Morgunblaðið - 02.09.1981, Síða 1
32 SIÐUR
193. tbl. 68. árg.
MIÐVIKUDAGUR 2. SEPTEMBER 1981
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Khomeini útnef nir
forsætisráðherra
Beirut, 1. september. AP.
KHOMEINI, erkiklerkur i íran, útnefndi i dag Reza Kani eftirmann Javad
Bahonar, forsætisráðherra, sem fórst ásamt Ali Rajai, forseta landsins, i
sprenKjutilræði i skrifstofum forsætisráðuneytisins um heÍKÍna. Ilinn nýi
forsætisráðherra landsins er háttsettur klerkur ok dyKKur stuðninKsmaður
Khomeinis. Kani dvaldi mörK ár i fanKelsum íranskeisara.
Yfirvöld í íran ásökuðu þá Bani-
Sadr, fyrrum forseta landsins og
Massoud Rajavi, leiðtoga Mujahedeen
Khalq-samtakanna, um að hafa
skipulagt sprengjutilræðið í Teheran
og gagnrýndi Rafsanjani, leiðtogi
Islamska lýðveldisflokksins, frönsk
stjórnvöld harkalega fyrir að veita
þeim félögum hæli.
Ayatollah Khomeini hélt ræðu og
ásakaði stórveldin um að styðja
andstæðinga klerkaveldisins í íran. Á
meðan Khomeini flutti ræðu sína
voru 9 félagar í Mujahedeen Khalq-
samtökunum líflátnir í íran. En
andstæðingar stjórnvalda létu til sín
heyra. Einn helsti dómari klerkaveld-
isins var myrtur á götu í Teheran.
Tilræðismennirnir komust undan.
íranskir stúdentar andvígir klerka-
stjórninni í Iran réðust inn í sendiráð
íran í Vatikaninu og héldu því í þrjár
klukkustundir.
íranir hófu í dag „leiftursókn í
minningu Rajai og Bahonar", að því
er tilkynnt var í Teheran. íranir
segjast hafa fellt 80 íraska hermenn í
bardögum í Tarrah og tekið 75 fanga.
írakar birtu og tilkynningu um bar-
dagana og þar sagði, að íranskir
hermenn hefðu verið hraktir til baka
og að 50 íranskir hermenn hefðu verið
felldir í bardögum.
Khomeini flytur ræðu sína í Teheran. Stmamynd ap.
Speer látinn
Lundúnum. 1. septcmhcr. AP.
AI.BERT Speer, fyrrum hermála-
ráðherra Ilitlers, lést á sjúkrahúsi
i I.undúnum i kvöld af völdum
hjartaslags. Speer var 76 ára að
aldri. Hann var einn valdamesti
maður nazista.
Albert Speer gekk í nazistaflokk-
inn árið 1931. Árið 1942 varð hann
hermálaráðherra. Almennt er talið,
að Speer hafi verið hugsuðurinn á
bak við hergagnaiðnað nazista.
Albert Speer varð efnahagsmála-
ráðherra í stjórn Karls Dönitz,
flotaforingja, en sú stjórn var
mynduð eftir sjálfsmorð Adolfs
Hitlers. Speer var handtekinn þann
23. maí 1945 og í Núrnberg-réttar-
höldunum var hann dæmdur fyrir
stríðsglæpi. Hann var látinn laus
úr Spandau-fangelsinu árið 1966.
Sovéskir hermenn féllu
í bardögunum í Angóla
Höfðaborg. 1. september. AP.
MAGNÚS Malan. varnarmálaráðherra S-Afríku sagði í dag, að
sovéskir hermenn hefðu verið felldir í bardögum í Angóla og að
einn sovéskur hermaður hefði verið tekinn til fanga. „Það er
engum vafa undirorpið, að SWAPO nýtur stuðnings og er
stjórnað frá Kreml,“ sagði Malan á fundi með fréttamönnum.
Hann sagði ekki hve margir sovéskir hermenn hefðu failið í
bardögum í Angóla.
„Hingað til hefur verið talið, að
SWAPO nyti aðeins óbeins stuðn-
ings Sovétmanna en nú er ljóst, að
Sovétmenn hafa hermenn í land-
inu,“ sagði Malan. Talsmaður
s-afríska hersins sagði í dag, að
s-afrískir hermenn yrðu á brott
frá Angóla á næstu dögum. Hann
sagði, að s-afrískir hermenn hefðu
tekið mikið magn hergagna.
Stærstur hluti þeirra yrði eyði-
lagður en sumt yrði flutt yfir
landamærin til Namibíu.
S-afríska herstjórnin sagði að
markmiðum innrásarinnar í Ang-
óla hefði verið náð. Tekist hefði að
eyðileggja eldflaugapalla og rad-
arstöðvar SWAPO-skæruliða, sem
berjast fyrir sjálfstæði Namibíu.
Þá var sagt, að minnsta kosti 400
angólskir hermenn hefðu verið
felldir í bardögum. S-Afríka neit-
ar þeirri staðhæfingu stjórnvalda
í Lúanda, að 45 þúsund manna
herlið hafi verið sent inn í Angóla
en heimildir segja, að 4 þúsund
manna herlið hafi tekið þátt i
innrásinni.
Angólastjórn hótaði í dag að
beita 20 þúsund manna herliði
Kúbumanna í bardögum við
S-Afríku. Ekkert hefur frést af
bardögum milli kúbanskra og
s-afrískra hermanna.
Bandaríkin beittu í dag neitun-
arvaldi sínu í öryggisráði Samein-
uðu þjóðanna gegn tillögu um að
fordæma innrás S-Afríku i Ang-
óla. Bretar, Frakkar og Kínverjar
sátu hjá.
Kúbanskir ráð-
gjafar í Salvador
VVashinv'ton. 1. soptember. AP.
KÚBANSKIR hernaðarráðgjafar
leiðheina vinstri sinnuðum
skæruliðum i E1 Salvador. Dean
Fisher, talsmaður bandariska
utanrikisráðuneytisins hélt þessu
fram á fundi með fréttamönnum i
Washington i dag. Fisher sagði,
að ekki væri nákvæmlega vitað
Sovétríkin:
Flokksforystan varar við
yf irvof andi matvælaskorti
Moskvu. 1. sept. AP.
LEIÐTOGAR kommúnista-
flokksins i Sovétrikjunum hafa
sent frá sér bréf, þar scm
flokksmenn eru varaðir við
óvenju alvarlegu ástandi i land-
búnaðarmálum. Flokksmenn
eru beðnir um að gæta ýtrustu
varúðar i allri mcðferð á mat og
sóa honum ekki og vera tilbúnir
að rétta bændum hjálparhönd
við uppskeruna.
Þetta óvenjulega bréf var skrif-
að 13. ágúst. Það er undirritað af
miðstjórn flokksins og hefur ver-
ið lesið upp á flokksfundum víða
um landið. Þrátt fyrir alvarlegan
tón bréfsins, er reynt að fullvissa
BIÐRÖÐ I MOSKVU — nú varar forustan við frekari skorti.
fólk um, að uppskerubresturinn í
ár komi ekki til með að hafa
afgerandi áhrif á matvælafram-
boð i landinu i ár. Orðalag
bréfsins bendir til, að ríkisstjórn-
in hyggist kaupa matvæli erlend-
is eða nota varakornforða þjóðar-
innar til að komast yfir erfiðleik-
ana.
Heimildarmenn, sem hafa séð
bréfið, herma, að veðurfar ársins
í ár hafi verið mjög slæmt fyrir
uppskeruna. Vonast var eftir 238
milljóna tonna til 243 milljóna
tonna kornuppskeru í ár, en
starfsmaður landbúnaðarráðu-
neytisins í Moskvu álítur hana
ekki verða meiri en um 200
milljónir tonna. Bandaríkjamenn
telja að hún verði um 185 milljón-
ir tonna. Besta uppskera Sovét-
ríkjanna var árið 1978, en þá
fengu þeir 237,4 milljónir tonna
korns.
Flokksforystan sendir frá sér
slík bréf sem þetta af og til. Þau
eru send 16 milljónum flokksmeð-
lima og upplýsingum úr þeim er
síðan miðlað til 250 milljóna
Sovétmanna, sem ekki eru í
flokknum, á ýmsan hátt.
hve margir Kúbanir væru í E1
Salvador. „Að minnsta kosti
nokkrir kúbanskir hernaðar-
ráðgjafar eru í landinu.“ sagði
Dean Fisher.
Bandaríkjamenn hafa haldið
því fram, að skæruliðar í E1
Salvador fengju hergöng frá
Kúbu, en því hefur ekki fyrr verið
haldið fram af opinberri hálfu í
Washington, að kúbanskir ráð-
gjafar væru í landinu.
Alexander Haig, utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna gaf þó í skyn
á föstudag, að kúbanskir ráðgjaf-
ar væru í E1 Salvador. Þá hélt
Fisher því fram, að menn frá
Nicaragua væru meðal skæruliða í
E1 Salvador.
Dacko steypt
HanKui. Miö-Afrikulýðveldinu.
1. september. AP.
STJÓRNARB YLTING var gerð i MkV
Afríkulýðveldinu i morgun. Herinn
hrakti David Dacko. forseta lýðveldis-
ins frá völdum. aðeins 23 mánuðum
eftir að Jean-Bedel Bokassa keisara
var steypt af stóli. André KolinKba.
yfirmaður herráðsins. tilkynnti i út-
varpi að Dacko hefði fallist á að láta
af völdum „af heilsufarsásta'ðum ok
vegna spennu i landinu".
Talsmaður franska utanríkisráðu-
neytisins sagði í dag, að byltingin væri
innanríkismál í lýðveldinu en 1600
franskir hermenn eru í landinu. Tals-
maðurinn sagði, að franska sendiherr-
anum í BanKui hefði verið afhent bréf
frá Dacko, þar sem hann tilkynnti að
hann léti af völdum af heilsufarsástæð-