Morgunblaðið - 02.09.1981, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2. SEPTEMBER 1981
3
Fyrstu angórakaníiramar til
landsins í þessum mánuði
UM MIÐJAN scptember eða í
enda þess mánaðar munu koma
hinKað til landsins 40 anKÓrakan-
ínur, sem fjórir bændur í félagi i
BiskupstunKum keyptu frá Au«s-
hurs i Þýskalandi. Hafa þeir i
hyKKju að stofna hér anKÓrakan-
ínubú ok mun hver þeirra hafa til
umráða 10 kanínur. Mennirnir i
þessu félaKÍ heita, Jón Eirfksson,
i Vorsabæ á Skeiðum, MaKnús
Grímsson, Jaðri i Hruna-
mannahr., Loftur Jónasson Kjóa-
stöðum ok Hlöðver Diðriksson
bóndi á Litlu Hildisey.
Það voru um 30 menn sem sóttu
um leyfi fyrir að stofna til þessa
búskapar, en aðeins var gefið leyfi
fyrir einu búi í tilraunaskyni.
Morgunblaðið náði tali af Hlöðver
Diðrikssyni og spurði hann nánar
út í þessa ræktun.
„Það er helsti," sagði Hlöðver,
„kosturinn við angórabúskap að
kanínurnar eru fóðraðar á venju-
legu heyi og grænfóðri ýmislegu,
ásamt lítilsháttar kjarnfóðri. Það
er einmitt gallinn við minka- og
refaræktunina hvað erfitt er að
hafa slíkt bú annarsstaðar, en þar
sem hægt er á auðveldan hátt að
afla þeim matar, sem er mest slor
og úrgangur úr fiski. Angórakan-
ínur er hægt að rækta allstaðar,
þær eru ódýrar í rekstri og hárið
er það eina sem tekið er af þeim og
selt. Verð á angórahári er mjög
gott í dag.“
Var erfitt að fá leyfið?
„Nei, ég hugsa að við höfum
fengið það, vegna þess að við
vorum með þeim fyrstu sem sóttu
um fyrir rúmu ári síðan. Við
náðum sambandi við aðila í •
Þýskalandi og lögðum drög að
kaupum á dýrunum af þeim. Við
kaupum aðeins 10 dýr hver. Fjölg-
unin er mjög ör hjá þessum
dýrum, meðgöngutíminn er ekki
nema rúmur einn mánuður og þær
eiga oftast um fimm til átta
afkvæmi, svo það er fljótt að
stækka búið.
Þegar við komum úr þessari
kynnisferð í Þýskalandi, lögðum
við inn gögn sem við höfum yfir
þennan búskap og sóttum svo um
innflutningsleyfi til landbúnað-
arráðuneytisins. Það tók þetta til
athugunar og 14. ágúst sl. fengum
við leyfi fyrir innflutningi á þess-
um dýrum.
Leyfið fengum við með mörgum
skilyrðum, meðal annars að kanín-
urnar gangist undir mjög stranga
læknisskoðun, en það er sjálfsagt
að viðhafa strangar varúðarráð-
stafanir þegar svona innflutning-
ur á sér stað. Angórakanínurnar
verða í nokkra mánuði í sóttkví,
sennilega í fimm mánuði, en einn
af okkur mun sjá um dýrin í
sóttkvínni. Það er ekki búið að
ákveða hver okkar það verður.
Þegar þær koma úr sóttkvínni
einhvern tíma seint í vetur eða
vor, munum við hver um sig taka
okkar 10 kanínur og halda með
þær heim.
Hjá mér verður þetta aðeins
aukabúgrein og mun ég reyna að
halda fjöldanum undir 300 stykkj-
um. Núna er ég einungis með
nautgriparækt."
En hvers vegna Angórakanín-
ur?
„Það er nú bara vegna- þess að
mig langar mun meira til að hugsa
um kaninur en refi eða minka, auk
þess sem ég sagði áðan, að þetta er
mjög hagkvæm búgrein. Kanín-
urnar eru klipptar á þriggja mán-
aða fresti og gefa af sér um
12—1400 grömm af hári yfir árið.
Kílóið af angórahári er í dag 75
vestur-þýsk mörk eða um 240
krónur islenskar. Hárið er notað í
allskonar fatnað, sérstaklega
peysur og allan léttan fatnað.
Það þarf ekki að vera mikill
stofnkostnaður við að koma þess-
ari ræktun á laggirnar fyrir þá
sem áhuga hafa. Það þurfa ekki
allir að byggja sérstakt hús undir
þær, þær eru einar í búrum og þær
lifa mest á þurru og góðu heyi.
Eftir að afkvæmin hafa lifað í
30 vikur eru þau orðin fullorðin og
þá eru þau dýr tekin úr, sem ekki
sýna þá eiginleika sem ætlast er
til af þeim. Þeim er slátrað og eru
besti matur hefur maður heyrt, en
þessar kaninur eru annars ekki
drepnar til matar," sagði Hlöðver
Diðriksson bóndi og tilvonandi
angórakanínuræktandi, einn af
þeim fyrstu á íslandi.
Hann sagði einnig að ekki væri
alveg útséð með það hvort þeir,
sem rækta angórakanínur komi til
með að ganga í félag islenskra
loðdýraræktenda þar sem í þeirra
reglum er kveðið á um að félagar í
þeim samtökum verði að rækta
dýr, sem gefi af sér skinn til sölu,
en angórakanínur gefa aðeins hár-
ið.
Kærði nauðgun
ÁTJÁN ára gömul stúlka úr
Reykjavík kærði nauögun til
lögreglunnar í Borgarnesi laust
fyrir klukkan 2 aðfaranótt sið-
astliðins sunnudags. Stúlkan
hafði verið slegin nokkrum sinn-
um i andlitið og sá töluvert á
henni. en maðurinn kom fram
vilja sinum. Stúlkan var flutt á
sjúkrahúsið á Akranesi og var
hún þar um nóttina.
Grunur beindist að ákveðnum
manni, einnig aðkomumanni, sem
var eins og stúlkan á dansleik í
samkomuhúsinu í Borgarnesi
þetta kvöld. Atburðurinn átti sér
stað á afviknum stað skammt frá
samkomuhúsinu. Lýsing stúlkunn-
ar á manni þeim sem þarna átti í
hlut var mjög ófullkomin og var
fyrrnefndum manni sleppt að lok-
inni yfirheyrslu, en hann neitaði
mjög ákveðið að hafa framið
verknaðinn.
Embættistaka
biskups í
dómkirkjunni
SÉRA Pétur Sigurgeirsson vígslu-
biskup mun taka við embætti
biskups í Dómkirkjunni í Reykja-
vík 27. sept. nk, en hann hefur
störf 1. okt. nk. Þar sem séra
Pétur er þegar vígður vígslubisk-
up er biskupsvígsla óþörf.
Ýmsir erlendir gestir verða
viðstaddir biskupsskiptin og er
búist við því að einn biskup komi
frá hverju Norðurlandanna auk
fleiri gesta.
Tveir leituðu
læknis eftir
slagsmál á
dansleik í
Borgarnesi
TIL slagsmála kom undir lok
dansleiks í Samkomuhúsinu i
Borgarncsi siðastliðið laugar-
dagskvöld. Áttust þar við heima-
menn og aökomumenn. sem
höfðu verið við laxveiði i Borgar-
firði. Auk hnefanna notuðust
menn við brennivinsflösku og að
öllum likindum hnif i átökunum.
Tveir menn urðu að leita læknis i
Borgarnesi til að fá gert að
sárum sínum.
Að sögn Ásgeirs Magnússonar,
fulltrúa sýslumanns í Borgarnesi,
er þvi haldið fram, að tildrög
slagsmálanna hafi verið þau, að
einn aðkomumannanna tók
brennivínspela úr rassvasa pilts
úr Borgarnesi. Kom annar Borg-
nesingur að um sama leyti og sá
hvað gerðist. Sakaði hann
aðkomumanninn um þjófnað og að
hann hefði ásamt félögum sínum
stundað það á dansleiknum að
stela víni úr glösum gesta. Hófust
slagsmálin upp úr þessu og blönd-
uðust fleiri í málið áður en yfir
lauk.
Ásgeir sagði, að þetta hefði
gerzt milli klukkan 1 og 2 um
nóttina, en þá klukkustund hefði
verið í nógu að snúast hjá lögregl-
unni. Síðar hefði komið í ljós
allstórt sár á baki eins Borgnes-
ingsins og þurfti hann að fá það
saumað hjá lækni staðarins. Er
talið mögulegt, að sárið hafi verið
veitt með hnífi. Einn aðkomu-
mannanna fékk skurð á höfuð og
er talið að hann hafi verið sleginn
með vasapela úr málmi.
INNLENT
hvílíkur munur
Ajax þvottaefni losar bletti og óhreinindi strax í
forþvotti. Það er sama hvort um er að ræða
hvítan, mislitan eða mjög viðkvæm^
sama hvaða hitastig er notað eða þvottastH
Ajax skilar tandurhreinum og blettalausum
þvotti.
Ajax lágfreyðandi þvottaefni
fyrir allan þvott
Effektivt vaskepulver
til alle vaskeprogrammer
&