Morgunblaðið - 02.09.1981, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 02.09.1981, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2. SEPTEMBER 1981 25 ob ope + Bob Hope, sem kominn er fast að áttræðu, mun taka þátt í skipulagningu Ólympíuleikanna í Los Angeles 1984. Stendur til að hann hafi hönd í bagga meö gerö skemmtidag- skrár á vegum Los Ang- eles-borgar, sem heldur leikana. attavinir + Paul Newman og kona hans Joan Woodward eru miklir kattavinir og nýlega komu þau fram í sjónvarps- þætti til þess aö hvetja fólk til þess aö láta gera ófrjósemisaögeröir á köttum sínum. Þau segja aö kettirn- ir fjölgi sér svo ört aö engin leið sé aö koma þeim öllum fyrir á góöum heimilum, og þessvegna sé þetta eina ráöiö. Auglýsingum meö þeim hjónum um þetta efni er nú útvarpaö um öll Bandaríkin. félk í fréttum inn deilt um auðæfin + Þegar auðjöfurinn Howard Hughes lést 1976 voru ættfræöingar fengnir til þess aö reyna aö hafa upp á öllum hugsanlegum erfingjum hans, en þeir skipta hundruöum. Um fimm hundruð frændur hans og frænkur reyna nú að sýna fram á aö nánustu frændsystkin hans séu óskilgetin og eigi því ekkert tilkall til auöæfanna, en undirtektir dómstóla eru dræmar. Hughes haföi þegar ráðstafaö helmingi eigna sinna til ættingja sinna í móöurætt og eftir eru 180 milljónir til 2 milljaröar handa föðurættinni, sem gengur svona illa aö koma sér saman. ixon í Vín + Richard Nixon fyrrv. forseti Bandaríkjanna kom til Vínar- borgar í gær, sunnudag, í þriggja daga heimsókn. Hann kom með járnbrautarlest frá Sviss og sagöi viö blaðamenn aö þetta væri einkaheimsókn. Meö honum í för eru um tuttugu manns. Nixon mun síöan fara frá Vínarborg yfir til Vestur-Þýzkalands. álverk af Díönu skemmt + Talsmaöur National Gall- ery í London sagði í dag, að væntanlega tækist að gera við skemmdir sem voru unnar á nýju málverki af Díönu prinsessu og myndi málverkið vonandi veröa sett upp aftur eftir mánuð eða svo. Listamaðurinn sem málaði myndina, Byr- on Organ, sagði í viðtali við Daily Express, aö hann ef- aðist stórlega um aö við- gerðin lánaðist svo vel, aö málverkiö yrði jafngott eft- ir. Atburður þessi gerðist á laugardag. Maður vopnað- ur mikilli sveðju ruddist framhjá vöröum og gestum í safninu og réðst að mál- verkinu með offorsi og skar úr því töluverðan bút. Lögr- eglan sagði aö maðurinn væri tvítugur Norður-íri og telja heimildir AP, að hann sé líkast til í tengslum við skæruliðasamtök IRA. Hann kom fyrir rétt í Lond- on í dag. Málverkinu var komiö fyrir fáeinum dögum áður en þau Karl og Díana gengu í hjónaband. Af ótilteknum ástæöum hafa málverk af Karli og Elísabetu drottn- ingu einnig veriö tekin niður og er taliö að búa eigi betur um verkin og e.t.v. setja á þau gler. ifir I voninni + Bianca Jagger lifir enn í voninni um aö slá í gegn í kvikmyndum. Þótt hún hafi leikið í hálfri tylft mynda er hún ennþá mest þekkt fyrir aö vera fyrrverandi eiginkona Mick Jaggers. Reyndar viröist henni fara þaö hlutverk illa, því dómstólar íhuga nú að taka frá henni dóttur þeirra Jaggers og láta hana flytja til Jaggers. Andy Warhol segir um Biöncu aö hún sé frægasta kvikmyndastjarnan af þeim sem aldrei hafa slegið í gegn. Töframaðurinn Herb Alpert „Magic Man“ er nafnið á hinni nýju plötu Herb Alpert og er það svo sannarlega réttnefni. Herb töfraði mjög marga með plötunni, „Rise“ þar sem hinn ljúfi og hreini tónn trompetsins heillaði hvað mest. „Magic Man“ uppfyllir allar óskir þeirra sem beðið hafa eftir jafn góðri plötu og „Rise“ var. Herb Alpert býður þér að upplifa góðar stundir með sér og plötunni „Magic Man“. Heildsöludreifing stoÍAorhf Símar 85742 og 85055. hljömdfild vbvhKARNABÆR Lau9«ve9' 66 - Gl»s.b» - Austurstr.t. 2? S.mi tra skiptiboröi 85055

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.