Morgunblaðið - 02.09.1981, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2. SEPTEMBER 1981
11
Afbrýðis-
samur Dani
ógnaði
stýrimanni
Kaupmannahöfn. 28. ág. AP.
MIÐUR sín aí afbrýðissemi
ógnaði ungur dani með byssu
fyrsta stýrimanni á ferju sem
lá við bryggju í Kaupmanna-
höfn í dag. Krafðist ungi mað-
urinn þess að stýrimaðurinn
léti leita um skipið að stúlku
sem hefði unnið á ferjunni og
var um hríð vina mannsins, en
hafði siðan slitið sambandinu.
Stýrimaðurinn reyndi að
sannfæra unga manninn um að
stúlkuna væri ekki að finna á
skipinu, en í hálftíma stóð hinn
æri og ástfangni yfir honum
með byssu og hótaði honum öllu
illu. Stýrimanni tókst að sann-
færa hann að lokum. Lögregla
kom síðan á vettvang og sýndi
maðurinn ekki mótþróa. Um
borð í ferjuna voru komnir 200
farþegar og læstu þeir sig inni í
borðsal ferjunnar þar sem þeir
óttuðust að skothríð brytist út.
Hugsar
Sadat sér
að hætta?
kairo. 31. ág. AP.
ANWAR Sadat forseti
Egyptalands lét að því liggja i
dag við málgagn flokks sins
að hann hefði ekki tekið
ákvörðun um það hvort hann
muni bjóða sig fram tii endur-
kjörs við forsetakosningar i
landinu i október á næsta ári.
Framámenn í flokknum
sögðu aðspurðir, að þeir hefðu
ekkert heyrt um að Sadat hefði
áform um að draga sig í hlé, og
sögðu að orð þau sem Sadat
hefði látið falla væri fráleitt að
túlka sem svo að hann myndi
ekki gefa kost á sér.
í maí 1980 greiddi egypska
þingið því atkvæði að Sadat
yrði leyft að sitja eins mörg
kjörtímabil á forsetastóli og
hann vildi og var litið svo á að
þetta þýddi í reynd, að Sadat
myndi verða forseti til æviloka.
Leiðrétting
Plönturnar eða lífið
í VIÐTALI við Jón Gunnar
Ottosson í Morgunblaðinu sl.
sunnudag urðu mistök í texta og
jafnframt í fyrirsögn þar sem
sagði: „Af hverju éta plönturnar
ekki lífið?“, en það sem Jón
Gunnar sagði var á þá leið að
hann skildi ekki af hverju plöntur
væru ekki étnar í ríkari mæli en
raun ber vitni. Jón Gunnar vinnur
nú að doktorsritgerð um vistfræði
skordýra og plantna. Eru viðkom-
andi beðnir velvirðingar á mistök-
unum.
okkar sem allir hafa beðið eftir
afsláttur
Sláið til og gerið
súperkaup á glæsi-
legum teppum,
bútum og mottum.
muniö aö taka
meö ykkur málin
af gólffletinum.
lÉPPfíLfíND
Grensásvegi 3, Reykjavík, símar 83577 og 83430
Tryggvabraut 22, Akureyri. Sími 25055.
í verzluninni við Grensásveg
býður Sanitas
upp á hressingu ískalt og svalandi Pepsi Cola
eða Seven Up. Börnin fá líkahatt frá Sanitas
og íspinnana vinsælu frá ef þau eru
þæg og góð meðan foreldrarnir skoöa teppa-
úrvalið.
'T T
. . - M. í M I' ■
91 «|l!
Tn