Morgunblaðið - 02.09.1981, Page 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2. SEPTEMBER 1981
Loðnan sjálf gæti bund-
ið enda á fiskveiðideil-
ur Norðmanna og Dana
Frá Jan Erik Laure, fréttaritara Mbl. i Osló ok Ib Björnbak, fréttaritara Mbl. i
Kaupmannahöfn. 1. september.
TVÖ dönsk og eitt færeyskt skip hafa nú yfirgefið umdeilda
fiskveiðisvæðið milli Jan Mayen og Austur-Grænlands eftir að hafa
fyllt lestirnar loðnu. Tveir danskir togarar munu væntanlega Ijúka
veiðum innan skamms og yfirgefa svæðið. Þá verður loðnudeilum
Danmerkur og Noregs lokið að sinni. án þess þó að stjórnmálamenn
hafi komist að nokkru samkomulagi.
Margt bendir til að loðnan sé að
færast yfir miðlínuna á svæðinu
yfir í danska hlutann og mun
þannig sjálf leysa vandann. Það
myndi einnig koma í veg fyrir
hugsanlegar deilur milli Noregs
og Englands. Pregnir herma, að
breskir togarar muni bráðlega
halda til loðnuveiða. Danir álíta
„norska“-svæðið tilheyra Dan-
mörku, og þess vegna telja Bretar,
að það tilheyri Efnahagsbanda-
laginu og þeir megi þess vegna
Norður-Kórea
ásökuð um glæp-
samlega árás
l’anmunjom. Kórru. 1. soptcmbcr. AP.
Herstjórn Sameinuðu þjóðanna
í Kóreu ásakaði Norður-Kóreu um
að hafa gert „glæpsamlega árás“,
sem hefði getað ieitt til „alvar-
legra átaka“ i Kóreu, þegar cld-
flaugum var skotið að bandariskri
eftirlitsvél 1 síðustu viku.
Ásökunin var borin fram á 407.
fundi Vopnahlésnefndar, sem her-
stjórnin kallaði til vegna árásar-
innar í dag.
veiða á því.
Norðmenn vonast til að ein-
hverjar sættir náist á fundi utan-
ríkisráðherra Norðurlanda, sem
hefst í Kaupmannahöfn á mið-
vikudag. Samkvæmt upplýsingum,
sem Morgunblaðið hefur aflað sér,
munu utanríkisráðherrar Dan-
merkur og Noregs ræðast einslega
við á þriðjudagskvöld. Danir hafa
lagt til, að málið verði lagt fyrir
gerðardóm eins og deilur Noregs
og íslands um landgrunnið við Jan
Mayen. Ekki er ljóst, hvort Danir
vilja stofna þriggja manna nefnd,
eins og í Jan Mayen-málinu, eða
hvort það eigi að fara fyrir
dómstólinn í Haag.
Norska varðskipið Farm er enn
á miðunum við Jan Mayen og
fylgist með erlendum fiskveiði-
skipum. Það fylgist einnig með
ferðum sovéskra togara, en þeir
eru á kolmunnaveiðum eða hafa
fengið leyfi norskra yfirvalda til
veiðanna. Danska varðskipið
Vædderen er einnig á svæðinu, en
það hefur haldið kyrru fyrir og
ekki skipt sér af, þegar dönsku
skipunum hafa verið afhentar
8kriflegar fyrirskipanir Norð-
manna um að hafa sig á brott af
svæðinu.
Fiskveiðideilurnar hafa vakið
mikla athygli í dönskum blöðum.
Þar er látið að því liggja, að
deilurnar séu nátengdar yfirvof-
andi kosningum í Noregi og
norska stjórnin vilji vinna sér
stuðning sjómanna með aðgerðun-
um. Sagt er, að deilunum ljúki
eftir kosningar, enda verði þá
kominn ís á miðin, loðnan horfin
og þar með veiðiskipin haldin
annað.
íslands er víða getið í blaða-
skrifum. Til dæmis er haft eftir
dönskum sjómanni í Politiken í
dag, að Islendingar „æsi Norð-
menn upp og fái þá til að hrekja
Dani á brott" og séu þannig valdir
að deilunum. í Politiken segir
ennfremur: „Þegar alþjóðareglur
eru óljósar, er oft gott að leita
álits dómstóla. Það er allt gott að
segja um lög og reglu, en siðfræði
heyrir einnig með. I samskiptum
sínum við ísland lét Noregur
undan siðfræðilegum rökum — að
rétt væri að taka sérstakt tillit til
þess, að ísland ætti svo margt
undir fiskveiðum. Það sama má'
segja um Grænland í dag.“
í Aktuelt segir í dag: „Norð-
menn hafa ávallt vitað, að hafrétt-
arlögsaga á við annað en fisk. Þar
er sérstaklega átt við olíu og
málma. Norðmenn vita einnig, að í
sambandi við Jan Mayen er mik-
ilvægt að virða samningana við
ísland, en áhugamál Grænlands
skipta þá mun minna máli. Og
þetta leiðir til fiskveiðistríðs á
Norðurlöndum. Það er ekki rétt-
látt.“
Sértilboð
meðan birgðir endast
Vegna breytinga á fram-
leiðslu, getum við boðið|
nokkrar gerðir innréttinga
með 25% afslætti.
25%
afsláttur
Athugið að tilboðið gildir aðeins fyrir nokkrar gerðir og aðeins á meðan birgðir
endast.
HafiÖ samband við
sölumenn.
kalmar
innréttingar hf.
SKEIFAN >. REYKJAVÍK SIMI 82011.
Vinirnir Moammar Khadafy, leiðtogi Libýu, og Yasser
Arafat, formaður Frelsissamtaka Palestínu, hittust
fyrir nokkru í Damaskus, höfuðborg Sýrlands. Með
þeim varð fagnaðarfundur. Þeir eiga það sameiginlegt
að vera svarnir andstæðingar ísraels og heldur
umdeildir stjórnmálamenn víða um heim.
Ný mið-hægristjórn
mynduð i Portúgal
LisHabon, 1. september. AP.
FRANCISCO Pinto Balsemao, fv. forsætisráðherra Portúgals, mynd-
aði í dag nýja samsteypustjórn samkvæmt frettum portúgölsku
fréttastofunnar, ANOP. Stjórnin er talin verða nokkuð ihaldssamari
en stjórn Balsemaos, sem sagði af sér fyrir þremur vikum.
Socialdemókratar undir forsæti
Balsemaos halda lykilráðuneytun-
um. Diogo Freitas do Amaral,
formaður kristilegra demókrata,
verður varaforsætisráðherra og
varnarmálaráðherra. Vinstrisinn-
ar telja, að stefna stjórnarinnar
verði þess vegna íhaldssamari en
síðustu stjórnar Balsemaos.
Balsemao mun væntanlega af-
henda Antonio Ramalho Eanes,
forseta, ráðherralistann seinna í
vikunni. Eanes hefur þegar lagt
blessun sína óformlega yfir
stjórnina. Hann varaði Balsemao
gegn ágreiningi innan stjórnar-
innar í síðustu viku og hótaði, að
efna til nýrra kosninga, ef ríkis-
stjórnin gæti ekki leyst efnahags-
vanda þjóðarinnar. Verðbólga í
Portúgal er nú 25%.
Ætla að læra af
dönskum konum
Harvich. 1. septcmber. AP.
IIUNDRAÐ og fjörutíu breskar konur sigldu af stað til Danmerkur i
dag, þar scm þær ætla að læra af velgengni danskra kvcnna i
stjórnmálum. A leiðinni munu þær hlýða á fyrirlestra um
þingframboð, hvernig má sameina fjölskyiduskyldur og starf i
stjórnmálum og hvernig konur geta verið ákveðnar i framkomu án
þcss að vcra kallaðar gribbur.
17% þingmanna í Danmörku
eru konur en aðeins 2,9% í
Bretlandi. Þó hafa breskar konur
haft kosningarétt í 63 ár og kona
er forsætisráðherra landsins.
Konurnar eru félagar í
300-hópnum, sem var stofnaður í
nóvember í þeim tilgangi að koma
300 breskum konum á þing.
Breskir þingmenn eru alls 635
talsins. Lesley Abdela stofnaði
samtökin, en hún var í framboði
fyrir Frjálslynda flokkinn í síð-
ustu kosningum, en náði ekki
kjöri. Alls eru 1400 meðlimir i
hópnum.
Dómsmálaráðherra
Spánar segir af sér
Madrid, 1. scptember. AP.
LEOPOLDO CALVO Sotelo, forsætisráðherra Spánar, skipaði mann í
stað Francisco Fernandez Ordonez, dómsmálaráðherra, á þriðjudag,
eftir að Ordonez sagði af sér og vangaveltur um stjórnarkreppu
hófust. Pio Cabanillas, deildarstjóri i forsætisráðuneytinu, var
skipaður dómsmálaráðherra i stað Ordonez.
Ordonez var leiðtogi arms sósí-
aldemókrata í miðstjórn Sotelos.
Hann sagðist láta af störfum „til
að finna aftur sjálfan sig“ og
vegna „aðstæðna í pólitíkinni".
Hann kom umdeildum skilnaðar-
iögum í gegnum spánska þingið.
Heimildir herma, að honum hafi
þótt stjórn Sotelos færast of langt
til hægri eftir misheppnaða bylt-
ingartilraun spánska hersins í
febrúar.
Sotelo reyndi að fá Ordonez til
að halda störfum áfram, en án
árangurs. Búist er við, að hann
geri nokkrar breytingar á ríkis-
stjórninni eftir að umræðum um
inngöngu Spánar í Atlantshafs-
bandalagið lýkur. Þær munu
væntanlega hefjast um miðjan
september. Sósíalistar og komm-
únistar hófu mikla áróðursherferð
á Spáni gegn inngöngunni í dag.