lagi
förðunarvinnan sem er
sannkallað meistaraverk.
Kvikmyndunin er einnig
með ágætum en hið talaða
orð er næsta ótækt í nokk-
urs munni. Þar skortir
Cronenberg talsvert uppá
meðalmennskuna.
Leikurinn er upp og ofan.
Patrick McGoohan góður að
vanda, það er synd og
skömm hversu sjaldan
hann sést orðið á tjaldinu.
Jennifer O’Neill er fögur
sem forðum (Sumarið ’42).
Aðalhlutverkin eru í hönd-
um Stephen Lacks og
Michael Ironside, reynslu-
lítilla leikara og leynist það
ekki.
Skyggnar er nokkuð glúr-
in og frumleg hryllings-
mynd þar sem afburðaförð-
un og ágætar tæknibrellur
bæta upp álappalegt hand-
rit. Og ekki sakar að mynd-
in er glæný af nálinni.
Það er oft grunnt i því góöa í Caddyshack
Flónskan lengir lífið
Aasturbæjarbíó: Caddyshack
Leikstjóri: Haroid Ramis.
Handrit: Ramis, Brian
Doyle-Murray, Douglas
Kenney. Kvikmyndataka:
Stevan Larner. Frumsam-
in lög eftir Kenny Loggins.
Tónlist: Johnny Mandel.
Bandarisk frá Orion 1980.
Caddyshack, er bráðfynd-
in endemisvitleysa sem ger-
ist lengst af á golfvelli hvar
hinir ólíklegustu atburðir
eiga sér stað. óhöppin eiga
sér ýmist stað hjá hinum
vellríku meðlimum golf-
klúbbsins eða strákapjökk-
unum, kylfusveinum þeirra.
Myndin minnir óneitan-
lega á ýmsan hátt á annan,
vinsælan farsa sem gekk
vel hér á síðasta ári, Delta
klíkuna, (Animal House).
Þegar betur er að gáð,
kemur í ljós að ekki er um
neina tilviljun að ræða, því
að sömu menn skrifuðu
handrit beggja myndanna.
Þá dregur Caddyshack
nokkurn dám af bandarísku
sjónvarpsþáttunum Satur-
day Night Live, sem frægir
eru fyrir sína absúrdfyndni.
Hér er einnig um talsverð-
an skyldleika að ræða, því
að þriðji handritshöfundur-
inn, Brian Doyle-Murray, er
einnig einn af bakhjörlum
hinna vinsælu sjónvarps-
þátta.
Það er engin meining að
fara nánar út í endaleysuna
sem á sér stað umhverfis
holurnar átján, hér situr
bara velheppnuð aulafyndni
í fyrirrúmi. Caddyshack er
byggð uppá fjölmörgum,
ólíkum uppákomum sem
tengjast ágætlega saman og
oftast bráðfyndnar.
Andlitin í myndinni eru
vel flest á skjánum, víðast
hvar annars staðar en hér á
landi. Chevy Chase hefur jú
leikið með góðum árangri á
móti Goldie Hawn í mynd-
inni Foul Play, en kunnast-
ur er hann fyrir leik sinn í
sjónvarpsþáttunum vin-
sælu, Saturday Night Live.
Slíkt hið sama má segja um
gárungann Bill Murray.
Þessi forkostulegi náungi,
sem um margt minnir á
John Belushi, gerði garðinn
fyrst frægan í umræddum
þáttum. Ted Knight öðlað-
ist miklar vinsældir í
„Mary Tyler Moore Show"
og Dangerfield er einnig vel
þekkt sjónvarpsstjarna.
Caddyshack, fyrsta mynd
Ramis sem leikstjóri, tekur
sjálfa sig ekki ýkja alvar-
lega en það tekst blessunar-
lega sem henni er ætlað, að
koma áhorfendum í gott
skap.
MEÐ VIÐSYN
UM VERÖLD ALLA
MIÐ-EVRÓPUFERÐ
^____^rabíl> 7- ágúst, 15 dagar. Luxembourg, Frakkland,
x Sviss» Þýskaland. Góð hótel, hálft fæði.
Verð 7.000 kr.
JP'X
GRIKKLAND - EGYPTALAND
15. ágúst, 20 dagar. Cairo, Luxor, Aþena.
Góð hótel, hálft fæði. Verð 11.500 kr.
uiosiJn
FERÐASKRIFSTOFA
Aðalstræti 7. Sími 27090.
Kaktusar frá kr. 10 og húsfreyjur
frá kr. 22, burknar frá kr. 29.
Nýjung
Chrgsanthemum
með andlitum
Blómabúðin Fjóla
Garðabæ.