Morgunblaðið - 02.09.1981, Síða 32
VALUR— ASTON VILLA 5 krónur
eftir 28 daga WVyptlllpIÍtfkfp eintakið
MIÐVIKUDAGUR 2. SEPTEMBER 1981
Innheimta rikissjóðs:
Framleiðslugjald ÍSAL hækkað
um 2,7 millj. dollara fyrir 1980
Byggt á hæpnum forsendum, segir Ragnar Halldórsson
TÖLULEG niðurstaða endurskoðunar Coopers & Lybrand á endur-
skoðun ársreikninga ÍSAL fyrir árið 1980 hefur verið birt af
iðnaðarráðuneytinu og er þar talið að nettohagnaður ISAL sé
vantalinn um tæplega 8,7 millj. dollara og þvi hefur fjármálaráðu-
neytið reiknað út hækkun a greiðslu framleiðslugjalds til ríkissjóðs
sem nemur tæplega 2,7 millj. dollara, eða jafnvirði um 21 milljónar
íslenskra króna.
Morgunblaðið leitaði álits
Ragnars Halldórssonar, forstjóra
ISAL á niðurstöðu endurskoðun-
arinnar og kvað hann ISAL ekki
sammála niðurstöðunni.
„Það hefur verið gerður ágrein-
ingur um 6 atriði og þar af skipta
aðeins þrjú máli, hitt er sparða-
tínsla. í fyrsta lagi varðandi
súrálið þá halda endurskoðendur
sig við sama heygarðshornið og
miða verðið við mat þriggja sér-
fræðinga sem komust að mismun-
andi niðurstöðum og tekið var
meðalverð af þeim. Að auki var
miðað við verð til Japans en það
var sama verð og við greiddum á
sl. ári fyrir súrálið. Af öllu þessu
var tekið meðalverð sem þýddi 14
dollurum minna á tonn árið 1980
eða 2,2 millj. dollara alls.
Þá var einnig miðað við verð-
hugmyndir frá sérfræðingum
vegna skautaframleiðslu og niður-
staða þess var sú að verðið á
tonninu væri 80 dollurum of hátt
þrátt fyrir það að Alusuisse sýndi
reikninga sem sönnuðu hærra
verðið. Þarna er um að ræða 3,2
millj. dollara fyrir skautin.
í þriðja lagi er um að ræða þátt
afskrifta af gengistapi. Árið 1971
var gengistap afskrifað strax, en
síðan fór að halla undan fæti og
þá var afráðið að afskrifa gengis-
tapið ári síðar, en hins vegar var
fyrri háttur tekinn upp aftur 1979
og 1980 eins og skattalög bjóða.
Þetta þýðir í þessu dæmi 2,7 millj.
dollara. En að auki er um að ræða
nokkur atriði sem hækka þessa
þrjá liði í tæplega 8,7 millj.
dollara.
Á þessum hæpnu forsendum er
byggður sá útreikningur að skatt-
ar ISAL eigi að vera 2,6 millj.
dollara hærri árið 1980 og að það
skuli innheimt með skuldajöfnun
og skattinneign ISAL sem nam 4,8
millj. dollara um síðustu áramót
lækkuð sem því nemur.
Þessu erum við ósammála en
það ásamt fleiri atriðum verður
rætt á næsta fundi með stjórn-
völdum 4. nóv. nk.“
Sjá á bls. 2: Telja
hagnað ÍSAL ...
Bensín-
lítrinn
hækkar
IiENSÍN hækkar um 14,6% i dag
og hækkar lítrinn um eina krónu;
úr 6,85 krónum í 7,85. Verðlags-
ráð samþykkti þessa hækkun 19.
ágúst sl., en rikisstjórnin frestaði
gildistöku hennar þar til i dag.
Af þeirri krónu, sem bensínlítr-
inn hækkar um, eru 35 aurar
vegna hækkaðs innkaupsverðs, 52
aurar renna til ríkissjóðs, 7 aurar
i álagningarhækkun og 6 aurar
eru tillag á innkaupajöfnunar-
reikning. Af þessari 14,6% hækk-
un renna því 7,6% í ríkissjóð, 5,1%
eru vegna hækkunar innkaups-
verðs, 1% er álagningarhækkun
og 0,9% tillag til innkaupajöfnun-
arreiknings.
Iscargo
stef nir á
Amsterdam
í vetur
ISCARGO mun væntan-
lega fljúga tvær ferðir
milli íslands og Amster-
dam í vetur, að sögn Krist-
ins Finnbogasonar fram-
kvanidastjóra. en samn-
ingar þar að lútandi
standa nú yfir við KLM.
Sagði Kristinn að ráðgert
væri að flogið yrði bæði
með vörur og farþega.
Aðspurður sagði Krist-
inn, að vöruflutningar
hefðu verið með minna
móti í sumar, en þó hefði
félagið farið vikulega um
helgar, nema í nokkrar
vikur á meðan skoðun stóð
yfir á vélinni og bilun
stöðvaði síðan flug um
tíma. Framundan kvað
Kristinn m.a. vöruflug með
ull til Júgóslavíu, hesta til
Svíþjóðar og fisk til út-
landa síðar í haust.
SIS-verksmiðjurnar:
Stórfelldar uppsagnir
eru fyrirsjáanlegar
TAI‘ iönaðardcildar Sambands
islenzkra samvinnufélaga er
áætlað á þessu ári 12,7 milljónir
Flugvallarskatt-
ur hækkar
HÆKKUN flugvallarskatts um
43% til 50% kom til framkvæmda
í gær samkvæmt ákvörðun ríkis-
stjórnarinnar frá því í júlílok.
Samkvæmt því hækkar flugvall-
arskatturinn innanlands um 50%
eða úr 8 krónum í 12 fyrir hvert
flugtak og á utanlandsferðum
hækkar hann um 43% eða úr 112
krónum í 160.
króna á útflutningi og 3,5 millj-
ónir króna á innanlandssölu, eða
samtals 16,2 milljónir króna.
Þetta kom fram í ræðu Iljartar
Eiríkssonar. framkvæmdastjóra
iðnaðardeildar SfS, á fundi á
Akureyri í gær, sem iðnaöar-
deildin. Iðja. félag verkafólks, og
Starfsmannafélag verksmiðja
sambandsins efndu til. Sagði
Iljörtur að ef ekki fengjust viðun-
andi úrbætur á næstunni væri
fyrirsjáanlegt að draga þyrfti
mjög úr starfseminni og segja
upp starfsfólki i stórum stil,
jafnvei i hundraðatali.
Fundarefnið var: Hætta á lokun
mikilvægra deilda hjá Iðnaðar-
deild Sambandsins innan tíðar að
óbreyttum forsendum fyrir út-
flutningsiðnaði. í fundarboði var
þess getið, að áföllin snerta 700
starfsmenn beint og óbeint auk
ófyrirsjáaniegra afleiðinga fyrir
framtíð iðnrekstrar SÍS, sem á
síðasta ári átti 43% af öllum
útflutningi á ullar- og skinnavör-
um.
í fundarlok var samþykkt sam-
hljóða ályktun, þar sem m.a. er
skorað á stjórnvöld að sjá til þess
að bæði útflutnings- og sam-
keppnisiðnaði verði tryggður við-
unandi rekstrargrundvöllur.
Sjá: „„Erum við að missa
vinnuna?“ í miðopnu.
Einmuna veðurblíða
Neskaupstaó. 1. septcmhcr.
IIÉR hefur verið sannkallað
„Mallorcaveður“ í rúma viku og
liggja menn nánast afvelta eða
eru „topplausir". þurfi þeir að
vera á hreyfingu. I dag er hitinn
24 stig í forsælu, en 40 I sólinni og
„svartakoppalogn“ eins stundum
er sagt hér.
Síðustu 10 daga hefur þessi
langþráða veðurblíða glatt okkur
Norðfirðinga, ekki hefur hreyfst
hár á höfði manna í logninu og
bændur hafa rifið inn heyið síð-
ustu daga, enda muna menn varla
aðra eins samfellda veðurblíðu hér.
Oft koma hér örfáir slíkir dagar
inn á milli austanáttarinnar og
þokunnar, sem svo mjög hefur
herjað á okkur í sumar, svo okkur
finnst tími til kominn að fá að
njóta sólarinnar.
Að öðru leyti gengur allt sinn
vanagang og sjómennirnir moka
upp flestum tegundum af fiski eins
reyndar hefur verið í allt sumar.
Ásgeir