Morgunblaðið - 02.09.1981, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2. SEPTEMBER 1981
23
Kveðjuorö:
Ragnheiður Hafstein
Thorarensen
Hún er dáin hún Ragnheiður.
Þrátt fyrir háan aldur og erfið
veikindi í rúmar tvær vikur,
fannst mér næstum óhugsandi að
hún myndi deyja núna. Það er svo
stutt síðan við vorum að tala
saman úti í garði um lífið, tilver-
una og gamla daga.
Ég varð þeirrar gæfu aðnjót-
andi að þekkja Ragnheiði í meira
en þrjá áratugi og vera árum
saman daglegur gestur á heimili
hennar. Mér fannst ég þó aldrei
vera gestur, heldur leit á Sóló sem
mitt annað heimili. Ég kom þar
fyrst smástelpa, sem hafði eignazt
nýja vinkonu, hana Ellí, yngstu
dóttur Ragnheiðar. En brátt hafði
ég eignazt tvær, því að Ragnheið-
ur var þeim kostum búin að geta
brúað bilið, sem oft vill myndast
milli kynslóða. Það var ætíð gott
að leita til hennar, ef eitthvað
bjátaði á, því að hún átti alltaf ráð
og gat látið óþarfa áhyggjur
hverfa sem dögg fyrir sólu með
léttu skapi og hnyttnu orðalagi.
Hún var sannur vinur í raun.
Ragnheiður var óvenju glæsileg
kona. Teinrétt í baki og tíguleg í
fasi vakti hún athygli hvar sem
hún fór. Jafnvel börnin í hverfinu
tóku eftir að þarna fór alveg
sérstök kona, hún frú Thorarens,
eins og þau kölluðu hana. Hún var
mjög góðum gáfum gædd og bar
þess ætíð merki að hafa alizt upp
á menningarheimili. Hún var
óhagganleg á hverju sem gekk,
líkust kletti í hafinu, sem alltaf er
eins, bæði þegar öldurnar gjálfra
glaðlega í veðurblíðu og þegar
brimið brýtur á honum í stormi og
stríðu veðri.
Fjölskyldan öll, börn, tengda-
börn og barnabörn, hafa mikils
misst, en eftir lifir minningin um
góða konu.
Við fjölskylda mín vottum þeim
dýpstu samúð. Blessuð sé minning
hennar.
Guðrún B. Kvaran.
Prufu-hitamælar
- 50 til + 1000 C
í einu tæki meö elektrón-
ísku verki og Digital sýn-
ingu.
■Ifc—L
SöiuirllmcgjMir
VESTURGOTU 16 - SÍMAR 14630 -21480
Ljós-
ritunar-
vélar
Allar stærðir og
gerðir.
GlSLI J. JOHNSEN HF IQ1!1!
SmMfutMgl 8 - Siml 73111
Blaðburðarffólk
óskast
AUSTURBÆR
Snorrabraut,
Freyjugata 28—49
HANDMENNTASKOLI
ÍSLANDS
Sími 28033, Pósthólf 10340,-130 Reykjavík.
Handmenntaskóli íslands býður uppá kennslu í
teiknun og málun í bréfaskólaformi. Þú færö
send verkefni frá okkur og lausnir þínar veröa
leiðréttar og sendar þér aftur. í þremur önnum
færö þú send um 50 verkefni til úrlausnar.
Innritun í skólann fer fram fyrstu tíu daga hvers
mánaðar utan júlí og ágúst. — Þeir sem enn
hafa ekki beðiö um kynningarrit skólans, geta
fyllt út nafn og heimilisfang hér að neðan og
sent skólanum eða hringt í síma 28033 milli kl.
14 og 17.
Hér er tækifærið sem þú hefur beðiö eftir til
þess að læra teiknun og málun á auðveldan og ^
skemmtilegan hátt.
Ég óska eftir aö fá sent kynningarrit HMÍ mér
aö kostnaöarlausu.
Nafn .......................................
Heimilisfang ...............................
Óska eftir
aö kaupa sveitabýli meö eöa án bústofns. Byggingar
þurfa ekki aö vera miklar, en veöursæld og helst
einhverjir ræktunarmöguleikar. Æskileg staösetning
Suður- og Vesturland. Eyöijörö kemur einnig til
greina. Greiösluform t.d. skipti á fasteign í Reykjavík
ásamt peningum, fyrir rétta eign. Vinsamlegast
sendiö nöfn og símanúmer til blaðsins merkt: „Jörö
— 1991“, fyrir 15. sept.
Canon
Ijósritunarvélar í sér flokki bæöi
verö og gæöi!
Þaö keppir engin viö CdttOH
Ef þessari staðreynd er ekki trúaö þá vinsamlega
hafiö samband viö okkur, komiö, skoðiö og sannfær-
ist.
Verslið við fagmenn.
Sala, ábyrgö og þjónusta:
SKRIFVÉLIN HF Suöurlandsbraut 12.
Sími 85277 — 85275.
FLEX-0-LET
Tréklossar
V
Vinsælu tréklossarnir meö beygjanlegu sólunum
nýkomnir.
Aldrei glæsilegra úrval.